Vísir - 26.04.1963, Qupperneq 5
V í SIR . Föstudagur 26. apríl 1963.
5
Sigurður Benediktsson býður upp einn dýrgripinn.
ir vilja kaupa
en enginn selja
— Það undarlega er„ sagði
Sigurður Benediktsson, að þeg-
ar allt verðlag er á toppi og
málverk, listmunir og gamlar
fágætar bækur seljast hærra
verði en nokkru sinni fyrr þá
kippa menn að sér hendinni og
hætta að selja, Ég skil þetta
ekki, bætti Sigurður við, skilur
þú það?
— Nei, ég skil það ekki
heldur. ,
— Fólk er svo undarlegt!'
Það er engin leið að botna
neitt í þvf. Maður skyldi ætla,
að einmitt nú þegar hátt verð
er í boði, myndi það sækjast
eftir að selja það sem það vill
verða af með en það virðist
vera annað upp á teningnum.
Fram að þessu hefur verið
nægilegt framboð bæði á göml-
um bókum og listmunum og
stundum þannig að óþarflega
stutt hefur verið milli uppboð-
anna. Það sem af er þessu ári
hef ég haldið eitt — segi og
skrifa — eitt einasta málverka-
uppboð en ekkert bókauppboð.
Þetta hefur aldrei komið fyrir
hjá mér áður.
— Fékkstu hátt verð fyrir
málverkin á slðasta uppboðinu
þínu?
— Málverk hafa aldrei selzt
á hærra verði en einmitt þá.
Sem dæmi skal ég nefna þér að
þá seldist málverk eftir Gunn-
Iaug Blöndal fyrir 31 þúsund
krónur. Þvílíkt verð hefur
aldrei fengizt fyrir mynd eftir
hann til þessa. Annars má
segja það um myndir hans að
þær hafa að undanförnu verið
í ört hækkandi verði. Myndir
hans og blómamyndir Kristínar
Jónsdóttur hafa hækkað hvað
mest allra málverka. Ég held
t. d. að blómamyndir Kristínar
hafi ferfaldasí að verðgildi á
skömmum tíma. ' ‘
—- Ilvaðá máívefk seljast
annars hæztu verði?
— Ásgrímur, Jón Stefánsson
og Kjarval eru þar í sérflokki.
Það er örugglega hægt að
reikna með háu verði fyrir
mynd eftir hvern þeirra sem er.
— Færðu stundum fleiri en
eitt málverk frá hverjum stað
á uppboðin þín?
— Það er ákaflega misjafnt.
Það er miklu oftar að það eru
eitt eða tvö málverk frá hverj-
um einstakling, en stundum
líka fleiri. Og frá einu dæmi get
ég sagt þér þar sem hjón
hringdu til mín og báðu mig
að taka öll málverkin sín á upp-
boð. Þau voru orðin þreytt á
þeim og vildu endurnýja safn-
ið sitt, fá ný málverk í staðinn
Þetta málverkasafn hjónanna
nægði mér á heilt uppboð. Dag-
inn eftir sóttu þau 90 þúsund
krónur til mín. En þetta var á
þeim árum sem krónan var
meira virði en nú. Þá þótti
mikið að fá 10 þúsund krónur
fyrir eitt málverk. Nú er það
engin goðgá að fá 30 þús. kr.
eða jafnvel meir fyrir eina slíka
mynd.
— Auk málverka og bóka
selurðu skartgripi ýmsa og list-
muni?
— Það er sjaldgæft að ég
haldi sérstök uppboð með list-
munum einum, en mjög oft á-
samt málverkum. Ef um góða
og fallega gripi er að ræða fara
þeir oft á geypilegu verði, ekki
síður en málverk eða bækur.
— Hvenær byrjaðirðu á
þessum uppboðum?
^ Ég efndi-til þess fyrsta 2.'-
maf 1953. Og á þessu 11 ára
tímabilí nef ég haldið samtals
95 uppboð. Ég vonast til að
100. uppboðið verði fyrir n. k.
áramót. Þetta hafa ýmist verið
bóka- eða málverkauppboð.
— Þú segist ekkert bókaupp-
boð hafa haldið enn á þessu ári?
— Um þetta eru allir að
spyrja, sumir í síma, aðriir sem
hitta mig úti á götu. Nei, síð-
asta bókauppþoð hélt ég fyrir
jól, en þá fékkst mjög hátt
verð fyrir bækur enda góðar
bækur í boði. Meðal annars má
nefna að Sýslumannaæfin, sem
voru slegnar fyrir 7 þúsund
krónur, en það er miklu hærra
verð en nokkru sinni áður hefur
fengizt fyrir þær. Svipuðu máli
gegndi um ýmsar aðrar bækur
sem þá voru seldar. Það voru
ekki nema 52 bækur á nppboð-
inu. Þær voru allar frá sama
manni og fyrir þær fékk hann
um 60 þúsund krónur, eða á
2. þús. kr. fyrir hverja bók til
jafnaðar. Þrátt fyrir þetta fæst
enginn til að láta bók á uppboð
lengur, enda þótt ég hafi mikið
auglýst eftir gömlum bókum
svo og málverkum og listmun-
um. Líklega er fólk orðið svo
ríkt að það munar ekki neitt
um 60—70 þúsund krónur.
Það vill heldur eiga skræðurn-
ar.
— Finnst þér að áhuginn á
uppboðunum hafi rénað?
— Ekki hjá kaupendunum,
síður en svo. Þeir eru alltaf að
spyrja og þeir virðast eiga næga
peninga til að kaupa fyrir. En
þetta er ekki nóg. Einhverjir
verða að fást til að selja, ef af
uppboðunum á að geta orðið.
— Eiga bókasafnararnir í
landinu ekki nóg af tvítökum til
að selja?
— Frá bókasöfnurum hef ég
aldrei fengið nema fánýtt rusl.
Ef þeir eiga sæmilega bók í tví-
t'áli, láta þeir hana alls ekki á
uppboð — þá vilja þeir skipta
á henni og fá einhverja góða
bók í staðinn. Beztu bækurnar,
sem á uppboð koma, eru oftast
úr dánarbúum, þar sem erfingj-
arnir hafa ýmist ekki áhuga á
bókunhm, geta ekki komið sér
saman um skiptin eða þurfa á
peningum að halda.
Annars er það um bækur frem
ur en um marga aðra muni, að
þær komast smám saman úr
umferð og í hendur safnara eða
annarra fastheldinna manna.
Fyrir bragðið verður minni
hreyfing á fágætum og dýrmæt-
um bókum með hverju árinu
sem líður.
— Er þá ekkert uppboð fram
undan hjá þér í vor?
— Jú, það vona ég. Ég er
búinn að fá sæmilegan kjarna í
málverkauppboð, þarf aðeins
nokkra góða muni til viðbótar,
annað hvort málverk eða skraut
muni. Um bækur gegnir að visu
nokkuð öðru máli, þar hef ég
aðeins nokkurt hrafl og þar á
meðal nokkrar góðar og fágætar
bækur. Samt vonast ég til að
geta haldið bókauppboð áður en
langt um líður, ef mér berst
einhver viðbót upp í hendurnar.
— Hvenær býstu við að þessi
uppboð verði haldin?
— Ekki seinna en I næsta
mánuði. Það er varla hægt að
búast við að af þeinvgeti orðið
í þessum mánuði úr þessu. Oti-
lokað er það þó ekki, t. d. ef
einhver vildi selja bókasafn, eða
nokkur málverk. Það er hægt
að undirbúa og skipuleggja upp
boð á þrem dögum ef svo ber
undir.
Rafsuðu — Logsuðu vír —
Vélar — Varahlutir
fyrirliggjandi.
Þ. ÞORGRÍMSSON & Co.
Suðurlandsbraút 6.
Sími 2 22 35.
Bjóðum yður
ALLSKONAR VÁTRYGGINGAR
Vekjum sérstaka athygli á
Hagkvæmum slysatryggingum
og
Hinni nýju bifreiðadeild
*
AÐALSKRIFSTOFAN 4 HÆÐ
BIFREIÐÁDEILD GÖTUHÆÐ
GÓÐ BlLASTÆÐI
Simar: 15434 og 16434
Hafnarfjörður
Ungling vantar til að bera út Vísi. Uppl. frá
kl. 19,30—20,30 í síma 50641. Afgreiðslan
Garðaveg S.
Laugavegi 178