Vísir - 07.09.1963, Page 1
VISIR
53. árg. — Laugardagur 7. sept. 1963. — 196. tbl.
Þrjár konur slasast /
tveim bifreiðaslysum
Tvö alvarleg slys urðu f gær,
annað f Reykjavfk, hitt f ná-
grenni Reykjavfkur.
Skömmu eftir hádegið f gær
varð umferðarslys á mótum
Laugarvegar og Laugarnesvegar
og þar slasaðist kona á höfði, en
ekki var vitað með fullkominni
vissu síðdegis í gær hvé mikið.
Konan lá þá í slysavarðstofunni
og var þar enn til athugunar
þegar blaðið vissi síðast.
Þegar slysið skeði var veghef-
ill á leið vestur Laugaveginn og
fór hægt. Um það bil sem veg-
hefillinn var að nálgast gatna-
mót Laugarnesvegar tók hann
mund ætlaði bifreið sem var
fyrir aftan veghefilinn að aka
fram úr honum, tók góða
sveigju til hægri, en samtímis
kom kona í fólksbifreið eftir
Laugamesveginum beygði til
austurs inn á Laugaveginn og
það varð til þess að bílarnir rák
Framh. á bls. 5.
•N .....:
Myitdimar sem hér birtast tók Ijósmyndari Vfsis, B. G., í gær örskömmu eftir að slysið hafði orðið á
Sandskeiðinu. Áætlunarbíllinn frá Hveragerði fór út af veginum og valt. Myndin vinstra megin gefur til
kynrra, hve ónotalegt það hlýtur að vera fyrir farþega að liggja í áætlunarbíl á hliðinni. Maðurinn lítur
inn um lúguna, sem farþegar komust út um.
AAA/VWVWWWWWW-
Miklar breytingar á skólakerfinu:
Bamaskólar annist kenn-
siu öll skyldunámsárín
Það liggur í Ioftinu að
innan skamms muni tals
verðar breytingar verða
á íslenzku skólakerfi,
aðallega á bama- og ung
lingastigi. í haust verð-
ur t. d. í fyrsta skipti tek
in upp unglingakennsla
í þremur barnaskólum
borgarinnar, Austurbæj
arskólanum, Laugalækj-
arskólanum og Hlíða-
skólanum.
Unglingakennslan í þessum
skólum er það fyrsta, sem í
framkvæmd kemur af fyrirhug-
Framh. á bls. 5
A hreindýraveiðar með gúmmibát
Um síðustu helgi fór 7 manna
leiðangur af Héraði inn á öræfi
á hreindýra- og silungsveiðar.
Lagt var af stað á laugardag-
inn og komið aftur kvöldið eftir
með góðan feng, fjögur væn og
feit hreindýr og góðan silungs-
afla.
Vísir átti í morgun tal við
einn leiðangursfara, Guðmund
Oddsson settan héraðslækni á
Egilsstöðum.
— Við lögðum á stað eftir
fcádegið á laugardaginn frá Eg-
Ðsstöðum og inn á Jökuldal.
Þar fengum við til fylgdar Óla
frá Merki, kunnustu hreindýra-
skyttuna á Jökuldal og umsjón-
armann með Heiðarselslandi, en
þangað var förinni heitið.
Við vorum sjö saman, fjórir
karlar og þrjár konur, þ. á m.
Brynhildur Stefánsdóttir ljós-
móðir á Egilsstöðum, en hún er
systir Óla á Merki. Við vorum
á tveim jeppabílum, Landrover
og Rússajeppa.
Ekki sáum við neitt af hrein-
dýrum á laugardagskvöldið,
enda var aðaláherzlan þá Iögð
á silungsveiðar, en í Heiðar-
selslandi eru ágæt veiðivötn, og
Framhald i bls. 5.
Ný stjórn
Hin nýkjörna stjóm Stéttarsam-
bands bænda, talið frá vinstri:
Einar Ólafsson Lækjarhvammi,
Páll Diðriksson Grímsnesi, Gunn
ar Guðbjartsson Hjarðarfelli, Vil
hjálmur Hjálmarsson Brekku og
Bjarni Halldórsson Uppsölum.
— Myndin af hinni nýkjörnu
stjórn var tekin f Bændahöllinni.
dag
Bls. 3 Theodora f Banda-
rfkjunum.
— 4 Bækur og höf-
undar.
— 6 Reiðir ungir menn.
— 9 Heimsókn I hænsna-
búið að Reykjum.