Vísir - 26.07.1963, Síða 6
6
VlSIR . Föstudagur 26. júlí 1963.
T
BÍLAR
6 manna bílar:
Ford ’59. Verð 110 þús.
Ford ‘58 original. Verð 100 þús.
Ford ’57 original. Verð 90 þús.
Ford ’55 6 cylindra. Verð 60 þús.
Ford ’54 8 cyl. sjálfsk. 45 þús.
Chevrolet ’59. Verð 100 þúsund.
Chevrolet ’57. Verð 80 þús.
Chevrolet ’55. Verð 75 þús.
Chevrolet ’54. 55 þúsund.
Opel kapitan ’59. Verð 180 þús.
Opel kapitan ’60. Verð 180 þúsund.
Opel kapitan ’56. Verð 90 þús. >
Opel kapitan ’55. Verð 65 þúsund.
Mercedes Benz ’55 220. Verð 90 þús.
Mercedes Benz ’55 180. Verð 100 þús.
Mercedes Benz ’51. Verð 32 þúsund.
Volga ’58. Verð 60 þúsund.
Buick ’54. Verð 40 þúsund.
Buick ’55. Verð 70 þúsund.
'?$&!■' Oldsmobile ‘52. Verð 30 þúsund.
Pontiack ’50. Verð 35 þúsund.
Auk þessara bíla höfum við hundruð annarra.
4-5 manna bílar:
Opel rekord ’62. Verð 150 þúsund.
Opel rekord ’58. Verð 100 þúsund.
Opel rekord ’56. Nýlega uppgerður hjá
verksmiðjunni. Tilboð óskast.
Volvo P544, ’55. >
Taunus ’59. Verð 90 þúsund.
Ford anglia ’60. Verð 90 þúsund.
Ford anglia '55. Verð 65 þús.
Ford zodiack ’58. Verð 115 þús.
Ford consul 315 ’62. Verð 140 þús.
Austin cambridge ’60. Verð 125 þús.
Morris oxford ’55. Verð 55 þús.
Fiat 1400 ’57. Verð 60 þúsund.
Fiat 1100 ’54. Verð 50 þúsund.
Volkswagen ’56. Verð 55 þúsund.
Morris minor ’59. Verð 80 þúsund.
HiIIman ’50. Verð 30 þúsund.
Standard vanguard ’50. Verð 35 þús.
P 70 ’58. Verð samkomul. Góður.
Armstrong ’47. Skoðaður. 10 þús.
Skoda 440 ’58. Verð 50 þúsund.
Pobeta ’54. Verð 35 þúsund.
Moskovitz ’57. Verð 40 þúsund.
Moskovitz ’61. Verð 85 þús.
Auk þessa hundruð annarra bíla.
Stadion bílar:
Volvo ’55. Verð 75 þúsund.
Opel caravan ’63.
Commer COB ’63. Verð 130 þúsund.
Opel caravan ’59. Verð 125 þúsund.
Opel caravan ’57. Verð 75 þúsund.
Opel caravan ’55. Verð 60 þúsund.
Opel caravan ’55. Verð 50 þúsund.
Auk þess mikið af alls konar sendiferðabílum,
jeppum og vörubílum.
Okkar viðskipti eru traust
Opið til kl. 22.00
GAMLA BILASALAN
Rauðaró — Skúlagötu 55
Sími 15-8-12
Góðar horfur í ef na-
hagsmálum heims
‘l/'íða um heim var framleiðslu
aukningin árið 1962 minni
en árin næst á undan og oft
rýrari en vonir stóðu til, segir
í sfðasta yfirliti Sameinuðu þjóð-
anna yfir efnahagsþróunina í
heiminum. Hins vegar iofaði
framieiðsluaukningin fyrstu mán
uði þessa árs góðu, og horfurn-
ar um næstu framtið eru enn
góðar, segir ennfremur í yfir-
iitinu.
Þessl skýrsla, „World Econo-
mic Survey, 1962", er til um-
réeðu á fundi Efnahags- og fé-
lagsmálaráðsins í Genf í þessum
mánuði. Fyrri hluti skýrslunnar
fjallar um þróunárlöndin og
heimsviðskiptin, en seinni hlut-
inn hefur að geyma yfirlit yfir
hina raunveruiegu efnahagsþró-
un í iðnaðartöndunum, f þeim
sem flytja út hráefni og f lönd-
um sem reka áætlunarbúskap.
Samkvæmt skýrslunni var
framleiðslan f Norður-Amerfku
allverulega meiri árið 1962 en
árið 1961. Hins vegar er vert að
hafa f huga, að árið 1961 hafði
komið afturkippur f framleiðsl-
una. Enda þótt þróunin hafi
Ieitt f Ijós, að óttinn við hlé á
áframhaldandi aukninau árið
1963 hafi verið ástæðulaus, þé
er á það bent f skýrslunni, að
efnahagslífið einkennist enn af
illa nýttum framleiðslumöguleik
um og atvinnuleysi.
f Vestur-Evrópu varð fram-
leiðsiuaukningin árið 1962 minni
en árið áður, og stafaði bað af
þvf að hin mikla fjárfesting
undanfarinna ára virtist vera í
rénun. Af þeim sökum er þrö-
unin ótryggari en verið hefur.
f nokkrum löndum gerðu snögg-
ar verðsveiflur máiið flóknara,
í þróunarlöndunum naut út-
flutningurinn árið 1962 góðs af
bættu ástandi f Norður-Ameríku
eftir afturkippinn 1961 samfara
nokkurri birgðaaukningu f Vest
ur-Evrópu. Enda þótt útflutn-
ingsaukningin væri hlutfallslega
minni en allsherjaraukning á ai-
þjóðlegum viðskiptum, var hún
samt örari en árið 1961.
■Aleðal þeirra ianda, sem reka
A áæflunarbúskap, var aukn-
ingin mjög svipuð og árið á und-
an f landbúnaðarframleiöslu Sov
étrfkjanna. Hins vegar kom veru
legur afturkippur f þá fram-
ieiðslu f nokkrum þessara landa,
fyrst og fremst vegna slæms
veðurfars. f nokkrum löndum
Austur-Evrópu var framleiðslu-
aukningin árið 1962 minni en
hún hafði verið fiest árin eftir
seinni heimsstyrjöid. Hins veg-
ar héit iðnaðarframleiðslan á-
fram að aukast ört f öllum iönd
um Austur-Evrópu — yfirleitt
örar en áætlað hafði verið fyrir
árið 1962.
ÞRÓUNARLÖNDIN
OG EFNAHAGSLEG
SAMEINING EVRÓPU.
Haidi efnahagsútþenslan í
Vestur-Evrópu áfram með sama
hraða og á árunum 1950—’60,
er sennilegt að innflutningur
Vestur-Evrópu frá öðrum heims
hlutum muni fara stöðugt vax-
andi, jafnvel bótt hiutdeild þess
ara landa f alisheriarviðskintum
Vestur-Evrópu muni minnka
vegna hinnar efnahagslegu sam-
einingar, segir f fyrri hiuta
skýrslunnar, sem fjallar um þró-
unarlöndin og alþjóðaviðskiptin.
Hins vegar muni hinar óhag-
stæðu afleiðingar þess, að í stað
innflutnings komi innlend fram-
leiðsla, ef samdráttur yrði í
Vestur-Evrópu, verða að sama
skapi meiri og alvarlegri. Jafn-
vel þótt samaniagður innflutning
ur Vestur-Evrópu frá öðrum
löndum haldi áfram að aukast,
geta þar fyrir utan ákveðnar
vörutegundir og ákveðin lönd
orðið fyrir efnahagslegum
skakkaföllum af sameiningu
Vestur-Evrópu. A það einkum
við um landbúnaðinn.
Nafn matarins
skiptir miklu
Ensku nöfnin á steinbít og
háfi eru Catfish (kattfiskur) og
Dogfish (hundafiskur), og fáir
kæra sig um að leggja sér slfka
fiska til munns En sé skipt um
nöfn á þessum næringarríku og
bragðgóðu fisktegundum og þær
nefndar „kótelettufiskur" og
„fiskur 45", er mikil eftirspurn
eftir þeim. Þetta dæmi hefur
Daninn John Fridthjof komið
fram með. Hann veit hvað hann
er að segja, þvf undanfarin tfu
ár og rúmiega það hefur hann
starfað sem næringarsérfræð-
ingur fyrir Matvæla- og landbún
aðarstofnunina (FAC) í Suður-
Ameríku og Afríku, og nú hefur
hann sent á markaðinn bók um
reynslu sína.
Dæmið um „kattfiskinn"
(steinbftinn) kemur frá Dan-
mörku á árunum eftir strfð.
Steinbíturinn var ein bezta fisk-
tegund sem veidd var, mjúkur
og bragðgóður. En það var ekki
fyrr en mönnum datt f hug að
selja hann f sneiðum að kalia
hann „kótelettufisk", að hann
fór að ganga út.
Háfurinn („hundafiskurinn")
er veiddur við Vestur-Afrfku og
er bæði góður og bætiefnaríkur.
En nafnið var honum andstætt
og hann átti litlu gengi að fagna,
þar til John Fridthof fann upp
á þvf að kalla hann „fisk 45".
Nú er hann mikið etinn f Vest-
ur-Afríku.
John Fridthjof starfaði sem
áróðursmaður fyrir nýrri og
betri matvælum í Danmörku, áð
ur en hann gekk f þjónustu FAO
árið 1951. Verkefni hans hjá
þeirri stofnun hefur verið að
skipuleggja og stjórna áróðurs-
herferðum fyrir aukinni fisk-
neyzlu í Brazilíu, Chile, Júgó-
slavfu, Marokkó og Mexikó. Síð-
asta verkefni hans var að kynna
jarðhnotumjöl og siginn fisk í
Senegal.
AÐEINS EINN HUNDRAÐS-
HLUTI FÆÐUNNAR ER
UR SJÓNUM.
Það er alltof fátt fólk, sem
etur fisk, segir Fridthjof. Af öll-
um þeim mat, sem maðurinn
lætur í sig, kemur 1 af hundr-
aði úr sjónum. 1 flestum tilvik-
um á það rætur að rekja til
þess, að fóik á ekki kost á fiski.
En jafnvel þó hægt sé að útvega
fisk, geta fordómar, venjur og
nafn eða útlit fiskisins valdið
miklum erfiðleikum.
Frá viðleitni sinni —■ sem oft-
ast bar árangur — við að rjúfa
andspyrnuna, segir hann f ný-
útkominni bók, „Encouraging the
Use of Protein-Rich Foods", sern
FAO gefur út. Af þessari bók,
sem er handbók og hin fyrsta
sinnar tegundar, er Ijóst, að
hann hefur beitt sundurleitustu
hjálpargögnum í starfi sínu:
kvikmyndasýningum, brúðuleik-
sýningum (f bókinni er heilt
brúðuleikrit), matreiðslusýning-
um, heimsóknum á heimilin,
„matarleikjum" fyrir börn,
kennslu í skólum o. s. frv.
ÓVÆNTUR ÁRANGUR.
Stundum geta einföld brögð
borið óvæntan árangur, eins og
eftirfarandi dæmi sýnir:
1 Chile reyndi Fridthjof að
vekja og auka áhuga fólksins á
fiski, sem hét merluza (kolmúli).
f Argentfnu og Uruguay er þessi
fiskur mjög vinsæll. En í Chile
er slík ofgnótt af mertuza, að
fólki finnst hann ómerkilegur
og étur hann ekki. Fridthjof og
samstarfsmenn hans ákváðu þvf
að gera smátilraun. Þeir urðu
sér úti um nokkur hundruð kíló
af merluza í bezta gæðaflokki
og settu'upp söluskála á fisk-
markaðinum í strandbæ nokkr-
um. Þeir skiptu fiskinum f tvær
hrúgur. Við aðra hrúguna settu
þeir spjald með gangverði, en
við hina spjald með tvöföldu
verði. — „Um kvöldið vorum
við búnir að selja alla dýru
hrúguna, en stóðum uppi með
helminginn af þeirri ódýru.
Skýri þeir, sem skýrt geta“.
Alþjóðleg
verzlunar-
róðstefna o. fl.
Undirbúningur hinnar alþjóð-
legu ráðstefnu um verzlun og
þróun, sem halda á f ársbyrjun
1964, framkvæmdaáætlun um
„þróunaráratug" Sameinuðu
þjóðanna og efnahagslegar og
félagslegar afleiðingar afvopnun
ar eru meðal veigameiri umræðu
efna á sumarþingi Efnahags- og
félagsmálaráðsins, sem nú stend
ur yfir í Genf.
Að þvf er snertir verzlunar-
ráðstefnuna hefur sérstök und-
irbúningsnefnd setið á rökstól-
um síðan f janúar. Hún hefur
fjallað um uppkast að þeim um-
ræðum sem ráðstefnan tekur
fyrir. í uppkastinu eru sjö meg-
inatriði: 1. Utþensla alþjóða-
verzlunar og þýðing hennar fyr-
ir efnahagsþróunina. 2. Alþjóð-
leg vöruvandamál. 3. Verziun
með iðnaðarvörur og hálfunnar
vörur. 4. Endurbætur á ósýni-
legri verzlun þróunarlandanna.
5. Afleiðingar svæðisbundinna
efnahagssamtaka. 6. Fjárhags-
legur stuðningur við aukin al-
þjóðaviðskipti. 7. Undirbúning-
ur, aðferðir og endanleg tilhög-
un opinberra stofnana á ráð-
stöfunum, sem miða að þvf að
færa út kvíar alþjóðaviðskipta.
f skýrslu frá nefndinni um
alþjóðleg vöruviðskipti er fjail-
að um tvær tillögur um ráð-
stafanir sem gerðar verði með
það fyrir augum að jafna hinar
breytilegu útflutningstekjur
landa, sem framleiða hráefni.
Framh. á bls. 5