Vísir - 18.09.1963, Page 4

Vísir - 18.09.1963, Page 4
4 / VÍSIR . Miðvikudagur 18. september 1963. W Bréf sent VISI Ekki skal bónda heldur safna iiði“ Tpyrir nokkrum dögum komu sjö þúsund höfuðborgar- búar vonsviknir frá iþrótta- kappleik við Breta. Landinn bauð fram sitt vaskasta lið, en beið hinn sögulegasta ósigur. Margar ytri ástæður voru í góðu lagi við þessa kappraun. Bærinn lagði fram góðan mill- jóna völl. Stórhugur er í bygg- ingamálunum því að hjá þess- um velli er verið að reisa íþróttahvelfingu sem kostar milljónir. Tilsýndar minnir þetta hús helzt á Péturskirkjuna í Róm. En ekkert af þessum gæðum varð íþróttamönnunum að björg f þetta sinn. Ósigur- inn var óumdeilanlegur. Önnur hliðstæð kappraun bíður Islend- inga í London. Skörungsekkja fyrr á öldum, missti mann sinn í kappleik þeirrar aldar við enska ofbeld- ismenn. En íslenzka konan gafst ekki upp. Hún lærði af ósigrin- um hversu úr skyldi bæta. Vörn in var aukin og viðeigandi sigur unninn á þeirri tfð. Reykjavík hefur tapað leik fyrr en nú, en sýnt þrek og framsýni og jafnaði metin. Um 1870 var engin fleyta með þii- fari í eigu manna við Faxaflóa og enginn maður með sjómanna kunnáttu til að stýra slíku skipi. En það var hugur og dirfska í afkomendum Ingólfs Arnarsonar. Fátækur, föður- laus piltur vestan af fjörðum kom til Reykjavíkur, nam sjó- fræði og kenndi síðan á ára- tugum hundrað vöskum bæjar- búum skipstjórn. Þá kom á sjónarsviðið piltur úr miðbæn- um, sterkur og vaskur, en svo auralaus, að hann gat ekki komizt í Latínuskólann sökum fátæktar. En hann skorti hvorki kjark eða orku. Hann vildi eign ast skútur og gera þær út. Þessir tveir áhugamenn lögðu grundvöilinn að veldi Reykja- vfkur. Þeir og samtíðarmenn þeirra breyttu Reykjavík á 30 árum í útgerðarbæ með 100 þilskipum. íslenzkur saltfiskur varð úrvals vara á Spáni. Það an fékk landið á góðum árum 20 milljónir gullkróna fyrir bezta saltfiskinn sem þá var til á markaðinum. Ingólfsbær óx hraðfara. Nokkrar götur voru fullbyggðar á fáum árum. TTm aldamótin komu enskir togarar og sópuðu íslenzk mið uppundir landsteina. ís- lenzkir sjómenn unnu hreysti- verk á stórum fiskibátum og skútum, en þeir kunnu ekki að toga. Bretarnir fengu oft svo mikið af fiski hér við land, að þeir vörpuðu ódýru tegund- unum í sjóinn. íslendingar kynntust Bretum í hafinu og fór vel á allri sambúð með son- um stórþjóðar og smáþjóðar eins og oft endranær. Þá hófust gagnkvæm viðskipti milli reyk- vfskra sjómanna og brezkra togaramanna. Islendingar fengu feiknin öll af nýjum og góðum togarafisk, fluttu hann í land, en borguðu með brennivfni eftir því sem með þurfti. Þá orti eitt af góðskáldum þjóðarinnar snillilegt gamanljóð um einn dugl. útgerðarmanninn sem fiskaði vel og verzlaði líka við Bretann, skipti á brennivíni og þorski. Erindið er svona: „Nesja-Gvendur, Nesja- Gvendur, nú er kominn hér, Trollar hann með tröllum, tekur fisk af öllum. Gullið enska, gullið enska, Gvendur f vösum ber.“ Ekki undu Islendingar nema stutta stund við þessa atvinnu. Þeir lærðu af Bretum að nota togara og gerðu Reykjavfk að mikilli togarastöð. Yfirmenn og hásetar á þessum togurum voru úrvals fólk að orku og áhuga. Þeir lærðu af Englendingum alla þá mennt sem með þurfti til að stunda togaraveiðar við Island með góðum árangri og komust fram úr lærifeðrunum. Innan tíðar voru Islendingar komnir ámóta Iangt fram úr Bretum f togaraveiði hér við land eins og Bretar voru fremri íslendingum á leikvanginum f Laugardal. Þessa sögu má end- urtaka. fslendingar keyptu skút- ur af Bretum og lærðu að nota þær. Þeir keyptu togara af eftir Jónas Jónsson fró Hriflu Bretum og urðu brátt fullnuma f þeirri útgerð. Þjóðin hefur lfka numið knattspyrnu af Bret- um, en ekki til fulTS. Éh'það 'er íslenzkt yfirsjónarmál en ekki brezkt. Fyrir nokkrum árum hafði ungur Reykvíkingur, Albert Guðmundsson, félagi í K. F. U. M. numið knattspyrnu f Eng- landi með þeim hætti að hann varð á skömmum tíma í allra fremstu röð afburðamanna f þessu efni í Englandi, Frakk- landi, Italíu, Spáni og Suður- Ameríku. Hann hvarf heim á hátindi frægðar sinnar til Reykjavfkur til að sinna at- vinnu sinni, en það var verzlun. Þá mennt hafði hann búið sig undir f Englandi, en knatt- spyrnan hreif hann um stund frá atvinnunni, að íþróttamál- unum. Þegar Albert var alkom- inn til Reykjavíkur, bauð hann leiðtogum knattspyrnumálanna ókeypis aðstoð sína við að skipuleggja knattspyrnuíþrótt- ina á grundvelli stórþjóðanna, að því er snerti mennt og kunn- áttu. Boði hans var hafnað með meiriháttar vöntun á háttvísi. Þá kenndi Albert án endur- gjalds drengjum í Hafnarfirði knattspyrnu um tveggja ára skeið og kom þeim með mik- illi elju vel á veg í þeirri fþrótt sem þeir höfðu áður haft lftil tækifæri til að stunda. Um sama leyti sendu höfuðstaðar- búar úrvalsflokk knattspyrnu- manna til að þreyta leik við Frakka og Belgíumenn. öll franska þjóðin þekkti vel afrek Alberts Guðmundssonar og uppruna hans á Islandi. Menn gerðu ráð fyrir að úr því að íslendingar sendu lið til Suður- landa þá mundu knattspyrnu- menn f þvf liði vera á borð við Albert Guðmundsson, en það fór á annan veg. Ósigur Islend- inga f Belgíu og Frakklandi var enn tilfinnanlegri heldur en töpuðu mörkin á dögunum á Laugardagsvellinum. Tslendingar eru um þessar mundir í knattspyrnumálum líkt settir og Nesja-Gvendur og hinir vösku sjómenn hans sem skiptu við Breta á fiski og brennivíni. Við erum broslega vanmáttugir. Þó skortir hér ekki álitlegan Iiðskost í knatt- spyrnu eins og fleiri íþrótta- greinum. En hér skortir til- finnanlega tækni og það and- rúmsloft í bænum og lanchnu, sem veitir dugandi mönnum nauðsynlegan stuðning til að vinna afrek. Albert Guðmunds- son varð sá afreksmaður sem raun ber vitrii um með þvf að vilja nema til fullnustu knatt- spymumenntina. I trúarlegum málum fylgdi hann sömu æf- ingu eins og liðsmenn Gustafs Adolfs og Cromwells þegar þeir unnu sína mestu sigra. Þá æfingu hafði hann fengið í fóstri ömmu sinnar og hjá sr. Friðrik f K.F.U.M. En á starfs- tfma hans utanlands var aldrei vín á borðum. Svefn- og hvíld- artími ákveðinn af kunnáttu- mönnum. I æfingum og baráttu- leikum var það fyrsta boðorðið, að hugsa ekki um eigin metnað heldur sigur og gengi leik- flokksins. Með andlegri og þrotlausri þjálfun náði Albert þeirri tækni sem gerði hann um nokkurra ára skeið einn af fremstu mönnum heimslistar í knattspyrnu. Forustulið ís- lenzkra knattspyrnumanna fylgdi f skiptum við Albert slysagötu Frakkakeisara þegar hann þáði ekki gjöf Fultons hins enska, sem bauð honum valdið yfir hafinu. Um þessar mundir stöndum við Islendingar í knattspymu- málum á svipuðu stigi eins og Reykvfkingar þegar Markús skólastjóri og Geir Zoöga út- gerðarmaður hófu nýsköpun skútualdarinnar eða þegar Nesja-Gvendur og hraustir sjó- liðar hans sáu hylla undir rétta leið f togaramálum þjóðarinnar. íslendingar eiga nóg efni í sig- ursæla knattspyrnumenn. Þar mun vera liðsafli, sem ekki stendur að baki sjómönnunum sem komust fram úr Bretum í togaraveiðunum við Island. En þeir þurfa andlega og lfkam- lega þjálfun sem knattspymu- liðsoddarnir þáðu ekki þegar þeim var boðin hin bezta liðs- saga. En íþróttalið þjóðarinnar, konur og karlar, þurfa að styrkjast við hressandi blæ samtfðarinnar. Um síðustu aldamót átti ís- lenzka þjóðin fleiri skáld held- ur en nokkm sinni endranær f allri sögu sinni. En kringum þessa afreksmenn stóðu þús- undir karla og kvenna um allt land sem fylgdu með vakandi eftirtekt afrekum sinna beztu manna. F.n um þá helgi þegar ísland beið sinn mikla ósigur á knattspyrnuvellinum vom öll danshús í höfuðstaðnum full af dansandi fólki, þar sem annar hvor maður var undir áhrifum áfengis og margir ölvaðir. Oti á götunni var lögreglan önnum kafin við að hirða dauða- drukkna menn og raða þeim í ból sín á Síðumúla eða f Stein- inum meðan nokkurt rúm var til. Tslenzka þjóðin má í knatt- x spymumálum minnast drengi legra orða skömglegrar ekkju sem ákvað að rétta hlut ættar sinnar með útsjón og breki, en ekki með grátkviðum. Iþróttalið Reykjavfkur hefur nú beðið mikinn ósigur og hann var ó- hjákvæmilegur, eðlilegur og réttmætur. Nýir sigrar verða undirbúnir. Fordæmi em til eftirbreytni hér f bænum svo að ekki sé lengra farið. Við- reisnin hlýtur að verða marg- þætt. Hún gerist ekki nema að litlu leyti á Laugardalsvellinum. Það þarf nýjan og hressandi andblæ f bæjarlffið. Kynslóð sem breytir dansinum, einni fegurstu íþrótt mannkynsins í auðvirðilega svallæfingu á ó- numið mikið af sinni lexíu. Ef til vill er hægt að læra nokkuð af gamla Geir og Markúsi skipstjóra þar sem þeir stóðu fyrir næstum einni öld á möl- inni við hafnlausa strönd með tvær hendur tómar, en alráðnir að gera garð Ingólfs að miklum og glæsilegum útgerðarbæ og verzlunarbæ. Keriingarfjallakvöldvaka Annað kvöld verður sameiginleg kvöldvaka f Þjóðleikhúskjallaran- um fyrir þá sem dvalið hafa á skíðanámskeiðum í Kerlingarfjöll- um í sumar. Eins og áður var skýrt frá í Vísi var starfandi skíðaskóli f Kerlingarfjöllum í sumar og nem- endur voru samtals hátt á 2. hundrað. Nú koma þeir til sam- eiginlegrar kvöldvöku í Þjóðleik- hússkjallaranum annað kvöld kl. 9. Þar verða m. a. sýndar kvik- myndir frá öllum námskeiðunum f sumar, þar verður sungið og dans- að auk fleiri skemmtiatriða. Myndin hér að ofan sýnir eina hlið Iandslags f Kerlingarfjöllum, en þar getur m. a. að lfta ínhella og hrikalegar sprungur, sem m. a. myndast vegna jarðhita undir snjónum.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.