Vísir - 10.10.1963, Blaðsíða 5

Vísir - 10.10.1963, Blaðsíða 5
V í SIR . Fimmtudagur 10. október 1963. Ófærð -3 Framh. af bls. 16. heitasti dagur um langt skeið með 10 stiga hita. En undir morgun byrjaði að snjóa á nýj- an leik og snjókoman náði alveg niður í byggð. Það er því búizt við að skarðið lokist þá og þegar. Siglfirðingar hafa á þessu sumri átt í óvenjulegum erfið- leikum með vegasamgöngur sín- ar,. en eina akfæra leiðin til og frá Siglufirði er, svo sem kunn ugt, um Siglufjarðarskarð. í júní mánuði lokaðist það af völdum snjóa einu sinni, einu sinni í júlí, tvisvar í ágúst og þrisvar í septembermánuði. Af þessum sökum gerast Sigl firðingar langeygir og óþolin- móðir eftir nýja Strákaveginum og treysta því að lagningu hans verði hraðað eftir föngum. Rjúpan — Framh. af bls. 16. Nú er Náttúrugripasafnið að gera tilraun með því að senda fyrrnefndar veiðiskýrsl ur út um allt land. Hægt er að fá skýrslumar hjá lögreglu stjórum, bæjarfógetum, sýslu mönnum, hreppstjórum og einnig verzlunum sem verzla með skotvopn. Ætlazt er til að veiðimennimir fylli út í skýrslumar, dagsetningu, veiðisvæði, fjölda veiddra rjúpna og einnig athugasemd- ir. Farið verður með skýrslur þessar sem trúnaðarmál. Veiðimenn eru beðnir að at huga gaumgæfilega hvort rjúpur, sem þeir skjóta kunni að vera merktar, því Náttúru. gripasafninu er mjög umhug- að að fá merkta fugla og mun safnið greiða fullt verð fyrir þá. Rjúpnaveiðitímabilið byrjar, eins og kunnugt er 15. okt. og endar 22. desember. Brunaæfing — Framh. af bls. 16. in út á svalimar uppi og segl dúkurinn var dreginn niður. 1, 2 og 3 ... og kennararnir létu fyrstu börnin renna niður segl dúkinn, en þegar niður kom tók slökkviliðsmaður á móti börn- unum. Eftir nákvæmlega ll/2 mínútu voru allir komnir út úr skólan- um, 120 nemendur og 5 kennar- ar. En til þess að valda ekki óánægju meðal barnanna varð að leyfa þeim tveimur bekkjum secm niðri voru að fara upp og renna sér niður. Og ekki nóg með það því snáðarnir töluðu mikið um það að nauðsynlegt væri að hafa brunaæfingu á hverjum degi! Alþingi — Framh. af bls. 1. kvæmt þar til kjörnir hafa verið þingforsetar. Það er ekki venja að leggja fram þingmál þing- setningardaginn, en frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1964 verð- ur lagt fram einhvern næstu daga, að líkindum n.k. mánu- dag, að sögn ráðuneytisstjór- ans. Innbrot í efnnlnug Brotizt var 1 fyrrinótt inn í efnalaug eina i Austurbænum, en erfitt var í gærmorgun að átta sig á hverju stolið hefur verið ef það er nokkuð. Hafði innbrotsmaður farið inn um bakdyr og sótzt það auðveld- lega þar sem iæsingin var í hæsta máta frumstæð. Eftir að inn var komið hafði verið rótað talsvert í fötum sem komið hafði verið með til hreinsunar, en ekki er vit- að hvort nokkuð hefur verið hirt. Skúffa í peningakassanum stóð opin upp á gátt, þannig að sýnd hafði verið viðleitni til að afla peninga, en þeir voru engir fyrir hendi. Erlendar Talið er, að 2000 manns að minnsta kosti hafi látið Iífið, er stífla brast í Piavedalnum, og sópaði með sér mörgum þorpum. Á örskammri stundu hækkaði í Piave sv-o nam 5 metrum. ► Kennedy forseti hefir heimilað sölu á bandarísku hveiti til Sovét- ríkjanna og fylgiríkja þeirra, sé það selt á markaðsverði og greitt í dollurum eða gulli. Gert er ráð fyrir sölu upp á 250 millj. dollara. ^ Franska flugfélagið Air- France krefst þess að SAS dragi úr flugferðum til Nizza, en áætl- unarferðir SAS þangað hafa geng- ið ágætlega. Þegar tilboðin ti byggingu nýju slökkvistöðvarinnar í Reykjavík voru opnuð í morgun. Á myndinni, sem er tekin í skrifstofu forstjóra Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar eru Gísli Teitsson, skrif- stofustjóri stofnunarinnar, Valgarð Briem, forstjóri I. R., Jón Sigurðsson, slökkviliðsstjóri, Magn- ús K. Jónsson, byggingarmeistari, Gunnar Sigurðsson, varaslökkviliðsstjóri, Gunnar Torfason og Sigurður Jónsson, báðir forstjórar Byggingarfélagsins Brúar. (Ljósm. Vísis B. G.) Vogaskólinn fíölmennmtur Samanlagður nemendafjöldi í barna- og gagnfræðaskólum Reykjavíkur er nú 13.330 nemend- ur og er heildaraukningin frá síð- asta ári 370. Bekkjardeildir eru nú 492 og samanlagður fjöldi fastra kennara mun vera um 415 og stundakennara um 164. Frá þessu skýrði Jónas B. Jóns- son fræðslustjóri I gær. Skýrði hann einnig frá því að kennsla á gagnfræðastigi færi nú fram á 15 stöðum í borginni og barna- skólar á vegum borgarinnar væru 13 talsins. Fjölmennasti skólinn í Reykja- vík er Vogaskólinn en þar eru alls 1522 nemendur á barna- og 0K DRUKKINN A TV0 BÍLA 7 í gærkveldi hafði lögreglan í Reykjavík afskipti af mjög drukknum ökumanni, sem nokkru áður hafði ekið á tvær bifreiðir á götum borgarinnar, en hélt burt af báðum stöðunum án þess að nema staðar eða gera aðvart um óhöppin. Rakst .ökumaðurinn á annan bílinn á Laugaveginum, en hinn í Barmahlíð. Ekki er vitað hve miklar skemmdir urðu á bílun- um, en vafalaust hafa þær orðið nokkrar. Sjónarvottar náðu skráningar merki bifreiðarinnar sem völd var að árekstrunum og tilkynnti lögreglunni. Fór hún þegar á stúfana og leitaði ökumannsins. Var hann þá kominn heim til sín og var dauðadrukkinn. Var hann færður í slysavarðstofuna til að taka af honum blóðsýnis horn, en að því búnu fluttur í Sturf Æskulýðsrúðs fíyzt inn í gugnfræðnskókma Gerbreyting mun verða á starfsemi Æskulýðsráðs og fé- lagsstarfsemi f gagnfræðaskól- um borgarinnar í vetur. Verður gerð tilraun með að flytja æsku lýðsstarfsemi inn í gagnfræða- skólana og auka þannig félags- lífið í skólunum. Verður félags- starfsemi skólanna sfðan byggð á reynslu þeirri sem fæst af þessari tilraun. Á fundi með fréttamönnum í gær skýrði fræðslustjóri Jónas B. Jónsson svo frá að s.l. vor hefði verið haldinn fundur með Æskulýðsráði og forráðamönn- um gagnfræðaskólanna og hefði fundarmönnum komið saman um að ekkert væri eðlilegra en að starfsemi Æskulýðsráðs færi fram í skólunum eða I sam bandi við þá. Var skipuð nefnd þar sem sæti áttu 3 skólastjór- ar og vann hún að athugun á máli þessu í sumar. Hefur hún nú skilað áliti og tillögum og eru meginatriði hennar þau að veittur verði kennsluafsláttur sem svarar einni stund á viku í hverri deild og skuli henni varið til leiðbeininga og undir- búnings að tómstundastarfi. Þá verði tómstundastarf í gagn- fræðaskólunum skipulagt og hafi sr. Bragi Friðriksson eftir- lit með því. Ber þessi tilraun vonandi tli- ætlaðan árangur. 7 fangageymslu lögreglunnar þar sem hann fékk gistingu í nótt. Lögreglan hafði og afskipti af öðrum drukknum ökumanni í gærkveldi eða nótt, en sá hafði ekki annað til saka unnið en það eitt að vera ölvaður við stýrið. gagnfræðaskólastigi. Fjölmennasti gagnfræðaskólinn er Hagaskóli með 670 nemendur og fjölmenn- asti barnaskólinn er Breiðagerðis- skóli með 1425 börn. Fræðslustjóri skýrði frá því at- hyglisverða atriði að 1140 af þeim 1211 nemendum sem luku unglinga prófi s.l. vor hafa haldið áfram námi í 3. bekk og er það um 94%. S.l. vetur var hlutfallstalan 91%, þannig að hlutfallstala nemenda, sem halda áfram námi að loknu skylþunámi hefur hækkað. Á fundinum með skólastjórum og fréttamönnum i gær gat fræðslustjóri þess, að þær skemmd ir á skólahúsnæði, sem mest hefði borið á nú' undaijfarið^ væru skemmdir á' góífdúk, sem háir, mjóir stálhælar orsökuðu. Næmi tjónið tugum þúsunda og væri því ærin ástæða til að banna algerlega notkun slíks skófatnaðar í skólum. Hefði skólastjóri Kennaraskólans þegar farið þess á leit við nemend- urna að ganga ekki á háum stál- hælum um húsakynni skólans. t Maðurinn minn og faðir okkar, JÓN PÉTURSSON, vigtarmaður á Akranesi, andaðist á sjúkrahúsi Akraness 9. október. Guðrún Jóhannesdóttir og böm. Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur TYRFINGUR M. ÞÓRÐARSON stöðvarstjóri lézt í Landakotsspítala þriðjudaginn 8. okt. Fyrir hönd aðstandenda, Úlla Ásbjörnsdóttir. Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem vott- uðu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför HAUKS EIRÍKSSONAR blaðamanns. Sérstaklega þökkum við samstarfsmönnum hans við Morgunblaðið og Philharmonfukórnum. Enn frem- ur stúdentum frá M.A. 1950 þeirra mikla framlag, svo og fjölmörgum einstaklingum, sem ekki verða nafngreindir hér. Guð blessi líf og starf ykkar allra. Eiríkur Stefánsson Þórey Þórarinsdóttir og böm.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.