Vísir - 28.12.1963, Blaðsíða 9
VlSIR . Laugardagur 28. desember 1963.
9
Gerist Island
aðili að GATT?
VERZLUN EBE OG USA
ÚTFLUTNINGUR
EBE TIL USA
'l MILLJ. $
INNFLUTNINGUR
EBE FRÁ USA
'l MILLJ. $
Ríkisstjórn islands hefur nú
ákveSiS aS sækja um bráða-
birgSaaSiId aB GATT, alþjóða-
tollamálastofnuninni. — Þegar
þeirri stofnun var komið á fót
1947—1948, voru mikil viS-
skiptahöft í gildi hér á landi og
lslendingar voru þá enn ekki
reiSubúnir til þess aS vinna að
afnámi haftanna. Þeir áttu því
ekkert erindi i GATT, sem hef-
ur þaS aS aSalmarkmiSi aS af-
nema viðskiptahöft og koma á
frjálsari viðskiptum þjóða í
milli. En nú er verzlun Islands
við önnur lönd orðin svo frjáls,
að aðild landsins aö GATT kem-
ur fyllilega til greina. Er því
ekki úr vegi aö fara nokkrum
orðum um þá stofnun, sögu
hennar og markmið.
Hvað er G A T T ?
Hvað er GATT? Orðið þýðir
The General Agreement on Tar-
iffs and Trade eða hið almenna
samkomulag um tolla og við-
skipti og ber nafn af samkomu-
lagi er gert var milli 23ja ríkja
I Genf 30. október 1947.
Þegar fyrir lok síðari heims-
styrjaldarinnar hófu vesturveld-
in undirbúning að því að koma
á alþjóðlegri efnahagssamvinnu
að styrjöldinni lokinni til þess
að koma í veg fyrir hin sömu
mistök og fylgdu i kjölfar fyrri
heimsstyrjaldarinnar en þá um-
girtu ríkin sig tollmúrum og
viðskiptahöftum án tillits til
þess hvaða afleiðingar slíkar
ráðstafanir hefðu fyrir viðskipti
rikjanna. Á ráðstefnu í Bretton
Woods 1 Bandaríkjunum rétt
fyrir stríðslok var komið á fót
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum —
The International Monetary
Fund og Alþjóðabankanum —
The International Bank for
Reconstruction and Develop-
ment. Var þessum stofnunum
komið á fót fyrir frumkvæði
Sameinuðu þjóðanna og ætlun-
in var sú, að þriðja stofnunin
yrði þá þegar stofnuð til þess
að fjalla um viðskipti og tolla-
mál. Stofnskrá þeirrar stofnun-
ar — Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar — The International
Trade Organization (ITO) var
þó ekki tilbúin fyrr en í marz
1948. Á meðaþ beðið var eftir
þvi, að ITO tæki til starfa og
hæfi sína starfsemi er miða átti
að tollalækkunum og frjálsari
viðskiptum þjóða í milli sam-
þykktu Sameinuðu þjóðirnar að
stuðla að samkomuiagi þjóða
um tollalækkanir þegar áður en
ITO tæki til starfa. Var því
haldin ráðstefna í Genf 1947
um svipað leyti og unnið var að
þvi að semja stofnskrá ITO.
Árangur Genfarráðstefnunnar
varð GATT — hið almenna
samkomulag um tolla og við-
skipti, sem undirritað var í
Genf 30. okt. 1947 og tók gildi
1. janúar 1948. 23 ríki undir-
rituðu sáttmálann en nú eru
aðildarrtkin orðin 44. En auk
jiess eru mörg ríki aukaaðilar.
Svo fór, að ITO varð aldrei
nema nafnið eitt en GATT tók
við þvi hlutverki er ITO hafði
verið ætlað.
Helztu markmið.
Hvert hefur verið höfuðverk-
efni GATT. Samkvæmt sáttmál-
anum frá 1947 skyldu höfuð-
markmið GATT vera þessi:
1) bætt lífskjör aðildarríkj-
anna,
2) full atvinna,
3 aukin hagnýting náttúru-
auðlinda,
4) aukin framleiðsla og við-
skipti þjóða i milli,
5) auknar efnahagslegar
framfarir.
í reynd hefur það verið svo,
að GATT hefur einkum látið
tolla- og viðskiptamál til sín
taka og hefur stofnunin talið
sig vinna bezt að markmiðum
sínum með því að stuðla að
frjálsari viðskiptum milli ríkja,
með afnámi viðskiptahafta og
lækkun tolla.
Aðildarríki GATT hafa nú
með höndum 80% allrar heims-
verzlunarinnar. Á þeim tíma,
sem liðinn er síðan GATT var
stofnað, hefur stofnuninni tek-
izt að lækka tolla á vöruvið-
1949, sú þriðja I Torquay í
Englandi 1951, sú fjórða í
Genf 1956 og hin fimmta hófst
1960 í Genf.
Þrátt fyrir góðan árangur
GATT í því að koma fram tolla-
lækkunum töldu mörg Evrópu-
ríki ekki ganga nægilega vel að
brjóta tollmúrana algerlega nið-
ur. Því hófust umræður um
stofnun tollabandalags nokk-
urra Evrópuríkja, sem reiðubú-
in væru til þess að fella alger-
lega niður innbyrðis tolla á á-
kveðnu tímabili.
Evrópuríkin, sem vildu hrað-
ari þróun í tollamálunum voru
sexveldin, er stofnað höfðu
kola- og stálsamsteypu Evrópu
1956, þ. e. Frakkland, Vestur-
Þýzkaland, Ítalía, Holland,
Belgía og Luxemborg. Á fjórðu
ráðstefnu GATT um tollamál,
sem haldin var : Genf 1956 var
rætt um ráðagerðir sexveld-
anna. Var samþykkt að sexveld-
in yrðu að bæta GATT-ríkjum
utan sexveldanna tollahækkanir,
er kæmu til framkvæmda við
stofnun tollabandalagsins. En
stofnun þess hafði það i
för með sér, að ytri tollar sex-
1958
1960
1958
1960
tollabandalag heldur einnig um
víðtækt efnahagslegt samstarf
aðildarríkjanna, Efnahagsbanda-
lag £vrópu. Fimmta ráðstefna
GATT, er hófst 1960, var hald-
in I því skyni að ræða bætur
Efnahagsbandalagsins við önn-
ur GATT-ríki vegna tollahækk-
ana' bahdalagsins. Einnig var á
eftir Björgvin Guðmundsson
skiptum er nema helming heims
verzlunarinnar. Árangurinn í
því efni að fá afnumin við-
skiptahöft hefur verið enn betri.
GATT hefur þegar haldið
fimm ráðstefnur um tollamál,
sem leitt hafa til víðtækra
tollalækkana og sjötta ráð-
stefnan er fyrirhuguð á næsta
ári. Fyrsta tollaráðstefna GATT
var haldin í Genf 1947, hin
næsta I Annecy f Frakklandi
veldanna voru samræmdir, toll-
ar á sumum vörum hækkaðir en
á öðrum lækkaðir. Skuldbundu
sexveldin sig til þess að lækka
toila á móti þeim ytri tolla-
hækkunum, er til framkvæmda
mundu koma.
Tollabandalag sexveldanna
var stofnað 1957, er sexveldin
undirrituðu Rómarsáttmálann,
sem kvað ekki aðeins á um
n
IDN, WARFRAMLEIOSLA 1 í EURC <PU
H
1»52
1953 1954
1955
1956 1 95/ 1 958 1 959
1960
1961
Aukið frjálsræði I viðskiptum Vestur-Evrópu, afnám hafta og lækkun
tolla, hefur örvað framleiðslu ríkjanna. Linurit þetta sýnir vöxt iðnað-
arframleiðslu OECD-ríkjanna frá 1952. Sem sjá má, hefur framleiðslan
aukizt um 50% 1954— 196L Athyglisvert er, að vöxturinn er mestur
1959—1960, er árangur efnahagssamvinnu markaðsbandalaganna fer
að segja til sín.
þeirri ráðstefnu rætt um gagn-
kvæmar tollalækkanir EBE og
annarra ríkja og varð árangur
þeirra viðræðna 20% gagn-
kvæm tollalækkun EBE og
Bandaríkjanna.
Á næsta ári er ákveðið að
haldin verði ráðstefna um tolla-
mál á vegum GATT til þess að
fjalla um frekari gagnkvæmar
tollalækkanir EBE og annarra
ríkja. Eru það Bandaríkin, er
átt hafa frumkvæðið að þessari
fyrirhuguðu tollaráðstefnu og
hefur hún verið kennd við
Kennedy, hinn látna forseta
Bandaríkjanna og nefnd „The
Kennedy Round“ eða Kennedy
umferðin. Enda þótt fyrst og
fremst verði rætt um það að
koma á gagnkvæmum tolla-
lækkunum Efnahagsbandalags-
ríkjanna og Bandaríkjanna
munu önnur ríki, er hafa svo-
nefnd beztu kjara ákvæði í við-
skiptasamningum sínum einnig
njóta góðs af þeim tollalækk-
unum, er samið verður um á
vegum GATT. Samkvæmt regi-
um GATT er aðildarríkjum
þess óheipiilt að veita einu ríki
meiri tollfríðindi en öðru nema
um tollabandalag sé að ræða.
Mikil eftirvænting ríkir nú i
sambandi við fyrirhugaða tolla-
ráðstefnu á vegum GATT. Ef
vel gengur getur náðst sam-
komulag um 50% tollalækkun
á vissum vörutegundum. Sam-
kvæmt lögum þeim er Kennedy
fékk samþykkt á Bandaríkja-
þingi ?1. þau?t og heimila
Bandarikjunum að pemja um
tollalækkanir (Trade Expansion
Act.) geta Bandaríkin samið um
50 prósent tollalækkun á viss-
um vörutegundum og algera
niðurfellingu tolla á vörum, er
Bandaríkin og Efnahagsbanda-
lagið verzla með að 4/5 heims-
verzlunarinnar.
Áhrif á ísland.
Það sem skiptir mestu máli
fyrir okkur íslendinga í sam-
bandi við væntanlegar tollavið-
ræður á vegum GATT er það,
hvort rætt verður um tolla-
lækkanir á landbúnaðarafurð-
um en sjávarafurðir mundu
falla þar undir. Bandaríkin
leggja mikla áherzlu á að tolla-
viðræðurnar verði látnar ná til
landbúnaðarafurða enda eiga
þau þar mikilla hagsmuna að
gæta f sambandi við útflutning
landbúnaðarafurða til sexveld-
anna og hafa óskað eftir, að
EBE lækkaði tolla á innfluttum
landbúnaðarafurðum. Hefur
Efnahagsbandalagið nú fallizt á
að láta viðræðurnar ná til land-
búnaðarvara einnig. " Við það
skapast möguleikar á því, að
rætt verði á ráðstefnunni um
tolla á sjávarafurðum einnig.
Við bráðabirgðaaðild Islands að
GATT mun Islendingum opnast
leið til þátttöku í fyrirhuguðum
tollaviðræðum og geta þeir þá
væntanlega komið að sínum
sjónarmiðum í sambandi við
tolla á fiski og fiskafurðum
Aðild íslands að GATT getur
því vissulega haft mikla þýð-
ingu fyrir okkur.
Símosamband
við Eyjar
Nýverið var opnað beint síma
samband við Vestmanna-
eyjar. Eigi að hringja f Eyjar
er vandinn aðeins að draga 98
og f einni striklotu á eftir síma
númer viðtakanda í Eyjum og
hringir þá f þvf númeri, en mið-
stöð kemur hvergi nærri.
Áður var hringt í síma 22340
í Eyjum, sem sfðan náði sam-
bandi við viðkomandi númer.
Stofnun Efnahagsbandalags Evrópu varð ekki aðeins til þess að auka
innbyrðis viðskipi EBE-ríkjanna, heldur jukust viðskipti út á við einnig
Útflutningur EBE til USA jókst úr 1657 millj. dollara 1958 í 2258 millj.
dollara 1960, eða um 36,3%. Á sama tímabili jókst innflutningur EBE
frá USA úr 2365 millj. dollara í 3404 millj. dollara, eðá um 43,9%.
Náist samkomulag um gagnkvæmar tollalækkanir EBE og USA á veg-
um GATT næsta ár, munu viðskipti þessara viðskiptadeilda enn aukast
mikið.