Vísir - 03.01.1964, Side 2

Vísir - 03.01.1964, Side 2
2 V í SIR . Föstudagur 3. janúar 1964t JjON birgir pétursson ÞRlR ÍÞRÓTTAKAPP- AR 1 HEIMSÓKN Meðal mikils fjölda íslendinga búsettra erlendis, sem dvöldu heima um jólin, voru þrír kunnir í-1 þróttamenn. Þetta eru þeir Vilhjálmur Einarsson,1 þrístökkvari, sem dvelst í Danmörku í vetur við kennslustörf, Eysteinn Þórðarson, skíðakappi, sem' býr í Bandaríkjunum með fjölskyldu sinni og hinn ungi sundmaður Árni Þ. Kristjánsson úr Hafnar-i firði, sem hefur undanfarin tvö ár starfað og æft i íþróttir í Stokkhólmi. Við ræddum lítillega við þessa ágætu íþróttamenn og fer það rabb hér á eftir: „Herbergið er rándýrt og lélegt, — en okkur líður vel“. Það er frekar erfið aðstaða til œfinga hjá félaginu, sem við Hörð- ur æfum hjá, en það heitir Polisen og er íþróttafélag lögreglunnar í Stokkhólmi, en almenningur fær að æfa og keppa fyrir það félag. Sund áhugi Svía er geysimikill og enda þótt sundlaugar séu víða, duga þær ekki til, það er alltaf fullt. Áhug- inn er ekki hvað minnstur núna, það gera Olympíuleikarnir, en þar eiga sundmenn Svia talsverða mögu leika. — Hvað starfið þið Hörður? — Ég vinn hjá lítilli prentsmiðju en Hörður hjá stóru skrifstofu- vélafirma, sem framleiðir Facit- reiknivélarnar meðal annars. Við Eysteinn Þórðarson ásamt konu sinni Dóru og Gunnari litla syni þeirra, sem þegar er farinn að Ieggja fyrir sig skíðalistina og var raunar byrjáður undir handleiðslu föður sins strax 3 ára að aldri. Hörður búum saman á ágætum stað í borginni, en herbergið er lélegt og rándýrt, eins og flest í Sviþjóð. Annars líkar okkur ágætlega, enda þótt alltaf sé bezt að vera heima. — Og hvernig hefur árangur ykkar verið undanfarið? „Ég fékk á síðasta ári beztan tima í 200 metra bringusundi 2.40,5 á 25 metra braut, en Hörður var óheppinn og meiddi sig á fæti í fyrra og fékk bezt 2.42.8 í 200 metrunum". — Hafið þið keppt mikið? „Já, talsvert mikið, og með fé- lagi okkar höfum við ferðazt heil mikið, séð mestalla Svíþjóð og far- ið ti lFinnlands í keppnisför. Það ferðast ekkert félag eins mikið og Polisen". Starfar við eldflaugafram- leiðslu í Kalifomíu. Eysteinn Þórðarson, skíðakappi, er líklega bezti skíðamaður, sem við höfum átt. Eysteinn fór utan til náms í Bandaríkjunum fyrir 3Y2 ári og hefur nú lokið bandarísku verkfræðiprófi. — Hjá hvaða fyrirtæki starfar þú Eysteinn. „Ég starfa hjá stórfyrirtæki, sem heitir Raytheon. Það vinnur elektr- ónísk efni fyrir flugher og land- her Bandaríkjanna og m.a, smíðar það Hawk og Sparrow varnareld- flaugar, einnig ljósgeisla sem skot- ið hefur verið til tunglsins og end urkastast til baka“. — Stundar þú enn íþróttir? „Já, það má segja að ég fari á skíði aðra hvora helgi að jafnaði. Það er ekki nema fjögurra tíma keyrsla heiman frá ekkur til Hea- venly Valley eða Squaw Valley þar sem vetrarolympíuleikarnir fóru freun 1956. Aðstaðan þar er stór- kostleg og gefur síður en svo eftir Framhald á bls. 6 Þarna er Árni Þ. Kristjánsson á heimili sínu í Hafnarfirði ásamt litlu systur sinni, Sigrúnu, sem var afar fegin að fá stóra bróður heim á jólunum. „TOKYO er ekki neitt tak- mark fyrir mig“. „Ég hef kennt í vetur við Iýð- háskólann Grundtvigs Folkehöj- skole í Hilleröd skammt fyrir utan Kaupmannahöfn, Mér líkar vel við lýðskólaformið. Þarna er þroskað fólk, meðalaldur nemendanna mun vera um 20 ár og ég kenni þarna geometríska stærðfræði, ensku og íslenzka menningarsögu og bók- menntir, en íslenzku greinarnar eru frjálsar og hef ég bekk með 20-30 nemendum! Ég vona að þetta form verði reynt I skóla hér, það væri ekki vanþörf á.“ Og hvað um íþróttaiðkun hjá þér. Nú eru íþróttamenn farnir að þjálfa fyrir OL í Tokyó, hyggur þú á þátttöku þar? „Nei, ég verð að segja sem er, að ég hef ekki nokkra möguleika á að leggja út í slíkt. Ég hef engan tíma til þess, tíminn kostar peninga, eins og þú veizt, og ég hef þvi ekki efni á að stunda íþróttir með afrek fyrir augum. Ég hitti keppi- naut minn og heimsmethafann Josef Schmitdt á Evrópumeistara- mótinu í hitteðfyrra.. Við röbbuðum mikið saman og hann sagði undr- andi við mig, þegar ég tjáði honum að ég gæti ekki lengur stundað þrístökkið að við værum einmitt á rétta aldrinum fyrir þristökk og ættum mörg ár eftir. Hann hefur það verkefni eitt að ná Iangt í þrí- stökki og fjölskylda hans lifir á- gætu lífi af því. Hinsvegar er þetta ekki svo með mig, ég verð að gera eitthvað annað til að hafa ofan af Framh. á bls. 6. Vilhjálmur Einarsson með konu sinni Gerði Unnd órsdóttur og tveim þriggja sona þeirra Unnari og Rúnari. Þriðji sonurinn Einar var austur á Egilsstöðum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.