Vísir - 25.05.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 25.05.1963, Blaðsíða 4
VlSIR . Laugardagur 25. mal nres. HEIMATILBÚIN SUMARHÚFA Svona er húfan f fullri lengd, höfS dálítið aftur á hnakka. Þetta er mjög hentugt fyrir þær sem hafa uppsett hár. Sú sem vill fá dálitið mýkri línur í húfuna getur tekíð hana út í aðra hliðina og fest „toppnum“ niður með nælu. Nú er hún orðin að matrósahúfu. Ca. 8 cm kantur er látinn standa stifur upp, hinu er ýtt niður að höfðinu. Nú geta allar, einnig þær sem eru vissar um að þær kunni alls ekkert að sauma, saumað sér húfu. Og húfan er bæði fljótgerð, ódýr og býður upp á marga breytingarmöguleika. Allt sem til hennar þarf er * . efntsbútnr (flauel, apaskinn og þykkt Jersey er hentugt, einnig er tilvalið að gera svona húfu úr afgangnum af kápunni eða dragtinni) 25 cm breiður og að lengd jafn ummáli höfuðsins + saum, jafnlöng og 12 cm breið flieselineræma og lítill perlu- skúfur, slaufa, dúskur eða hvað sem vera skal. Saumaður er strokkur og inn- an á kant hans er flieseline- ræman saumuð. „Toppurinn" er rykktur saman og skrautið fest á — húfan er tilbúin. Húfuna má svo hafa á ýmsan hátt, t. d. eins og meðfylgjandl myndir sýna. Grænmetið er komið Grænmetistegundunum á markaðnum fjölgar óðum og tvær þeirra sem þegar eru komnar eru salat og agúrkur. SALATIÐ: Það er ávani hjá mörgum að borða sykur með salati annað hvort eintóman eða í sykruðum sósum. Þetta er mesti óþarfi, sykurlausar salat- sósur geta verið alveg eins góð- ar og þær sykruðu. Hér eru uppskriftir af nokkrum sykur- lausum: Ediks-ollusósa: 3 matsk. olía, 1 matsk. edik, dálítill pipar og y2 tesk. af salti. Rjómasósa: 1 dl. súr rjómi, 3 matsk. rjómi (ósúr), V2 matsk. edik, y4 tesk. salt og örlítill pipar. Eggjasósa: 1 eggjarauða, 14 tesk. salt, örlitill pipar, 3 matsk. olfa og 1 matsk. edik. Ostasósa: 4 matsk. rifinn ostur, 3 matsk. rjómi, salt, pipar og paprika. Sinnepssðsa: 1 matsk. kryddað sinnep, 2 matsk. olía og y2 matsk. edik. Ef fjölskyldan fussar við þessu skuluð þið fyrir alla muni gefa henni sykur út á — en eins lítinn og mögulegt er. Að- alatriðið er að salatið sé borð- að. AGtJRKUR: Hafið þið nokk- urn tíma reynt að steikja ag- úrkur? Ef ekki, þá ættuð þið að reyna það. Fáið ykkur eins gilda agúrku og þið getið, afhýðið hana, sker- ið eftir endilöngu pg stráið salti yfir. Látið bitana liggja þannig um það bil hálfa klukkustund. Þurrkið hana þá og steikið á pönnu í smjöri unz hún er ljós- brún. Leggið hana nú á heitt fat, stráið osti yfir og hellið feit- inni af pönnunni yfir. Agúrkan er nú borin strax á borð og á- gætt er að bera fram með henni tómata eða tómatsósu. m o Cn Skyndihappdrætfi Sjálfstæðisflokksins ' BÍLARk Sleppið ekki fækifærinu — MÖGULEIKAR ilflll! ÁSTÆÐUR ‘ ‘‘ til þess að kaupa miða :::*::::::f:::*Mv. ★ Dráttur fer fram eftir fáeina l.v.y/.’v.'v/Xvj* daga. • • • • •••. ,v **:■:•:•:•:*: ★ Allir vilja eignast nýjan bfl. :•:•:•:•:•:• ★ TíI eflingar Sjálfstæðisflokknum. ••:::v:v:* ★ Til þess að gera sigur hans í kosningunum sem giæsiiegastan. ’ ★ Efling Sjálfstæðisflokksins er efling þjóðarhags. kaupið miða strax í dag l

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.