Vísir - 17.10.1963, Qupperneq 13
VlSIR
BH
Fimmtudaginn 17. október 1963.
13
AÐALFUNDUR
Skíðaráð Reykjavíkur heldur aðalfund kl. 8.30 í Café
Höll, Austurstræti fimmtudaginn 17. okt. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
JÁRNSMIÐI
Tökum að okkur alls kóriar jámsmíði. Hliðgrindur, handrið úti
og inni. Alls konar nýsmíði og rafsuðuviðge. ðir og margt fl. Uppl.
í síma 51421.
RAFLAGNIR - DYRASÍMAR
Annast hvers konar raflagnir og viðgerðir, einnig uppsetningar á
dyrasímum. — Gunnar Jónsson, lögg. rafv.m., sími 36346.
P ARKET-L AGNIR
Leggjum allar gerðir af parkett. Fljót og góð afgreiðsla. Sími 16132
eftir kl. 7.
HANDRIÐASMÍÐI
Tek að mér smíði á handriðum og annarri járnsmíðavinnu. Hef einnig
plasthandlista á handrið. Uppl. í síma 16193 og 36026.
FORSTOFUHERBERGI - HUSHJÁLP
Góð stúlka óskast hálfan daginn gegn rúmgóðu forstofuherbergi
og fæði ef óskað er. Kaup eftir samkomulagi. Sími 13619.
STLJLKUR ÓSKAST
2 stúlkur óskast strax til framreiðslustarfa. Prósentuvinna. — Uppl. í
síma 20490.
STÚLKUR ÓSKAST
Vantar nokkrar stúlkur til verksmiðjustarfa. Hátt kaup. Uppl. í Teppi
h.f., Austurstræti 22, milli kl. 5 — 6 f dag. ,
STÚLKA ÓSKAST
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa hálfan eða allan daginn. Sunnubúðin,
Laugateig 24, sími 34666.
HANDFÆRAMENN = ••••'»'* «
2 vana háseta vantar á m/b Otto, sem liggur við Grandagarð.
um borð í bátnum eða í síma 36170.
ea
KARLMENN - VINNA
Vantar karlmenn til vinnu í ullarverksmiðju. Uppl. í Teppi h.f., Austur-
stræti 22, milli ki. 5 — 6 í dag.
KVENFÓLK - ATVINNA
Stúlka eða kona óskast strax í þægilega vinnu. Fjölprent h.f., Hverfis-
götu 16, sími 19909.
PÁLMI TIL SÖLU
Til sölu er ca 2 m hár pálmi. Einnig 2 saumavélar og skrifboð með
bókahillum. Til sýnis að Drápuhlíð 43 kjallara eftir kl. 8 í kvöld og
næstu kvöld.
BÍLL - TIL SÖLU
Benz 220, árg. ’53, í góðu lagi. Til sýnis og sölu við hjólbarðaverk-
stæðið Hraunholti við Miklatorg. Sími 10300.
BÍLL TIL SÖLU
Fordson sendiferðabíll með palli og 4 manna húsi á góðum 16 tommu
dekkjum óskráður. Til sýnis og sölu að Lindarvegi 12, Kópavogi. Verð
kr. 5000,00.
HAGNAÐUR
Óska eftir að hafa samband við sölumann, sem selur vörur út um land.
Sími 22851.
LAMPAR - LAMPAR
Eldhúslampar, draglampar og stofulampar í miklu úrvali. Ljós og Hiti
Garðastræti v/Vesturgötu, sími 15184.
VÖRUBÍLL - SENDIFERÐABÍLL
Vil kaupa nýlega vöru- eða sendiferðabifreið. Tilboð sendist: „H. Gunn-
arsson, Pósthólf 1035“, sem fyrst.
SJÓNVARP - SEGULBANDSTÆKI
Til sölu nýtt, mjög gott vestur-þýzkt sjónvarpstæki, 23”. Nýjung: Pano-
rama myndlampi. Djúp og skýr mynd, sérlega mikil tóngæði. Einnig
Tannberg stereo-segulbandstæki, Series 6 fyrir stereo-upp'töku og af-
spilun, 3 hraðar, 4 trakkar og 4 magnarar. Uppl. Sporðagrunn 7, eftir
kl. 7 næstu kvöld.
ABEINS ÞAÐ BEZTA
SKJÖRTIÐ
úr austurísku blúnduefni.
Fæst á næstunni í öllum
helztu kvenfataverzlunum
Val ungu dömunnar er
BLÚNDUSKJÖRT
Heildsölubirgðir:
Skotíð gegn-
um rúðu
itnl2 /litjsRbUi , , ■
A mánudagskv. kl. 8 heyrði
maður, sem staddur var inni í
eldhúsi á rishæð hússins nr. 43
við Laugaveg, smell í rúðu eld-
hússgluggans og sá um Ieið að gat
var komið á rúðuna eins og eftir
skot.
Lögreglunni var tilkynnt um at-
burðinn. Fór hún á staðinn og sá
hún að skotið hafði farið í vegginn
gegnt glugganum, en það er steypt
ur veggur, og markaði greinilega
fyrir fari I honum eftir kúlu eða
skot eða hverju öðru, sem lent
hefur í vegginn.
Hins vegar fannst hluturinn eða
skotið ekki, hvernig sem leitað var.
Telur lögreglan mestar líkur til
þess að gengið hafi verið ofan á
það og það borizt burtu ne?an á
”skó. Um aðra skýringu geti naum-
ast verið að ræða.
GjsðEdeyrisbrof «*=
Framh. af bls. 16.
þvl að slík óeðlileg og ólögleg
peningaviðskipti eigi sér ekki
stað.
Samkvæmt íslenzkum lögum
er útflutningur á íslenzkum pen
ingum bannaður að því undan-
skildu, að ferðamenn innlendir
og útlendir mega hafa með sér
2500 krónur, er þeir fara til út-
landa. Hins vegar er engin heim
ild fyrir starfsfólk á skipum eða
flugvélum til að hafa með sér
til útlanda íslenzka peninga.
SCennslsa í norsku
Kennsla í norsku fyrir almenn-
ing í vetur hjá norska sendikennar
anum við Háskóla Isl. cand. mag.
Odd Didriksen hefst fimmtud. 17.
október kl. 20.15 í 6. kennslustofu
háskólans. Nemendur eru beðnir
að hafa með sér linguaphone
kennslubók í norsku.
NÝJUNG
Hreinsunarcreme í sápuformi
fyrir þurra, feita og normal húð
LANOLIN-PLUS
Hrejnsunarcreme
Hreinsunarmjólk
Næringarcreme
SNYRTIVÖRUBÚÐIN
Laugavegi 76 . Sími 12275
ROYAL
T-700
Hefur reynzt
afburðavel vif,
íslenzka stað-
háttu. Hefui
sérstaklega byggðan undirvagn fyrir islenzka vegi —
Eyðsla j—6 títrar á 100 ,km. Rúmgóður Kostar aðeins
114 þúsund krónur með ársábyrgð frá verksmiðjunum.
Góð varahlutaþjónusta.
KROM & STAL
Bolholti o — Sími 11-381.
Nú er hver síðastur að innrita sig í fundar-
störf og mælsku. — Kennsla hefst sunnudag-
inn 20. október n. k. — Innritunarskírteini
fást í Bókabúð KRON, Bankastræti 2.
Önnur bókin í bókasafninu komin út.
Fjölskyldan og
hjónabandiö
fjallar um dýpstu og innilegustu samskipti karls og
konu, þ. á m. um ástina, kynlífið, frjóvgun, getnaðar-
varnir, bamauppeldi, hjónalífið og hamingjuna. —
Höfundar: Hannes Jónsson félagsfræðingur, Pétur H.
J. Jakobsson, forstöðumaður fæðingadeildar Landspít-
alans, Sigurjón Björnsson sálfræðingur, dr. Þórður
Eyjólfsson hæstaréttardómari, dr. Þórður Kr. Þórðar-
son prófessor.
Höfundamir tryggja gæðin, efnið ánægjuna.
ÞESSI BÓK Á ERINDI TIL ALLRA KYNÞROSKA
KARLA OG KVENNA.
Félagsmálasfofnunin
Pósthólf 31 . Reykjavík . Sími 19624
Höfum á boðstólum glænýja
bátaýsu, ekta sólþurrkaðan
saltfisk, glænýja rauðsprettu
og steinbít, reykt ýsuflök, súran
hval, nætursöltuð og ný
ýsuflök, kæsta
skötu, lýsi og
hnoðaðan mör
frá Vestfjörðum.
Sendum með stuttum fyrir-
vara til sjúkrahúsa og mat-
sölustaða.
FISKMARKAÐURINN
Langholtsvegi 128 . Sími 38057
/