Vísir - 03.01.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 03.01.1964, Blaðsíða 4
4 VlSIR . Föstudagur 3. janúar 1964. í skrifstofu háskólarektors undir mynd fyrsta rektors Björns M. O’sens. Talið frá vinstri Ármann Snævarr háskólarektor, Pétur Sigurðsson fráfarandi háskólaritari og Jóhannes L. Helgason, sem við tekur. Er það satt að þú hafir látið af I embætti háskólaritara núna um '1 áramótin, og að það dugi ekki | minna en rafeindaheili til að jf taka við af þér? Já, ef það þá dugar. Það er svo sem engin tilvilj- un, að þetta gerist samtímis, heili fer og heili kemur. Nei, þeir hafa líklega vitað þetta f Framkvæmdabankanum. Nema þeir hafi verið búnir að reikna þetta út hjá IBM með nýja heilanum. ' Já, þetta er ramgöldrótt. Hvað ertu annars búinn að gegna lengi starfi háskólarit- ara? í 34 ár, síðan 1. október 1929. Og ert magister í íslenzkum fræðum að menntun. Það er rétt, og var orðinn aðstoðarbókavörður f Lands- bókasafninu áður en ég gerðist háskólaritari. Þú fórst úr kyrrðinni í eril- inn. Hvort fellur þér nú betur? Ég kann betur við kyrrðina. Sérðu eftir að hafa kastað þér út f erilinn? ■ rillWll»—WWBWOW—B Nei, það geri ég ekki, það hefir verið gaman að kynnast ungu fólki. En ætlarðu þá ekki að nota tækifærið og setjast nú um kyrrt, að ekki sé sagt í helgan stein. Jú, ég ætla að setjast um kyrrt, en ekki í helgan stein. Ég ætla að halda áfram verki, sem ég hefi unnið að fyrir Landsbókasafnið í hjástundum nú um skeið. Og hvað er það? Ég er að semja skrá yfir bæk- ur og rit, allt sem prentað hafði verið á íslenzku fyrir 1844, er prentsmiðjan fluttist til Reykja- víkur. Ég rita stafrétt upp titil- blað hverrar bókar. Fyrsta bók- in, sem prentuð var á íslenzku, er Nýja testamenti Odds Gott- skálkssonar, sem kom út 1541. Er þetta ekki mikið og taf- samt verk? Jú, það er seinunnið. Ég hefi skrifað upp úti í Kaupmanna- höfn eftir bókaskrám þar. Af skrám, sem áður hafa verið gerð ar yfir íslenzkar bækur, er merk ust skrá Halldórs Hermannsson- ar yfir bækur frá 16. og 17. öld. Hvað voru margir stúdentar f1 Háskólanum þegar þú tókst við ritarastarfinu 1929? Þeir voru um hálft annað hundrað, en eru nú um 900. Og hvers vegna ertu að hætta strax, þú ert ekki nærri orð- inn sjötugur. Ja, bæði er starfið nú að verða mér ofvaxið og svo þarf ég endilega að ljúka þessu verki, sem ég minntist á áðan, bókaskránni fyrir Landsbóka- safnið. Það má vera fílefldur maður, sem tekur við af þér, jafnvel þótt „heilinn" sé á leiðinni. — Hver er ráðinn? Jóhannes heitir hann Helga- son, lögfræðingur og er áreið- anlega tveggja manna maki. Það verða engin vandræði með það. — stutt viðtal v/'ð Pétur Sigurðsson háskólaritara HÆTTI STÖRFUM UM ÁRAMÓTIN Gamlárskvöld í Reykja- vík verður að telja venju fremur rólegt, sögðu yf- irmenn lögreglunnar, þeir Ólafur Jónsson full- trúi lögreglustjóra og Erlingur Pálsson yfir- lögregluþjónn við Vísi í gær. Lögreglan hafði mikið lið á verði og var við öllu búin. Voru 85 lögregluþjónar á varðbergi á víð og dreif um bæinn og við umferðarstjórn þar sem þess var helzt talin þörf. Um 70 áramótabrennur voru á (víð og dreif f bænum og var kveikt í þeim á tímabilinu kl. 10 — 11 um kvöldið. Stærsta brennan var á Klambratúni og stóð Reykjavíkurborg að henni. Aðrar stærstu brennur voru á Ægissíðu og í Söriaskjóli. Mik- ill mannfjöldi safnaðist að öll- um brennunum þrátt fyrir hvass viðri og var um skeið gífurleg umferð um allar nærliggjandi götur. Allt fór þó vel fram og óhappalaust. Um níuleyfið safn- aðist hópur ungmenna saman í Austurstræti og voru þar með nokkur ærsl, en sér í lagi smygl aða kínverja. Tók lögreglan sam tals 42 unglinga sem stóðu að þessu og flutti ýmist í lögreglu- stöðina eða inn í Síðumúla. Var stærstu strákunum haldið þar kyrrum frameftir kvöldi, en þeim yngri ýmist ekið heim til þeirra eða foreldrum þeirra gert aðvart um að sækja þá. Um 600 smyglaðir kínverjar, sem fundust í vörzlum þeirra, voru gerðir upptækir. Þá gerðist það ennfremur, að ktnverjum var varpað út um glugga á bifreiðum sem ekið var eftir Miðbænum. Lögreglunni tókst að handsama suma öku- mennina, en náði skrásetningar- merkjum af öðrum bifreiðum. Þetta fyrirþæri er nýtt af nál- inni og hefur ekki komið fyrir áður. Frá því kl. 8 á gamlárskvöld til kl. 6 á nýársmorgun bárust lögreglunni 120 kvaðningar, og er það nokkru minna en á ný- ársnótt í fyrra, sem þó var talin með rólegra móti. 38 ölvaðir menn voru færðir í fangageymsl ur, en 45 ölvuðum mönnum ek ið heim. Lögreglan aðstoðaði við flutning 15 slasaðra manna í Slysavarðstofuna. Meðal óhappa sem urðu í Reykjavík af völdum sprengna, má geta þess að í Eskihlíð varð maður fyrir því óhappi að missa rakettu úr höndum sér. Lenti hún á bíl, braut framrúðuna og kveikti í honum. Urðu allmikl- ar skemmdir á bílnum, að því er lögreglan hermdi. Að öðru leyti var fátt til tið- inda hjá lögreglunni undanfarna tvo daga. Bíll lenti út af vegi hjá Geithálsi á nýársnótt, en slys urðu ekki á fólki. Járn- plötugirðing fauk í rokinu í fyrradag hjá vélsmiðjunni Héðni og var lögregla kvödd til aðstoðar. Aðfaranótt mið- vikudags var Túða brotin í bíl á stæði við Eskihlíð 8 og biður lögreglan um upplýsingar ef einhverjir geta gefið. Nokkrir voru teknir fyrir ölvun við akst ur. I Hafnarfirði var gamlárs- kvöld einnig rólegt, sagði Krist inn Hákonarson yfirlögregiu- þjónn. Nokkur smávægileg spjöll orsökuðust af handatiltekt- um unglinga og nokkuð bar á ölvun unglinga, en sízt meira á ölvun fullorðinna en oft um helgar. Áramótabrernur voru 23 og var nokkur uggur i fólki vegna neistaflugs, sem var gífurlegt vegna roksins. Hvergi kom þó til óhappa af þeim sökum og slökkvilið ekki kvatt út nema tvisvar, sem í bæði skiptin reyndist gabb. I fyrra tilfellinu náðist sá seki. Launajöfnuður kurlu og kvennu: Þríðji áfangi kauphækk- unar kvenna 1. janúar Bók Indriða G. — Nú um áramótin kemur til fram- kvæmda þriðji áfangi kauphækk- unar kvenna samkvæmt lögunum um launajöfn. kvenna og karla í 6 áföngum. Kauphækkunin nú nær til verkakvenna kvenna í verksmiðju iðnaðinum, kvenna í starfsstúlkna- félaginu Sókn og '.£B en ekki kemur strax til framkvæmda kaup hækkun kvenna, er vinna i verzl | unum vegna þess að kjaradómur hefur ekki lokið störfum og ákveð- ið Iaun verzlunarfólks. . Launajafnaðarnefnd hefur undan farið unnið að JdvI að reikna út kauphækkun þá, er koma á tij fram kvæmda um þessi áramót. Skýrði formaður nefndarinnar, Hjálmar Vil hjálmsson ráðuneytisstjóri, Visi svo frá 1 morgun, að væntanlega yrðu send út í dag bréf til verkalýðs- félaganna um kauphækkunina. Ásamt Hjálmari eiga sæti í launa- jafnaðarnefnd Barði Friðriksson frá Vinnuveltendasambandi Islands og Hannibal Valdimarsson frá Alþýðu sambandi fslands. Kauphækkun sú, er kemur til framkvæmda nú hjá konunum, er mjög misjöfn eftir töxtum og eftir því, hversu brlið hefur verið mikið milli karlakaups og kvennakaups. f mörgum tilfellum mun kauphækk unin þó vera nálægt 4%. T.d. hækk ar taxti Verkakvennafélagsins Framsóknar í alm. fiskvinnu um 89 aura á ttmann, úr 24.90 kr. í 25.79 kr. eða um 3,6%. Konur í þessari vinnu hafa >vf um áramótin fengið 18,6% kauphækkun með þeirri 15% hækkun, er nýlega var samið um. Fyrsti áfangi kauphækkunar kvenna kom til framkvæmda 1. jan. 1962. En síðasti áfanginn kemur í framkvæmd 1. janúar 1967 og á þá fullum launajöfnuði að vera náð. Framhald at bls 8. verki, samsettri skáldsögu sem gæti brotið þjóðféiag okkar til mergjar á svipaðan hátt og hin mikla þrenningarsaga Vainö Linna rekur þjóðfélagslega þró- un finnsku þjóðarinnar. Þá hefði Indriði G. Þorsteinsson ekki að- eins skapað sér mikið nafn sem rithöfundur heldur einnig gefið nútímabókmenntum okkar nýja kjölfestu og fyllt upp í þá lægð sem óhjákvæmilega fylgdi á eft- ir risi Halldórs Kiljans Laxness. Njörður P. Njarðvik. a

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.