Vísir - 16.05.1963, Side 10
10
V1SIR . Fimmtudagur 16. maí 1963.
y
írskur galdrakarl —
sP%nselur 8/m«Soa
- BIFREIÐASÝNING í DAG -
Ford Consul ’62
Opel Record ’60
Chevrolet St. ’55
Opel Record ’62
Selst gegn fasteignatr. bréfum
Chevrolet 2 dyra ’55
VW ’59
Chevrolet 48 og ’49
Mercedes Benz 180 48—49
Ford Anglia 55 sendibíll
VW ’57
Fiat St. ’60
VW ’61
Landbúnaðarjeppi ’54
Ford St. ’54, 4 dyra.
VW rúgbrauð, sæti fyrir 8
Ýmis skipti koma til greina.
Volvo St. ’55
Skoda 440 ’57
Ásamt öllum eldri árgerðum af
4 og 5 manna bilum, Reno, Aust
in, Morris, Hillmann, Vauxhall,
Ford Prefect, Ford Yunior.
Aliir árgangar af vörubílum.
Gjörið svo vel, komið, skoðið
bílana.
BIFREJÐASALAN
Borgartúni 1.
Simar 18085 og 19615
Húseigendur
Er hitareikningurinn öeðlilega
hár? Hitna sumir miðstöðvar-
ofnar illa? Ef svo er, þá get ég
iagfært það.
Þið, sem ætlið að láta mig
hreinsa og lagfæra miðstöðvar-
kerfið í vor og sumar, hafið
samband við mig sem fyrst.
Ábyrgist góðan árangur. — Ef
verkið ber ekki árangur þurf-
ið þér ekkert að greiða fyrir
vinnuna.
Baldur Kristiansen
pípulagningameistari
Njálsgötu 29 — Sími 19131
SÆNGUR
1 ýmsum stærðum. — Endur-
nýjum gömlu sængumar.
Eigum dún og fiðurheld
ver.
Dún- og fiðurhreinsun
Kirkjuteig 29 . Sími 33301
Framhald at bls. 9:
segja mér ganginn í fjórum eða
fimm öðrum pantomimes, þrem-
ur leikritum og auk þess skáld-
sögu, sem hann er með í smíð-
um. Ég man ekki greinilega,
hvað gerðist í hverju verkinu,
en þarna voru undrageitur og
kynjadýr af ýmsu tagi, róbot
frá Marz — hann varð ástfang-
inn af jarðneskri stúlku og ást-
arjátningarnar komu eftir ein-
hvers konar Morse-kerfi á papp-
írsrúllu út úr brjóstinu á hon-
um — og viðburðirnir hver
öðrum óskiljanlegri.
Nauðsyn að gera
brjálaða hluti.
Tómas syngur og dansar og
leikur öll hlutverkin í einu. Það
er farið að draga af mér við
að horfa á þetta ofboðslega
lífsfjör.
„Ekki virðist þig skorta
ímyndunarafl, hvað sem öðru
Iíður“, styn ég á endanum,
þegar lokið er leikriti um hálf-
vitlausan ofvita og þrjá geð-
sjúklinga, sem koma í heimsókn
til hans og finna upp ráð til að
bjarga heiminum.
„Það er írskur eiginleiki",
svarar Tómas. „Skáldsagan
mín á að gerast á járnbrautar-
stöð. Og ég er að skrifa leikrit,
sem á að heita: „Love Thy
Neighbour““.
„Er það eitthvað um sam-
vizku mannsins gagnvart heim-
inum, eins og allir eru að skrifa
leikrit um núna?“
„Nei, ekki beint. Ég vildi
gjarnan. skrifa um atómsprengj-
ur og Efnahagsbandalagið, en
veit ekki nóg um það enn. Ég
er þekktur fyrir að semja fanta-
síur“.
„Því trúi ég vel“.
„Og líka fyrir að sviðsetja
alls konar furðulegar sýningar.
Ef einhver fer t.d. allt í einu
upp til himnaríkis — eða niður
til vítis — í leikriti, er ég
venjulega látinn stjórna því.
Það er nauðsynlegt að geta gert
brjálaða hluti, galdra og svo-
leiðis".
„Og þá kemur sér vel að eiga
galdranorn fyrir ættmóður".
„Já, en samt er ég nógu
normal og mannlegur til að
Ianga stundum að fara til lands,
þar sem aldrei hefur þekkzt
leikhús eða leikarar, engin blöð
koma út, bækur ekki til, kvik-
myndir þvi síður — engin svo-
kölluð siðmenning".
Hann er líka ljóðskáld og.
mælir meira að segja vísur af
munni fram, þegar sá gállinn er
á honum. Helzt á írsku, en hann
er jafnfær f ensku.
„Segðu mér nú snöggvast,
hvað þú hefur ekki gert — það
er fljótlegra", gríp ég fram í,
þegar hann er í miðjum ljóða-
bálki.
Saga —
Framh. af síðu 4
er 10 daga ferð til írlands.
Fyrsta daginn er flogið frá
Rvík til Dublin með stuttri við-
stöðu í Glasgow. Gisting og
morgunverður. 2.—7. dagur:
Ferð með langferðabíl um feg-
urstu héruð írlands. Gisting
og allar máltíðir meðan á ferð-
inni stendur. 8. dagur: Dvalið
í Dublin. Gisting og morgun-
verður. 9. dagur: Flogið frá
Dublin til Glasgow. Gisting og
morgunverður. 10. dagur: Dval-
ið i Glasgow fyrri helming
dagsins, en flogið síðan til
Reykjavíkur.
Hefur Saga gefið út bækling
um þessar IT-ferðir sínar, auk
þess sem hún gefur allar nánari
upplýsingar um þær.
BIFREIÐASALAN
„Já, það er þrennt". Hann
telur á fingrunum. „Ég hef
ekki skrifað leikrit, sem hefur
slegið í gegn á alþjóðlegum
vettvangi — en ég á það eftir
—- ég hef ekki drukkið mig
fullan, og ég hef ekki komið
til Bandaríkjanna".
Tvær óskir.
Hann hallar sér aftur og verð-
ur skáldlegur á svipinn. Ég
vona með sjálfri mér, að inn-
blásturinn verði á ensku, en
ekki írsku.
„Einu sinni var ég hér um
bil dáinn úr Iungnabólgu", seg-
ir hann óvænt. Hann kinkar
kolli með áherzluþunga. „Já, þá
fór ég að hugsa, hverju ég
myndi sjá mest eftir, ef ég dæi.
Og komst að þeirri niðurstöðu,
að mér þætti verst að hafa
aldrei orðið ástfanginn, aldrei
átt börn og aldrei ferðazt út
fyrir írland. Nú, ég dó ekki,
heldur lifnaði við aftur. Og ég
hef kynnzt ástinni — ég elska
konuna mína. Ég á þrjú börn:
tvo drengi og eina telpu. Hún
er alveg vitlaus, stelpan, fimm
ára gömul, og þær sögur, sem
krakkinn býr til og telur kenn-
aranum sínum og öðrum trú
um! Hún hefur aldeilis hreint
villt ímyndunarafl... ég veit
ekki, hvert hún sækir þessa ó-
náttúru. Sú held ég, að búi til
lygasögurnar um mig, meðan
ég er í burtu. Já, hvað var ég
að segja? Jú, og ég hef líka
ferðazt víða. En nú á ég tvær
óskir i viðbót. Mig langar að fá
sönnun, sem nægir mér per-
sónulega, að Guð sé til. Og að
það sé líf eftir dauðann. Þetta
eru hlutir, sem maður verður
sjálfur að sannreyna innra með
sér, svo að þeir vermi mann
eins og hlýtt Ijós, sem aldrei
slokknar. JHugsaðu þér, hvað
það hlýtur að vera dásamlegt
að finna Guð innan í sér og alls
staðar. Hvílík reynsla!"
Hann situr kyrr áreiðanlega
einar tíu sekúndur. Svo sprettur
hann upp aftur. „Skrifaðu nú
samt ekkert hræðilegt um mig.
Þú mátt það ekki — ég fæ ein-
hvern til að þýða það fyrir
mig, svo að ég kemst að öllu“.
„Ætli þú megir það. Ef ég
skrifa svona einn tíunda af því,
sem þú hefur sagt, halda allir,
að þú sért snarvitlaus".
Hann verður hugsi. Svo bros-
ir hann og veltir vöngum. „Ja,
hver veit? Kannske er ég það!“
— SSB
Frá Rínarhéruðum, sem Ferðaskrifstofan Saga efnir til ferða til.
Laugavegi 146. — Símar 11025 og 12640
BIFREIÐAEIGENDUR:
Við "iljum vekja athygli bíleigenda á, að við höfum
ávallt rc .upendur að nýjum og nýlegum FÓLKSBIF-
REIÐUM, og öllum gerðum og árgerðum af JEPPUM.
Látið RÖSl því skrá fyrir yður bifreiðina, og þér getið
treyst því, að hún selzt mjög fljótlega.
KAUPENDUR:
Nýir og ýtarlégir verðlistar liggja frammi með um
700 skráðum bifreiðum, við flestra hæfi og greiðslu-
getu. — Það sannar yður bezt að RÖST er miðstöð bif-
reiðaviðskiptanna.
— RÖST REYNIST BEZT —
RÖST S.F.
Laugavegl 146. — Símar 11025 og 12640
Soffía Loren komst í „stuð“
fyrir skemmstu. Klædd eins
og dóttir rómversks keisara
tók hún að dansa eins og óð
væri — hvort það var twist,
rock, limbo, bossa nova eða
einhver annar dans, vitum við
ekki.
Soffía komst i „stuðið“ i
hléi, sem gert var á töku
kvikmyndarinnar „Fall róm-
verska keisaradæmisins“, sem
um þessar mundir fer fram á
Spáni, rétt fyrir utan Madrid.
Soffia Ieikur Lucillu dóttur
Marcusar Árelíusar.
„Stuðið“ breiddist út og
stjórnendur, tæknifræðingar,
aðstoðarmenn og margir fleiri
þustu að til að horfa á dans-
inn og sumir tóku þátt f hon-
um. Upptakan tafðist nokkuð
og má gera ráð fyrir að fram-
Ieiðandinn Samuel Bronston
hafi orðið fyrir dálitlu tapi,
því að á meðan stjaman dans
aði, biðu um 3000 „statistar“
í skrautvögnum með hestum
spenntum fyrir.
En Bronston sagði aðeins:
„Ánægðir leikarar gera stór-
kostlega mynd“.
Pólverjar flytja mikið af
kolum til Rússlands.
Nú gongur eftirfarandi gáta
í Varsjá:
— Hvaða munur er á orku-
lindunum tveimur — sólinni
og koiunum?
Svarið: — Sólin hreyfist i
vestur en kolin í austur.
Soffía Loren
.iaaiiinMiwtiiii
■muu ji
tmæ>