Vísir - 04.01.1964, Page 16
Laugardagur 4. janúar 1964
Srætisvagn í
blómabeði
Þegar Ólafur Gestsson, sem er
til heimilis að Sogabletti 4 við
Sogaveg, vaknaði klukkan 7 í gær
morgun, sá hann eina 15 strætis-
vagnabílstjóra á rölti f garðinum
hjá sér. Sem vonlegt er, langaði
Ólaf til að grennslast nánar fyrir
um þetta, og sá þá að ekki var
nóg með að starfsliðið væri mætt,
heldur var þar líka heljarmikill
strætisvagn, sem var búinn að
„hreiðra um sig“ f blómabeði fjöl-
skyldunnar.
Þótti Ólafi þetta að vonum vá-
gestur hinn mesti, og var þvf fegn
astur er stór kranabfll kom og
fjarlægði strætisvagninn. Strætis-
Framh. á bls. 5
Islenzkir listamenn heiðra
minningu Bjama frá Vogi
Bjami frá Vogi.
Á aðalfundi Bandalags fs-
lenzkra listamanna, sem hald-
inn var í s.I. mánuði flutti Jón
Leifs tónskáld tillögu um að
bandalagið efndi til samkeppni
meðal fslenzkra myndlistar-
manna um hugmynd að minnis
merki um Bjama Jónsson frá
Vogi.
Vísir átti í gærmorgun tal við
hinn nýkjörna formann Banda-
lags íslenzkra Iistamanna, Jón
Þórarinsson tónskáld, og innti
hann nánar eftir þessari hug-
mynd nafna hans, sem sam-
þykkt var á fundinum.
Jón Þórarinsson sagði að ís-
lenzkir listamenn og rithöfund-
ar stæðu í mikilli þakkarskuid
við Bjarna fyrir framlag hans
og stuðning við listir á AI-
þingi íslendinga á meðan hans
naut þar við og væri það hug-
myndin að reisa honum minnis-
.merki í einhverri mynd í til-
efni af aldarafmæli hans, sem
raunar var á s.l. hausti.
Bjarni frá Vogi hafði algera
sérstöðu meðal íslenzkra stjórn
málamanna á fyrsta fjórðungi
þessarar aldar hvað viðhorf til
lista og listamanna snerti, sagði
Jón Þórarinsson. Það kom ekki
aðeins fram í ást hans á bók-
menntum, sem telja mátti þó til
sérgreinar hans, heldur og líka
í viðhorfi hans til annarra list-
greina, svo sem tónlist og mynd
list. Bjarni gerðist frá upphafi
máisvari listamanna á Alþingi
og studdi þá með ráðum og dáð,
í orði sem í verki. Meðal lista-
manna sem nutu velvildar hans
og stuðnings voru þeir Ásgrfm-
ur og Kjarval á þeirra fyrstu og
erfiðustu listferilsárum, en auk
þeirra fjölmargir fleiri.
Þá má geta þess að þegar
Bjarni frá Vogi var skipaður
verzlunarfulltrúi í Noregi var
það eitt af fyrstu verkum hans
þar að koma á fót íslenzkri list-
sýningu í Osló, þeirri fyrstu
sem haldin var á erlendri
grund. Það var árið 1910. En
ísland var fátækt af listamönn-
um þá, og það voru ekki nema
tveir listmálarar sem sendu
verk sfn á sýninguna, þeir Þór-
arinn B. Þorláksson og Ás-
grfmur Jónsson.
Þriggja manna dómnefnd
Framh. á bls. 5
METAFENGISSALA:
ÁFCN6I oe TOBAK FYRIR FIMM
MILUÓNIR Á Þ3RLÁKSMFSSU
Hreinn áfengisgróði 1 milljón á dag árið 1963
Aldrei hefir áfengi selzt
fyrir jafnháar upphæðir
seinni hluta desember-
mánaðar og að þessu
sinni, og náði salan há-
marki á Þorláksmessu.
Þá seldi Áfengis- og
tóbaksverzlun ríkisins
vörur fyrir um 5 milljónir
Þannið leit bifreiðin R-4642 út eftir áreksturinn og veltuna á Hringbraut. Ljósmynd Vísis B.G.
Ætlaði að forða árekstri:
En skemmdi tvo bíla og valt
Um 4 leytið í gær varð hörku
árekstur á Hringbraut móts við
húsið númer 47. ökumaður ætl
aði að forða árekstri, en afleið
ingarnar urðu þær, að bifreið
hans lenti aftan á mannlausri
bifreið og valt síðan á hliðina.
Mannlausa bifreiðin kastaðist
einnig fram á aðra bifreið og
dældaði hana töluvert. Engin
slys urðu mönnum, en bif-
reiðarnar eru allar nokkuð mik
ið skemmdar.
Nánari tildrög voru þau, að
Ieigubifreið af Dodge-gerð var
ei.ið hiklaust af Furumel inn
á Hringbraut, í veg fyrir bif-
reiðina R 4642. Ökumaður síð-
arnefndrar bifreiðar ætlaði að
forða árekstri og sveigði bif-
reiðina til, með þeim afleiðing
-um-jfcí hújwl&nti aftgn á bif-
'^WílYlYtVlYWfí
reiðinni R741, þar sem hún
stóð mannlaus. Eftir að hafa
lent á bifreiðinni, kastaðist R
4642 á hliðina upp á eyjuna, en
bifreiðin R741 kastaðist 50-60
cm. áfram með þeim afleiðing-
um að hún lenti aftan á R 15116
og urðu nokkrar skemmdir á
báðum bifreiðunum. Miklar
skemmdir urðu á bifreiðinni R
. ..... Framh. á bls. 5
íi’ityv.v
króna og er það tekju-
drýgsti dagurinn í allri
sögu hennar. Hreinn á-
góði af áfengissölunni á
s. 1. ári mun hafa orðið
meiri en nokkru sinni áð-
ur, eða yfir 300 milljónir
króna, þannig að ágóðinn
nemur um eða yfir einni
milljón hvem dag, sem
útsölur áfengisverzlunar-
innar voru opnar á því ári.
Tvennt mun einkum hafa stuðlað
að hinum svimandi háu áfengis-
sölutölum seinnihluta desember-
mánaðar að þessu sinni. Bæði
var áfengi nú dýrara en á þess-
um tíma árs I fyrra, og svo kom
um miðjan desember tilkynning
í útvarpinu, þar sem Áfengis-
yarnarráð skoraði á ríkisstjóm-
ina að láta loka áfengisútsölun-
um 1 verkfallinu fyrir jólin. Þessi
tilkynning birtist 1 hádegisút-
varpinu og hafði þau áhrif að
nokkrum mínútum síðar voru
komnar Iangar biðraðir við all-
ar áfengisútsölur í borginni, sem
eru lokaðar f hádeginu. Upp frá
þessu stórjuku menn áfengiskaup
sin, án efa af ótta við það öðr-
um þræði að vínbúðunum yrði
lokað að sögn kunnugra og náði
salan hámarki á Þorláksmessu
sem fyrr segir. Þann eina dag
seldist áfengi í Reykjavfkurborg
einni fyrir á fjórðu milljón króna.
„Stolna" mótor-
hjólið fannst í
porti lögreglunnar
Geysiumfangsmikil Ieit var gerð
fyrir nokkru að mótorhjóli f
ríkiseign, nánar Landssímans.
Mótorhjólið hvarf eitt kvöldið
og fannst ekki þrátt fyrir leit
og greinargóðar lýsingar dag-
blaðanna á gripnum.
Það bar svo við að nýliði f
lögreglunni, gæddur þefvísi og
eftirtekt hins unga manns, tók
eftir mótorhjóli, sem hafði ver-
ið Iagt upp við skilti f porti
lögreglustöðvarinnar sem kvað
svo á, að „bannað væri að
leggja hjólum f portinu“. í ljós
kom að þar var mótorhjól
Landssfmans.
Nú kom einnig i ljós að
starfsmaður á Landssímastöð-
inni hafði „rétt skotizt“ á
nöðrunni i kaffi á veitingahús
við hlið lögreglustöðvarinnar,
en steingleymt að loknum veit-
ingum að hann hafði komið á
reiðskjótanum og kom honum
ekki f hug eftir þetta að hann
hafði tekið reiðskjótann án
fengins leyfis!
"< i i’ ’ * » ♦ ( s i > '
)