Vísir - 25.02.1964, Síða 5
VÍSIR . Þriðjudagur 25. febrúar 1964.
51
útlc^d’í
útlönd í morgun.
utlönd í
útlönd í rnorgim
■raa
Hi
Hættulegur leikur Mukuriosur
Makarios erkibiskup, forseti
Kýpur, leikur nú þann hættu-
Iega leik, að tefla stórveldunum
fram hverju gegn öðru i deil-
unni varðandi gæzlulið á Kýp-
ur, í von um að hagnast á því.
Þetta er skýringin á því, að
Makarios hefir ávallt á seinustu
stundu þverskallazt við að fall-
ast á tillögur til lausnar deil-
unni, og eftir fimm daga til-
raunir U Thants framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna
horfir nú svo, að allt verði í
sama öngþveiti, er Öryggisráð-
ið kemur saman til fundar í
kvöld.
Menimencicoglu ambassador
Bandaríkjanna í Washington
varpaði skýru ljósi á þessi mál
í gær, er hann m.a. drap á sam-
komulagsumleitanir Sovétríkj-
anna og Kýpur að undanförnu,
og kvað hann þær vera í tengsl-
um við vopnainnflutning Kýpur-
Grikkja að undanförnu, og
vekti fyrir Makariosi að nota
sér afstöðu Sovétríkjanna varð-
andi Kýpur til að hafa sitt
fram, og með skæruhernaði, ef
í það færi. Bretar hafa fyrir
nokkru komizt að því, að mikill
vopnaflutningur á sér stað tiJ
Kýpur-Grikkja og hafa rætt það
mál við Makarios, sem sagði
þann flutning eðlilegan og leyfi-
legan.
Seinustu fréttir í morgun
voru þær, að þær 6 þjóðir, sem
sæti eiga í Öryggisráði, en ekki
hafa þar fastafulltrúa, taki sér
fyrir hendur að reyna að finna
lausn á málinu. Samtímis fréttist
að Makarios hótaði að krefjast
fundar Allsherjarþings um mál-
ið.
í gær gerðist það einnig, er
vonlaust var talið um árangur
af tilraun, U Thants, að Evrópu-
ráðið ákvað að utanríkisráð-
herrar 17 þjóða sem sæti eiga
í ráðinu komi saman á fund
fyrir mánaðamót til þess að
ræða Kýpur. Bæði Grikkland og
Kýpur eiga aðild að ráðinu.
Sir Alec Dougias-Home sagði
í gær, að óvíst myndi hafa orð-
ið um örlög margra Grikkja og
Tyrkja á Kýpur, ef Bretar hefði
ekki sent gæzlulið þangað, og
kannski hefðu tvær Nato-þjóðir,
Grikkir og Tyrkir, borizt á
banaspjót.
ErleitcScir fréftir i sfutfu máli
@ Snarpur landskjálfti kom í
Aþenu í fyrrinótt og Lania um
160 km. norðar. Tjón varð ekki,*
en fólk varð mjög hrætt, eink-.
um nyrðra.
9 Bretland og Bandaríkin hafa
nú viðurkennt stjórnina í Zansi-
bar.
@ Páll Grikkjakonungur er á
hröðum batavegi eftir uppskurð-
inn fyrir seinustu helgi, en nú
hefir Friðrika drottning lagzt í
lungnabólgu.
© Indlandsstjórn kvartar yfir á-
rás frá Pakistan á 25 manna lög-
regluvörð. Segir hún að um fyrir
sát hafi verið að ræða. Aðeins
2 úr hópnum komust undan.
@ Frakkland og Kína hafa form-
lega skipzt á sendiherrum.
} i ;ir belgiskir kennarar hafa
verið myrtir £ Kwiluhéraði í
Kongó.
@ Brezkir vísindamenn hafa boðið
Naessens, franska líffræðingn-
um, sem fann upp serum við
hvítblæði, að þraut-kanna það
með rannsóknum og styrkja
hann til framhaldsrannsókna.
@ Fimm menn hafa verið dæmdir
í ævilangt fangelsi í Sýrlandi
og dómar verða upp kveðnir í
dag yfir tveimur til. Allir voru
þeir sakaðir um landráð vegna
óeirðanna í Homs í fyrri yiku,
er 6 ár voru Iiðin frá því Egypta-
land og Sýrland gerðust sam-
bandsríki, en Sýrland sagði sig
úr samtökunum síðar.
Butler á merkustu
ráðstefnu heims
M’Ba — forseta Gabon í V.-Af-
ríku, var vikið frá völdum fyrir
skömmu í byltingu, en Frakkar
settu hann á forsetastól á ný. Nú
hefir M’Ba vikið frá stjórn lands-
ins og boðað nýjar þingkosningar,
að því er frétt frá Libreville herm-
ir.
Richard Butler utanríkisráðherra
flytur i dag ræðu á afvopnunar-
ráðstefnunni í Genf og ber fram
nýjar tillögur um afvopnun.
Hann sagði við komuna þangað
í gær, að ráðstefnan væri merk-
asta ráðstefna heims. Hann kvaðst
kominn til stuðnings tillögum sem
fram væru komnar og bera fram
nýjár.
Butler ræddi i fulla klukkustund
við William Foster aðalfulltrúa
Bandaríkjamanna.
Hann hefir fund með fréttamönn
um fyrir burtför sína.
Richard Butler.
Nýtt ferðamálafrumvarp - Enn um áfengislöggjöf
í efri deild mælti samgöngu-
málaráðherra Ingólfur Jónsson,
fyrir frv. til laga um ferðamál.
Sagði hann, að
þetta væri ekki
nýtt mál á Al-
þingi, það hefði
verið flutt í
fyrra en ekki
náð afgreiðslu.
Nú væri það
flutt örlítið breytt.
Helztu nýmæli frv. eru þau, að
lti að fá leyfi til að reka ferða-
skrifstofu þarf að leggja fram
a. m. k. 350000 kr. tryggingu svo
og er einkaréttur Ferðaskrifstofu
ríkisins til að taka á móti erlend-
um ferðamönnum afnuminn.
Annar kafli frv. felur f sér
þau nýmæli, að þar er gert ráð
fyrir stofnun ferðamálaráðs,
skipað 9 mönnum Starfssvið þess
skal vera það, að það á að vera
ráðgefandi fyrir Albingi og ríkis-
stjórn og gera tillögur um gisti-
hús o. fl.
Þriðji kaflinn fjallar um Ferða
skrifstofuna, hún eigi að vinna
að landkynningu með fjárfram-
iögum úr ríkíssjóði jafnframt þvi
að taka á móti ferðamönnum.
Fjórði kaflinn er um ferða-
málasjóð. Ríkissjóður greiði hon-
um eigi minna en 1 millj. árlega,
auk heimildar til að taka allt að
20 millj króna lán til að bæta
aðstöðu til að taka á móti ferða-
mönnum víðsvegar um landið.
Að lokum sagði ráðherrann, að
flestir forstöðumenn ferðaskrif-
stofa væru þessu frv. samþykkir
nema hvað margir þeirra vildu
leggja Ferðaskrifstofu ríkisins
niður.
Málinu var síðan vísað til 2.
umr. og nefndar.
ENN UM ÁFENGIS-
LÖG.
Þar var framhald fyrstu umr.
um áfengislög. Sigurvin Einars-
son (F) tók fyrstur til máls. Sagði
hann, að í greinargerð frv. stæði
að þetta frv.
/ væri flutt vegna
< atburða, sem
‘ v-FÚj fit~r áttu sér stað i
- Þjórsárdal s. 1.
sumar. Ef þess-
iratburðir hefðu
ekki gerzt mætti
ætla að frv. hefði ekki komið
fram. En nú væri ástandið öll-
um kunnugt og hefði ekki þurft
neina Þjórsárdalsför til að gera
umbætur á áfengislöggjöfinni.
Þá rakti hann ástæðurnar fyrir
þessu ástandi, taldi að unglingarn
ir hefðu fyrirmyndina frá hinum
,^4 '»tí%
fullorðnu, og ekki væri það æskan
sem seldi vínið.
Nú væri meirihl. allsherjar-
nefndar fylgjandi þeirri stefnu að
afnema sem mest bönn og refs-
ingar með því að mæla með að
aldurslágmarkið verði fært niður
í 18 ár til að kaupa áfengi. Þar
með væri boðskapur Alþingis til
unglinga 18—21 árs, jæja, nú
megið þið drekka. Ég get ekki
að því gert, að mér finnst þeir
unglingar sem fóru í Þjórsárdal
hafa haft töluvert upp úr krafsinu.
Nú þurfa þeir ekki annað en
leggja leið sína til dala á ný, þá
verður aldurinn enn lækkaður eða
þessi takmörk afumin með öllu.
Þórarinn Þórarinsson (F) kvaðst
taka undir tillögur minnihl. alls-
herjarnefndar
(Skúla Guð-
mundssonar)
um að afnema
afslátt á víni og
tóbaki til ýmissa
æðstu manna
ríkisins, sagðist
ekki sjá ástæðu til slíkra verð-
launaveitinga. Einnig var hann
fylgjandi tillögunni um sórstakan
áfengisvarnasjóð, kvaðst álíta,
að heppilegra væri að leggja á-
herzlu á fræðslu- og æskulýðs-
starfsemi í stað banna.
! jn§ -mái
", .
Framsögumað-
ur meirihl. alls-
herjarnefndar,
Einar Ingimund-
arson (S) sagði
að eðlilega
væru skoðanir
skiptar á þess-
um málum, jafn
vel bindindismenn væru ekki
sammála um lækkunina á lág-
marksaldrinum. En þetta haggar
í sjálfu sér ekki þeirri skoðun
meirihl., að þetta auðveldi fram-
kvæmd laganna og stuðli að þvi
að þessi takmörk yrðu virt.
Þá sagðist hann taka undir þau
ummæli dómsmálaráðherra, Jó-
hanns Hafstein, að tillögur Skúla
Guðmundssonar kæmu ekki bein-
línis þessu máli við, og hvað
viðkemur fjárveitingum til áfeng-
isvarna, þá ættu þær að koma
fram á fjárlögum en ekki áfeng-
islögum. Síðan var umræðum
frestað og málið tekið út af dag-
skrá.
Þingfréttir i stuttu máli.
Sameinað bing.
Óskar Jónsson, fulltrúi á Sel-
fossi hefur tekið sæti Björns
Fr. Björnssonar, sýslumanns, sem
hverfur af þingi vegna embættis-
anna.
Efri deild.
Þar mælti Ólafur Björnsson fyr
ir frv. um kaup þingmanna og
forseta íslands. Þá var og vísað
til ríkisstjórnarinnar frv. um
aukatekjur ríkissjóðs, eftirlit með
opinberum sjóðum og sölu hluta
úr landi Miðhúsa í Egilsstaða-
hreppi.
Neðri deild.
Þar flutti
Hannibal Valdi-
marsson frv. um
jarðgöng gegn-
um Breiðdals-
heiði milli Skut
ulsfjarðar og
Önundarfjarðar.
í greinargerð
frv. segir að þarna muni þurfa
um 600 metra löng jarðgöng sem
kosta 6 — 7 millj. kr. miðáð við
núverandi verðlag, að því er virð
ist í fljótu bragði. Gert er ráð
fyrir að þau verði í 500 metra
hæð, og ríkisstjórninni verði heim
ilað að taka 7 millj. króna lán til
framkvæmda.
Matthías
Bjárnason (S)
sagðist styðja
þessa tillögu,
þessi leið væri
erfið, en hins
vegar mikilvæg,
því hún tengdi
saman um það
bil helming íbúa á Vestfjörðum.
Oft hefðu verið samþykktar á-
skoranir og tillögur í þessu máli,
en því lítt miðað áfram. En nú
yrði ekki lengur le'tið á þessu,
framkvæmdir yrðu að hefjast
strax við að mæla jarðgöngin.