Vísir - 17.08.1963, Side 3
V ÍSIR . Laugardagur 17. ágúst 1963,
'SMMM
3
Þegar ógæfan skall
yfir SKOPLJE
Myndsjá Vísis birtir í
dag tvær áhrifamiklar
myndir, er voru teknar
stuttu eftir að jarð-
skjálftarnir skullu yfir
borgina Skoplje í suður-
hluta Júgóslavíu að
morgni þess 26. júlí s.l.
Myndirnar sýna nokkuð
skelfingu fólksins, sem
slapp út úr húsum sín-
um. Það var flest alls-
laust, komst út á nátt-
klæðum einum og marg
ir höfðu misst ástvini
sína í þessum skyndi-
Iegu ósköpum.
Það ranglaði um stræti borg-
arinnar, margir grátandi og aðr-
ir höfðu fengið taugaðfall. Þessi
hörmunganótt mun aldrei líða
þvf úr minni.
Nöttin hafði verið kyrrlát og
öli borgin í fastasvefni, þegar
ósköpin dundu yfir um stundar-
fjórðung yflr fimm um morg-
uninn.
Talið var, að upptök jarð-
skjálftans hefðu verið í jörð-
inni imdir borginni sjálfri og
varð harrn svo snöggur og kraft
mikill, að heil hverfi lögðust f
rúst í einu vetfangi. Verst fóru
eldri borgarhiutarnir, þar sem
húsunum var hróflað upp úr lé-
legum múrsteinum, en mörg
nýrri hús fóru einnig mjög illa.
Talið var, að um þúsund manns
hefðu farizt, um þrjú þúsund
særzt en 200 þúsund urðu hús-
næðislausir.
Stærsta gistihús borgarinnar,
Hotel Makedonia, lagðist 1 rúst-
ir og fórust allir, sem i þvi
voru. Myndirnar tvær, sem hér
birtast, voru teknar af banda-
rískum blaðaljósmyndara, Sam
Nocella, sem hafði einmitt kom-
ið til Skoplje kvöldið áður. —
Hann hafði farlð inn í Hotei
Makedonia við komuna og beð-
ið um gistingu þar, en hótelið
var þá fullskipað. Var honum
vísáð í annað minna gistihús,
Hotel Túrist, þar sem hann fékk
rnni. Það fór einnig illa í jarð-
hræringunum, en Ijósmyndarinn
komst út úr því við illan leik
og það eina, sem hann hafði
meðferðis var myndavélin og
tók hann þessar sögulegu mynd
ir, sem sýna það sáiarástand
skelfingar og harms, sem ríkti
meðal íbúanna. Sjáifur var ljós-
myndarinn aðeins á náttfötun-
um.
L. , Jf