Vísir - 18.09.1963, Page 5
V1SIR . Miðvikudagur 18. september 1963.
»
5
Thomsen —
Framhald af bls. 8.
unnar. Kristbjörg kona mín
vann sitt starf inni I myrkra-
herberginu og kannski er það
þýðingarmesti hlutinn til þess
að hraða verkinu. Loks bættist
Helga dóttir mín í hópinn. Hún
sá um að þurrka myndirnar og
líma þær inn f albúmið.
— TTefur Birgir sonur þinn
lengi stundað ljós-
myndun?
— Hann er í ljósmyndara-
námi, virðist ætla að feta í fót-
spor föðurins. Og þó ég segi
sjálfur frá, er hann mjög efni-
legur.
— Hvað tókuð þið margar
myndir?
— Við skulum sjá. Ég hafði
75 kassettur af 4 sinnum 5 plöt-
um. Það gera 150 myndir. Svo
tók ég þrjár filmur á Rolleiflex-
inn, sem gerir 36 myndir. Og
Birgir sonur minn tók um 250
myndir á 35 mm filmu. Þetta
gerir nokkuð á fimmta hundr-
að ljósmyndatökur. Af þeim
notuðum við eitthvað á milli
80 og 90 ljósmyndir í albúmið.
Það voru allt stórar myndir, 18
sinnum 24, og ég held mér sé
óhætt að fullyrða, að þær voru
allar vel unnar. Þetta voru líka
margt mjög líflegar myndir og
það á ég m. a. varaforsetahjón-
unum að þakka, því að það var
mjög skemmtilegt að taka mynd
ir af þeim, þau eru bæði svo
lífleg og alltaf eitthvað að ger-
ast f kringum þau og myndirn-
ar hafa orðið líflegar líka.
— Hvernig gaztu komið film-
unum upp í Ingólfsstræti til
framköllunar, þegar þú þurftir
alltaf að fylgjast með varafor-
setanum?
— Við höfðum tvo fasta leigu
bíla1 f sendiferðum. Þeir voru
mjög fljótir í ferðum og voru
fullir af áhuga fyrir því að á-
ætlunin heppnaðist.
— llTvað heldurðu að síðustu
myndimar hafi verið
orðnar gamlar, þegar þær komu
tilbúnar í albúminu niður á
Hótel Borg?
— Þær hafa verið um klukku-
tíma gamlar. Styttra er ekki
hægt að þafa það, því að fram-
köllunin og ferðirnar fram og
til baka taka sinn tíma.
— Var þetta ekki erfitt verk?
— Mér fannst það vinnast
vel. Það gekk alls staðar eins
og í sögu að taka myndirnar,
eins og ég sagði áðan mikið
fyrir það hvað Johnson varafor-
seti er skemmtilegur maður. En
samt er maður nú eftir sig eftir
skorpuna. í ljósmyndastofunni
er allt eins og eftir loftárás. En
ég held ég fari við fyrsta tæki-
færi á gæsaskytterí.
Laugardalur —
Framhald af bls. 16.
Stefnir Ólafsson hefur átt heima
að Reykjaborg sl. 47 ár. Reykja-
borgarlandið er 5 hektarar og und-
anfarið hefur Stefnir verið með 5
nautgripi, milli 20 — 30 kindur og
einnig nokkuð af hænsnum og önd-
um. Er við spurðum Stefni hvern-
ig honum þætti að þurfa að hætta
búskap, svaraði hann:
— Það er óneitanlega mjög erf-
itt að sætta dig við það, eftir að
maður hefur verið hér í 47 ár.
Foreldrar mínir byggðu þennan
bæ, og bjuggu hér, en síðan tók
ég við búinu. Þegar foreldrar mln-
ir byggðu þennan bæ, var engin
byggð hér í kring, og ég man þá
tíð, að það þótti tíðindum sæta að
fá að fara í kaupstaðinn. Nei, þá
var ekki hægt að skreppa upp á
Suðurlandsbraut og taka strætó.
— Ég hef alla mína tíð stundað
búskap, og því finnst mér erfitt að
þurfa að farga dýrunum. Annars
er mjög erfitt að búa hér í Laugar-
dalnum. Umferðin er mikil og á-
troðningur barna og margra fleiri
gífurlegur. Ég hef veitt þv£ at-
hygl; nú í seinni tíð, hvað mörg
börn kunna alls ekki að umgang-
ast dýr, þau þurfa ætíð að vera
að hrekkja þau. Að sfðustu vildi
ég segja það, að mér gremst það
mjög að ég hafi enga tilkynningu
fengið um það að hér eigi að
Ieggja niður búskap og taíka erfðar
festulandið. Það eina sem ég hef
séð hefi ég lesið í blöðunum. Það
minnsta sem þessir herrar geta
gert er að tilkynna okkur sam-
þykktir sínar.
Sigrún Bjarnar hefur búið að
Laugarbrekku undanfarin 21 ár, en
áður bjó hún að Raúðará. Sigrúii
sagðj okkur, að hún hefði um 1Ó
nautgripi og einnig hefði hiún nokkr
ar hænur. Túnið að Laugarbrekku
er 25 dagsláttur. Þegar við spurð-
um Sigrúnu hvort ekki væri erfitt
að þurfa allt í einu að hætta að
búa svaraði hún: Þetta hefur legið
í loftinu í nokkuð Iangan tíma, en
ég sé mikið eftir skepnunum. Eink
um þykir mér þetta leiðinlegt
vegna sonar mfns sem mikinn á-
huga hefur á búskap.
OlíumöB —-
Framhald af bls. 16.
verið völtuð sem skyldi. En að
sjálfsögðu er hægt að sletta og
laga áferðina með því að kemba
veginn. Einnig sagði Ólafur, að
íbúarnir á umræddu svæði, sem
olíumölin hefði verið borin á,
væru mjög ánægðir, eftir þvf
sem hann vissi bezt.
Jón Bergsson, bæjarverkfræð-
ingur í Hafnarfirði, sagðist vera
Ákveiii ai takmarka vöru■
kaupalán erlendis á bílum
Viðskiptamálaráðuneytið hefur f
samráði við Seðlabankann og gjald
eyrisbankana ákveðið að takmarka
nokkuð heimild til innflutnings á
vörum með greiðslufresti erlendis.
Verður nú felld niður heimild til
að nota greiðslufrest við bílainn-
flutning, en sú heimild hefur mjög
auðveldað bflainnflutning á þessu
ári og m.a. gert bílasölufyrirtækj-
um kleift að hafa bfla til á lager
til sölu.
Verður héðan í frá bannað að
nota greiðslufrest við innflutning á
fólks-og sendiferðabifreiðum, nema
mjög ánægður með olíumölina,
sem lögð hefði verið á þar f
bæ. Þegar mölin var lögð niður
var veður mjög óheppilegt, m. a.
mikil rigning. Vegna þess að
pollar hefðu verið á stöku stað
hefðu myndazt holur, en þar
sem undirstaðan var góð og
slétt er olíumölin mjög góð og
ekki er hægt að sjá mun á henni
og asfalti.
Sagði Jón, að strax og tæki-
færi gæfist myndi olíumöl verða
sett á það svæði, sem pollarnir
voru á og holurnar mynduðust,
síðan yrði farið með hefli yfir
og þvf næst valtað.
Jakob —
Frh. af bls. 16:
leiðis er stór floti norskra skipa á
reknetaveiðum:. • •
';>&■' Er ■ eitthyað bilað hjá ykkur
eða eruð þið að sækja vistir?
— Hvort tveggja. Það varð smá
bilun hjá okkur, sem gera þurfti
við og svo þurftum við að taka
vatn o.fl. þvf að við vorum búnir
að vera úti f hálfan mánuð. Við
förum aftur út í kvöld.
111 myndir —
Framh. af bls. 13.
máli Jón Engilberts listmálara,
en Sólveig var um tfma undir
handleiðslu hans. Var listamað-
urinn glaður og reifur, og
kvaðst alltaf hafa fylgzt með
ferli Sólveigar. Fyndist sér hún
vera í stöðugri sókn, og væri sér
það mikil ánægja.
Þessar 111 myndir, sem Sól-
veig hefur gefið til styrktar
góðu málefni, eru allar til sölu,
óg hafa því Reykvíkingar tæki-
færi til að sýna hug ‘sinn, og
hafa þegar gert að nokkru leyti,
því að um það bil helmingur
myndanna var þegar seldur f
gærkvöldi.
Tekinn tvisvar sömu nóttina
fyrir atvinnubflstjóra, jeppabifreið-
ir og bifhjól. Hafa bílar mikið verið
fluttir inn með 3ja mán. greiðslu-
fresti.
Einnig er ætlunin að draga úr
notkun lengri greiðslufrests við
innflutning á ýmsum öðrum vör-
um bæði með styttingu hans og
fækkun þeirra vörutegunda, sem
heimilt er að flytja þannig inn.
Erlendar vöruskuldir vegna
stutts greiðslufrests hafa á fyrstu
átta mánuðum þessa árs hækkað
um 165 milljónir króna og átt sinn
þátt í óhlgstæðri þróun verzlunar-
jafnaðarins sfðustu mánuði.
Mjög mikið var að gera hjá götu
lögreglunni í fyrrakvöld og fyrri-
nótt og tjáði varðstjóri Iögreglunn-
ar Vfsi f gær, að slíkt a.nnríki væri
næsta einstætt í fyrri hluta viku.
Alls voru teknar milli 50 og 60
skýrslur f fyrrinótt vegna ýmiss
konar brota, ölvunar á almanna-
færi, ölvunar við akstur og ann-
arra umferðarbrota, þjófnaði og
þar fram eftir götunum. Fanga-
geymslur lögreglunnar voru yfir-
fullar.
Einn þeirra manna, sem tekinn
var fyrir ölvun við akstur seint f
fyrrakvöld, var kominn aftur undir
stýrið nokkru eftir miðnættið. Lög-
reglan hafði tekið mann þenna um
kl. hálf tólf í fyrrakvöld þar sem
hún hafði hann grunaðan um að
vera ölvaður við akstur. Bifreiðin
var tekin af honum, svo sem venja
er til undir slíkum kringumstæð-
um, og flutt til geymslu f port
lögreglustöðvarinnar. Með öku-
manninn var farið I Slysavarðstof-
una, þar sem tekið var af honum
blóðsýnishorn. Að því búnu var
in 2 varð lögreglan vör við að sami
maður var kominn inn í bifreið
sína í lögreglustöðvarportinu, var
búinn að koma henni f gang og í
þann veginn að aka burt þegar
lögreglan kom á vettvang og hand
tók manninn að nýju. Eftir það sá
lögreglan honum fyrir húsnæði.
! fyrrakvöld var kært til lög-
reglunnar yfir innbroti og þjófnaði
í í íbúð í Þingholtsstræti. Var stolið
| þaðan fatnaði og bókum. Grunur
f féll á ákveðinn mann, var hann
hónum sleppt. handtekinn litlu síðar og fluttur í
En f fyrrinótt klukkan langt geng fangageymslu lögreglunnar.
Þjónusta —
Framh aí 1. síðu.
sala á innpökkuðum mat fram
eftir nóttu, með sérstöku leyfi.
Ýmsar aðrar breytingar í hag
neytenda mætti nefna.
2. „Skerðing" sú á hags-
munum nytenda, sem mjög er
á loft haldið, er f þvf fólgin, að
reynt er að harula gegn hinum
svokölluðu sjoppum, sem allir,
ef trúa má blaðaskrifum und-
anfarin ár, virðast sammála um,
að séu til lítils menningarauka.
Þess vegna er lagt til að
allir söluturnar selji beint út
um söluop og verði lokaðir kl.
22.00 f stað kl. 23.30, og verði
söluvarningur þeirra í meginat-
riðum svo sem um ræðir f 5.
gr. tillagnanna. Þeir, sem þurfa
að skipta við þessi fyrirtæki,
geta þvf náð til þeirra til kl.
22.00. Hins vegar er síður við
því að búast, að þessir staðir
verði bækistöðvar fyrir unglinga
svo sem töluvert hefur kveðið
að.
Þá er jafnframt gert ráð fyr-
ir, að sú almenna vörusala, sem
viðgengizt hefur um söluop á
allmörgum stöðum, hætti.
Um þetta er það að segja, að
þessi vörusala er að verulegu
óheimil, skv. gildandi reglum,
þótt hún hafi viðgengizt. I
hennar stað eiga að koma verzl-
anir í öllum hverfum, sem veitt
geta langtum betri þjónustu,
enda mjög takmarkað hvað
hægt er að selja um söluop.
Við þetta bætist heimildin til
að hafa allar verzlanir opnar til
kl. 22.00 alla föstudaga, en þar
munu skapast algerlega nýir
möguleikar til verzlunar fyrir
allan almenning.
Að lokum er rétt að taka
fram, að heimildir þessar eru að
sjálfsögðu háðar þvf, að breytt
verði mjög úreltum lögum um
bann við verzlun á helgidögum
þjóðkirkjunnar.
Byssumaðurinn —
Framnald at bls. 1.
varð til þess að maðurinn var
handtekinn, og uppgötvaðist þá
vélbyssan. Eftir yfirheyrsluna
var manninum sleppt úr varð-
haldl en mál hans verður sent
. bæjarfógetanum á Akraesi.
(Ljósm.: T.F.).
Thors Thors.
t. Aiiv .ffiw
Kjörinn vnrn-
forseti S.Þ.
Thor Thors, ambassador Is-
lands í Bandaríkjunum og aðal-
fulltrúi íslands hjá Sameinuðu
þjóðunum, var á fyrsta fundi
Ailsherjarþings Sameinuðu þjóð
anna í gær, kjörinn einn af vara
forsetum þingsins.
Kjörnir eru 13 varaforsetar,
og þar af tveir frá V-Evrópu,
og var Thor Thors annar þeirra.
Kjör varaforsetanna var ein-
róma.
Þetta er i fyrsta sinn, sem
fulltrúi fslands lijá Sameinuðu
þjóðunum er Icjörinn varafor-
seti Alisherjarþingsins. Felst f
þessu viðurkenning og heiður
fyrir ísland og aðalfulltrúa þess.
Sýning Nínu
í kvöld kl. 10 lýkur sýningu
Nínu Tryggvadóttur, sem staðið
hefur yfir í Listamannaskálánum
undanfarið, en sýningin var fram-
Iengd um 3 daga vegna mikillar
aðsóknar. Næstum allar þær mynd-
ir, sem til sölu voru, hafa selzt.
Enska, danska, þýzka,
franska, spænska, italska,
sænska.
Islenzka fyrir
útlendinga.
Innritun kl. 1—7