Vísir


Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 10

Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 10
w V 1 S I R . Fimmtudaginn 17. oktðber 1933. Um h’ónaskilnaði — Framhald af bls. 9. makinn krafizt lögskilnaðar þegar i stað. Þessi skilnaðará- stæða hefur lengst og víðast í lögum verið. 6. Ef annað hjóna veldur því, að hitt á á hættu að sýkj- ast af kynsjúkdómi, getur sá, sem í hættu er lagður, krafizt lögskilnaðar. 7. Ef annað hjóna hefur sótzt eftir lífi hins eða mis- þyrmt því eða börnunum, get- ur hitt krafizt lögskilnaðar. 8. Ef annar makinn hefur gerzt sekur um glær> og verið dæmdur til fangavistar í 2 ár eða lengur, á hinn makinn rétt á Iögskilnaði. Hér er bæði tekið tillit til hmnar siðferðilegu hlið- ar málsins og langs aðsWlnað- ar. 9 Loks er það skilnaðará- stæða, ef annað hióna hefur verið haldið meenri eeðveiki í 3 ár eða lengur. enda bati ólík- legur. Getur bá he'Ibrigði mak- inn fengið lögskilnað. Hér hafa þá verið raktar þær lögskilnaðarástæður, sem greind ar eru f lö<umum. Þess er bó að gæta, að í flestum tilvikum get- ur bað hióna, sem misgert er við, ekki feneið lögskilnað, ef það hefur Iagt sambvkki sitt á misgerðir eða framferði hins makans. í sumum tilvikum verður krafa um lögskilnað að koma fram innan 6 mánaða frá því, að skilnaðarkrefiandi fékk vitneskiu um skilnaðarástæð- una. Ella glatar hann rétti sín- um. Kröfu um lögskilnað sam- kvæmt framangreindum skiln- aðarástæðum má bera fram, hvort heldur í stjórnarráðinu eða fvrir dómstólunum. Það er umsvifaminna að fara stjórn- arráðsleiðina, enda munu þess fá dæmi hér á landi, að skiln- aðarmál séu rekin fyrir dóm- stólum. Erlendis er það miklu tíðara. Þegar fullur lögskilnaður fer fram, er það aðalregla, að fram- færsluskylda hjóna hvors gagn- vart öðru fellur niður. Þó er heimilt að ákveða öðru hjóna framfærslufé úr hendi hins, en sjaldan mun það látið haldast nema skamman tíma. í skilnaðarleyfi eða skilnað- ardómi skal hins vegar ákveða, hvernig fari um foreldraráð yf- ir börnum og framfærslu þeirra. Ef fjárskilnaður hefur ekki ver- ið gerður áður, skal skipta eignum hjónanna með sama hætti og þegar skilnaður að borði og sæng fer fram. Ól 'gbundin sambúð Að lokum vjl ég svo drepa á atriði, sem varðar afstöðu manna til hjónabandsins. Það hefur allmjög tíðkazt hér á landi að karl og kona búi saman ó- gift sem hjón væru. Þau eiga börn saman, annast uppeldi þeirra og styðja sameiginlega að hag og heill heimilisins. Nú á dögum er oft um það rætt, að skattalögin, þ. e. reglan um samsköttun hjóna, vinni gegn stofnun hjónabanda, einkum ef karl og kona, sem saman vilja búa, stunda hvort um sig sjálf- stæða eða launaða atvinnu. Á þessu þarf vissulega að ráða bót. En margar fleiri ástæður munu liggja til þess, að karl og kona búa saman ógift. Á slíka sambúð ætla ég hvorki að leggja trúarlegt né siðferðilegt mat, heldur aðeins geta um lagalegu hliðina. Um réttar- stöðu barnanna er það að segja, að þau teljast óskilgetin, og er það þeim í óhag, þó að það skipti þau ekki eins miklu máli nú, eftir að þeim var með lög- um veittur erfðaréttur eftir föð- ur og föðurfrændur. Hitt getur orðið miklu örlagaríkara, hversu réttarstaða konunnar er ótrygg í slíkri sambúð. Þess eru mörg dæmi, að kona verður að hrekj- ast burt frá manni þeim, sem hún hefur búið með árum sam- an, ýmist af því, að ný kona kemur til skjalanna, eða vegna þess, að sambúðin fer út um þúfur af öðrum ástæðum. Þá fer venjulega svo, að konan gengur burtu slypp og snauð. Þó að eignir hafi myndazt í sambúðinni og konan stutt að því með vinnu sinni og ráðdeild, eru þær oftast á nafni manns- ins, og hann heldur þeim, þegar aðskilnaður verður. Hér koma ekki til greina helmingaskipti, eins og þegar hjón skilja. í bezta falli er kona, sem þannig vfkur burtu, talin eiga rétt til ráðskonulauna, sem manninum er gert skylt að greiða henni, en það vegur oftast lítið á móti því að eiga rétt til helmings eignanna. Og jafnvel þó að sam- búðin haldist, þangað til mað- urinn fellur frá, þá hefur konan ekki erfðarétt eftir hann. Sjá má af því, sem hér var sagt, að sambúð karls og konu I lögmætu hjónabandi hefur yf- irgnæfandi kosti fram yfir ólög- bundna sambúð, einkum fyrir konuna og börnin. Það er ekki út í bláinn gert, heldur byggt á langvarandi reynslu, að allar menningarþjóðir telja þá eina sambúð karls og konu eiga að njóta fullrar verndar,' sem stofn- að er til í samræmi við lög landsins. Seljum alla miðana SKYNDIHAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS er í fullum gangi. Vinningurinn, MERCEDES BENZ 190, stend- ur i Austurstræti og þar eru seldir miðar. — KAUPIÐ MIÐA TÍMANLEGA. — Þeir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins, sem hafa fengið senda miða, eru vinsamiegast beðnir um að GERA SKIL SEM ALLRA FYRST í aðal- skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. - TIL STYRKTAR SJÁLF- STÆÐISFLOKKNUM. - Munið, að dregið er 8. nóvem- ber, svo að ekki eru margir dagar til stefnu. En kjörorðið er samt sem áöur: Seljum alla miðana. Vönduð vinna. Þægileg. Fljótleg. ÞRIF. - Sími 22824. =h Teppa- og húsgagnahreinsunin Sími 34696 á dagiru Simi 38211 4 kvöldir og um helgar. Næturvakt í Reykjavík vikuna 12, —19. október er í Laugavegs apóteki. Neyðariæknir — simi 11510 — frá kl 1-5 e.h alla virka daga Kópavogsapótek er opið alla virka daga kl 9,15-8. laugardaga frá kl 9,15-4 helgidaga frá kl 1-4 e.h Simi 23100 Slysavarðstofan i Heilsuvernd arstöðinm er opin allan sólar hringinn næturlæknir á sama stað klukkan 18—8 Simi 15030 Holtsapótek Garðsapótek og Apótek Keflavíkur eru opin alla /irka daga kl 9-7 laugardaga frð kl 9-4 og nelgidaga frá kl 1-4 Ctvarpið nægtum (Pétur Sigurðsson erindreki). 20.45 Tónleikar: Sellókonsert í a- moll op. 129 eftir Schu- mann. 21.15 Raddir skálda: Elías Mar- Ies aftur úr skáldsögu sinni „Vögguvísu", Þorsteinn Ö. Stephensen les ljóð eftir Þórodd Guðmundsson og Óskar Hal'dórsson sögu eft ir Þórodd. 22.10 Kvöldsagan: Lakshmi Pan- dit Nehru — brot úr ævi- sögur eftir Anne Guthrie II. lestur (Sigríður J. Magn ússon). 22.30 Djassþáttur (Jón Múli Árna son). 23.00 Dagskrárlok. Vélhrein gemingar Fimmtudagur 17. október Fastir liðir eins og venju’.ega. 20.00 Einleikur á píanó: Grant Johannesen leikur sónötu I As-dúr op. 10 eftir Beet- hoven. 20,20 Erindi: Fátækir menn í alls Sjónvarpið Fimmtudagur 17. október 17.00 Mid-day Matinee „Hollywood Barn Dance“ 18.00 Afrts News 18.15 The Telenews Weekly ^mnuunw ncnrnMip SÆNGUR Endurnýjum gömlu sængurnar. Eigum dún- og fiðurheld ver Æða- og gæsadún- sængui og kodda fyrir liggjandi. Dún- og fiðurhreinsunin Vatnsstíg 3 - Simi 14968 Slöðum flett Svo siglum við áfram í auðn og nótt. Og þögn hins liðna læðis hljótt frá mann; til manns, eins og saltstorkinn svipur hins sokkna lands í auðn og nótt. Steinn Steinarr. Sæmundur bóndi á Vatnsleysu átti bróður, er Auðunn hét. Hann var lausamaður og átti hjall við sjóinn, þar sem hann geymdi veið arfæri sín, því að hann var for- maður. Snemma vetrar 1887 var hann einn dag í hjallinum og gerðj að veiðarfærum. Honum var litið út og sýndist honum þá bát- ur með þrem mönnum vera að farast þar framundan. Hann snar ast heim og kallar menn til að bjarga. Þeir koma út og sjá ekki neitt; enda sá hann þá ekki neitt af bátnum sjálfur, og hafði þetta enginn bátur verið. En á vetrar- vertíðinni næsta ár á eftir drukkn að; Auðunn og tveir menn aðrir, en fjórum var bjargað. „Huld“ — I. bindi. verið um það rætt og talað, að auka þyrfti útflutninginn sem allra mest og með öllum ráðum, efla útflutningsframleiðsluna á allan hátt, gera hana sem fjöl- breyttasta og afla nýrra mírkaða sem víðast . . . svo kemur það allt í einu upp úr dúmum, að maður nokkur hefur flutt út og selt fullu verði framleiðslu, sem við höfum að vísu lengi verið að burðast með, en með misjöfnum árangri, og enginn hefur víst-talið útflutningshæfa eða látið sér til hugar koma að markaður væri fyrir hana erlendis — enda mun svo alls ekk; heldur hafa verið fram að þessu . . . fyrir þessa framtaksemi, er viðkomandi svo úthrópaður sem afbrotamaður og hótað harðri refsingu, i stað þess að sæma hann hestamannakrossi Fálkaorðunnar, og hefja þegar í stað eins stórprentun á íslenzkum þúsundkrónaseðlum — já, og því ekki milljónkrónaseðlum til út- flutnings sérstaklega upp á farm- rýmið . . . og gera hinn hug- kvæma mann að peningasölu- stjóra erlendis upp á ríflegar prós entuf . . . um leið væri svo sjálf sagt að flytja alla seðlaprentun inn í Iandið, og ef til vill að hætta að prenta nokkuð annað, nema þá frímerki . . . og væri þá ekki illa til fallið að setja Snorra á milljónkrónaseðilinn, til merkis um að nú væri aftur hafin fram- leiðsla útflutningshæfra bók- mennta á Sögueynni .... Strætis- vagnhnoð Hún er í duftinu og hann í Sauna í heitri von um að bráðum líti þau á sér Iitlutána — en langt er síðan hjá báðum. ÍVmtun ? | prentsmlója & gúmmlstimplagcrð Elnholtl 2 - Slmi 20960 HUSBYGGJENDUR SELJUM: Möl or steypusand Fyllingarefni Hagstætt verð Heimflvtjum. Siinar 14295 oa 16493 Eina sneið . . . á stundum blöskrar manni svo skammsýni og sjóndepra þeirra, sem Iangskyggnastir ættu að vera og sjónskarpastir, að maður á eiginlega engin orð, og eru þau þó yfirleitt það, sem seinast þrýtur og flestir eig' of mikið af, fremur en hitt . . . á undanförnum árum hefur stöðugt Sagt er að sá furðulegi, ef ekki einstæði atburður hafi gerzt í spilapartíi hér í borginni eitt kvöld fyrir skemmstu, að Einar Jónsson hafi fengið — fimm drottningar á hendi. Kaffitár . . . hvernig ætla þessir herrar svo að fara að því að vanda um við yngri kynslóðina, þegar þeir í alþinginu eru farnir að spila á talnakúlur — og leggja víst ekki neitt smáræði undir . . . og láte sem þeir vitj bara ekki að á hættuspil er bannað í landslög um . . . BBm

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.