Vísir - 25.05.1963, Blaðsíða 1
VÍSIR
53. árg. — Laugardagur 25. maí 1963. — 117. tbl.
ÍSLENDINGAR FREMST
IR í SlLDVEIÐITÆKNI
Jakob Jakobsson fiski- irlestur á hinni alþjóð- arstofnunar Sameinuðu ;
fræðingur er eini íslend- legu fiskveiðaráðstefnu þjóðanna, sem hefst í /
ingurinn, sem flytur fyr- Matvæla- og landbúnað- Framhaid á bis. 5. \
ÞRtrÖLD A UKNINC IBÚDAR-
LÁHANHA l/NDIR VIÐREISN
Aldrei hefir verið meira fé lánað til íbúðar-
bygginga en eftir að viðreisnarstjórnin tók við
völdum í landinu. Nær þrisvar sinnum hærri upp-
hæð hefir verið lánuð til íbúðabygginga á tíma
stjórnar Ólafs Thors en var á dögum vinstri stjóm-
arinnar. Þá námu lánin alls 116 millj. króna. Við-
reisnarstjórnin hefir hins vegar útvegað lánsfé til
húsbygginga að upphæð 301 millj. króna.
Tölurnar um meðaltalslán á mánuði segja hér
sömu söguna. Á tímum vinstri stjórnarinnar voru
að meðaltali lánaðar 3.9 millj. kr. á mánuði. Frá
upphafi stjórnar Ólafs Thors til ársloka 1962 var
Iánað að meðaltali 6 millj. króna á mánuði. Það
hlutfall hefir enn aukizt síðan.
Meira fé hefir verið veitt til íbúðarlána á þessu
ári en nokkru sinni fyrr. 85 millj. krónum hefir
þegar verið úthlutað og er þó seinni úthlutunin
eftir að fara fram. í fyrra voru 86 millj. króna lán-
aðar allt árið.
Þessar staðreyndir sýna, að núverandi ríkis-
stjórn hefir unnið ólíkt meir að því að útvega íbúð-
arbyggjendum lánsfé en samstjórn kommúnista og
framsóknar, sem hrökklaðist frá völdum 1958.
VERK VIÐREISNARINNAR
Undirstaða íbúðarlánanna er
húsnæðismálalöggjöfin, sem rík
isstjóm Ólafs Thors setti 1955.
Um þá iöggjöf sagði Einar 01-
geirsson í þingræðu sama ár:
„Þegar húsnæðismálalöggjöfin
var samþykkt á síðasta þingi
var það stórkostlegt spor aftur
á bak frá því sem verið hafði.“
Þetta er hugur kommúnista
til aukningar íbúðariánanna og
hinnar merku löggjafar um hús-
næðismálastjóm, sem veitir hús
byggjendum ýmsa þjónustu fyr-
Lán til íbúðabv<;qinq&
Vinstn sþorn
116 millj.
Vi/íreisnarstjórn
1 millj.
ir utan lánveitingarnar.
Þegar vinstri stjórnin tók við
heyrðu húsnæðismálin undir
Hannibal Vaidemarsson. Hann
gumaði mjög af því að auka
ætti stuðninginn við húsbyggj-
en1u.. Þau Ioforð voru öll svik-
in, og lánsfjármagnið var nær
helmingi minna á mánuði en f
tið núverandi rfkisstjómar, eins
og að framan greinir eða aðeins
3.9 millj. kr. á mánuði. Þrátt fyr
ir geipið fyrir kosningar gerði
Hannibal ekkert af þessu:
1) Hann lækkaði ekki vextina.
2) Hann lengdi ekki Iánstfma
fbúðarlána.
3) Hann Iagði ekki veðlánakerf-
ið niður.
Allt þetta höfðu þó hann og
kommúnistar heimtað að gert
yrði fyrir kosningar. Og síðan
viðreisnarstjórnin tók við hefir
ekki linnt látunum í málgögn-
um kommúnista og Framsókn-
ar um að vextir væm lækkaðir.
En meðan þeir sátu f stjórn
hreyfou þeir ekki við þeim.
Það vom Sjálfstæðismenn á
þingi, sem komu þvf til leiðar
að eigin vinna manna við eigin
íbúðir yrði skattfrjáls. Það
vom Sjálfstæðismenn, sem
höfðu forgöngu um húsnæðis-
málalöggjöfina, sem er undir-
staða íbúðarlánanna í dag. Það
var rfkisstjórn Ólafs Thors, sem
aukið hefir íbúðalánin stórlega,
eins og getið er um hér að fram
an. Þessar eru staðreyndir máls-
ins. Áfram verður haldið á þess-
ari braut ef viðreisnarstefnan
verður enn við Iýði í landinu á
næstu ámm.
Sléttasti flugvöllurinn
sagði Þorsteinn Jónsson flugmaður eftir
að hann lenti Sólfaxa á hafísbreiðu
í síðustu viku flaug Sólfaxi
með danskán vísindaleiðangur
norður f Peary-Iand nyrst í Græn
Iandi og hefur íslcnzk flugvéi
aldrei lent svo norðarlega. Flug-
vélin flutti þangað hinn fræga
danska visindamann Eigil Knuth
greifa og fjóra fylgdarmenn hans
ásamt fimm tonnum af vistum
og útbúnaði.
Staður sá sem flugvélln lenti
á heitir Brönlundsf jörður. Þar er
enginn flugvöllur, en ákveðið
var að lenda á sterkum Iagnaðar
ís á firðinum. Flugstjóri var Þor
steinn E. Jónsson og segir hann
að ísinn hafi verið svo sléttur,
að hann hafi ekki fyrr lentt á
svo sléttum flugvelli.
Enda tókst lendingin með á-
gætum. Eftir að vélin hafði
stöðvazt úti á ísnum var henni
ekið eftir hjarninu, alveg upp að
bækistöð leiðangursins Brön-
Iandshúsi og þar var hún afhlað-
in.
Staður þessi er á 83 gráðu
norðlægrar breiddar og er þá
aðeins eftir um 700 km leið norð
ur yfir heimskaut. í áhöfn flug-
vélarinnar vom auk flugstjórans
Haukur Hlíðberg, Frosti Bjama-
son, Haraldur Stefánsson og
Steindór Jónsson.
Sigluffarðar-
skarð rutt
í d..g fyrir hádegi á að hefja
ruðning Siglufjarðarskarðs að
nýju.
Það var rutt rétt fyrir páska og
opnaðist þá fyrir umferð stutta
stund en lokaðist í hríðarveðrinu
mikla I páskavikunni. Síðan hefur
skarðið verið lokað, enda tlðarfar
nyrðra þannig að ástæðulaust hefur
verið að reyna að opna það. En
nú hefur skyndilega hlýnað óvana-
lega I veðri og menn vonast fast-
lega til að kuldarnir séu með öllu
úr sögunni.