Vísir - 23.07.1963, Side 11
VlSIR . Þriðjudagur 23. júlf 1963.
Tilkynning
Frá mæðrastyrksnefnd. Hvíldar
vika Mæðrastyrksnefndar að Hlað
gerðarkoti í Mosfellssveit verður
að þessu sinni 1. vikuna í septem
ber, Umsóknir sendist nefndinni
fyrir 12. ágúst. Allar nánari uppl.
í síma 14349 kl. 2—4 daglega.
Minningar sp j öld
Minningarspjöld Blindrafélags-
ins fást að Hamrahlíð 17, sími
38180 og öllum lyfjabúðum í
Reykjavík, Kópavogi og Hafnar-
firði.
Norræna sundkeppnin stendur
yfir. Við hrannadunur og strauma
nið hafa íslendingar búið og
munu búa. Enginn veit, hvenær
hann þarf að grípa til sundsins.
Lærið sund, iðkið sund, syndið
200 metrana. Framkvæmdanefnd.
STJÖRNUSPA
Kappamir eru fremur léttklæddir, enda engin íslandsveðrátta þarna,
og hitinn 35 stig. Myndin var tekin í ferð Víkings til Tékkóslóvakíu
20. júní til 12. júií. Víkingar unnu fjóra Ieiki, gerðu eitt jafntefli og
töpuðu sex. Á myndinni hér að ofan sést hluti flokksins við styttu
af skósmið, tákni verkalýðsins. (Ljósm. Bergsteinn Páisson).
Söfnin
Ásgrfmssafn, Bergstaðastræti 74
er opið alla daga í júlí og ágúst
nema laugardaga frá kl. 1,30 til 4.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega frá kl. 1,30 til kl.
3,30.
Tæknibókasafn IMSÍ er opið alla
virka daga nema laugardaga kl.
13—19.
Þjóðskjalasafnið er opið alla
virka daga kl. 10-12 og 14-19.
Minjasafn Reykjavíkur Skúlatúni
2 er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 14—16.
lán alla virka daga kl. 13—15..
Árbæjarsafnið er opið á hverjum
degi frá kl. 2—6 nema á mánu-
dögum. Á sunnudögum > er “^opið
frá kl. 2—7. Veitingár fh'Dilfons-
húsi á sama tíma.
Þjóðminjasafnið og Listasafn
ríkisins er opið daglega frá kl.
1,30 til 16.
Ymislegt
Lasamio. Lestrarsalur
virka daga kl. 10—12,
; 20—22 nema laugar-
10—12 og 13—19. Út-
Hinn 20. júlí 1963 skipaði for-
seti Islands að tillögu menntamála
ráðherra dr. Bjarna Guðnason
prófessor í bókmenntum f heim-
spekideild Háskóla íslands frá 1.
ágúst 1963 að telja.
Menntamálaráðuneytið,
20. júlí 1963.
I-Irúturlnn, 21. marz til 20.
apríl: Hafðu nánar gætur á
framvindu mála hjá ástvinum
þínum svo og efnahaginum. Ef
veðurlagið hefur leiðinleg áhrif
á þig, þá ættirðu að hvílast vel
í kvöld.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Þú ættir að rétta hinum þurf-
andi hjálparhönd í stað þess að
ávíta þá fyrir getuleysi, sérstak-
lega ef fjölskyldumeðlimir þínir
eiga í hlut.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júSí: Það er hætt við að þér
skjátlist hrapallega, þegar þú
leggur dóm á málefni, sem þú
hefur raunverulega sára litla
þekkingu á.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlf:
Þ^ð er ekki ráðlegt að tefla j á
’ iiéííiar'■'týfsýnur eins og nú
sfánda sakir, hvorki á sviði
ástamálanna né efnahagslega,
sakir þess að dómgreindin nær
ekki að sjá allar hiiðar málsins.
Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst:
Ef þú hefur hagað aðgerðum
þínum meir af kappi heldur en
forsjá, þá er hætt við að út-
koman verði þér alls ekki til
þeirrar ánægju sem ætiast var
til.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Horfur eru áað dómgreind þín
sé í lakara lagi, sakir óhag-
stæðra plánetuáhrifa. Þér væri
ráðlegast að leita til þeirra, sem
hafa gott vit á málunum.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Sé eitthvað athugavert við með-
ferð þína á fjármununum, þá
ættirðu að grípa tækifærið og
kippa þessu í lag. Styrktu vilja-
orkuna.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Þær upplýsingar, sem þér
kunna að berast í dag gætu vel
verið á röngum forsendum
byggðar, og þar af leiðandi
æskilegt að grennslast nánar
fyrir um þær.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Ef fyrir þér skyldu liggja
einhverjar mikiívægar ákvarð-
anir, þá ættirðu að láta þær
dragast, þangað til málin skýr-
ast betur og þú öðlast meira
sjálfstraust.
Steingeitinj 22. des. til 20.
jan.: Það gæti verið hyggilegast
fyrir þig að halda þig utan við
vandræði annarra, nema þú sért
reiðubúinn að taka á þig þær af-
leiðingar, sem slíkt getur haft í
för með sér.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Það bezta sem þú getur
gert til að vernda eigur þínar
og innstæður er að tefla þeim
ekki út í neinar tvísýnur. Full-
vissaður þig um að ráðgjafar
þínir séu áreiðanlegir.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Þér kann að finnast
margt á huldu um það, hvað
framtiðin ber í skauti sér. Vertu
ekki kvíðafullur út af atriðum,
sem þú hefur fullkomið vald á.
R
S
P
K
I
R
B
Jæja við skulum byrja að vinna.
segir Rip. Eru með einhverja sér-
staklega stóra sendingu sem þú
ANP WHO 15 THIS } FAN, HERE,
NEW GOURIER? / WILL PO
NICELY...
vilt fá í gegn? Já, en hvað með
þessa óheiðarlegu þorpara sem
eru að reena okkur? Ef þeir sýna
sig há skal ég sjá fyrir þeim,
segi: Xirby. Ef þeir ekki sýna
sig, þa kemst nýi sendiboðinn ó-
hultur í gegn. Og hver er þessi
nýi sendiboði spyr Ming. Fan til
dæmis væri ágæt, segir Rip.
FR/EfiT FÓLK
Ferðamaður noklcur kom inn
á snotra krá í Texas og fékk
sér sjúss á barnum. Um leið
og barþjónninn rétti honum
glasið spurði gesturinn for-
vitinn: Heyrðu, af hverju haftb
þið allt þetta sag á gólfinu?
O, sagði þjónninn, þetta er eig-
inlega ekki sag. Það voru smá-
vægileg slagsmál hér f gær-
kvöldi, og þetta er afgangur-
inn af húsgögnunum.
Nú er aumingja Mickey
Rooney kominn á hausinn.
Hann gaf yfirlýsingu þess efn-
is ekki alls fyrir löngu, að fjár-
munir hans væru á þrotum.
Rooney hefur frá 10 ára aldri
í
Mickey Rooney.
þénað um 700 000 000 íslenzk-
ar krónur. En hjónaskilnaðir
hans hafa kostað hann svo
mikið fé og skattarnir hafa
líka pfnt hann, að nú situr
hann eftir blásnauður. Hann
mun bó eiga sér elnhverrar við
reisnar von, þvf að í HoIIy-
wood ríkir lögmálið „easy
come, easy go“ um peninga.
Blair Gibbons, dómarinn,
sem vakti hvað mesta athygli
á sér, þegar hann dæmdi Pat
Lawford, systur Kennedys for-
seta til þess að skrifa ritgerð
um slösuð börn, eftir að hún
hafði valdið umferðarslysi, hef
ur nú aftur vakið á sér athygii
fyrir dóma sína. Hann ieyfir
þeim, sem brjóta umferðarregl
urnar að velja á milli þess að
fara í fangelsi eða líma á fram-
rúðuna á bíl sfnum miða, sem
á stendur: Ég er Ökufantur.
Þetta, segir dómarinn, er gapa-
stokkur í nýrri mynd, sem ég
vona að reynist eins vel og
sá gamli. Fyrstu 10 mennimir,
sem fengu að velja, kusu að
fá miðann fremur en fara f
fangelsi.
Hann hafði fengið sér ein-
um of mikið neðan i þvf, og
þegar hann opnaði augun næst
lá hann á sjúkrahúsi vandlega
reifaður og með mikla verki
í höfðinu. Við rúmstokklnn hjá
honum sat vinur hans, er hafði
verið með honum kvöldið áð-
ur, dálítið fölur, en að öðm
ieyti í góðu ásigkomulagi. —
Hvað kom fyrir? spurði sjúkl-
ingurinn. Tja, sagði vinurinn.
Það var þama um þrjúleytið,
þá opnaðirðu gluggann, og
sagðist ætla að fá þér smá
flugferð yfir bæinn, svo hopp-
aðirðu út. Af hverju f ósköp-
unum stoppaðir þú mig ekki,
maður, spurði sjúklingurinn
gramur. Ja, sagði vinurinn
vandræðalega, sérðu til, á því
augnabliki var ég jafn sann-
færður og þú um að þú gætir
það.
■ssw