Vísir - 13.06.1963, Page 2
2
V í SIR . Fimmíudagur 13. júní 1963.
'//////,
jr ,________. r_____,
7//////A f '"///////Æ H W/Æ///Æ S
r^1 T p>..........
íslandsmet ekki
EOP-mótið var eyðiiagt
i höeidum KR-inga
Eftir einstakar deilur og blaðaskrif miili „stórveld-
anna“ tveggja í frjálsum íþróttum, KR og ÍR, fór hið
umdeilda EÓP-mót fram í gærkvöld og enda þótt að-
standendur mótsins hafi ætlað að sníða mótinu mynd-
arlegan stakk, fór því miður svo að illgirni og öfund
rifu mótið bókstaflega niður í ekki neitt, og þrátt fyrir
þá staðreynd að þátttaka væri nokkuð góð á papp-
írnum, varð reyndin sú, að afar illa var mætt, í
sumum greinum mættu aðeins 30% eða því sem næst.
f 4x100 metra boðhlaupi hljóp ein sveit, KR, lullaði
á lakari tíma en meti Guðmundar Lárussonar í 400
metra hlaupi og byrjaði sveitin á því að gleyma kefl-
inu og varð að byrja að nýju! í þessu hlaupi áttu að
vera 5 sveitir, 20 þátttakendur, 4 tóku þátt.
★ Ef hægt er að tala um afrek
á mótinu ber langhæst hástökk
Jóns Þ. Ólafssonar, en hann stökk
2.02 og var mjög nærri að setja
nýtt íslandsmet, 2.06 metrar, —
var kominn yfir í tvö skipti, en
felldi með hnénu. Er greiniiegt,
að metið á ekki eftir að standa
lengi enn. Afrek Jóns er því betra
þegar það er haft í huga, að há-
stökkið fór fram síðast greina á
mótinu og var mjög napurt orðið
og erfitt að halda hita. Halldór
Jónasson, IR, varð annar með 1.70
en þriðji maður felldi byrjunar-
hæð.
GamnchfB fiB
Brazilfumaðurinn Garrincha
hefur nú verið seldur frá félagi
sínu Botafogo til Ítalíu, en þar
hefur félagið Internazionale fest
kaup á honum. Garrincha hefur
tvívegis unnið HM í knatt-
spyrnu með landsliði Brazilíu.
Ekkl er vitað hvert kaupverðið
er á Garrincha, en ummæli for-
seta Botafogo, Renato Estellita,
eru þau, að hann yrði ekki seld-
ur á minna en milljón braziliska
dali. Italska félagið Juventus
hefur einnig haft mikinn áhuga
á Garrincha, en hið forríka Inter
mun hafa haft betur í keppn-
inni um þennan stórkostlega
knattspymumann. Hjá Inter eru
þegar 2 Brazilíumenn fyrir, þeir
da Costa og Cineshino og Spán-
verjinn Suarez er einnig hjá því
liði.
★ Valbjörn Þorláksson, oftlega
stjarna frjálsíþróttakeppna reyndi
ekki mikið á sig að þeisu sinni,
enda vart mikil ástæða til. Hann
vann þó 110 metra grind á 16.2
flg 100 metra hlaup á 11.3, var
í 4x100 metra boðhlaupssveit og
vann stangarsiökkið á 4.20, cn
var vel yfir 4.40 þó hann felldi
þá hæð. í spretthlaupunum var
talsverður mótvlndur og eyðilagði
tíma hlauparanna. Næstir á eftir
Valbirni í 100 m. voru Skafti
Þorgrímsson og Úlfar Tcitsson á
11.5. Að lokum vann Valbjörn 400
metra hlaup á 52.2, en Kristján
Mikaelsson, ÍR, veitti honum tals-
verða keppni en endasprettur og
harka Valbjarnar unnu honum
þarna 5. gullpening mótsins.
★ Kristleifur Guðbjörnsson
vann 3000 metra hindrunarhlaup-
ið á ágætum tíma miðað við að-
stæður, 9.34.8 er alls ekki hlæmt
í vindstrekkingi og ætti Kristleif-
ur að geta bætt tfma sinn að
mun í sumar. I 1500 metrum var
Kristleifur ekki meðal þátttak-
enda, en þar var kornungur bróð-
ir hans, Halldór, og hreppti ann-
að sætið á lofsverðum tíma 4.14.1
á eftir Halldóri Jóhannessyni, KR,
4.09.8.
■k Jón Pétursson KR, vann bæði
kringlukast og kúluvarp. Jón er
nú að verða okkar bezti kastari,
en átti áður íslandsmctið í há-
stökki og hefur nú Iagt það á
hilluna. Jón vann kúluna á ágætu
kasti 15.65, sem er persónulegt
met hans, en Guðmundur Her-
mannsscn kastaði 15.21, einnig
gott á okkar lélega mælikvarða
í kúiuvarpi. Kringlukast vann Jón
á 45.06, árangur varð mun lakari
í öðru. Þorsteinn Löve mætti til
leiks, en fór út af velli aftur haltr
andi.
Að iokum tvær greinar, sem
státuðu af allmörgum keppend-
um. Það voru ungu laglegu stúlk-
urnar, sem hlupu 100 metra hlaup
og langstökkvararnir, sem háðu
skemmtilega keppni sín á milli.
Halldóra Helgadóttir, ung KR-
stúlka, vann 100 metrana á 13.6
en Sigríður Sigurðardóttir ÍR,
. varð, önnur á 14.0. Langstökkið
vánii Úlfar Teitsson KR, efnileg-
ur langstökkvari, stökk 6.85 gcgn
strekkingskaldanum. Félagi Úlf-
ars, Þorvaldur Jónasson, stökk
6.74 og Valbjörn Þorláksson 6.62.
Talsvert margir áhorfendur
\’iOru á vellinum og hefðu getað
fengið betri skemmtun, en svo
fór sem fór. KR-ingar reyndu að
gera góða hluti, allt fram á síð-
ustu stund, en aðrir reyndu að
rífa niður, — og tókst það mjög
vel. —- jbp —
BRIAN STERNBERG, bandaríski stúdentinn, er hér vel yfir ránni
í 508 sentimetrum, en hann setti heimsmet í greininni fyrir nokkru
og sést hér í metstökkinu.
Syndið
200
metrana
5:08
k BRIAN STERNBERG bætti
heimsmet sitt í stangarstökki fyr-
ir s. 1. helgi, er hann stökk 5.08
á móti í Comton í Kaliforníu.
Fyrra metið var 5.05. Viðurkennda
metið á Finninn Pentti Nikula, en
i met hans, 4.94, hefur verið bætt
: sex sinnum og bíða allir þeir ár-
; angrar viðurkenningar. Nikula hef
; ur reynt mikið við að hnekkja
| meti Sternbergs, en ekki tekizt,
; þótt oft hafi litlu munað.
j
1 © England vann A-Þýzkaiand
| í fyrsta landsleik landanna í
; Leipzig með 2:1. Um 90.000
manns horfðu á vilureignina
! á hvítasunnt.dag; en Þjóð-
! verjar skoruðu fyrsta mark-
ið (Ducke) ,en Hunt jafnaði á
síðustu mín. fyrri hálfleiks og
í sigurmarkið skoraði Bobby
Charlton tveim mínútum fyrir
leikslok. — Aðrir landsleikir um
helgina: Rúmenía vann England
í landsleik unglinga 3:1 — Pól-
Iand-Rúmenía 1:1 í Corzow —
Tékkar og Ungverjar gerðu einn-
j ig 'jafntefli 1:1 í landsleik sínum
í Prag.
© Willie Pastrano, 28 ára gam-
all negri og 5 barna faðir, vann
ölium á óvart heimsmeistaratit-
ilinn í léttþungavigt í keppni við
Harold Johnson í Las Vegas um
helgina. Johnson hefur ekki tap-
að keppni í hnefaleik í rúm 8 ár.
Pastrano vann stigasigur, 2 at-
kvæði dómara gegn einu, en á-
horfendur sýndu reiði sína yfir
Vaibjörn Þorláksson sigraði í 5 greinum. Ilér sigrar hann í 100 m hlaupi
þessum úrskurði og píptu að dóm
urunum.
@ Að lokum: Landsleikur Norð-
manna og Skota í Bergen er í
kvöld. Þegar Skotar lögðu upp
frá Prestvíkurflugvelli kom f ljós
að hinn frægi leikmaður Rang-
ers, Jim Baxter hafði gleymt
knattspymuskóm sínum í skó-
geymslu félagsins. Voru ráðstaf-
anir þegar gerðar til að skórnir
, yrðu sendir til Londc.n og þaðan
til Bergen og væntanlega hefur
Baxter þegar fengið skóna.
■k Enska landsliðið fékk stórkost
Iegar móttökur, er það kom flug-
leiðis heim frá þrem Iandsleikjum
sínum á meginlandinu, ;en ferð
liðsins er einhver mesta sigurför
ensks landsliðs í áratugi. England
vann Tékka, sem urðu aðrir á HM
í Chile með 4:2, A-Þjóðverja með
2:1 og Sviss 8:1. Ferðin var farin
sem liður í uppbyggingu HM-Iiðs
Englands, sem verður gestgjafi, er
næsta heimsmeistarakeppni fer
fram árið 1966.
■k MICHAEL JAZY vann 2 enskar
mílur á nýjum heimsmetstíma,
8.29,6 mín. í París fyrir s. 1. helgi.
Jim Beatty átti fyrra metið, sem
var sekúndubroti lakara. Jazy á þá
þrjú heimsmet, í 2000 og 3000 m.
hlaupum auk tveggja mílna.
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.