Vísir - 11.11.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 11.11.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — Mánudagur 11. nóvember 1963. — 144. tbl. Samkoauhg áa verkíalla er i átilokaS — segir Eðvarð Sigurðsson Samningar þeir ,sem nú standa 'yrir dyrum milli verkalýðshreyf- |ngarinnar annars vegar og at- /innurekenda og ríkisvaldsins hins vegar verða áreiðanlega mjög vandasamir og erfiðir, sagði Eðvaið Sigurðsson, formaður Dagsbrúnar í viðtali við Vísi í morgun. En ef aðilar leggja sig fram um að ná Framh. á bls. 5. m MánaÍarírestítm jtarí ai npta_ — sagði Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra i morgun t tilefni þess samkomulags, sem gert var milli ríkisstjórn- arinnar og verklýðsfélaganna á Iaugardaginn átti Vísir tal við Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra i morgun um ástand og horfur í kaupgjaldsmálunum. Ráðherrann sagði: — Ég tel þessa mánaðarsætt mikils virði. Tilgangur launa- málafrumvarpsins var sá, að fá ráðrúm til þess að undirbúa efnahagsaðgerðir og til þess að ræða og semja um kjaramálin. Þegar það lá fyrir, að forystu- menn launþegasamtakanna vildu aflétta verkföllunum og tryggja vinnufrið fram til 10. desember, var megintilgangi frumvarpsins náð og því eðlilegt að fresta lokaafgreiðslu þess. — Hver verljur nú þróun mál- anna? — Nú þarf að nota tímann vel til þess að reyna að koma á sem viðtækustum l kjarasamningum. Þeir þyrftu að ná til sem flestra starfsgreina og gilda um lengri tíma en áður hefur tíðkazt hér á landi. Það þarf að tryggja efnahagsgrundvöll atvinnuveg- anna og að færa láglaunafólki raunverulegar kjarabætur. — Hverjar voru ástraðurnar til þess að samkomulag náðist á síðustu stundu? Það er ljóst, að kommúnistar og framsóknarmenn fengu ekki þann hljómgrunn fyrir andstöðu og mótmælaverkföllum sem þeir höfðu vænzt. Útvarpsumræðurn- ar gáfu færi á að skýra málið og urðu þær málstað stjórnarinnar mikill styrkur. Þess vegna urðu ýmsir leiðtogar Alþýðusam- bandsins fúsari til friðar. Engin verkföll næstu vikur Mikil eftirvænting ríkti, cr líða tók að helginni, um það, hvort verkföll myndu skella á i dag eða ekki. Margir töldu, að kommúnistar myndu hopa á sfð- ustu stundu og hætta við verk- föllrrr en aðrir voru þeirrar skoð unar, að Dagsbrún og Félag járniðnaðarmanna í Reykjavík myndu fara í verkfall hvað sem liði Iagasetningu um bann við verkföllum. Á laugardagsmorg- un tók það að spyrjast, að við- ræður stæðu yfir milli verkaiýös hreyfingarinnar og ríkisstjórnar innar um samkomulag til þess að afstýra verkföllunum. Og er fundur hófst í efri deild eftir há degi á laugardag kunngerði for- sætisráðherra, að samkomulag hefði tekizt og verkalýðsfélög- in hefðu fallizt á að fresta verk- föllunum til 10. desember. Forsætisráðherra mælti á þessa leið, er hann skýrði frá samkomulaginu: „í gærkveldi og í dag hafa farið fram viðræður milli ýmissa forustumanna laun- þegasamtaka og ríkisstjórnarinn ar. Hafa þeir tjáð ríkisstjórn- inni, að þeir muni beita sér fyrir því að verkföllum þeim, sem boðuð hafa verið, verði frestað og að ekki verði stofnað til nýrra verkfalla a.m.k. fram til 10. desember n.k. enda verði frumvarp um lauamál o. fl. ekki afgreitt meðan svo stendur. þar sem það var megintilgang- ur þcssa frumvarps að fá ráð- rúm til undirbúnings efnahags- aðgerða og viðræðna um kjara- mál, telur ríkisstjómin, að svo vöxnu máli ekki rétt að ljúka nú endanlega afgreiðslu frumvarps ins og leggur til að atkvæða- greiðsiu við þessa síöustu um- ræðu málsins á Alþingi verði frestað." Er forsætisráðherra hafði Iok- ið máli sínu tók Bjöm Jónsson þingmaður Alþýðubandalagsins til máls. Tók hann undir orð forsætisráðherra og sagði, að þingflokkur Alþýðubandalagsins teldi farsælast, að frekari deil- ur um frumvarpið yrðu látnar niður falla með því að sam- komulag hefði tekizt milli ríkis- stjómarinnar og verkalýðssam- takanna. Ólafur Jóhannesson þingmaður Framsóknarflokksins kvaddi sér einnig hljóðs og kvað Framsóknarflokkinn geta fallizt á, að umræðunni yrði lokið. Samkomulagið vakti mikinn fögnuð almenings. Ríkisstjómin hafði gert itrekaðar tilraunir til þess, áður en hún lagði frum- varpið um launamál fram, að Framh. á bls. 5 fhgfélagið knáið tíl að segja sig úr IA TA Samtal við Örn Johnson framkvæmdastjóra Flugfélag islands hefur tekið ákvörðun um að segja sig úr 1ATA, alþjóðasamtökum flugfé- laga, að því er framkvæmda- stjóri Flugfélagsins, Örn Ó. John son, tjáði Vísi í gær. — Þessi ákvörðun hefur þeg- ar verið tekin fyrir nokkru, bætti framkvæmdastjórinn við, en úrsögnin enn ekki verið send utan, að beiðni samgöngumála- ráðherra, sem bað um nokkurra daga frest til að kanna máls- atvik. — Hver er ástæðan fyrir úr- sögn Flugfélagsins úr IATA? — Það er vegna afstöðu hins opinbera í sambandi við leyfi til fargjaldalækkunar milli Is- lands og Evrópu. En hjá þvi hefur orðið veruleg stefnubreyt ing í þessum málum í seinni tíð. — Á hvern hátt? — Þannig er málum háttað, að þau flugfélög sem eru inn- an vébanda LATA eru skuld- bundin að fara eftir þeim taxta sem það setur um flugfargjöld milli einstakra landa, og eftir honum hefur Flugfélag Islands að sjálfsögðu farið, sem aðili að þessum alþjóðasamtökum. Lengi vel fór flugmálastjórnin fslenzka einnig eftir þessum á- kvörðunum IATA, en hefur nú veitt frávik frá þeim, og telur sig ekki nema að takmörkuðu leyti þurfa að taka tillit til þeirra. Þetta veldur því, bætti örn Ó. Johnson við, að Flugfélag ls- lands telur þann grundvöll burtu fallinn, sem það hefur byggt að- ild sína til IATA á varðandi ákvörðun flugfargjalda milli ís- lands og annarra Evrópulanda. Fyrir bragðið erum við knúðir til að segja okkur úr þessum alþjóðasamtökum. — Hefur Flugfélag Islands jafnframt tekið ákvörðun um fargjaldalækkun milli landa? Framh. á bls. 5. Blaðíð í dag Bls. 2 Kappleikur við Spartak Pilsen. — 3 Fréttir um slys og skipsstrand. — 4 Róstusöm vika. — 8 Umræður á þingi um stöðvun verðbólgu. Frá umboðsmannafundi Flugfélags íslands í morgun. Talið frá vinstri á myndinni eru: Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi, Birgir Þorgilsson, Kaupmannahöfn, Yngvi Árnason, fulltrúi hjá millilandaflugi, Vilhjálmur Guðmundsson, Osló, Júlíus Egilsson, Bergen, Örn Johnson, forstjóri, Birgir Þórhallsson, frkv.stjóri millilandaflugs, Birgir Ólafsson, söluskrifstofu Lækjargötu 2, Einar Helgason, Glasgow, Sk.arphéðinn Ámascn, Hamborg, Jóhann Gíslason, flugrekstursstjóri, Jóhann Sigurðsson, -London. — (Ljósm. Vísis, B. G.).

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.