Vísir - 17.08.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 17.08.1963, Blaðsíða 1
VISIR Skógræktarmenn þinga norðanlands Fimmtugasti og þriöji aöal- fundur Skógræktarfélags islands var settur f gær kl. 10 f Skföa- hótelinu í Hlíöarfjalli. Mættir voru 70 fulltrúar frá flestum skógræktarfélögum landslns cn þau eru 29. Formaður Hákon Guömundsson hæstaréttarritari setti fundfnn og stjómaöi hon- um. 1 upphafi minntist hann tveggja félagsmanna sem látizt höföu á árinu, Valtýs Stefánssonar ritstjóra sem var formaður félagsins um Iangt ára bil og óbilandi baráttumaður Framh. á bls. 5 Ráðgerð stofnun fallhlífastökkklúbbs Mikill áhugi er ríkjandi innan Flugfélags Islands og meðal margra einstaklinga að mynda fallhlífar- stökksklúbb í Reykjavík og víðar um land. Málið er í athugun, og á algjöru byrjunarstigi, en ísland er eina landið I Evrópu sem ekki Hótel Reynihlíð. Snæbjöm Pétursson, forstjóri þess, stendur f hlaöi. Gera þyrfti flugvöll fyrir ferðafóik í Mývatnssveit Athyglisverð hugmynd hótelstjórans í Reynihlíð Á undanförnum árum hafa verið lagðir litlir flugvellir víðsvegar um Iand, sem bæði eru not- aðir sem sjúkraflugvell- ir og til flugsamgangna með litlum flugvélum, sem Björn Pálsson, Tryggvi Helgason, Flug sýn og fleiri aðiljar halda uppi. En í eina sveit vant- ar slíkan flugvöll, þar' sem kannski væru meiri not af honum en annars staðar. Það er í mestu ferðamannasveit lands- ins, Mývatnssveitina. Fréttamaður Vísis var fyrir nokkru á ferð að Reynihlíð við Mývatn og átti þar tal við Snæ- björn Pétursson forstjóra gisti- hússins. Og kom hann þá fljótt að hve mikil þörf væri á því að gera þarna flugvöll, sem myndi auðvelda t. d. erlendu ferða- fólki að komast að Mývatni, sem er einn vinsælasti staður útlendinga á landinu. LOSNA VIÐ LANGA FERÐ Ef við hefðum flugvöll myndu gestirnir losna við hina löngu ferð um Akureyri frá Reykja- vík, sem oftast kostar þá næt- urdvöl á miðri leið. Ekki svo að skilja, að ég hafi neitt á móti þvi að þeir nátti sig á Akureyri, en mörgum þeirra finnst það sjálfum óþörf töf og fyrir þá kæmu flugsamgöngurnar að gagni. Hér mætti líka gera stór- an flugvöll líkt og við Sauðár- krók, sem gæti komið sér vel í sambandi við millilandaflug, þvl að veðrátta er þannig I Mý- vatnssveit, að oftast er hér bjart og heiðskírt, þó að ólend- andi sé vegna þoku út við sjó- STÆKKUN GISTIHÚSSINS Nú er unnið að stækkun gisti- hússins Reynihlíð og lítur Snæ- björn björtum augum til fram- tfðarinnar. Við, sem stundum gistihúsreksturinn, getum ekki talizt neinir hátekjumenn, ef við miðum laun okkar við tíma- vinnu, því oft er starfsdagurinn Iangur. Við reynum að stilla öllu verði I hóf og ef við eig- um nauðsynlegum skilningi að mæta hjá þeim, sem völdin hafa I þessum málum á þetta allt að geta blessast. Dvalarkostnaður í Reynihlíð er á sólarhring ef Framh. á bls. 5 hefur klúbb af þessu tagi. Fallhlífarstökk er talsvert dýr íþrótt, búningurinn einn kostar um 5000 krónur og tvær fallhlífar eru nauðsynlegar, sem kosta samtals annað eins, eða meira. Auk þess þarf klúbburinn í heild að eiga- stökkturn og ýms mælitæki vegna stökkmóta. Framh. á bli, 5 Forseta- hjónin erlendis Forseti íslands herra Ásgeir Ásgeirsson fór I morgun til út- landa í einkaerindum og hefur forsætisráðuneytið gefið út til- kynningu um að f fjarveru hans fari forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstarétt- ar með vald Forseta íslands. Forsetinn og forsetafrú Dóra Þórhallsdóttir fóru með flugvél Flugfélags íslands til Osló, en þaðan munu þau halda með lest til Stokkhólms eftir skamma viðdvöl. í Stokkhólmi munu þau dvelja um hrfð hjá dóttur þeirra og tengdasyni Páli Ás- geiri Tryggvasyni, sem nú veit- ir forstöðu fslenzka sendiráðinu f Stokkhólmi .Forsetinn er vænt anlegur aftur til íslands 4. sept- ember en forsetafrúin nokkru síðar, líklega 12. september. Blaðið í dag BIs. 3 Myndir frá Skoplje. — 4 Bridgemótiö f Bad- en-Baden. — 7 Margt býr f olfu- geymum. — 8 Helander á ný fyrir rétti. •— 9 Ferðalög og sumar- arleyfi á íslandi. — 13 Tízkan frá París. DAPURLEGT Á SIGLUFIRÐI Síldin hefur brugðizt þur Ástandið á Siglufirði er nú orðið mjög dapur- legt. Menn höfðu vonazt til, að fá aðra eins góða síldarvertíð og í fyrra- sumar, en virðist sýnt, að það muni með öllu bregðast. Það er nú lið- inn langur tími síðan síld hefur borizt til Siglu fjarðar, að undanskild- um einstaka bát, sem kemur þangað. Á Siglufirði hefur hrtðað i fjöll og er snjór niður í miðjar hlíðar. í byrjun ágúst munaði minnstu að Siglufjarðarskarð lokaðist. Á sama tíma eru menn orðnir vonlausir um að meiri síld að ráði komi til Siglufjarð- ar, söltunarfólk flest farið þaðan í burtu. Viðbrigðin frá því í fyrra- sumar eru mikil. Þá var oft unnið nær stanzlaust allan sól- arhringinn, við að landa og salta. Nú' hefur verið 8 klst. vinna á plönum og í verksmiðj- um. Þó síldarsöltun sé nú orðin meiri en á síldarvertíðinni í fyrra, hefur sú aukning orðið mest á Seyðisfirði og Raufar- höfn. Heildarsöltun á landinu nam nú f vikunni 341 þús. tn. á móti 272 þús. tunnum á sama tíma í fyrra. En á Siglufirði er hún nú aðeins 67 þús. tunn- ur á móti 92 þús. tunnum f fyrra. Ennþá ömurlegra er ástandið þó hvað viðvíkur sildarbræðsl- unni, þar sem framleiðslan á Siglufirði nemur nú aðeins um 53 þúsund málum á móti 616 þúsund málum á sama tíma f fyrra. Er framleiðslan núna þvf Framh. á bls. 5

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.