Vísir - 25.02.1964, Page 3
V í SIR . Þriðjudagur 25. febrúar 1964.
<
Við heyrðum einhvers staðar
baulað Það hefur verið pabbi að
plata okkur, segja bömin Þau
láta pabba sinn, (Valgeir
Óla Gislason) baula, en mamm-
an (Gunnvör Braga Sigurðar-
dóttir) horfir á við enda borðs
ins Loks skilja þau, að það var
ekki hann sem baulaði, heldur
kýrin í næsta herbergi
Kusa skemmtir
krökkum í Kópavogi
Myndsjá Vísis fór fyrir nokkr
um dögum í stutta heimsókn
suður í Kópavog. Þar er leikfé-
lag staðarins að byrja sýningar
á nýju barnaleikriti. Það kallast
„Húsið í skóginum“ og er norskt
eftir Anne-Cathy Vestly, sem
samið hefur margar barnasögur
um Óla Alexander, en hann kem
ur einmitt við sögu í þessu leik-
riti.
Það er ánægjulegt, að Ieikfé-
lögin vilja nú gera meira en áð-
ur fyrir börnin. 1 Þjóðleikhúsinu
er Mjallhvit að heyja sitt stríð
við vondu stjúpu. í Kópavogi
fjallar sagan um hamingjusama
fjölskyldu sem býr í skógi
skammt frá stórborginni. Hún
býr þannig líkt og á mótum
gamla tímans og nútímans. I
heimsókn til hennar koma bæði
húsálfar, sem hjálpa til við heim
ilisstörfin og tveir fasteignasalar
frá borginni, sem eru hinir
mestu misyndismenn og eru að
reyna að fá pabbann til að selja
húsið.
En mesta lukku gerir samt
kýrin, sem þeim er gefin. Verst
er, að þau eiga ekki neitt fjós
handa henni og er því ekki um
annað að gera, en að láta hana
búa í setustofunni yfir veturinn.
Kýrin verður góður vinur barn-
anna, en þetta er bammörg fjöl
skylda, með átta bömum. Gerast
nú ýmis ævintýri f sambandi við
kúna.
í leikriti þessu, sem Leikfé-
lag Kópavogs flytur taka 23 leik
arar þátt, en af þeim eru 14
böm og unglingar. Yngst þeirra
er Helga Sigurðardóttir, sem er
10 ára.
►
Kusa kann ekki vel við sig
inni í stofunni í fyrstu. Hún
sleppur út og ærist. Amma
gamla (Auður Jónsdóttir) heldur
í halann, en Morten (Gunnvör
Braga Björnsdóttir) hvíslar að
henni að vera róleg.
Leikaramir, sem
koma fram á sviðið
í lok sýningar eru
margir, en alls em
hlutverkin 23.