Vísir - 11.11.1963, Síða 11
n
VÍSIR
Mánudagur 11. nóvember 1963.
Hinn kunni hljóðfæraleikari
Finnur Eydal, byrjaði fyrir
nokkru að leika með hljómsveit
sinni á Hótel Borg. Með þeim
er og söngkonan vinsæla Helena
Eyjólfsdóttir. Hljómsveitin lék
sl. vetur í Leikhúskjallaranum,
og naut þar mikilla vinsælda.
Er ekki að efa, að þær muni
aukast enn meira á Hótel Borg
í vetur. Myndin er af tríói
Finns Eydal.
Álieit og gjafir
Slysavarnarfélagi íslands hefir
borizt 10 þúsund króna gjöf til
minningar um Bjarna Ellert ís-
leifsson, sem fórst með Sviða frá
Hafnarfirði. Er minningargjöfin
frá frú Ragnheiði Eiríksdóttur,
ekkju hins látna og Júlíusi, syni
þeirra hjóna, — einnig frá syst-
kinum hins látna, Jónu ísleifs-
# % ^ STIÖRNUSPÁ #
Spáin gildir fyrir þriðjudag-
inn 12. nóv.
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Þú ættir að ljá því eyra,
sem aðrir hafa að segja áður
en þú markar stefnu þína. Sam-
band þitt og annarra yfirleitt
gæti orðið með stirðara móti.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Þér væri ráðlegt að einbeita þér
sem mest að starfinu og beina
huganum frá þeim leiðindum
sem steðja nú að. Láttu ekki
lokka þig út í neinar áhættur.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Þér er nauðsynlegt að
velja vini þína og kunningja
af stakri árvekni, þar eð aðrir
hafa tilhneigingar til að stjórna
þér of mikið.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þig kann að langa mest til að
starfa heima fyrir í dag, en slíkt
er oft erfiðleikum bundið þar
eð tímarnir krefjast annars.
Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst:
Þú ættir að takmarka aðgerðir
þínar, sem mest við hinn hug-
ræna heim í dag, þar eð af slíku
stafar minni áhætta heldur en
af aðgerðum á hinu jarðneska
sviði nú.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Af kaupum og sölu er auðvelt
að hagnast nú svo fremi að slikt
fari ekki fram á of stóran
mælikvarða. Aðalviðfangsefni
þitt ætti að vera sjálfum þér
nógur.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Afstaða annarra knýr þig til að
nota hugsunina meira heldur en
að vanda lætur. Gættu þess að
halda skapsmunum innan
ramma velsæmisins.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.:
Því minna sem þú ræðir um
fjármálaleg viðfangsefni þín,
þvf minni líkur eru fyrir því
að aðrir hafi ágirnd á því að
draga þig inn í fjárhagslegar
áhættur.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Það er oft rík huggun ;
að vita af því að maður eigi
góða og skilningsríka vini. Það
er ávalt talsverð áhætta í því
að skáka hinu stóra.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Þú mátt vera þess fullviss
að vinsældir þínar og álit út á
við verða í bezta lagi, svo lengi
sem þú gerir ekkert á hlut ann-
arra.
Vatnsberinn, 21. jan. tii 19.
febr.: Þú þarft að halda nokkuð
aftur af imyndunaraflinu og
viðurkenna staðreyndirnar eins
og þær koma fyrir. Það er ávallt
áhætta í því að úthugsa ekki
hlutina.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Líkurnar fyrir auknu
fjármagni eru Iitlar á við-
skiptasviðinu eins og stendur.
Þú mátt reikna með því að
þurfa að fást við marga and-
stæðinga og erfiðleika.
dóttur og Valtý ísleifssyni. Gjöfin
er gefin í tilefni af því, að Bjarni
heitinn hefði orðið fimmtugur 25.
okt. s.l. — Þá hefir félaginu bor-
izt 500 kr. gjöf til minningar um
frú Guðríði Árnadóttur húsfreyju
frá Hallbjarnarstöðum í Skriðdal,
er lézt 4. apríl s.l. Gjöfin er frá
konu f Rvk. — Einnig hefir fé-
laginu borizt 6 þús. króna gjöf í
Björgunarskútusjóð Austfjarða, 5
þús. krónur frá Sambandi fiski-
deilda Austfjarða og 1 þúsund
krónur frá tveimur konum á
Stöðvarfirði.
Kalli
°S
kóng-
urinn
Stuttu eftir að hinn innfæddi
hafði uppgötvað höllina byrjaði
hann að senda boð um það til
vina sinna, sem voru lengra
buj-tu. Og hljóðin af þessum boð-
skap bárust um alla eyjuna. Þau
bárust líka til hinna sveittu-
manna af Krák, og Libertínmar
konungs. Trumbur, stamaði stýri
maðurinn náfölur. Tíuþúsund há-
karlar, öskraði Kalli, þá eru
greinilega einhverjir íbúar á eyj-
unni. Það er ágætt, sagði kóng-
urinn. Það verður áreiðanlega
mjög gaman að skoða þorp þeirra
og kynnast þeim. En Kalli hafði
ferðast víða, og þekkti hvernig
þessir náungar haga sér. Þetta
veit ekki á gott sagði hann. Ég
er hræddur um að við lendum í
einhverjum vandræðum áður en
yfir lýkur. Það er alls ekki víst
að þeir viðurkenni yður sem kon-
ung sagði hann við Libertínus,
hefur yður aldrei dottið í hug
að þeir kunni að hafa konung nú
þegar?
R
I
P
K
I
R
B
Y
Rip og lögreglumennirnir hraða
sér á staðinn, og koma að í þann
mund sem slökkviliðsmennirnir
eru að ljúka starfi sfnu. Er þetta
bfllinn, Rip spyr lautinantinn.
Það er enginn í honum. Já, þetta
er hann, svarar Rip. Þetta er bíll
af bílaleigu. Þeir hafa líklega
borgað út í hönd ,og gefið upp
falskt nafn. Ég er að velta því
fyrir mér, i;vað kveikti í bílnum,
segir Iögreglumað^rinn og lítur
glottandi á Rip. Og Rip glottir
enn breiðara, ypptir öxlum og
segir, kannske þeir hafi verið
ríieð farm, sem var of heitur fyrir
þá. ,
Harðviðor
HarmonihuSiurðir
IINDARGÖTU 25 - SÍMI 13743
Fjórði hver miði vinnur að meðaltali!
Hæstu vinningar 1/2 milljón krónur.
Lægstu 1000 krónur.
Dregið 5. hvers mánaðar.
EFNALAUGIN BJÖRG
Sólvallogötu 74 Simi 13237
BormahliS 6. Simi 23337
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu
sængurnar. Eigum
dún- og fiðurheld ver.
Æða- og gæsadún-
sængui og kodda fyrir
liggjandi.
Dún- og fiðurhreinsunin
Vatnsstíg 3 — Sími 18740
Áður Kirkjuteig 29.
Skólavörðustíg 3A, 3. hæð
Sfmar 2291? og 14624
Jón Arason
Gestur Eysteinsson
Lögfræðiskrifstofa
og fasteignasala.