Vísir - 28.12.1963, Blaðsíða 3
I
VlSIR . Laugardagur 28. desember 1963.
•■•■■t'-gTtryay-" i III..1" lil|l|í lil'líl||llWI*l—llllll jlWIB—
: ::i:
' -vK
' i/
: .
r 1 I-
M
Jr ■
ÞOTUR OG HÁKARLAR
3
Ein mesta og frægasta kvik-
mynd, sem gerð hefur verið,
Saga úr Vesturbænum (West
Side Story) er nú komin hingað
til lands gg hefur Tónabíó haf-
ið sýningar á henni. Hér er um
að ræða ballett, sem Jerome
Robbins hefur samið við tónlist
Leonard Bernsteins.
Efni myndarinnar eru erjur
milli unglingafélaga i fátækra-
hverfi New York-borgar, en jafn
framt er það sagan af Romeó
og Júlíu endursögð i nútíman-
um.
Unglingarnir hópast saman í
flokka. Annar flokkurinn sem í
eru unglingar frá Puerto Rico
kallar sig Hákarlana (Sharks) og
er foringinn Bernardo. Hinn
flokkurinn kallast Þotur (Jets).
Það er efnt til dansleiks. Þar
kljást Þotumar og Hákarlamir.
Einn af Þotunum (Tony) verður
ástfanginn af stúlku, sem heitir
María. Hún er systir Bernardos,
foringja Hákarla, en ást þeirra
blómgast þrátt fyrir það.
Það verða slagsmál, unnusti
Maríu drepur Bernardo bróðir
hennar. Orðrómur hermir, að
María hafi einnig verið myrt.
Tony vill ekki trúa því og fer
úr felum til að Ieita hennar,
en þá kveður við byssuhvellur.
Hákarlarnir hafa hefnt foringja
síns og Tony deyr í örmum
Maríu.
Myndsjáin birtir tvær myndir
úr þessari fraegu kvikmynd. Efri
myndin sýnir Þotur tilbúnar til
atlögu. Neðri myndin sýnir Tony
og Maríu. Þau eru leikin af Nat-
halie Wood og Richard Beymer.