Vísir - 02.09.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 02.09.1963, Blaðsíða 16
Börnin í skólana í morgun mættu börnin til skrá- setningar í skóla borgarinnar. Við skruppum í Miðbæjarskól- ann um 10-leytið. — Börnin streymdu að, flest í fylgd með mæðrum sínum, en stöku börn voru þarna með föður sínum. Þ.au héldu þéttingsfast f foreldra sína, eftirvæntingin leyndi sér ekki. Hvað við tekur, vita þau ekki, en sennilega hafa foreldr- amir brýnt það fyrir þeim að það velti að langmestu leyti á þeim sjálfum, hvemig skóla- gangan verður. I morgun ,einhverntíma á 6. tím- anum var bifreið ekið á mikiili ferð á ljósastaur við Miklubraut, staur- inn brotinn og bíliinn stórskemmd- ur. Þegar lögreglan kom á vettvang í morgun var ökumaðurinn farinn af staðnum. Smá blóðblettur fannst í bílnum og var óttazt að slys hafi orðið. Lögreglan fór heim til skráðs eiganda bifreiðarinnar, en hann hafði þá lánað öðrum hana og skýrði frá hver það væri. — Fannst hann skömmu síðar og var undir áhrifum áfengis. Bíllinn var mikið skemmdur að framan. Ljósa- staurinn sem var úr tré, brotnaði í sundur og línur slitnuðu. Mynd þessi var tekin á Iaugardaginn þegar 20 þúsundasta tunnan var söltuð hjá Ströndinni á Seyðisfirði. Þama sjást þau sem verðlaunin hlutu, Ingibjörg 11 ára, Karl 13 ára og Sigríður Guðjónsdóttir. Sitt hvoru megin standa stjórnendur Strandarinnar, Sveinn Guðmundsson framkvæmdastjóri og Erlendur Björnsson. Söltun á Seyðisfirði JOOþús. tunnur Seyðfirðingar eru nú að slá öll met í síldarsölt un og gætu þeir jafnvel saltað miklu meira, því að síldin, sem nú berst af Austfjarðamiðum, er fyrsta flokks söltunar- síld. Er það leitt, þegar svo góð síld berst, að söltun skuli vera að stöðvast vegna þess að búið er að salta upp í samnmga. Framhald á bis. 2 í fyrrinótt tókst tögreglunni í Reykjavík að handsama þjóf þar sem hann hafði brotizt inn í verzlun á Laufásveginum. En Reynir Þorvaldsson. I fyrrinótt varð enn eitt dauða slysið á þeim stutta vegarkafia þar sem Reykjanesbraut liggur í gegnum kauptúnið Ytri-Njarð vik. Kvæntur 4 barna faðir, Reynir Þorvaldsson, Þómstíg 8, varð þar fyrir bílnum A-28 og var látinn er komið var með hann í sjúkrahús. Eigandi bíls- ins var í bílnum en ók honum ekki er slysið varð á móts við afleggjarann að Samkomuhúsi Njarðvíkur. Mál þetta er í rann- sókn. Fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík taldi að 10-12 manns hefðu látið lífið í umferðarslys um á fyrmefndum vegarkafla um Ytri-Njarðvík á undanförn- um árum og mun þetta vera ein mesta slysagata landsins. Hreppstjórinn í Njarðvíkur- hreppi, Ólafur Sigurjónsson, sagði í viðtali við Vísi í morg- un, að maðurinn sem fórst þarna í fyrrinótt hefði verið borinn og barnfæddur Njarð- víkingur og hreppsbúar væru slegnir miklum óhug vegna hinna tíðu og miklu siysa á þjóð veginum ,sem liggur um byggð þeirra. Slysið varð um kl. 2.40 í fyrrinótt. Reynir Þorvaldsson kom út á þjóðveginn frá vinstri hlið og lenti framan á iitilli fólksbifreið. Ökumaðurinn hefir borið fyrir rétti að hann hafi ekki orðið mannsins var fyrr en of seint var að komast hjá á- rekstri. við nánari rannsóltn í máli hans bendir allt til að hann sé vald- ur að úra- og skartgripaþjófn- aðinum mikla, sem s.l. vetur var framinn í verzlun Jóhannes- ar Norðfjörðs í Eymundssonar- kjallaranum f Austurstræti. í fyrrinótt var götulögregl- unni tilkynnt að verið væri að brjótast inn í verzlunina Radfó- tónar á Laufásvegi 41. Lögregl- an var snör f snúningum, kom á staðinn andartaki sfðar og handtók þjófinn inni í verzlun- inni. Hann mun ekki hafa ver- ið búinn að stela neinu þegar hann var tekinn og var hann færður í fangageymsluna. Við rannsókn í máli hans taldi rannsóknarlögreglan ástæðu til að láta gera húsieit hjá honum og að því er Ingólfur Þorsteins- son yfirvarðstjóri rannsóknar- lögreglunnar, sem hafði með rannsókn í málinu að gera, tjáði Vísi í morgun, fundust bæði úr og skartgripir við þessa leit. Ingólfur kvaðst ætla eftir því sem komið væri þegar í dagsins liós, að þarna hafi fundizt veru- legur hluti þess þýfis, sem stol- ið hafi verið úr úra- og skart- gripaverzlun Jóhannesar Norð- Framh. á bls. I': VÍSIR Mánudagur 2. sept, 4963. Ekið ó staur

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.