Vísir - 25.05.1963, Síða 5
VÍSIR . Laugardagur 25. maí 1963.
5
Síldveiði —
Framhald -.1 bls 1.
London n.k. mánudag
eins og áður hefur verið
getið hér í blaðinu, en
ráðstefnu þessa hefir
Hilmar Kristjánsson
deildarstjóri FAO í
Rómaborg undirbúið.
Jakob Jakobsson sagði Vísi,
að erindi hans væri lýsing á
síldveiðitækni íslendinga, eins
og hún er í dag, þar með talin
síldarleit á sjó og tír lofti. —
Hann sagði, að engri þjóð nema
íslendingum hefði tekizt að sam
eina kosti kraftblakkarinnar og
asdiktækjanna við síldveiðar,
a. m. k. færi enginn eins að og
við, og frá þessari árangursríku
veiðitækni ætlaði hann að skýra
á ráðstefnunni, sem flestallar
þjóðir heims sækja, svo og sýn-
ingu þá á veiðarfærum og kaup-
stefnu, sem haldin er í sam-
bandi við hana í London.
Jakob kvaðst mundu í erindi
sínu rekja nákvæmlega hvernig
vi ðfærum að við síldveiðar okk
ar, hvernig íslenzkir sjómenn
köstuðu hringnót eftir asdik-
tækjum sínum án nótabáta og
án þess að fara yfir sfldartorf-
una, sem væri frábrugðið að-
ferð Norðmanna, sem fyndu
torfurnar að vísu með asdiktækj
um um borð f veiðiskipunum,
en settu síðan út nótabáta með
minni asdiktækjum til nákvæm-
ari miðunar 2—300 metra frá
torfunni og réru þeim umhverf-
is torfuna og snurpuðu síðan.
Þetta er miklu vafningasamara
og seinlegra og þess vegna gátu
Norðmenn aldrei notfært sér
sömu mið og Islendingar s.l.
sumar, sagði Jakob.
Norðmenn nota sem sé ekki
kraftblökkina og ekki hringnót,
en kasta hins vegar á síld eftir
asdiktækjum, þótt hún vaði ekki
eins og við gerum. Aftur á móti
nota Amerikumenn kraftblökk-
ina og eru með hringnót, en
kasta ekki eftir asdiktækjum á
síld, sem ekki veður. íslending-
ar eru eina þjóðin, sem hefir
komizt upp á lag með að sam-
eina hina miklu kosti Asdiktækj
anna og kraftblakkarinnar.
„Það er langstærsta framfara-
sporið, r jm við höfum stigið í
síldveiðitækni okkar og á þvl
sviði eru íslenzkir sjómenn I
rauninni á undan öðrum síld-
veiðiþjóðum,“ sagði Jakob Jak-
obsson. „Þess vegna og vegna
síldarrannsóknanna hafa mjög
aukizt líkur fyrir því að síldar-
leysisárin séu úr sögunni svo
Iengi sem síldin er í sjónum,
þótt einstakar vertíðir geti að
sjálfsögðu brugðizt að meiru
eða minna leyti.“
Jakob fór til Bretlands urn
síðustu helgi og heimsækir fiski
I rannsóknastofnanir í Skotlandi
áður en hann fer til London.
Slys —
Framhald af bls. 16.
sjúkrahús. Hann mun ekki vera
lífshættulega meiddur.
Jón var að koma úr Silfurtúni
og ætlaði þvert yfir Hafnarfjarð-
arveg á strætisvagnabiðstöð hin-
um megin götunnar. Bíllinn var á
Ieið til Reykjavíkur. Bílstjórinn seg
ist hafa ekið á 45—50 kílómetra
hraða og hafi maðurinn komið
hlaupandi I veg fyrir bílinn. Þá hafi
hann hemlað og sveigt bíl sinn til
vinstri, en er vinstra framhjólið
hafi verið komið út af malbikun-
inni, hafi maðurinn skollið á hægri
hurð bílsins.
Skarðsmótið
Siglufirði í gær.
Hið árlega Skarðsmót, þ. e.
Skíðamót Siglfirðinga á sumri,
sem kennt er við Siglufjarðar-
skarð, verður haldið dagana 1. og
2. júní n. k.
Fyrri daginn verður keppt í
svigi £ öllum flokkum karla og
kvenna, en seinni daginn í stór-
svigi í sömu flokkum.
Eins og nú horfir er mikill og
góður skíðasnjór í skarðinu og eng
ar líkur fyrir þvf að hann sjatni
svo að ekki verði af mótinu.
Skarðsmótið hefur náð miklum
vinsældum meðal allra sem skíða-
íþróttir stunda og hvar á landinu
sem er. Þegar hafa borizt margar
þátttökutilkynningar, ekki aðeins
frá Siglufirði, heldur og frá
Reykjavík og Isafirði og búizt er
við þátttöku víðar að.
Ný framha!dssaga
Ástarævintýri í Rómaborg
Samtrygging botn-
vörpunga 40 ára
Samtrygging íslenzkra botnvörp
unga er 40 ára í dag. Það var Ólaf-
ur Thors, þáverandi formaður Fé-
lags íslenzkra botnvörpuskipaeig-
enda, sem lagði fram í félaginu í
janúar 1923 tillögu um stofnun
samábyrgðar. Var hún samþykkt
og undirbúningur strax hafinn með
aðstoð Gunnars Egilssonar skipa-
miðlara.
Fyrsti formaður var Jón Ólafs-
son í AHiance og ritari Kjartan
Thors. Framkvæmdastjórar hafa
verið Gunnar Egilsson, Páll Ólafs-
son og Ásgeir Þorsteinsson.
Stjórn Samtryggingarinnar skipa
nú: Kjartan Thors, sem verið hefur
formaður síðan 1938, Ólafur H.
Jónsson ritari, Ásgeir Stefánsson,
Geir Thorsteinsson, Ólafur Tr. Ein
arsson og Jón A. Pétursson.
Höfundur sögunnar „Ástar-
ævintýri í Rómaborg“, sem hefst
sem framhaldssaga hér f blað-
inu, er Ercoli Patti, ættaður frá
Cataníu, en fluttist ungur til
Rómaborgar. Hann tók próf í
lögum 1925, en 1931—1940
var hann sérlegur fréttaritari
blaðsins Gazette del Popolo og
ferðaðist til margra landa, og
skrifaði um ferðir sínar í blaðið
M. a. ferðaðist hann á þessum
árum til Japan, Kína, Frakk-
lands, Tyrklands, Póllands, Sov-
étríkjanna, Egyptalands og
Þýzkalands. Fyrsta bók hans
Stúlkur £ Tokió er safn stuttra
mannlýsinga en 1940 kom út bók
hans, Gömul hverfi. Hlaut hún
góða dóma og gerð af henni
kvikmynd. Þegar Þjóðverjar
sóttu inn í Rómaborg í síðari
heimsstyrjöldinni 1943 var
ErcolePatti tekinn fastur og var
hann fjóra mánuði I fangelsi.
Þegar honum var sleppt reyndu
fasistar að handtaka hann á ný
og fór hann huldu höfði unz
bandamenn komu. Árið 1953
kom út bók hans Veiki punktur-
inn (II punto debole). Hann starf
ar nú fyrir blaðið Corriera della
Sera. „Ástarævintýri í Róma-
borg“ fékk góða dóma í brezk-
um blöðum, m. a. Observer og
New Statesman. í sögunni er
lýst ungum rithöfundi, sem telur
sig hafa fundið konu, sem hann
hefir leitað að allt sitt líf, en
hvorugt hefir trausta skapgerð
og manndómsvilja til þess að
hefja sig upp til sannara Iífs.
t Máðurinn minn,
GUÐMUNDNR EINARSSON, myndhöggvari frá Miðdal,
andaðist í Landsspítalanum þann 23, þ. m. auglýst síðar. Jarðarförin
Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna og annarra vandamanna. Lýdia Einarsson.
FIRMAKEPPNI
e-sambands íslands
Nýlega er lokið firmakeppni Bridgesambands íslands. Tvö hundruð fyrirtæki tóku þátt í keppninni ,og voru
eftirtalin fyrirtæki með hæsta stigatölu:
1 Hreyfill s.f...........327
2 Trygging h.f...........323
3 Bílasala Björgúlfs .. 320
4 Ásaklúbburinn .... 314
5 Fasteignasala Jóns
Arasonar ............. 313
6 G. Helgason & Mel
sted ................. 309
7 Trésm. Meiður........ 307
8 Efnalaugin Lindin . . 307
9 Northern Trading h.f. 307
10 Verzlunin Grund .... 305
11 Sláturfél. Suðurlands 304
12 Offsettprent h.f .... 304
13 Kristjá) Siggeirss. h.f. 303
14 Record h.f.............303
15 Hótel Borg ........... 303
stig 16 Smári h.f.........301
— 17 Eignasalan ........... 300
— 18 Verzlanasambandið h.f. 298
— 19 Leiftur h.f....... 293
20 Veitingastofan Sjómanna
—- skólans .................... 293
21 Skjaldberg h.f........ 293
— 22 Eimskip h.f....... 293
— 23 Miðstöðin h.f.......293
— 24 Álafoss h.f....... 292
— 25 Olíufélagið h.f. ...... 292
— 26 Sparisjóður Reykjavíkur
— og nágrennis .......... 292
— 2r Útvegsbankinn h.f .... 292
— 28 Agnar Lúðvíksson h.f. . . 291
- 29 Hamar h.f ..............291
— 30 O. Johnson & Koaber h.f. 291
stig 31 Lýsi h.f................. 291
— 32 Verzlunin Vísir.......... 291
— 33 Flugfélag íslands h.f. .. 290
— 34 Iðnaðarbankinn h.f .... 290
35 Landssmiðjan h.f..........290
— 36 Segull h.f............... 289
— 37 Verðandi h.f............. 288
— 38 Vátryggingarstkrifst ofa
Sigf. Sighvatssonar h.f. 288
— 39 Kjötbúðin Borg........... 288
— 40 Geysir h.f............... 286
41 Véla. og raftækjaverzl-
— urin .................... 286
— 42 Ásbjörn Ólafsson, heild-
— verzlun ................. 285
— 43 Skósalan Laugavegi 1 . 285
— 44 Prjónastofan Malin .... 284
45 Einar J. Skúlason. skrit-
stofuvélaverzl...........284
stig 46 Eggert Kristjánsson &
— Co. h.f................
— 47 Osta -og Smjörsalan s.f.
— 48 Naust h.f.............
— 49 Freyja h.f............
— 50 SAVA ...................
— 51 Akur h.f................
52 Ræsir h.f..............
— 53 Prentmót h.f............
— 54 Ferðaskrifstofan Sunna
—- 55 Teiknistofan Tómasar-
haga 31 ...............
— 56 Ásgarður h.f............
57 Sandver h.f............
— 58 Fasteignasala Einars Sig-
— urðssonar .............
— 59 Gamla Bílasalan ........
60 Vélar og Verkfæri h.f. ..
283 stig
283 —
283 —
281 —
281 —
281 —
281 —
281 —
280 —
280 —
280 —
280 —
280 —
279 —
279 —