Vísir - 17.08.1963, Side 6
6
¥oIkswogen oq Laad-Rsver
Höfum iii lel
.iUga^ .Dar
ju3.
Undir fyrirsögninni „Milljóna-
hneyksli" og með undirskriftinni
Nemo birtist grein í Reykjavíkur-
blaðinu „Ný vikutíðindi“ 9. þ.
m. um „Sigló“-síld. 1 greininni eru
slíkar aðdróttanir og rógur um
framleiðslu niðurlögðu síldarinnar,
sem Síldarverksmiðjur ríkisins ann
ast í umboði stjórnar Niðursuðu-
verksmiðju ríkisins, að stjórn verk
smiðjunnar hefur á fundi sínum í
dag ákveðið að höfða mál gegn rit
stjóra „Nýrra vikutíðinda“ og fá
ummæli blaðsins dæmd ómerk.
Greinarhöfundur heldur því m. a.
fram, að „Sigló“-síld sé alls staðar
óseljanleg á erlendum markaði
þvi að í síldina og sósuna sé
bætt rotvarnarefni, sem bannað sé
nota „hvarvetna nema í Bandaríkj-
unum“ og sé þess ekki getið á
umbúðunum. Með skrifum þessum
er „Sigló“-síldin gerð tortryggileg i
augum neytenda, Rotvarnarefni
það, sem notað er í „Sigló“-síldina,
er 0,1% Natriumbenzoat og er
það greinilega tekið fram á dósaum
búðunum í þeirri upptalningu á efn
um þeim, sem síldarsósan er gerð
úr. Notkun natríumbenzoats í niður
lagt fiskmefi er m. a. leyfð i Noregi,
Svfþjóð, Danmörku, Hollandi, Vest-
ur-Þýzkalandi, Sviss, Austurríki,
Bandaríkjunum og Kanada, en Eng
land, Irland og ftalía leyfa ekki
notkun þess, sbr. Tidsskrift for
Hermetikindustri, nóvemberhefti
1961.
Rannsóknarstofa Fiskifélags ís-
lands hefur fylgst með framleiðslu
„Sigló“-síldar frá upphafi og hefur
í dag gefið vörunni svohljóðandi
vottorð:
„Reykjavík, 16. 8. ’63. Það vott-
ast hérmeð, að niðurlagða síldin,
sem Síldarverksmiðjur ríkisins á
Siglufirði hafa framleitt undanfarið
undir merkinu S i g 1 o , hefur verið
hér undir eftirliti frá því fyrsta.
Hefur vara þessi alltaf reynzt vera
1. flokks og merking hennar eins
og tíðkast á amerískum markaði.
Varan er framleidd á sama hátt
og venjulegt er á Norðurlöndum.
Er notað í hana 0,1% af Na-ben-
zóati og þess getið á umbúðunum,
hvort tveggja eins og gert er þar.
— Fiskifélag íslands — Rannsókn
arstofur — Gerlarannsóknir —
Sigurður Pétursson (sign)“.
Fyrir einu og hálfu ári hófst
framleiðsla „Sigló“-síldar. Heildar-
verðmæti framleiðslunnar á þessu
tímabili er um 4 milljónir króna
og hefur rúmur helmingur verið
seldur hér innanlands, en nokkurt
magn hefur farið á markað í Dan
mörku og Bandaríkjunum. Við fram
leiðslu „Sigló“-síldar eru bundnar
miklar vonir, en eins og jafnan er
um nýja vörutegund þarf langan
tíma og mikið fjármagn til að ryðja
henni braut á markaðinum. Skrif
„Nýrra vikutíðinda" 9. þ. m. um
,,Sigló“-síld eru tilræði við þá við-
leitni að skapa meiri verðmæti úr
íslenzkum sjávarafurðum.
Siglufirði, 15. ágúst 1963.
f. h. stjórnar Niðursuðuverksmiðju
ríkisins
Vilhjálmur Guðmundsson
CKKI VAK ALITMCB
FCLLDUlÞÓRSMÖRKINNI
Talið var að yfir 5 þúsund
manns hefðu safnazt saman f
Þórsmörk yfir Verzlunarmanna-
helgina, mestur hlutinn af því
unglingar.
Áður hefur bað komið fyrir að
lifnaður fólks þarna væri alló-
siðlegur ,en að þessu sinni var
margskonar viðbúnaður hafður
til að reyna að veita ungling-
unum afþreyingu og skemmt-
un. Beitti Æskulýðráðið sér
fyrir samkomu og hópleikjum,
þá var efnt þar til messugerðar
á sunnudaginn o fl. Löggæzlu-
menn frá Reykjavík voru á
staðnum.
A8 þessu sinnl kom eklfí . til
neinna óíáta né skrílsæðis á
mörkinni, en þrátt fyrir það var
öivun mjög mikil þar meðal
unglinganna og er hryggilegt að
slíkt skuli vera fastur liður í
slfkum samkomum unglinga á
aldrinum 15—20 ára.
Hér birtast nokkrar myndir
úr mörkinni, sem sýna að ekki
var allt með felldu þar, þrátt
fyrir viðbúnað, tjöld voru Iaus
og slitin upp, og á einum stað
var tjald tekið ofan af tveimur
félögum sem sváfu í því bjarg-
arlausir af ölvun. Á einni
myndinni sjást lögreglumenn
bera slasaðan og ölvaðan pilt
burt á sjúkrabörum. Hann hafði
brákast á hnéskel og var fótur
hans mjög bólginn, svo að
Iæknir úrskurðaði gegn mót-
mælum hans, að flytja yrði
hann til Reykjavíkur.
'Sé bifveiðin tvUin á Irisu i einn tnánuð eða leuifri.iittia, jrá gi'.fitm viiT 10 — 20% afslátt i lelgúgjaldi. — Leigjum blfreíðir okkar allt niður i 3 (itna,
AtMW BIFRÍfDAlfÍCAÍI h f. I SÍISíÍÍ ÉÉlSfepÉ —’lil*