Vísir - 10.05.1963, Blaðsíða 8
8
VÍSIR . Föstudagur 10. maí 1963.
VtSIR
Utgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjðrar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og -^greiðsla Ingóifsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
I lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 iínur).
Prentsmiðja Vlsis. — Edda h.f.
Sigurinn i landhelgismálinu
Það er nauðsynlegt að menn átti sig á því hvílíka
stórfellda svikasamninga Framsóknarmenn og komm-
únistar undirbjuggu í landhelgismálinu 1958.
Þeir voru búnir að tefla málinu í algjört óefni.
Forustuna hafði Hermann falið Lúðvík Jósefssyni.
Hann stýrði málinu þannig að það gæti orðið fleygur
milli fslands og vestrænna vinþjóða þess, og sér í lagi
Breta. Allt var gert til þess að skerpa misklíð, við-
ræðum neitað og ekkert gert til þess að forða árekstri.
Síðan átti að varpa fjöreggi þjóðarinnar í fang Sovét-
ríkjanna, þegar í algjört óefni væri komið — og biðja
þá um að vernda hina nýju íslenzku landhelgi fyrir
brezku herskipunum.
Þannig var laumuspilið lagt á Túngötu 9. Þannig
átti að ná tangarhaldi á hinni íslenzku þjóð — gera
hana fyrst fráhverfa vinum sínum og slá síðan yfir
hana hinum rauða feldi.
Á elleftu stundu bráði af Framsóknarmönnum og
þeir kváðu sig fúsa til þess að ganga til samninga við
Breta. Og það voru stórmannleg boð, sem þá voru
rétt fram á silfurdiski. Afnot af öllum ytri 6 mílunum í
3 ár, samtals yfir 20 þús. ferkílómetrar. Af samningum
varð ekki, en þess mun lengi minnzt hve langt vinstri
stjómin var fús til þess að ganga.
Síðan hrökk Hermann úr stjórninni, eftir að hafa
sagt að óðaverðbólga væri skollin yfir, og landhelgis-
málið var skilið eftir í hinu mesta óefni. Það var ekki
fyrr en viðreisnarstjórnin kom til skjalanna að málið
var leyst. Og þá á grundvelli fjórum sinnum minna
svæðis en vinstri stjómin vildi semja um. Þá urðu
framsóknarmenn grænir af öfund og þeir hafa ekki
náð sér enn. En þjóðin fagnaði hinum hagstæðu samn-
ingum, sem hreinsuðu landhelgi okkar af erlendum
bryndrekum.
I Þeir samningar eru nú útrunnir eftir f áa mánuði og
eigum við okkar 12 mílna landhelgi óskoraða. Þá hefir
fullur sigur unnizt í landhelgismálinu. Hann mun ekki
þakkaður þeim sem hlupu frá vandamálinu óleystu,
heldur rikisstjóm Ólafs Thors, sem fann beztu lausn
ina. Landhelgismálið er einn hennar stærsti sigur og
hans mun lengi minnzt.
Sárreiðir „bændavinir"
Lengi hafa Framsóknarmenn setið í ríkisstjórn. En
hver minnist þess að þeir hafi nokkru sinni lækkað
tolla eða skatta á vinum sínum bændunum? Það er
ekki fyrr en þessi ríkisstjórn kemur til valda að hagur
bænda vænkast. Tollar á landbúnaðarvélum, sem nauð
synlegar em á hverjum sveitabæ, eru nær afnumdir.
Tugþúsundir sparast fyrir hvem bónda. Og framsókn-
armenn halda áfram að nöldra.
I filju mjólkursölu í
mutvðruverzlunum
«
í gremargerð Neytendasam-
takanna um lokunartfma sölu-
búða, sem sagt hefur verið frá
f Vfsi er m. a. minnzt á athug-
anir, sem fram hafa farið á skil-
yrðum til sölu mjólkur í mat-
vörubúðum og heimsendingu
mjólkur. Hefur Sveinn Ásgeirs-
son, formaður stjórnar Neyt-
endasamtakanna skýrt Vfsi nán-
ar frá þessum, athugunum.
Fyrir nokkrum árum kaus
borgarstjóm nefnd segir Sveinn,
til að athuga skilyrði til hqim-
sendingar mjólkur og varð nið-
urstaða athugunarinnar sú, að
rétt væri að bfða eftir hinum
væntanlegu pappahyn\um. Létu
forsvarsmenn Mjólkursamsöl-
unnar að því liggja, að þá myndi
heimsendingarvandamálið leys-
ast að nokkru af sjálfu sér, þar
eð matvöruverzlanir gætu þá
auðveldlega seld mjólk og sent
hana til neytenda ásamt öðrum
vörum.
Æ>.
MIKILVÆG ÞJÓNUSTA
Nú er orðið alllangt síðan
mjólk, rjómi og súrmjólk í
pappahyrnum kom á markaðinn,
en ekki er unnt að segja að
þar með hafi heimsendingar-
vandamálið leystst að sjálfu sér,
Því fer fjarri.
Ýmsar verzlanir hafa leitað
aðstoðar Neytendasamtakanna
til að fá að láta neytendum þá
þjónustu í té að selja mjólk,<*>
ekki sfzt þær sem leyfi hafa til
kvöldsölu. Neytendasamtökin
hafa fullan hug á því, enda
myndi það tákna aukna þjón-
ustu við neytendur og lögðu
Neytendasamtökin sérstaka á-
herzlu á þetta atriði í umsögn
sinni til borgarráðs um lokunar-
tfma sölubúða.
Hafa bréfaskipti farið á milli
Neytendasamtakanna og Mjólk-
ursamsölunnar um þetta mál, en
Mjólkursamsalan, sem einkarétt
hefur á allri mjólkursölu í
Reykjavík vill ekki gefa sam-
þykki sitt og ber því m. a. við,
að hún sé mótfallin þvf að senda
mjólk eina sér f verzlanir, við-
skiptavinir eigi að fá allar mjóik
urafurðir á sama stað. Einnig
myndi dreifingarkostnaður auk-
ast.
Æ
ÁN UMBjOÐSLAUNA
Neytendasamtökin vilja ekki
viðurkenna þetta sem nægileg
rök. Eins og er eru umbúðir á
öllum mjólkurafurðum nema
skyri þannig að vel er unnt að
selja þær í matvörubúðum. Auk
þess vilja matvöruverzlanir selja
mjólk án nokkurra umboðs-
launa, kaupa hana á venjulegu
útsöluverði og selja hana á því
verði til neytenda. Þess skal þó
getið að f þeim hverfum, sem
engar mjólkurbúðir eru hefur
Mjólkursamsalan með mikilli
tregðu fallizt á að leyfa mat-
vöruverzlunum sölu á mjólk.
Með þvf að neita matvöru-
verzlunum um sölu á mjólk er
útilokað að heimsendingarvanda
málið geti leystst af sjálfu sér.
Or því að Mjólkursamsalan álít-
ur að dreifingarkostnaður myndi
svo mjög aukazt við að leyfa
matvöruverzlunum sölu á mjólk
er ekki líklegt að hún Ieggi út
f mjólkurflutning til neytenda
beint frá mjólkurstöð, sem
myndi hafa mikinn kostnað í
för með sér bæði fyrir Mjóik-
ursamsöluna og neytendur.
Ef matvöruverzlanir tækju að
sér þessa þjónustu gæti svo far-
ið að mjólkurbúðir yrðu óþarf-
Eins og undanfarin sumur
mun Þjóðkirkjan reka sumar-
búðir fyrir börn. Munu búðirn-
ar að þessu sinni verða tvær,
að Kleppjárnsreykjum í Borgar-
firði, þar sem Þjóðkirkjan hafði
starfsaðstöðu' í fyrsta skipti i
fyrra í nýjum og glæsilegum
heimavistarskóla sveitarinnar,
og að Löngumýri í Skagafirði.
En á Löngumýri stóð vagga
sumarbúðastarfs Þjóðkirkjunn-
ar og hafa verið sumarbúðir
þar á hverju sumri nema f fyrra.
Fröken Ingibjörg Jóhannsdóttir
ar með öllu og liggur í augum
uppi að að því yrði sparnaður
svo að milljónum króna næmi.
Æ.
ALLAR VERZLANIR
EÐA ENGIN
Vísir hefur haft samband við
Stefán Björnsson forstjóra
Mjólkursamsölunnar og spurt
hann um mál þetta.
Sagði hann, að þetta væri
stórt mál og yfirgripsmikið. —
Mjólkursamsalan hefur enga
markaða stefnu um alla framtíð,
viðhorfin geta breytzt mjög.
Mjólkursamsalan vill ekki velja
úr neinar sérstakar verzlanir til
að annazt sölu á mjólk, annað-
hvort eiga allar verzlanir að fá
mjólkursölu eða engin. Sagði
Stefán útilokað að matvöruverzl
anir gætu tekið að sér mjólkur
sölu án nokkurra umboðslauna,
það væri alltof mikill kostnað-
ur fyrir verzlanir. Hvað heim-
sendingarvandamálinu viðkemur
þá er enginn grundvöllur fyrir
þvf í Reykjavík. Að koma upp
slíku kerfi er alltof kostnaðar-
samt.
hefur gefið kirkjunni Löngu-
mýri og var rekinn þar hús-
mæðraskóli í vetur.
Sumarbúðirnar að Kleppjárns
reykjum hefjast þ. 19. júnf og
verða f fjórum flokkum, sem
hver stendur í tvær vikur.
Verða drengjaflokkar fyrst, en
síðar tveir flokkar fyrir telpur.
Á Löngumýri verða tveir flokk-
ar, drengjaflokkur, sem hefst
þ. 4. júlí og telpuflokkurinn
hefst þ. 19. júlí. Dvalarkostnað-
ur verður kr. 850.00 fyrir flokk-
Framh. á 10. síðu.
Heimsending útilokuð
— segir Samsalan
Sumarbúðir
Þ j óðkirk j unnar