Vísir - 25.02.1964, Side 7
7
V í SIR . Þriðjudagur 25. febrúar 1964.
Jón Sigurðsson, slökkvi-
liðsstjóri — Minningarorð
Tjað höfðu orðið stjórnarskipti
í landinu. Hin nýja ríkis-
stjórn beitti sér fyrir ýmsum
breytingum á mörgum sviðum.
Eitt var það, sem hún virtist
hafa áhuga á, var kynning ís-
lenzkrar málaralistar sem víðast
um byggðir landsins, enda var
þá hvergi húsnæði til að sýna
almenningi þau listaverk, sem
til voru í eigu ríkisins eða það
eignaðist á þessum árum.
Þannig var það, að þeim nem
endum Menntaskólans, sem
Iengst voru komnir í þeirri
stofnun, voru send málverk, sem
hengd skyldu upp í kennslu-
stofum. Voru málverkin tvö, ér
send voru skólanum í þessu
skyni. En svo vildi til, að bekk-
irnir voru þrír, sem lengst
voru komnir, og töldu þeir sig
alli eiga jafnan rétt til málverk
anna. Erfitt þótti ráðamönnum
skólans að hengja tvö málverk
upp á þrem stöðum, og því
varð það úr, að einn bekkurinn
varð útundan, auðvitað sá
minnsti, en það var stærðfræði-
deildin.
Sá bekkurinn, sem útundan
varð, vildi ekki una hag sínum,
þótt fámennur væri. Kvörtunum
við stjórnendur skólans var
engu sinnt. En þá tók einn
nemenda bekkjarins til sinna
ráða.
Þegar kennarar og nemendur
komu f skólann einn daginn um
þetta Ieyti að loknu matarhléi,
gaf að líta í þeirri kennslustof-
unni, sem útundan hafði orðið
með málverkin, þrjár miklar
Jón Sigurðsson.
mannamyndir inn um opnar
bekkjardyrnar. Var ekki um að
villast. að hér var hin mikla
ríkisstjórn saman komin, og
voru myhdirnar allar í g'aman-
sömúm stíl og éinkar vel gérð-
ar. Ekki þótti öllum kennurum
jafngaman að, og var fljótlega
eftir því sótzt af stjórnendum
skólans, að myndirnar yrðu
fjarlægðar. Nemendur bekkjar-
ins tóku þessu illa, kváðu sér
það jafnmikla nauðsyn að hafa
málverk fyrir augunum og hin-
um bekkjunum, sem jafnlangt
voru komnir. Varð úr þessu all-
mikil rimma, sem auðvitað end-
aði með því, að myndirnar
voru teknar niður, en látið var
að því Iiggja, að þar með væri
málið engan veginn úr sögunni.
Var nú beðið átekta og við engu
góðu búizt.
Næstu daga bar ekkert til
tíðinda. En viti menn, einn
morguninn, er remendur bekkj-
arins komu inn I kennslustofu
sína, hangir þar þá ekki ágæt
landslagsmynd eftir Jé - Þor-
Ieifsson. Þetta hafði þá orðið
árangur af tiltæki nemandans.
Nemandi sá, sem gert hafði
myndirnar af ráðherrunum svo
haglega, að ráðlegast þótti að
verða við óskum bekkjar hans,
var Jón Sigurðsson, er sfðar
varð slökkviliðsstjóri f Reykja-
vík.
Að loknu stúdentsprófi 1928
hóf Jón nám í verkfræði i
Darmstadt í Þýzkalandi, en lauk
prófi f byggingaverkfræði frá
verkfraeðiháskólanum í Kaup-
mannahöfn 1937. Hafði hann
orðið að hætta námi um stundar
sakir af fjárhagsástæðum. hann
þurfti að taka sér tíma til að
1 Þau, sem syngja á miðvikudaginn og kennari þeirra. Frá vinstri: Sæmundur Nikulásson, Inga M. Eyjólfs-
I dóttir, Unnur Eyfells, María Markan, Guðrún Hulda Guðmundsdóttir, Bjamheiður Daviðsdóttir og Ás-
| laug Sigurgeirsdóttir, Á myndina vantar þá Jónas Magnússon og Jónas Eggertsson.
Nemendur úr
Markan synoja
r
a Maríu
r r
Átta nemendur úr söngskóla
Maríu Markan, koma fram á
söngskemmtun, em haldi ;erð
ur í Gamla bíói miðvikudaginn
26. þ.m. Það eru nú liðin tvö
ár síðan skólinn tók til starfa
og hafa sumir beirra er koma
fram á skemmtuninni verið i
honum allan þann tíma. en aðrir
styttra, allt niður i 8 mánuði
Eingöngu verður sunginn ein-
söngur, og eru söngvarar sem
hér segir: Biarnheiður Davíðs-
dóttir -ópran. Áslaug Sigurgeirs
dóttir sópran. Jónas Magnússon
hár baryton, Unnur Eyfells sónr
an, Jónas Eggertsson bassi. tnga
M. Eyjólfsdóttir sópran, Sæ-
mundur Nikulásson tenór og
Guðrún Hulda Guðmundsdóttii
sópran coloratura.
Á söngskemmtuninni. sem er
hin fyrsta er skóhnn heldur
verður mikið af tslp»v»krrm lög
um. Und!»-,<'ik annast gei'
"sinteinsson.
afla fjármuna til að standa
straum af námskostnaðinum. Þá
var því miður ekki eins mikið
um námsstyrki eins og siðar
varð, og margur maðurinn varð
upp að gefast sökum skorts á
fé til námsins. Sýndi Jón þá
þegar dugnað þann, áræði og
hagsýni, er einkenndu störf
hans ævinlega.
Að loknu verkfræðinámi réð-
ist Jón til starfs hjá Reykja-
vfkurborg og vann þar æ síðan,
fyrstu árin einkum við gatna-
gerð, en frá 1942 sem deildar-
verkfræðingur hjá vatns- og
hitaveitu bæjarins, unz hann
var skipaður slökkviliðsstjóri
Reykjavíkur 1945. Þvf embætti
gegndi hann til dauðadags. Um
árabil var hann jafnframt vatns
veitustjóri og undirbjó á þeim
árum aukningu vatnsveitu
Reykjavíkur. Sem slökkviliðs-
stjóri kom hann á ýmsum tækni
legum umbótum við slökkvi-
starfið, og vöktu þær verulega
athygli utan landssteinanna. Þá
undirbjó hann af kostgæfni
byggingu nýrrar slökkvistöðvar
fyrir Reykjavík, og hófust fram
kvæmdir við það mannvirki
meðan Jón lá banaleguna. Mörg
önnur verkfræðistörf hafði Jón
með höndum önnur en þau, sem
snertu beint embættisstörf hans,
og var bar einkum um mið-
stöðvalagnir að ræða. Fórust
Jóni öll verkfræðistörf einkar
vel úr hendi, og var aldrei efazt
um vandvirkni hans og fhygli
f því sambandi.
Þó' ferill Jóns sem verk
fræðings hafi orðið miklu
skemmri en skyldi, liggja eftir
hann möre verk á þeim vett-
vangi. sem lengi munu verða
honum til sóma Með Jóni á
hin fámenna stétt verkfræðinga
hér á Iandi bak að sjá góðum
fulltrúa
Jón var óvenjulega félags-
lyndur maður. Hann var góður
íþróttamaður á yngri árum,
einkum í knattspyrnu, og tók
langt fram eftir ævi mikinn þátt
í félagssamtökum íþróttamanna,
var t.d. formaður Knattspymu-
sambands íslands, f sambands-
ráði Í.S.Í. og f Olympíunefnd
íslands um árabil. Ýmis menn-
ingarfélög nutu og í ríkum mæli
starfskrafta hans.
Hvergi naut Jón sín þó betur
en í hópi félaga og kunningja á
glaðri stund. Var hann þá
venjulega hrókur alls fagnaðar.
Fór honum einkar vel að segja
frá skringilegum atburðum og
segja sögur af einkennilegum
samferðamönnum. Hef ég fáa
eða enga heyrt fara betur með
slíkt efni en hann. Kom þar
aftur fram listhneigð hans, sem
á var drepið í upphafi þessa
máls.
Ég veit ekki til, að Jón hafi
gert nokkuð til að þroska list-
ræna hæfileika sína, og mun
hann lítt hafa haldið þeim á
lofti. Hafa þeir þó áreiðanlega
komið honum að góðu liði við
verkfræðistörfin, þvf að 1 verk-
fræðinni verður ekki allt ákveð-
ið með reikningsstokknum. En
hvergi held ég listrænir hæfi-
leikar Jóns hafi notið sfn betur
en þegar bæði hjónin lögðu
hönd að verki við að prýða
heimili sitt, enda lét hann sér
einkar annt um það.
Jón Sigurðsson var fæddur
í Reykjavík 10. desember 1906,
sonur hjónanna Sigurðar fanga-
varðar Péturssonar og Guðríðar
Gilsdóttur. Hann kvæntist 7.
maí 1938 Karenu Guðmunds-
dóttur, er lifir mann sinn, og
eignuðust þau hjónin tvær dæt-
ur. Hann andaðist 25. jan. 1963.
Jón E. Vestdal.
é
AMERÍSK
BRJÓSTAHÖLD
Hin margeftirspurðu síðu
amerísku Wings brjósta-
höld komin aftur
BARNAFATABÚÐIN
Skólavörðustíg 2 . Sími 13488
ABC Hrærivélin
Mix — 250
er nýjung frá ABC. Mikið ódýrari en nokkur sambærileg
hrærivél.
Fæst i helztu raftækjaverzlunum. — Heildsölubirgðir:
G. MARTEINSSON H.F.
Bankastræti 10 . Sími 15896
ABC -
Hárþurrkur
fyrirliggjandi
G. MARTEINSSON H.F.
Bankastræti 10 . Sími 15896