Vísir - 15.04.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 15.04.1964, Blaðsíða 1
Minnismerki um Ungmcnnasamband Eyjafjarð- ar hefur ákveðið að gangast fyr- ir samtökum i Eyjafirði um að Davíð Stefánssyni frá Fagra- skógi verði reistur veglegur minnisvarði. Hugmynd ung- mennasambandsins er, að minn- isvarðinn verði reistur á æsku- stöðvum skáldsins að Fagra- skógi. Þá eru viðræður hafnar milli erfingja Davíðs Stefánssonar skáids og bæjarstjómar Akur- eyrar um eignir skáidsins á Ak- DAVÍÐ ureyri. Einhvern tíma á næst- unni verður tekið til við að meta eignirnar, sem eru m. a. íbúðar- hús, ágætt bókasafn og mál- verkasafn. Er mikill áhugi á því á Akureyri og raunar víðar, að hús skáldsins verði gert að safni. TCKJU5KA TTURINN UCKKAR UM 80 MILU. KRÓNA Ur ræðu Gunnars Thoroddsen fjármálarábherra á Varðarfundi i gærkv'óldi Gunnar Thoroddsen fjármála- ráðherra skýrði frá því í ræðu sinni á Varðarfundi í gær, að við breytinguna á tekjuskatts- lögunum myndu iandsmenn greiða 80 millj .króna lægri upp- hæð í tekjuskatt en samkvæmt núgildandi lögum. Hann kvað breytingarnar á tekjuskattinum aðallega fólgnar i tvennu. Upp- hæð persónufrádráttar, skatt- frjálsra tekna, væri verulega hækkuð eða uni 30% frá því sem nú er. Auk þess væri skatt- stiganum einnig breytt. Hann er nú í sex gjaldþrepum, en verður fækkað við breytinguna í þrjú. Réttlátara skattakerfi Tilgangur breytinganna á skatt- og útsvarslögunum væri sá, að gera skattbyrðarnar létt- bærari fyrir þjöðina, og gera skattalögin sanngjarnari og rétt- látari. Jafnframt yrði sjálft skattakerfið gert einfaldara og óbreyttara í sniðum við þessar breytingar. Tekið væri upp rétt- Iátara skattakerfi, sem vonir stæðu til að hefði bætt siðferði í skatta -og framtalsmálum í för með sér. Ráðherrann iagði áherzlu á að miða yrði tekjuskattinn fyrst og fremst við gjaldþol borgaranna og fyrirtækjanna í landinu. Þess yrði að gæta, að tekjuskattur- inn misbyði ekki almenningsá- iitinu og skattameðvitund borg- aranna. I>ví rhíður hefðu skattar á fslandi lengi stórlega dregið úr sjálfsbjargarviðleitni manna og þverbrotið í bág við réttlæt- iskennd almennings. Hefði þetta ieitt til samdráttar í framleiðslu og atvinnulffi og almenningur hefði taiið það sjálfsagða nauð- vörn að draga undan skatti. Gjörbreyting 1960. Á þessu hefði orðið gjörbreyt- ing 1960, þegar almennar launa- tekjur hefðu verið gerðar tekju- skattslausar og persónufrádrátt- urinn mjög hækkaður. Sú breyt ing hefði verið þakksamiega þeg in og mikil breyting hefði þá strax orðið til batnaðar á fram- tölum manna. Væri það sam- róma álit skattstióra landsins oc þeirra endurskoðenda, sem við skattaframtöl fengjust. Ekki hefði síður verið mikilvagg á þessu sviði breytingin á skött- um fyrirtækja, sem lögfest var 1962. En á árinu 1963 hefðu gerzt alvarlegir atburðir i efnahags- málum landsins. sagði fiðrmála- Gunnar Tboroddsen fjármálaráðherra. ráðherra. Þenslan óx- mjög í pen ingamálunum, verðbólgan fór aftur af stað og aukin spilling fylgdi í kjölfar verðbólgunnar, ekki sízt í skattaframtölum. Við urkenna yrði þessar staðreyndir. Þessum vanda yrði að mæta með tvennu: Sanngjörnum skattalögum og ströngu aðhaldi varðandi fram- töl, sem beitt er af óhlutdrægni Framh. á bls. 6 Verksamningur um byggingu Ruunvisindastofn unar Háskólans undirritaður í dag Verður tilbúin undir tréverk í desember nk. í dag verður undirrit- aður verksamningur um byggingu fyrsta áfanga Raunvísindastofnunar Háskóla fslands, sem byrjað er að grafa fyrir rétt sunnan við Háskóla bíó. Fyrsti hluti hússins er 540 fermetrar að flatarmáli, 2 hæð ir aUk kjallara. Verktakinn er Verklegar framkvæmdir h.f. og er samið um það að húsið verði fullgert að utan og tilbúið undir tréverk að innan f desember n. k. Vísir hafði í morgun tal af Þorbirni Sigurgeirssyni prófess- or, formanni bygginganefndar Raunvísindastofnunarinnar. — Hann sagði að Ármann Snævarr rektor undirritaði samninginn i dag fyrir hönd háskólans og Ólafur Jensson verkfræðingur fyrir hönd verktakans. 6 milljón ir gjöf frá Bandaríkjastjórn, eru í byggingarsjóði. Prófessor Þor- björn kvaðst fastlega vona að fyrsti áfangi Raunvísindastofn- unarinnar yrði tilbúinn til notk- unar fyrir háskólaárið 1965 — 1966. 1 þessum fyrsta hluta byggingarinnar verður húsnæði fyrir Eðlisfræðistofnun háskól- ans, stærðfræði, efnafræði og jarðeðlisfræði. Verður nú þegar farið að slá upp mótum fyrir undirstöðum hinnar nýju bygg ingar og unnið áfram af fullum krafti i allt sumar. Frumvörpin um skatffa og útsvör lögð fram: Blaðið í dag Bls. 3 Myndsjá: Parísar- tízkan i hárgreiðslu. — 4 Hjörtur Jónsson skrifar um lokunar- tima verzlana. — 7 Viötal við Albert í Veiðimanninum. — 8 Kosningahorfur í Bretlandi. — 9 Grein Gunnars Thor- oddsen, fjármálaráð- herra um skatta- lækkanir. Fjölskyldufrádráttur stórhækkar Eftirlit með framtölum hert Frumvörpin um tekjuskatt og útsvör, sem Visir hafði boðað, voru lögð fram á Alþingi í gær. Sam- kvæmt frumvarpinu um tekjuskatt og eignaskatt á fjölskyldufrádrátt- ur að stórhækka. Er gert ráð fyr- ir, að barnlaus hjón með 91 þús. kr. tekjur verði tekjuskattsfrjáls. En frádráttur fyrir hvert bam verði 13000 krn þannig að hjón með 3 börn megi hafa 130 þús. kr. tekjur án þess að nokkur tekjuskattur komi á þau. Samkvæmt frumvarp inu um tekjustofna sveitarfélaga er nú gert ráð fyrir, að f stað afsláttar frá útsvarj verði tekinn upp fjölskyldufrádráttur frá tekj- um á sama hátt og á sér stað við ákvörðun tekjuskatts. Mikilvægustu ákvæði frumvtrpe ins um tekjuskatt og eignaskatt fjalla um fjölskyldufrádráttinn. Frádráttur fyrir einstaklinga verð ur 65 þús. kr. En það þýðir, að einstaklingur með þær tekjur slepp ur við tekjuskatt en áður var ein- staklingsfrádrátturinn 50 þús. kr. Frádráttur fyrir hjón var áður 70 þús. Hækkunin á frádrætti hjóna við ákvörðun tekjuskatts er því 21 þús. kr. Bamafrádrátturinn var áður 10 þús. kr., en hækkar f 13 þús., sem fyrr segir. Þá er gert ráð fyrir þvi í frum- varpinu, að frádráttur vegna heim ilisstofnunar verði hækkaður úr 20 þús. kr. í 26 þús. kr. Þá er reiknað með því í nýja frumvarpinu, að innstæður bama í bönkum, sparisjóðum og lögleg- um innlánsdeildum félaga svo og vextir af þeim innstæðum verfti skattfrjálsar án tillit« SH akulda for ltausfc. á bfe. 6

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.