Vísir - 12.06.1963, Qupperneq 2
VÍSIR . Miðvikudagur 12. iúní 1963.
FTn1 tfTnLT
'&/////Æ.
ALVÖRU TALAÐ
EÓP-mótið um-
tfeiUa í kvöU
Hið margumtalaða EÓP-mót
frjálsíþróttamanna fer fram í
kvöld á Melavellinum, en á
þessu vori eru liðin 70 ár frá
fæðingardegi Erlendar heitins
Péturssonar og 20 ár frá því
að fyrsta EÓP-mótið var haldið.
Keppendur eru 48 frá 5 fé-
lögum (KR, ÍR, Ármanni, FH
og Héraðssambandi Stranda-
manna) og meðal þeirra flestir
af beztu íþróttamöimum lands-
ins.
Keppt verður í 12 greinum
karla og kvenna og má búast við
spennandi keppni og góðum ár-
angri. T. d. er ekki ósennilegt,
að íslandsmetið sé i hættu, eink-
um í hástökki, stangarstökki og
jafnvel 110 m grindahlaupi, en
aðrar keppnisgreinar eru kúlu-
varp, 100 m hlaup karla og
kvenna, kringlukast, 800 m
hlaup, langstökk, 400 m hlaup,
3 km hindrunarhlaup og 4x100
m boðhlaup.
Athygli skal vakin á því, að
mótið hefst stundvíslega kl. 8
í kvöld.
Skíðamenn
verðlaunaðir
Verðlaunaafhending fyrir
drengjaflokk og stúlknaflokk á
Skarðsmótinu, sem haldið var á
Siglufirði um hvítasunnuna s. I.,
fór fram í Reykjavík í gær.
Þar sem sigurvegarar voru
frá Reykjavik úr báðum flokk-
um, annaðist Skíðaráð Reykja-
víkur verðlaunaafhendinguna.
Lárus Jónsson, Skíðafélagi
Reykjavíkur, annaðist verð-
launaafhendinguna og mælti
nokkur orð til þessara ungu
skíðakappa.
Sigurvegari í drengjaflokki
varð Eyþór Haraldsson, ÍR, og
nr. 2 varð Tómas Jónsson, ÍR,
og nr. 3 varð Marteinn Kristj-
ánsson, Siglufirði (vantar á
myndina).
Sigurvegari í stúlknaflokki
varð Jóhanna Helgadóttir
AAAAAAAAAAAAA/WWW
, Við vinnum iandskepsmma'
— segja Danir, sem eiga í erfið-
leikum vegna kostnaðar af ferð-
inni til íslands
Danir undirbúa nú af
kappi lið sitt í frjálsum
íþróttum, en það mun
keppa í Reykjavík við ís-
lenzka landsliðið í frjáls-
íþróttum dagana 1. og 2.
júlí n. k. „Við vinnum“,
segja Danir og benda jafn-
framt á, að íslendingar séu
vanir að vaxa með verk-
efnunum í þessari íþrótta-
grein.
Danir eru annars i mestu vand-
ræðum vegna landskeppninnar og
kostnaðarins, sem hún veldur
þeim. Ferðin hingað mun kosta
1200 krónur danskar á hvern þátt-
takanda og þessi kostnaður gerir
það að verkum, að ákveðið hefur
verið að fara ekki með þjálfara í
ferðina, sem er þó venjan. Er bent
á að vel sé hægt að komast af
án þjálfara, enda naumur tími til
æfinga og hefur verið ákveðið að
fararstjórarnir Börge Mathiassen
og Arne Halvorsen taki að sér
hlutverk þjálfarans og skapi hinn
rétta anda í liðinu.
Danirnir munu nota 32 menn í
hinar 18 greinar keppninnar, þann-
ig að sömu menn keppa i fleiri
en einnl grein, en þetta er með-
fram gert til þess að spara kostn-
að.
Danska liðið leggur upp frá
Kaupmannahöfn 30. júní með flug-
vél frá Flugfélagi íslands, en vegna
flugmannaverkfallsins höfðu ráð-
stafanir verið gerðar til að leigu-
véi flygi með liðið ef svo færi
að deilan væri ekki leyst, en vitan-
lega kemur það ekki til.
• TILRAUNALANDSLIÐIÐ var
reynt í fyrrakvöid í Laugardal
gegn hálfatvinnumönnum (
slakri þjálfun. Liðið veldur að-
standendum sínum að vonum
hinum mesta höfuðverk, enda
brást svo til hver maður, a.
m. k. að miklu leyti.
• Margir eru farnir að hugsa
fram í tímann, en eftir tíu vik-#
ur bíður fyrsta verkefni liðsins
— sennilega gegn Japan —
í Reykjavík, en stuttu síðar
gegn Stóra-Bretlandi í Laug-
ardal og viku sfðar í Lundún-
um.
• Undanfarin ár hefur landslið ís-
lands þvf miður ekki mætt til
keppni samæft. Menn hafa ver
ið rifnir með rótum úr félags-
liðum sínum og settir í lið
með mönnum, sem þeir hafa
rétt þekkt í sjón og með nafni.
Samæfing hefur ekki verið til
í liðinu, og er samæfing þó
álitið TALSVERT atriði í
knattspyrnu, enda þurfa leik-®
menn að þekkja talsvert hugs-
anagang hver annars og leik-
aðferðir til að ná sambandi.
• Meðan að svo er sem nú, að
ekki sé svo mikið sem reynt
að þjálfa leikmenn saman sem
landslið verður ekkert lands-
lið, þ. e. ekki landslið, sem
hægt er að kalla því nafni.
• Við vitum vel, að f landsliðs-
æfingum eru mörg ljón á veg-
inum og það er reyndar ekki
alíslenzkt vandamál. Félögin
vilja ógjarnan missa menn sfna
af æfingum.sfnum því við það
rofna tengslin við félagið nokk
uð. Erfitt reynist að koma við
æfingum fyrir landslið, keppn-
istímabilið stutt, en leikir orðn
ir margir, leikmenn dreifðir
um landið o. s. frv.
Engu að síður verða landsliðs-
æfingar að komast á. Eitt
skipti í viku ætti að nægja,
leikmenn kynnast betur og
verða frekar ein heild en ella
en spurningin er hvað hægt sé
að gera. Við verðum að hafa
,,prógram“ fyrir landsliðið og
það verður að setja snemma
á keppnistímabilinu. Æfing
verður ákveðin þennan eða
þennan dag. Langar helgar
eins og t. d. hvftasunnan ættu
að notast til dvalar með lands
liðið t. d. á Laugarvatni,
Haukadal eða öðrum viðlfka
stöðum.
Þessi mál eru mjög mikilvæg
fyrir íslenzka knattspyrnu og
þurfa að vinnast af alúð. Stanz
Iaus töp á knattspyrnuvellin-
um eyðileggja sjálfsvirðingu
knattspyrnumanna okkar og
trú á hæfileikum, þar sem einn
sigurleikur getur lyft Grettis-
taki og orðið knattspyrnunni
lyftistöng, þetta þekkja marg-
ir knattspyrnumenn frá liðn-
um árum. —jbp —
Átti að fnrni-
kvæma yfirmat
E. B. Malmquist hefur sent blað-
inu athugasemd við yfirlýsingu
Neytendasamtakanna varðandi at-
hugun á markaðskartöflum hér í
borg. Hann kveðst af tilefni þessa
hafa átt viðtal við Svein Ásgeirs-
son formann Neytendasamtakanna
og beðið hann um að gefa upplýs
ingar um hvaða aðili hefði fram
kvæmt umgreinda rannsókn og
hvernig hún hefði verið unnin.
Formaður Neytendasamtakanna
neitaði að gefa upplýsingar um
þetta en tók fram að á kartöflun-
um hefðu verið svo áberandi kláða
skemmdir, að varan gæti ekki full-
nægt kröfum 2. flokks.
E, B. Malmquist telur mjög ólík-
legt að um kláðaskemmdir hafi
verið að ræða. Sfðan gagnrýnir
hann harðlega málsmeðferð Neyt-
endasamtakanna, segir að þau
hefðu f þessu tilfelli átt að óska
eftir því að landbúnaðarráðherra
skipaði sérfróðan mann til að
framkvæma yfirmat.
Vegna þess að það var ekki gert
telur E. B. Malmquist að rannsókn
Neytendasamtakanna sé einræðis-
kennd og lítils virði.
Listfræðsluráðstefna
í Montreal í ágúst
I ágúst í sumar verður haldin í
Montreal í Kanada alþjóðaráð-
stefna um listfræðslu. Eru það
samtökin INSEA sem standa fyrir
ráðstefnunni, en þau voru stofnuð
Danskir
sundbolir
á börn og fullorðna fyrirliggjandi á lager.
Fallegir og ódýrir.
HEILDSALAN . Sími 16205
árið 1951 að tilhlutan Menningar-
og fræðslustofnunar Sameinuðu
þjóðanna.
INSEA heldur slikar ráðstefnur
á þriggja ára fresti, sú fyrsta var
haldin í Parfs 1954, önnur í Haag
og sú þriðja í Manila. Á hverri
ráðstefnu er tekið fyrir eitthvert
viðfangsefni varðandi almenna list-
fræðslu.
Viðfangsefni Montreal-ráðstefn-
unnar sem á að standa 18.—24.
ágúst verður „Listfræðslan sem
leið til gagnkvæms skilnings milli
þjóða“. Þar sem ráðstefnan er
haldin í Kanada munu kanadísk
listvinafélög vinna að undirbún-
ingi ráðstefnunnar, en á ráðstefn-
unni verða haldin fjölmörg erindi
og sýningar á listaverkum. Sérstök
listsýning verður f Listasafni
Montreal. Ráðstefnuna munu sækja
fulltrúar víðsvegar að úr heimin-
um.
n