Vísir - 03.01.1964, Blaðsíða 16
Politíken kannar örlög Veru Hertsch
Föstudagur 3. janúar 1964,
Danska blaðið Politiken birti
á mánudaginn grein sem ber
fyrirsögnina: Gátan um Veru
Hertsch. Daginn áður birti biað
ið kafla Laxness úr Skáldatíma
um Veru Hertsch sem kjallara-
grein. Spyr blaðið síðan daginn
eftir af því tilcfni hvort nokkur
viti um örlög hcnnar síðan.
Politiken segir: „Verður það
kleift að leysa gátuna í dag um
Veru Hertsch, sem greinilega
hafði samband við ýmsa Dani
áður en hún hvarf af sjónar-
sviðinu? Aðeins einn Dani sem
Politiken hefir haft samband við
minnist nafns hennar . . . Lax-
ness sjálfur virðist ekki vera í
neinum vafa um að hún hafi
verið tekin af lífi (í Moskvu
1938). Ef svo er deildi hún ör-
lögum með mörgum öðrum sem
hurfu sporlaust í ofsóknunum í
Moskvu á þessum árum, þegar
kommúnistar sáu svikara á
hverju strái. Maður minnist
danska kommúnistaþingmanns-
ins Arne Munch Petersen sem
einnig hvarf í Moskvu á árun-
um eftir 1930 og ekki er vitað
um hver afdrif hans hafa orðið“.
Politiken segir að blaðið hafi
daginn áður, á sunnudaginn,
haft samband við ýmsa Dani
sem dvöldust í Moskvu um þetta
leyti en aðeins einn þeirra minn
ist nafnsins Vera Hertsch. Er
það fyrrverandi kommúnistafor-
inginn Kai Moltke, sem nú er
þingmaður hins nýja flokks Axel
Larsens „folkesocialister".
Moltke kveðst muna eftir nafn-
inu en ekki minnast þess gjörla,
hver konan var.
Hann bendir á að þeir Danir
sem líklegastir séu til að hafa
haft kynni af henni séu meðal
þess hóps danskra kommúnista
f verkfræðingastétt sem störf-
uðu i Sovétríkjunum á þessu
árabili.
Framhald á bls. 6.
GREIN ,KLIPPT ÚR'SKÓLABLAÐI
Halldór Laxness: Hvar er Vera?
Gísli Sigurbjömsson, forstjóri,
hefir bent blaðinu á að rétt fyrir
jólin hafi birzt grein í skólablaði
einu hér í borg þar sem farið
sé slíkum orðum um kristin-
dóminn að alla, sem virða þau
mál einhvers, hljóti að setja
hljóða. Gísli sagði Vísi að hann
hefði Iátið ýmsa yfirmenn skóla-
og kirkjumála vita af þessu, svo
sem biskupinn, fræðslumála-
stjóra, fræðslustjóra Reykjavik-
ur, námsstjóra Gagnfræðastigs
og formann Prestafélags íslands,
-<S>
Trésmiðum boðin meiri hækk-
un á ákvæðisvinnu en Iðju
Höfnuðu því boði og huldu úfrum verkfullinu
Trésmiðafélag Reykjavíkur held-
ur enn áfram verkfalli og hefur enn
ekki verið boðaður neinn sáttafund-
ur. Visir hefir fregnað, að trésmið
111. bát rak
mannltEiisan
til hafs
Á nýársdag slitnaði ellefu '
| tonna vélbátur Straumur frá
| bryggju í Höfnum á Reykjanes 1
, skaga. Var það í rokinu sem
. gekk yfir Suðvesturland á |
nýársnótt. Bátinn rak út ósinn j
* og þar sást siðast til hans og,
I vita menn ekkert hvað af honum ,
| hefur orðið éða hvert hann hef-
| ur rekið. Eigandi bátsins var
, Valgeir Sveinsson.
ir hafi hafnað tilboði, er hefði hækk
að ákvæðisvinnutaxta þeirra meira
en þeirri hækkun nam, er Iðja,
félag verksmiðjufólks samdi um.
Á síðasta samningafundi tré-
smiða og meistara var húsasmið-
um boðin 15% hækkun á ákvæðis
vinnutöxtum félagsins með því skil
yrði, að þegar ákvæðisvinnan gæfi
trésmiðum 75% meiri tekjur en
tímakaupið skyldi umfram hækkun
in skiptast að jöfnu milli trésmiða
og húsbyggjenda. En fram að 75%
skyldi hækkunin renna óskert til
smiðanna. Þessu boði höfnuðu tré-
smiðir.
Áður hafði trésmiðum verið boð
in 15% hækkun með 60% „tak-
mörkun“ eða sams konar boð og
Iðja hafði gengið að. Því hafnaði
Trésmiðafélagið þegai* I stað. Einn
ig hefur félagið hafnað því, að
hlutlaus aðili væri látinn athuga
ákvæðisvinnuvaxta félagsins en
vinnuveitendur telja, að ákvæðis-
vinnutaxtarnir séu ekki byggðir á
nægilega traustum grunni og þyrftu
endurskoðunar við. Telja vinnuveit
og eins vissi hann til þess að
menntamálaráðherra hefði verið
Iátinn vita um þessa ritsmið.
Gísli Sigurbjörnsson kvaðst eng
an veginn gera þetta til þess að
fordæma þann pilt, sem grein
ina hefði ritað né til þess að
ásaka skóla hans eða skóla-
stjóra sérstaklega, heldur ein-
vörðungu í þeirri von að fyrir-
byggja mætti í framtíðinni að
slíkar ritsmíðir unglinga i rikis
skólunum kæmu fyrir almenn-
ingssjónir. Hann hefði talað við
fyrmefnda ráðamenn svo að
ekki færi milli mála að þeir
vissu hvað hefði gerzt.
Vísir hefir talað við skóla-
stjóra viðkomandi skóla, sem
harmar að þessi grein skyldi
birtast i skólablaðinu. Einn af
kennurum skólans er ábyrgðar
maður blaðsins, eins og venja er
Framh. á bls. 6.
endur, að taxtarnir geti fært iðn-
aðarmönnunum óeðlilega miklar
tekjur og að sanngjarnt væri, að |
húsbyggjendur nytu að einhverju
leyti góðs af auknum afköstum á- j
kvæðisvinnunnar. Þess vegha kom !
fram tilboð um, að þegar ákvæðis- !
vinnan færði tekjur, er væru meiri I
en 75% yfir tímakaupinu þá skipt- I
ist hækkunin að jöfnu milli smiða
Dg húsbyggjenda.
Birgir Þórhallsson læt-
ur af starfi hjá Fl
Birgir Þórhallsson, deildar- sem rekur umfangsmestu fast-
stjóri utanlandsflugs Flugfélags eignasölu borgarinnar.
Islands, hefur ákveðið að Við ræddum lítillega við Birgi
sfegja lausu stárfi sínú hjá fé-f morgun og fórust honum orð á
laginu. Birgir sem hefur veriðþessa leið:
forstöðumaður sívaxandi starf- — Það er rétt að ég er búinn
semi utanlandsflugs Fí á 6. ár,að segja starfi mínu iausu hjá
hefur ákveðið að taka viðFlugféiaginu. Hér er aðeins um
starfi skrifstofustjóra hjáþað að ræða, að mér hefur boðizt
Vagni Jónssyni, lögfræðingi, Framhald á bls. 6.
DRÁTTARBÁTUR SÆKIR
TOGARANN SEM BRANN
Þýzki dráttarbáturinn Seafalke,
sem kom hlngað til lands f gær-
dag, lagði 1 morgun af stað til
Bremerhaven með þýzka skut-
togarann Grönland, sem
skemmdist mikið af eldi 13. des.
s.I.
Grönland, sem er aðeins 3 ára
gamall, og hið glæsilegasta og
fullkomnasta skip, var á veið-
um við Austur-Grænland, þegar
skyndilega kom upp eldur í vél
arrúmi hans, og breiddist svo
skjótt út, að áhöfnin varð að
forða sér i bátana 10 min. siðar.
Var henni bjargað um borð í
annan þýzkan togara. Germanía,
sem var á veiðum á svipuðum
slóðum. Eldur logaði í Grön-
Framh. á bls 6.
Dráttarbáturinn Seafalke. í hornirru er PaflÞ HonntMn skipstjóri. (Ljósm. Vísis B.G.)
an
arangurs
I gær leituðu skátar úr Reykja-
vík, Hafnarfirði og Kópavogi að
Bárði Jónssyni, Borgarholtsbraut
37 A í Kópavogi, sem hvarf að
heiman frá sér s.l. mánudag. Einn-
ig leitaði þyrilvængja af Keflavík-
urflugvelli og froskmaður kafaði
við bryggjuna í Kópavogi. Leitað
hefur verið á mjög stóru svæði, en
án árangurs. Um miðnætli f nótt
var leitinni hætt og hafa leitar-
flokkarnir ekki verið boðaðir út
aftur.