Vísir - 25.05.1963, Blaðsíða 8
8
VlSIR . Laugardagur 26. maí 1963.
VtSIR
Ötgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen.
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og 5>'fgreiðsla Ingóifsstræti 3.
Áskrifsargjald er 65 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 lfnur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Þeir ættu aldrei að spá
Þegar frumvarp viðreisnarstjómarinnar um efna-
hagsmálin var lagt fram á Alþingi í byrjun febrúar
1960, efndu Framsóknarfélögin í Reykjavík til fundar
um frumvarpið, og var Hermann Jónasson, þáverandi
formaður Framsóknarflokksins, auðvitað aðalræðu-
maður fundarins.
Hermann fór vitanlega að spá, eins og Framsókn-
armanna er háttur, þótt reynslan ætti að vera búin
að kenna þeim, að þeir em lélegir spámenn um þró-
un atvinnu- og efnahagsmála. Þetta fyrrverandi leið-
arljós Framsóknarmanna sagði þá, að „stefna núver-
andi stjómarflokka væri ekkert nýtt fyrirbrigði. Það
væri í atvinnu- og fjárhagsmálum sama stefnan og
olli heimskreppunni á árunum kringum 1930“. Afleið-
ing þeirrar stefnu hefði orðið sú, að enn væm á 4.
milljón atvinnuleysingja í Bandaríkjunum, en það svar-
aði til þess, að þeir væra 4 þúsund hér á landi. — Og
svo spurði Framsóknarforinginn með sínum alkunna
alvöraþunga?
„Eigum við að innleiða það ástand hér?“
Nú eru meira en þrjú ár liðin síðan þessi spekiorð
féllu af munni hins mikla leiðtoga. Vill hann nú ekki,
eða málgagn hans, Tíminn, afla sér upplýsinga um,
hvemig þessi spádómur hefur rætzt — og segja þjóð-
inni satt og rétt um tölu atvinnuleysingja á íslandi
i dag? Vér höfum ekki heyrt þeirra getið, en ef til vill
vita Framsóknarleiðtogamir betur.
Og þeir spáðu fleiri en Hermann. Auk hinna víð-
frægu móðuharðindaspámanna þingeyskra spekinga,
mælti stjórnvitringurinn Sigurvin Einarsson þessi orð
í febrúar 1960:
„Samdráttarstefna hæstvirtrar ríkisstjórnar hlýt-
ur að valda minnkandi atvinnu manna, sem fyrst og
fremst bitnar á aukavinnu manna, sem greidd er 50
—100% hærra verði en dagvinna“.
Blaðinu snúið við
Og tímamir liðu. Málgögn Framsóknar og komm-
únista héldu áfram að tala um samdráttinn og eymd-
ina, sem yfir þjóðinni vofði af völdum stjórnarstefn-
unnar; en svo var allt í einu farið að draga úr þessum
skrifum og loks steinhætt að tala um atvinnuleysi —
og meira en það, því að nú var blaðinu snúið svo ger-
samlega við, að farið var að ávíta ríkisstjómina fyrir
það, að of mikil atvinna væri í landinu, fólk fengi of
lítinn tíma til hvíldar, stjómin væri að „innleiða vinnu-
þrælkun!“
Fyrrnefndur Sigurvin Einarsson, sem áður óttað-
ist það mest, að menn fengju enga aukavinnu, sagði
í maí 1962, að hin mikla aukavinna væri „hrein árás
á hin óskráðu vökulög í Iandinu“.
Er það ekki ráðvillt stjórnarandstaða, sem þannig
heldur á málunum?
*
Bandarfski ljösmyndariim og
feröagarpurlnn Hal Linker er
nú að undlrbúa útgáfu á nýrri
feröabók, sem tvær frægar
bókaútgáfur austan og vestan-
hafs munu gefa út. Eru það
bókaútgáfan Doubleday f
Bandaríkjunum og Macmillan f
Bretlandi, sem gefa bókina út.
Hal Linker er kvæntur ís-
lenzkri konu Höllu Linker og
hafa þau hjónin getið sér fá-
dæma vinsældir f bandarfska
sjónvarpinu fyrir ótal ferðakvik-
myndir frá flestum löndum
heims.
Fyrir nokkrum árum gerðu
þau svo tilraun til að gefa út
fyrstu bókina, sem þau kölluðu
„Three Passports toAdventure".
Voru þetta frásagnir af heim-
sókn til fjölmargra landa með
miklum fjölda ljósmynda. Hlaut
hún góðar viðtökur og seldist
f stóru uppiagi.
Nýja bókin sem nú er f und-
irbúningi er skrifuð sem frá-
sögn Höllu á því hvernig henni
var innanbrjðsts þegar hún
kynntist Hal og átti fyrir hönd-
um nýtt líf með ferðalögum
um allar heimsálfur. Löndin
sem þau hjónin hafa heimsótt
eru nú orðin æði mörg eða
nærri hundrað talsins. 1 hinni
væntanlegu bók verður m. a.
sagt frá ferðalagi um mörg
lönd Suður-Ameríku, um Mið-
Evrópu, Færeyjar, suðurhluta
Afrfku, eyjar á Miðjarðarhafi
og fjallarfkið Nepal f Himalaya.
í íumar ætla Linkerhjónin að
fljúga með pólferð flugfélagsins
SAS frá Los Angeles til Græn-
lands. t>ar munu þau dveljast f
nokkra daga við kvikmynda-
töku og halda förinni síðan á-
fram til Kaupmannahafnar. Það-
an til Póliands, þar sem þau
verða við kvikmyndatöku f 10
daga. Munu þau ferðast víða
um Evrópu, til Búdapest og
Berlínar, um Irland, eyna Mön
og Skotland. Loks fljúga þau
vestur um haf til Kanada, ferð-
ast um vesturströnd Kanada og
víðs vegar um Alaska, allt norð
ur til Point Barrow, sem er
nyrsti tangi meginlands Ame-
ríku.
í þessari miklu ferð safna þau
hjónin efni bæði f greinar, bók
Frú Halla Linker í fslenzkum þjóðbúningl.
Þau gera viasælustu
landkynnisigamyttílimar
og í sjónvarpsþætti sína, sem
halda sömu vinsældum og áður.
Sjónvarpsþættir Hal Linkers
eru sýndir víðs vegar f Banda-
rfkjunum og ennfremur eru þeir
seldir nokkuð til annarra landa.®-
Nýlega keypti japönsk sjón-
varpsstöð birtingarrétt á þeim.
Ennfremur hefur sjónvarpsstofn
un bandaríska hersins fengið
leyfi til að sýna þá f 80 bæki-
stöðvum vfðs vegar um heim.
Meðal þeirra er sjónvarpsstöð
hersins á Keflavíkurflugvelli.
Eru landkynningaþættir Linkers
sýndir á föstum tímum í banda-
rfska sjónvarpinu hér.
Landkynningarstarfsemi Hal
og Höllu Linker hefur verið vel
metin og þau hafa fengið þakkir
vfðs vegar að fyrir það ómetan-
lega gagn sem þau gera í að
auka kynni þjóða f milli. Hal
Linker hefur t. d. verið sæmdur Belgfu og hitt heiðursmerki
tveim heiðursmerkjum fyrir finnska Ijónsins.
landkynningastörf sín. Annað
er heiðursmerki Leopolds II I
Merkilegur fornleifa-
fundur í Kaupmannahöfn
Enn hefur verið gerður merki
legur fomleifafundur f Dan-
mörku. Fundizt hafa við upp-
gröft í miðri Kaupmannahöfn
leifamar af skipi frá 12 öld.
Lýsa dönsku blöðin þessum
fundi sem einstæðum, sérstak-
lega vegna þess, að skipsleifar
þessar séu eldri en Kaupmanna
höfn, eða frá því að Absalon
biskup byggði Borgina, sem
varð visir að Kaupmannahöfn.
Leifar þessar fundust skyndi-
lega egar verið var að grafa
grunn að nýju stórhýsi við
Kristjánshöfn, sem er í hjarta
Kaupmannahafnar. Þama höfðu
staðið lengi gamlar birgða-
skemmur, svo að grunnurinn á
þessum stað hefur verið óhreyfð
ur í aldaraðir.