Vísir - 28.12.1963, Page 16
VÍSIR
Vélbátur strandar og eyðileggst
Ovissa u ib
verkfall F.Í.H.
Jón Magnússon framkvæmda
stjóri Sambands veitinga- og
gisthúsaeigenda skýrði Vísi svo
frá í gær, að hann teldi verkfall
FÍH boðað með of stuttum fyrir
vara. Hefði bréf um verkfalls-
boðunina ekki borizt fyrr en í
gær en verkfall þyrfti að boða
með viku fyrirvara.
srvavar Gests formaður FÍH
tjáði hins vegar blaðinu í gær
kveldi, að bréf um verkfallsboð
unina hefði verið póstlagt I á-
byrgð 21. desember og teldi
hann því, að verkfallið hefði
verið boðað með löglegum fyrir
vara. Yrði málið athugað nánar
á morgun.
Þessa mynd tók ljósmyndari Vís-
is, Daníel Sigmundsson, rétt fyrir
jól af bátnum Borgþóri frá Isa-
firði, þar sem hann lá strandaður
I Kálfadal.
Vélbáturinn Borgþór hét áður
Hellisey. Var hann smíðaður í
Reykjavík 1929 og var 25 brúttó-
tonn.
Báturinn strandaði í Kálfadal að
kvöldi 15. desember. Hann var að
koma Ur fiskiróðri í ágætu veðri
og albjörtu. Unglingspiltur, sem
stýrði, var þreyttur af vökum og
sofnaði undir stýrinu, svo báturinn
strandaði. Ekkert slys varð á mönn
um og komust þeir heilu og höldnu
í land í gúmbát.num.
Talið er vonlaust að bjarga bátn-
um, en úr honum hefur öllu laus-
legu verið bjargað og nokkru af
fiskinum.
ICnupn hey
Þrír bændur af Ströndum hafa
dvalizt undanfarna tvo mánuði í
Eyjafirði við kaup á heyi. Festu
þeir kaup á 1100 hestburðum aðal-
Iega í Svarfaðardal, sem mestallt
er komið um borð í skip. Afgang-
urinn er geymdur á Dalvík.
Byijað að byggja raansóknamiðstöð
í raunvísindum næsta vor
Ákveðið hefur verið að hefja
byggingu rannsóknastöðvar fyr
ir Raunvísindastofnun Háskóla
Islands. Byggt verður í þremur
áföngum, í fyrsta áfanga yfir
rannsóknir í stærðfræði, eðlis-
fræði, efnafræði og jarðeðlis-
fræði. Gjöf Bandaríkjastjórnar,
fimm milljónir króna, mun á-
straum af framkvæmdum, sem
eiga að hefjast í vor. Raunar
verður að afla viðbótarfjár, þar
sem gjöfin ein dugir ekki til.
Prófessor Þorbjörn Sigur-
geirsson, sem er formaður
byggingarnefndarinnar, tjáði
Vísi að fyrir hendi, væru sex
milljónir króna til framkvæmd-
stofnunin á að standa við Dun-
haga, sunnan Háskólabfós. —
Fyrsti áfangi byggingarinnar
verður tvær hæðir og kjallari,
gólfflötur 544,3 ferm. Gert er
ráð fyrir í áætlunum að þar
muni starfa 20 sérfræðingar í
stærðfræði, eðlisfræði, efna-
fræði og jarðeðlisfræði, þar af
9 fastráðnir en 11 lausráðnir
eða með styrki til vísindalegra
rannsókna f stofnuninni. Auk
þess er gert ráð fyrir 15 að-
stoðarmönnum. Allmargir þeirra
sem verða fastráðnir starfa nú
við Háskóla Islands. 1 Eðlisfræði
stofnun Háskóla Islands, sem er
vísir að Raunvísindastofnuninni,
Framh. á bls. 5
Kona fótbrotnar
í gær um hádegisbilið slasaðist
kvenmaður við að detta á hús-
tröppum f Drápuhlíð.
Um leið og hlánaði í gærmorg-
un, gerði fljúgandi hálku á götum
og gangstéttum, þar við bættist rok
svo fólk átti víða fullt f fangi með
að komast leiðar sinnar. Eina al-
varlega slysið sem vitað er þó að
hafi orðið af völdum hálkunnar var
á framangreindum húströppum um
hádegisbilið f gær. Konan,
sem datt, Lára Lúðvíksdóttir, fót-
brotnaði við fallið og var hún flutt
í sjúkrahús.
--- J ... ..J — '•** **“***** ’ *~‘**“
samt vaxtatekjum af henni anna, gjöf Bandaríkjastjómar og
verða notuð til að standast vaxtatekjur af henni. Rannsókna
Verkamaður og sjó
maður hlutu íbúðir
Á Þorláksmessu var dregið í símahappdrættinu, 10 þúsund kr
simahappdrætti Styrktarfélags lam
aðra og fatlaðra og komu hæstu númer:
vinningarnir, 225 þúsund krónur 51500,
hvor, á símanúmer 17147 og 23111.
Verkamaður hjá Eimskipafélagi
íslands hefir annan simann og sjó
maður hinn. Formaður styrktarfél- ^
agsins, Svavar Pálsson, hringdi í
þessa sima þegar í stað og flutti
þessi óvæntu gleðitíðindi. A. m. k.
annar þessara manna sótti vinning
inn fyrir jólin. Albert Þorgeirsson
hefir síma 17147 og Ámi Jóhannes
son sima 23111.
Þá vora og 10 aukavinningar i
Afmælis minnzt
Á Siglufirði var nýlega haldið
hátíðlegt 80 ára afmæli barna-
fræðslunnar í kaupstaðnum og jafn
framt 50 ára afmæli elzta hluta
skólahússins.
Um leið var síðasta viðbót barna
skólahússins, sem verið hefur í
smíðum nokkur undanfarin ár, vfgð.
Er þessi síðasti áfangi skólahúss-
ins hin vandaðasta bygging í hví-
vetna.
hver. Þeir féllu á eftirtalin sfma
21437, 37270, 17175,
18352, 37789, 12283,
34406, 15860 og 40426. Sjá grein
á blaðsíðu 8.
Skaðbrenndist við að bjarga
sér út úr logandi berbergi
FYRIR HÁDEGI í gærdag
skaðbrenndist maður, auk þess
sem hann skarst illa, þegar hann
var að brjótast í gegnum eld í
íbúð sinni.
Þessi atburður skeði á Fálka-
götu 27, en þar kom eldur upp
f lítilli forstofu framan við í-
búðarherbergi, sem einhleypur
maður, Ásgeir Magnússon, bjó í.
Fólk, sem bjó annars staðar f
húsinu, varð fyrst eldsins vart,
en þá vantaði klukkuna nokkr-
ar mínútur í 11 f. hád. Vissi
það, að Ásgeir var inni í her-
bergi sínu, inn af forstofunni,
og kallaði til hans að forstofan
væri tekin að loga. í stað þess
að velja auðveldustu leiðina,
sem var að brjóta rúðu í her-
bergisglugga sínum og fara þar
út, brauzt Ásgeir í gegnum log-
andi forstofuna og brenndist við
það illa í andliti, á höndum og
víðar, auk þess sem hann skarst
á fótum. Var fluttur í sjúkra-
Framh. á bls. 5
Hcmuleg mistök í samhandi
við biörgun úr LAK0NIA
Sklpherrann bugaðist, er hann svaraði
fyrirspurnum um brunann
Mateos Zarbis, skipstjóri á gríska
farþegaskipinu Lakonia, kom til
Madrid í gær. Þyrptust fréttamenn
þ gar að honum og rigndi yf ir hann
spumingunum. Að Iokum hneig
hann niður á stól, huldi andlitið í
höndum sér og bað þá að hætta
að spyrja, en hann hafði áður svar
að nokkrum fyrirspurnum um þenn
an hörmulega atburð, en af völdum
eldsins urðu farþegar og áhöfn að
yfirgefa skipið, og varð manntjón
minna en óttazt var, enda var veð-
ur gott
Skipstjórinn var á heimleið til
Aþenu frá Tenerife á Kanaríeyjum.
Er hann svaraði fyrirspurnum blaða
manna voru dráttarbátarnir Herk-
ules (norskur) og Polzee (hollenzk-
ur) að draga flak Lakoniu til hafn-
ar, og ekki vitað hvort farið yrði
með það til Casablanca, Gibraltar
eða Lissabon.
Fyrstu fyrirspurnunum svaraði
Zarbis greiðlega og rólega. Hann
Framh á bls. 5.