Vísir - 07.02.1964, Page 1
VISIR
54. árg. — Föstudagur 7. febrúar 1964. — 32. tbl.
Egill Símonarson
skipaður ríkisbókari
Fyrir nokkru var skipaður nýr
ríkisbókari og er það Egill Símonar
son, sem hefur lengi starfað hjá
ríkisbókhaldi Og rík sendurskoðun.
Egill Símonarson, ríkisbókari.
Tekur hann við starfi af Magnúsi
Bjömssyni, sem andaðist í vetur.
EgiU er 48 ára gamall, fæddur i
Vestmannaeyjum 31. okt. 1915.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1936
og prófi í viðskiptafræði vis Há-
skólann i janúar 1947. Auk þess
er hann iöggiltur endurskoðandi.
Hann starfaði fyrr í ríkisbók-
haldinu 'm.a. samhliða námi sinu
en síðan 1948 hefur hann verið
fulltrúi í ríkisendurskoðuninni.
Mólflufningur í
fjúrsvikamáli 11. þm
Máiflutningur i fjársvikamáli
Sigurbjöms Eirikssonar fer
fram í sakadómi Reykjavíkur i
byrjun næstu viku, eða nánar
tiltekið þriðjudaginn 11. þ. m.
Fljótlega eftir að málflutning
ur hefur farið fram, mun dómur
verða kveðinn upp, en það er
Halldór Þorbjörnsson sakadóm-
ari sem mun dæma I málinu.
Húsið í Bankastræti, sem Verzl unarbankinn hefur nú keypt.
ir og opinberír starfsmenn fengu
Kjaradómur verzlun-
armanna kvað upp dóm
sinn í gærkvöldi. Varð
niðurstaða hans sú, að
verzlunarfólk fær svip-
aðar hækkanir og opin-
berir starfsmenn fengu
á s.l. sumri.
Með þessum dómi kemst á
fastari flokkaskipting og eru nú
teknir upp í fyrsta skipti í samn
ingana ýmsir starfshópar, svo
sem símastúlkur, innheimtu-
menn, sendibílstjórar og fólk við
bókhaldsvélar.
Þá verða ýmsar aðrar breyt-
ingar og má helzt telja þessar:
Vinnuvika hjá afgreiðslufólki
styttist úr 48 stundum í 46
stundir.
Orlofstfmi er sá sami og áður,
þó þannig, að orlof verður 21
virkur dagur eftir fimm ár, en
varð það áður eftir 10 ára starf
og verður 24 dagar eftir tfu ára
starf, en áður eftir 15 ára starf.
Kaffitími í verzlunum verður
nú 40 mfnútur, en var 30 mfn-
útur áður.
Þá þurfa menn ekki að vinna
nema 10 mínútur við frágang
eftir lokunartíma án greiðslu,
en þurftu áður að vinna hálf-
tíma að því.
Enn verður veruleg hagræð-
ing varðandi veikindadaga.
Úrlausn kjaradóms skal gilda
frá 1. október 1963 til 31. des-
ember 1965. Verði almennar og
verulegar kauphækkanir á
þessu tímabili án þess að upp-
bætur verði greiddar skv. vfsi-
tölu eða á annan hátt, skulu
kaupgjaldsákvæðin endurskoð-
uð.
Blaðið hafði í morgun tal af
Sverri Hermannssyni formanni
Landssambands Verzlunar-
manna. Hann kvaðst ófús að
ræða málið, þar sem hann hefði
verið einn þeirra, er sat dóminn.
Þó lét hann þess getið, að
verzlunarfólk mætti vel una við
þessar niðurstöður. Ég tel það
augljóst, að sú leið að velja
kjaradóm hafi bjargað málefn-
um verzlunarfólks miðað við
það ástand sem ríkti í verkfall-
inu. Er það sannfæring mín, að
þeim kauphækkunum og kjara-
bótum, sem verzlunarfólk hef-
ur nú náð, hefði verið allsendis
útilokað að ná með frjálsum
samningum í desember s.l.
Mikill vélstjóraskortur ríkjandi
Vélskólinn þó nðeins hólfsetinn
Mikill vélstjóraskortur er nú
ríkjandi hér á landi. Aðeins 18
nemendur hófu nám f 1. bekk
Vélskólans í haust, en í vor út-
skrifuðust alls 24 vélstjórar. —
Vélstjóraskorturinn hefur vaxið
með hverju árinu, og horfir til
hreinna vandræða, ef ekki verð-
ur breyting á innan tíðar. Um
s.l. áramót voru fullgildir með-
Iimir Vélstjóraféiags íslands
593, har af voru aðeins 253 á
skipum. Núna er meirihluti vél-
stjóranna á togaraflotanum með
undanþágur, og á nokkrum tog-
urum er enginn vélstjóri með
full réttindi.
Vélskólinn er aðeins hálfset-
inn, þar er rúm fyrir alls 120
nemendur, en nú eru aðeins 60
nemendur í skólanum. Aðsókn
hefur yfirleitt farið minnkandi
að undanförnu. í fyrravor út-
skrifuðust alls 16 vélstjórar, f ár
verða þeir nokkru fleiri, eða 24,
en í skólann innrituðust í haust
18 nemendur.
Gunnar Bjarnason, skólastjóri
Vélskóians, sagði að vélstjóra-
skorturinn færi versnandi með
hverju árinu. Fyrir t. d. 10 ár-
um voru margir vélstjórar á bið-
lista hjá Eimskip, en flestir vél-
stjórar hafa sótt til stærri skipa
félaganna, en í dag vántaði yfir-
leitt öll stærri skipafélögin vél-
stjóra. Strax á vorin er bókstaf-
lega beðið eftir því að prófum
Framhald á bls. 6.