Vísir - 13.09.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 13.09.1963, Blaðsíða 16
I ' VÍSIR Sýning á nýtízku skrifstofuvélum Um hádegiS f gær varS um- ferSarsIys þar sem Skothúsvegur, Sóleyjargata og Fríkirkjuvegur mætast. Fjórtán ára drengur, Ein- ar Sigurgeirsson, Grettisgötu 31, siasaSist og liggur nú i sjúkrahúsi. Einar var á skellihjóli og kom vestan Skothúsveg. Hann mun ekki hafa gætt biðskyldu á þessum gatnamótum, og ók þvert f veg fvrir bifreið sem var á leið suður Fríkirkjuveginn. ökumaður bif- reiðarinnar reyndi að sveigja frá og hemla en það var allt um sein- an og árekstur óumflýjanlegur. Hanri varð mjög harðar því dreng- urinn kastaðist af skellihjólinu upp á vélarhús bifreiðarinnar beint á framrúðuna og mölbraut hana. Ennfremur dældaðist glugga umgerðin að ofan og telur lögregl- an Iíklegt að hjálmurinn á höfði drengsins hafi skollið þar. Af vélarhlífinni kastaðist drengurinn aftur f götuna. Hafði hann hlotið mikið höfuðhögg og áverka í and- lit. Mun hjálmurinn þó hafa dreg- ið stórlega úr högginu. Drengurinn var fluttur f slysa- varðstofuna og þaðan nokkru sfð- ar f sjúkrahús. Meiðslin eru ekki talin lffshættuleg. Arinað slys varð síðdegis í gær við Reykjavfkurhöfn. Maður, sem virtist nokkuð undir áhrifum á- fengis, var að fara í land úr skipi, en hrasaði og meiddist á fæti. Hann var fluttur í slysavarðstof- una. Þetta slys skeði kl. rúmlega 6 e. h. ASIir matvörukaupmeim íái leyfi til ai reka kvöldsölu Vegna þeirra tillagna um breyt ingu á lokunartfma verzlana, sem nú liggja fyrir borgarstjóra til afgreiðsiu vilja 45 matvöru- kaupmenn í Reykjavík ieggja á- herzlu á eftirfarandi atriði: I. Allar matvöruverzlanir fái leyfi til að reka kvöldsölu í svip uðu formi og verið hefur. II. Fjöldi vörutegunda í kvöld sölu miðist fyrst og fremst við þarfir neytenda og takmarkist aðeins af heilbrigðissjónarmið- um. III. Reynsla þeirra kaup- manna, sem rekið hafa kvöld- sölu í eitt ár eða lengur sannar Frh. á bls. 5. Sfðustu daga hefur verið I sleitulaust unnið að þvf, að 1 i undirbúa mikla og glæsilega I I sýningu, sem Stjómunarfélag , íslands gengst fyrir, og verður 1 í hinu nýja húsnæði Verzlunar- skóla islands. Sýningin nefnist I Skrifstofutækni 1963, og á | henni getur að líta, eins og, nafnið bendir til, flest hinna I nýjustu og fullkomnustu tækja, 1 sem notuð em til skrifstofu-1 starfa f dag. Það eru 24 fyrir-1 tæki, sem sýna vömr sínar I þaraa. Sýningin verður opnuð 1 almenningi á morgun. Myndina I I tók ljósmyndari Vfsis I. M. í | morgun, af einni deildinni. - ■É f ^ ;a: i ■/.' M Slgurður kemur að landi á Bensa sínum. Margir vom á bryggjunni tii að taka á móti honum. iigum góSamögu- leika á aS sigra — segir frnmkvæmdastjóri Norrænu sundkeppninnur Það er ekkert vafamál, að við eigum góða mögu leika á því að sigra í Norrænu sundkeppn- inni. Þptttakan er stöð- ugt meiri og meiri, og þvi er ég vongóður um að okkur takist að sigra, sagði Þorsteinn Einars- son, íþróttafulltrúi, sem er framkvæmdarstjóri Norrænu sundkeppninn ar við Vísi í morgun. Enn sem komið er hafa engar Var orSinn mer bfíndur af salti Sigurður Jónsson fiskimaður á Akranesi var orðinn hold- blautur og kaldur og hann var orðinn hálfblindur af salti, þeg- ar hann kom loksins að landi eftir nærri sólarhring útivist út af Faxaflóa f ofsaveðri á litilli trillu, Bensa. Það var Akranesbáturinn Ól- afur Magnússon sem fann trill- una í gærmorgun um 12 sjó- mílur frá Akranesi og hjálpaði henni inn. Telja sjómenn á Akranesi óvíst að trillan hefði komizt til hafnar af sjálfsdáð- um. Sigurður Jónsson hafði róið kl. 6 í fyrrakvöld. Keyrði hann 22 mílur út og tók að Ieggja línu, sem er 8 bjóð. Þegar hann hafði lokið við að leggja lín- una um kl. 10,30 var hann kom- inn 25 mílur út. Hann fór nú Framh. á bls. 5 fréttir borizt frá hinum Norður- löndunum, nema það, að veður hefur yfirleitt verið gott og því baðstaðir mikið notaðir. Þrjár nýjar sundlaugar hafa ekki alls fyrir löngu hætzt í hóp sund- staða landsins. Þær eru á Eski firði, Mosfellssveit og í Hrfsey. Rómaði Þorsteinn mjög dugnað íbúanna við að koma upp laugunum, þvf ekki er nema á einum þessara staða jarðhiti fyrir hendi. Alls staðar er stefnt að þvf að ná eins góðri þátttöku og árið 1954, en þá var hún bezt. Undan farið hafa Akureyringar hert mjög áróðurinn fyrir keppninni og til þess að gera þátttöku sem almennasta hefur bænum verið skipt niður í fimm hverfi. Tak- markið hjá hverju hverfi er að fá minnst 500 manns til þess að synda 200 m. Hverfin heyja síð an boðsundskeppni í Grfmsey, en þangað era 100 km. Hér í Reykjavfk er einig háð hverfakeppni og er bænum skipt niður f 3 hverfi. í dag er það austasta hverfi borgarinnar sem hefur forystuna, en það er f kringum gömlu Sundlaugarnar. Norrænu sundkeppninni lýk- ur n. k. sunnudag, og verður reynt að hafa alla sundstaði borgarinnar opna til kl. 8 á Föstudagur 13. september 1963 Tvö slys í gær

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.