Vísir - 07.02.1964, Blaðsíða 15

Vísir - 07.02.1964, Blaðsíða 15
Föstudagur 7. febrúar 1964. 75 Hvaðan gat hann hafa fengið peninganá? Hvaða maður gat hafa verið svo blindur að iána honum þá? En var í rauninni hægt að reiða sig á, að þetta væri satt? Líklega var þetta ekki rétt, því að ef satt væri, hverj- um hefði hann þá átt að trúa fyrir þessu fyrstum manna, ef ekki honum sjálfum - Hannibal Gervasoni? Á þessa leið voru hugsanir Hannibals, og nú sagði læknir- inn, félagi hans: - Er þessi Paroli, sem þeir voru að tala um, ekki vinur yðar? - Jú, en ég legg ekki trúnað á þetta. - Hví ekki? — Ég hitti þennan samlanda minn þann þriðja og þá ætlaði hann til Lundúna, og hvernig ætti allt þetta að geta hafa gerzt á jafnskömmum tíma. Hannibal ætlaði að fara að spyrja stúdentinn, sem hrifnast- ur var af Paroli, nánar um þetta, en í sömu svifum jókst hávað- inn í Öldunni um helming. Or- sökin var sú, að inn kom ung stúlka, sem var almennt fagnað. Hún var forkunnarfögur og klædd flauelskápu með otur- skinni. Það var hrópað húrra fyr ir henni og einn gestanna kall- áði'rhfifiTi: — Lifi Soffía hin fagra, sem alltof sjaldan heiðrar okkur með návist sinni. Og skvaldrið og glasaglamr- ið og ópin jukust um allan helm- ing. Og Soffía hin fagra gekk bros- andi milli borðanna og heilsaði Ég get ómögulega skilið hvað verður um alla húshaldspening- ana. upp á mannskapinn og sagði: — Það hefur nú sínar ástæð- ur, að ég get ekki komið oftar en ég geri. Það liggur nefnilega þannig í því, að „assessorinn" minn er svo hræðilega afbrýði- samur - hann hefur harðbann- að mér að stíga fæti inn fyrir dyrnar á knæpunum við Michel- breiðstræti - af ótta við, að ég hitti þar gamla vini! Eins og ég hitti ekki alls staðar fyrir gamla vinit - Og ertu þá komin í kvöld til þess að hitta einhverja slfka - heppna, gamla félaga, spurði einn stúdentinn. - Nei, mér bragðast aðeins ferskir ávextir nú orðið. - En ég er .ferskur ávöxtur1, sagði stúdentinn. — Ha, ha, ha, nei, litli vin, — gerðu þér engar vonir. Og ef ég segi alveg satt, er ég að leita að Ernesstine. - Emesstine er horfin, sagði einhver, - nema hún hafi þá náð í dómara eins og þú, sem hefur stungið henni f einangrun- ai'klefa. — Assessorinn minn, já, hann er nú sniðugur, það er rtáungi, sem veit sínu viti, enda liggur hann í laga-doðröntum, ef hann er þá ekki að grúska í skjölum allan liðlangan daginn. - .En þá hlýtur þú að vera frjáls sem fuglinn ... - Ég get aldrei verið örugg — hann hefur þann leiða sið, að honum skýtur upp, þegar maður á sízt von á - og þegar ég held, að hann sé önnum kafinn við að yfirheyra, blessuðum föngun- um til ama, er hann allt í einu kominn. Hann var annars með móður sína í stofnun við Rue de la Santé í dag til lækninga. — Eigið þér við frú de Gevr- ey? spurði hrifni stúdentinn. — Kemur heim, hún er móðir assessorsins míns. Hann er víst feikn slyngur. Hann læknaði hana — og án uppskurðar. Hún var að verða eða var víst orð- in blind. Sumir ráku upp hlátur. — Já, þið getið hlegið, sagði Soffía, en þetta er satt samt. — Hún hefur rétt fyrir sér, sagði stúdentinn. Ég var þarna viðstaddur. Og hann sagði frá lækningaaðferðinni. Þegar Hannibal heyrði þetta efaðist hann ekki lengur, því að Paroli hafði sagt honum frá tví- glerjauppfinningu sinni. Soffía hin fagra var setzt, og á ótrúlega skömmum tíma hafði hún fyrir framan sig nokkur glös af öli, og nokkur með ab- sinth og bitter í, líka fáein glös af líkjör til að mýkja kverk. arnar. Allir vildu sem sé vera veitendur í von um hylli hennar. - Ja, ég fengi nú aldeilis timburmenn, ef ég skellti þessu í mig, sagði hún og rak tveim þeim, sem næstir henni voru, olnbogaskot. Hannibal Gervasoni stóð upp og gekk til stúdentsins, sem hafði látið niesta hrifni í ljós, og sagði: - Afsakið, þér sögðuð, að hinn nýi eigandi lækningastofn- unar Griskys væri Angelo Par- oli. — Alveg rétt, svaraði stúd- entinn, ég hef tvisvar gengið stofugang með honum og sann- færzt um allt, sem ég tók fram. Ég hlakka til að njóta leiðsagn- ar hans. — Haldið þér, að ég hitti hann í stofnuninni, ef ég færi þahgað nú? — Það veit ég ekki, en þér getið alveg vafalaust hitt hann þar í fyrramálið. — Þakka yður fyrir. — Ég fér riú, sagði Hannibal við lækninn, félaga sinn. — Svo snemma? - Já, ég þarf að kynna mér hvað er að gerast í stofnun Gris- kys læknis. Hann kvaddi stéttarbróður sinn með handabandi. Þegár hann var í þann veginn að ganga fram hjá húsi sínu vildi svo til, að húsvörðurinn stóð í dyrum úti og kom auga á hann. Kallaði hann til hans og sagði, að borizt hefði bréf til hans. Gervasoni tók við bréfinu og sá, að það var frá Paroli. Það var vagnstjóri, sem kom með það - einkennisklæddur vagnstjóri leiguvagns. Gerbasoni reif upp bréfið og las eftirfarandi: ,.Mio carissimo Gervasoni. Ég bíð eftir þér í kvöld kl. 6Í4 í Vachetti-veitingastofunni við Saint-Michel breiðstræti. Þú verður að neyta með mér mið- degisverðar. Vinur þinn, Angelo Paroli“ Gervasoni var fúrðu lostinn. Hann gat ekki botnað í þessu. Angelo er í París, hugsaði hann, og ég hélt hann vera í Lundún- um. Og hann/er orðinn eftirmað- ur Griskys í stað þess að hafa fengið lélega stöðu á Englandi. Hið sanna er oft ótrúlegast, seg- ir franskur málsháttur. Sú hef- ur að minnsta kosti reyndin orð-. ið að því er Paroli varðar. 6. Gervasoni fór heim og hafði fataskipti og lagði svo leið sína í veitingastofu Vachetti. Þegar hann var kominn inn úr dyrun- um svipaðist hann um eftir Par- oli, en hann var ekki kominn, honum hafði seinkað, vegna þess að hann hafði farið á fund lögfræðingsins, sem var að ganga frá skjölunum varðandi söluna á lækningastofnuninni. Vantaði klukkuna fjórðung stundar í sjö, er hann kom í veitingastofuna. Hannibal fagnaði honum bros- andi og þeir tókust í hendur, vinirnir, og Hannibal gat ekki um annað hugsað en rtina miklu breytingu, sem orðin var á Par- oli. Nú var ekkert, sem minnti á „zigaunann“ absinth-drykkju- manninn, fjárhættuspilarann. í hans stað var kominn virðulegur maður og öruggur með sjálfan sig. - Kæri vin, sagði Hannibal Gervasoni, þú verður að út- skýra fyrir mér„ hvernig ... - ... á því stendur, að þú hitt ir mig í París, þar sem þú hugð- ir mig vera í London eða ein- hvers staðar á Englandi! Já, ég get svo sem trúað, að þú hafir orðið hissa, er þú fékkst *bréf mitt. -—i- Paroli sagði þetta hlæjandi. - Það er nú svo. Ég var bú- inn að frétta klukkustundu áður, að þú værir í París, svo að ég varð ekki hissa. - Hvernig fréttirðu þaö? - Ég var staddur í Öldunni og þar var ekki um annað talað í kringum mig en að þú hefðir tekið við lækningastofnun Gris- kys. - Og þetta var umræðuefni .manna? — Ég hefði nú haldið það. - Og þú sjálfur - — Ég þarf ekki að taka fram, hve undrandi ég varð. - Ég skal segja þér allt af létta, en nú skulum við fá okk- ur að borða. Fyrst verðum við að fá okkur glas._______________ T A R Z A N THE AEKOSA.NT SATUSI SPEARWEW ALLOW TARZAN TO WALK WITH THEM, THROUSH 'UON COUNTÍÍY'- gUT WILL NOT HELF HKA CARR.V IMJUREF MURSE MAOAU. f WHAT 70 you JWEAN,' THESE LAZy SAVAGES t\R£ LETTING US TKAVEL WITH THEM, TARZAN FEAK.? , I THINK THEY'EE A50MINASLE! 2-8-6405 tu*‘r ki« Purrouih*. Xse.—Tir.llti Tr ■ r.f r,w Cí^tr. by Unitod Fcature Syndicat*. Ine.‘ Hvað meinar þú með að þessir lötu hottentottar leyfi okkur að ferðast með sér, Tarzan? Ef ein- hver þeirra rétti mér hjálp- arhönd v!ð að bera þig, þá myndu hinir hæðast að honum fyrir að vera þræll. Það lítur út fyrir að þeir hafi gaman af erfiðleikum' þínum, segir hata Batusa. stúlkan gröm, ég Slæsiiegir bílar N.S.U. Prinz ’64. Sérstakl. glæsilegur. Consul Cortina ’63. Glæsil. Volkswagen ’62. Fallegurh bíll. Hagstætt verð. Opel Capitan ’55, nýinnfl. 1. flokks bíll. Pontiac ’56, mjög fallegur./ Chevrolet ’55, góður bíll. Merkury ’53, fallegur og/ góður bíll. ^/gAMLA BfLASALAÍÍV SKtLAGATA 55 — SÍMIISipfl Sími 2 3136 Stærst úrvaf bif- reiðu ú einum stað. Se:[. :(Lá‘örugg hjú okbr. Bílakjör Nýir bílar, Commer Cope St. BIFREIÐALEIGAN Bergþórugötu 12. Simar 1366C 34475 og 3Ö598. liflhúsborð — Eldhússtólur Miklatorgi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.