Vísir - 28.12.1963, Side 8

Vísir - 28.12.1963, Side 8
8 V í S I R . Laugardagur 28. desember 1963. Jæja, þisð munnr ekki um þuð, Útgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrœti 3 Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði í lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur) Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Fjölgun bílanna ]\feðal hinna mörgu nýmæla sem ríkisstjórnin hefir beitt sér fyrir er setning nýju vegalaganna. Þörf ný- mæla í vegamálum verður ljósust þegar litið er á það hve mjög bílum mun fjölga í landinu á næstunni. Á næsta ári er gert ráð fyrir því að 29 þúsund bílar verði akandi á vegum landsins. En árið 1970 er áætl- að að þeim hafi fjölgað upp í 44 þúsund. Þessi tala um hina gífurlegu aukningu bifreiða í landinu sýnir hver nauðsyn það er að breikka og stækka þá vegi sem fyrir eru og steinleggja allar helztu akbrautir í nágrennni bæjanna. Nágrannaþjóðirnar eiga nú í mikl- um erfiðleikum með umferðarmál sín. Hið gamla vegakerfi þolir ekki hina gífurlegu fjölgun bifreiðanna sem orðið hefir á örfáum árum. Sem betur fer er ekki um slíkt öngþveiti að ræða hér á landi, enda fámenn þjóð sem byggir stórt land. En engu að síður er nauð- synlegt að búa í haginn fyrir framtíðina og skipuleggja vegakerfið með þarfir næstu áratuga í huga. Á næsta ári er ætlunin að veita 245 millj. króna til vegamálanna. Það er mikið fé en flestir munu sam- mála um að það er nauðsynleg fjárveiting. Þess vegna hækkar benzínið nú um áramótin. Þá hækkun verður að skoða í Ijósi þeirra miklu vegabóta sem fyrirhug- aðar eru. Félagsheimili stúdenta | fyrsta sinn hefir nú verið veitt fé á fjárlögum til hins fyrirhugaða félagsheimilis háskólastúdenta. Eru | til þess veittar hálf milljón krónur. Það er góð byrjun- | arfjárveiting en ekki síður er það mikils vert að hún 1 undirstrikar skilning yfirvalda á þessu nauðsynjamáli. Það hefir lengi verið stúdentum hagsmunamál að af I grunni risi félagsheimili þéirra. Stúdentagarðarnir gegndu að nokkru hlutverki slíks heimilis framan af, I en eftir að stúdentum fjölgaði eru þeir ófullnægjandi sem slíkir. Stúdenta skortir mjög athvarf bæði til félagsstarfa frístundavistar og samkomuhalds og í ráði ■ er að hið nýja heimili bæti úr öllum þessum þörfum. i Þar verða herbergi fyrir hin ýmsu félög háskólastúd- enta, sem nú eiga sér engan samastað og þaV fær stúdentaráð góða starfsaðstöðu. Fullráðið er nú að hið , nýja félagsheimili verður reist áfast við Gamla Garð, ! og hafa yfirvöld Háskólans samþykkt það fyrir sitt ! leyti. En félagsheimilið rís ekki af grunni nema til komi I mikið átak stúdenta og háskólamenntaðra manna. Slik bygging kostar milljónir og söfnun fjárins þarf að hefj- ast sem allra fyrst. í háskóla sækja ungir menn ekki nnungis menntun undir lífsstarf í þágu þjóðarinnar, hefdur eiga þeir að sækja þangað einnig þann þroska I sem blómlegt félagsstarf fóstrar. Því er nauðsyn að ! félagsmiðstöð þeirra fái risið sem fyrst af grunni. PL .. .... :;1: : >; : henni vnr tilkynnf usn, nð hún hefði hlofíð íhúð í símahnpiMfiræffinu Tveimur fjölskyldum í Reykjavík barst óvænt jólagjöf á Þorláksmessu kvöld. Dregið var í síma happdrætti Styrktar- félags lamaðra og fatl- aðra um tvær fokheld- ar 3ja herbergja íbúðir. Vinningana hlutu tveir starfsmenn Eimskips, þeir Albert Þorgeirsson, Jæja, það munar ekki um það, sagði Jóhanna, þegar henni var tiikynnt um vinninginn. i <h . FENGU ÍBÚÐIR í JÓLAGJÖF i 1. vólstjóri á Selfossi og Árni Jóhannsson, starfs- maður í Skúlaskála. í gær brugðum við okkur í stutta heimsókntilþess ara tveggja fjölskyldna, sem fengu þessar ó- væntu jólagjafir. Á Háteigsvegi 24 býr Albert Þorgeirsson véistjóri. Albert er 1. meistari á Selfossi, sem um þessar mundir er staddur í Hol- landi, en við hittum að máli frú Jóhönnu Jóhannesdóttur. „Það eina, sem ég gat stam- að I sfmann, þegar þeir lirlngdu um 10 leytið var: Jæja, það munar ekki um það. Og sömu setninguna varð húsbóndanum á að segja, þegar ég hringdi til hans til Hollands“. SPILAÐ í HAPPDRÆTTUM í 30 ÁR Jóhanna sagði, að þau hjón- in hefðu spilað í happdrættum í 30 ár og þetta væri í fyrsta skipti, sem heppnin væri með þeim. „En loksins þegar vinn- ingurinn kom, þá voru það held ur ekki neinir smámunir“, bætti frú Jóhanna við. „Og hvað ætlið þið að gera við íbúðina?" „Dóttir mín ætlar að gifta sig bráðum og ætli hún fái hana ekki. Það stóð heldur ekki á henni að skipuleggja allt sama kvöldið. En nú held ég að allir fjölskyldumeðlimirnir, séu bún- ir að jafna sig á þessu“. „Spilarðu oft í happdrætt- um?“ „Já, því get ég ekki neitað, ég á ákaflega erfitt með að standast þá freistingu. Ég hef * ............................ Árni Jóhannsson og Ingibjörg Álfsdóttir, ætla annaðhvort byggja eða kaupa íbúð. Ljósm. Vísis B.G. t. d. alltaf keypt miða í síma- happdrættinu og I þetta skipti keypti ég miðann fljótlega eftir I að happdrættið byrjaði, en síma ; númerið okkar er 17147. PENINGARNIR KOMNIR í BANKA Hinn vinningurinn í símahápp- drættinu kom upp á miða núm- er 23111. Eigandi símanúmers- ins er Árni Jóhannsson, starfs- maður hjá Eimskip f Skúla- skála. Við litum við hjá Árna í gærdag, en hann býr á Lindar- götu 43 A. Þetta er f annað skipti, sem þau hjónin Ámi og Ingibjörg Álfsdóttir vinna f happdrætti. í fyrra fengu þau 10 þús. krónur í Happdrætti Há- skóians, en nú fengu þau fok- helda 3ja herbergja íbúð, að verðmæti 225 þús. kr. „Þetta var sannarlega óvænt og góð jólagjöf", sagði Ingi- björg. „Sonur okkar var heima á Þorláksmessukvöld, þegar hringt var og tilkynnt að vinn- ingurinn hefði komið upp á slmanúmerið 23111. Hann vissi ekki um, hvort við hefðum keypt miðann, svo það er erf- itt að lýsa þvl hvernig honum leið þangað til við hjónin kom- um heim klukkustund síðar. — Fyrst þegar hann sagði okkur þetta trúði ég þvi ekki, og ég var ekki viss fyrr en við hringd- um daginn eftir." Árni var einnig mjög ánægð- ur með þennan óvæpta jóla- glaðning. „Við höfum oftast keypt miða í þessu happdrætti", sagði hann og bætti síðan við: „ekki kannski til að vinna, held- ur hitt, að styrkja þetta félag" Hann sagði að lokum, að hann hefði nú fengið peningana út- borgaða og sett þá I þanka, því nú ætluðu þau annaðhvort að byggja eða kaupa íbúð.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.