Vísir - 12.11.1963, Blaðsíða 16
VISIR
Þriðjudagur 12. nóvember 1963.
Endurkjörinn
tormabur V.Í.
Hin nýkjörna stjórn Verzlunar-
ráðs Islands skipti með sér verk-
um fyrir skömmu. Formaður var
endurkjörinn Þorvaldur Guðmunds
son, forstjóri og 1. varaformaður
Egill Guttormsson .stórkaupmaður.
Framh. á bls. 5.
HCIMTA RITLAUN FYRIR
ICYNISKÝRUUR
Þrír SÍA-menn, ungkomm-.
únistar, sem fengið hafa póli-
tískt uppeldi austan jám-
tjalds, og skrifuðu nokkurn
hluta hinna alræmdu leyni-
skýrslna SÍ A er síðar birtust
í bókarformi, Rauðu bókinni,
sem Heimdallur gaf út, hafa
krafizt ritlauna fyrir sinn
hluta af þessu fróðlega verki,
Þeir eru Hjalti Kristgeirs-
son, hagfræðingur, Hagamel
37, Reykjavík, Hjörleifur
Guttormsson, líffræðingur,
Neskaupstað og Skúli Magn-
ússon, kennari, Bíldudal.
Krafan var birt í Heimdalli
í gær af Þorvaldi Þórarins-
syni, lögfræðingi og er hún
svohljóðandi:
„Heimdallur, F.u.s.
Valhöll,
Reykjavík.
Til mín hafa leitað þeir
Hjalti Kristgeirsson, hag
fræðingur Hagamel 37,
Reykjavík, Hjörleifur Gutt-
ormson, líffræðingur Nes-
kaupstað, og Skúli Magnús-
son kennari, Bíldudal
Þeir skýra svo frá að þér
hafið í maímánuði s.l. vor
gefið út í Reykjavík bók
undir heitinu „Rauða bókin“,
Leyniskýrslur SÍA. Skýrsl-
urnar, sem Einar Olgeirsson
krafðist, að yrðu brenndar“.
í riti þessu hafið þér birt
ýmislegt efni, aðallega einka-
bréf er þeir hafi samið og
Kápa Rauðu bókarinnar.
skipzt á, og eigi því einir og
sameiginlega útgáfurétt og
höfundarrétt að.
Umbj. m. skýra svo frá að
ekki hafi verið til þeirra
leitað um það efni bókarinn-
ar sem þeir eru höfundar og
eigendur að, og hafið þér
því birt það í algeru heim-
ildarleysi, enda án sinnar
vitundar. Þeir skýra einnig
svo frá, að þeim hafi ekki
borizt frá yður nein greiðsla,
né höfundareintök samkv.
venju.
Með tilliti til þesa hafa
umbj. m. sameiginlega falið
mér að innheimta hjá yður
sem höfundarlaun að þessari
prentun bókarinnar, að því
er þá varðar, samtals kr.
150.000,00.
Fjárhæð þessi óskast greidd
mér, undirrituðum eigi síð-
ar en laugardaginn 16. þ. m.
ásamt 8% ársvöxtum frá 1.
júní 1963 til greiðsludags og
innheimtulaunum samkv.
gjaldskrá Lögmannafélags
íslands.
Virðingarfyllst,
Þorvaldur Þórarinson,“
(sign.)
Morgunblaðið, sem birti
útdrátt úr nokkrum hluta
þessarra skýrslna, hefur að
eigin sögn, í morgun, ekki
verið krafið ritlauna.
Þremenningunum til á-
bendingar, og öðrum sem
Rauðu bókina rituðu, skal
bent á, að Stephan Thomas,
sérfræðingur v-þýzku stjóm
arinnar, sem hingað kom fyr-
ir skömmu á Vegum Varð-
Framh. á bls. 5.
Brezki sendiherrann Mr. B. Boothby og Haraldur Á. Sigurðsson.
Prófessor Þorbjöm Sigurgeirsson f Eðlisfræðistofnun Háskólans.
orðunni O.B.E.
Á laugardagsmorguninn var
Haraldur Á. Sigurðsson sæmdur
brezka heiðursmerkinu O. B. E.
(Officer of the most excellent
order of the British Empire) við
hátíðlega athöfn, er fram fór á
heimili brezka sendiherrans við
Laufásveg.
Mr. Basil Boothby, brezki
sendiherrann, afhenti Haraldi
orðuna f umboði Elísabetar II.
Bretlandsdrottningar. í ræðu
sinni gat sendiherrann þess að
orðan væri virðingarvottur af
hálfu Breta fyrir margra áratuga
starf Haraldar að auknum tengsl
um þjóðanna tveggja og hefði
hann þar fetað í fótspor föður
síns, Ásgeirs heitins Sigurðsson-
ar aðalræðismanns Breta á ís-
landi. Ásgeir var sæmdur þess-
ari sömu orðu fyrir tæpum 40
árum.
Viðstaddir athöfnina voru eig-
inkona Haraldar Á. Sigurðssonar
og dóttir, Bjarni Benediktsson
dómsmálaráðh. og frú og Sig.
B. Sigurðsson konsúll og frú,
auk fleiri vina og samstarfs-
manna Haraldar.
Sveinn GuBmundsson kjör■
inn formuður VARÐAR
Sveinn Guðmundsson
Póstmaður jútur uð hufu
stolið peningum úr bréfum
Uppvíst hefur orðið um stuld
á peningabréfum úr pósthúsinu
í Reykjavfk. Þar -er um að ræða
penmgabréf sem ekki hafa ver-
ið látin f ábyrgðarpóst og ekki
tilgreint á umslögunum að inni
haldi peninga. Einn þ'óstm'anna
hefur þegar játað á sig brotið.
Póststofunni í Reykjavík hafa
bæði fyrr og sfðar borizt um-
kvartanir frá ýmsu fólki að bréf
frá því, sem f voru peningar
hafi ekki komizt til skila. Eru
talsverð brögð að því að fólk
láetur" öft' ,einkum smáúþphæð-
ir í almenn bréf, án þess að
kaupa á þau ábyrgð eða geta
um peningainnihald. Samkv.
póstlögum er þetta óheimilt og
fólk sem slíkt gerir tekur að
sjálfsögðu á sig sjálft ábyrgðina
af gerðum sínum.
Samt sem áður hafa margir
Framh. á bls 5.
Aðalfundur Landsmálafélags-
ins Varðar var haldinn í Sjálf-
stæðishúsinu í gærkveldi. Fór
m. a. fram stjórnarkosning og
baðst Höskuldur Ólafsson
bankastjóri undan endurkosn-
ingu í sæti formanns, og stakk
upp á Sveini Guðmundssyni,
alþm. í sinn stað. Var Sveinn
einróma kjörinn formaður Varð
ar fyrir næsta starfsár félagsins.
Þrjátíu manns sóttu um inn-
göngu í Vörð og voru sam-
þykktir einróma.
Höskuldur Ólafsson setti aðal-
fundinn, en Birgir Kjaran, for-
stjóri var kjörinn fundarstjórj
og Einar Guðmundsson skrif-
stofustjóri, fundarritari. Síðan
var gengið til dagskrár. Flutti
formaður skýrslu sína, sem bar
vott um þróttmikið starf og
glæsilegan hag félagsins. Kosn-
ingabaráttan mótaði starf Varð-
ar á síðasta starfsári. Voru
haldnir allmargir mjög fjöl-
mennir fundir um ýmsar grein-
ar þjóðmála, auk smærri funda,
vegna kosningabaráttunnar og
þátttöku félagsmanna í einum
fjölmennata kosningafundi, er
haldinn hefur verið í Reykja-
vík, í Háskólabíói. Áttatíu full-
trúar Varðar sóttu Landsfund
jálfstæðisflokksins. Sumarferð
Varðar, að þessu sinni um Borg-
arfjörð og Þingvöll, hafði aldrei
Framh. á bls. 5.
Laun stundukenn-
uru ákveðin
Fyrlr nokkr hefur menntamála-
ráðuneytið ákveðið laun stunda-
kennara í skólum. Eru launin mið-
uð við þá launaflokka, sem kenn-
ararnir myndu taka laun sam-
kvæmt, ef þeir væru fastir kenn-
arar.
Samkvæmt ákvörðun mennta-
málaráðuneytisins skulu laun
stundakennara vera sem hér segir:
1 bamaskólum: Miðað við 12.
launafl. (kennarar án kennararétt-
inda) kr. 63,50. 1 15. launafl. kr.
71,45-89.30. 1 16. launafl. kr. 74,
30-92.90. 1 17. launafl. kr. 96,60.
í húsmæðraskólum: f 13. launa-
fl.: kr. 81,75. í 16. launafl. kr. 91,95
og 19. launafl. kr. 108,25.
1 gagnfræðaskólum: í 16. launa-
fl.: kr. 95.00-114.95. f 18.
launafl. kr. 99.45. í 19. launáfl. kr.
108,25.
í iðnskólum: í 16. launafl.: kr.
Framh. á bls. 5.
•fc**Aía-m
i i |f'<YjjlÍÚW^HíKV