Vísir


Vísir - 15.04.1964, Qupperneq 5

Vísir - 15.04.1964, Qupperneq 5
V1SIR . Miðvikudagur 15. aprfl 1964. utlönd í utlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun RáSstafmur Belgíustjórnar vegna læknadeilunnar gagnslausar ? 1 fréttum frá Brussel segir, að svo horfi að ekki fáist lausn á læknadeilunni með þeim ráðstöf unum sem ríkisstjórnin hefur gripið til, þ.e. að kveðja til skyldustarfa í hernum þá lækna sem eru í varaliði hersins. Það eru um 3600 læknar, sem kvadd ir hafa verið þannig til herþjón- ustu og af hálfu stjórnarinnar hefir verið tilkynnt, áð 1600 hafi gefið sig fram fyrsta daginn Mesta hættan liggur í því, að læknar þeir, sem þannig eru skyldaðir til starfa, haldi áfram að vinna gegn áformum stjórn- arinnar, fari sér hægt, skilji læknatöskurnar eftir heima, hreyfi ekki bíla sína til sjúkra- vitjana o.s.frv. Einn af starfs- mönnum lækna, dr. Andre Wyn en hefir lýst yfir, að læknar muni, er þar að kemur láta sem hin nýja sjúkratryggingalöggjöf sé ekki tií. Svo gæti farið að allar ráðstafanir stjórnarinnar vegna deilunnar reynist gagns lausar SKÓLABÆR Laugavegi 20. AUGLÝSER siýkomið Plastskór kvenna ítalskar töflur Uppreimaðir strigaskór Inniskór karlmanna Karlmannaskór Gúmmístígvél Drengja- og herrasokkar í fjölbreyttu úrvali. Póstsendum. SKÓLABÆR Laugavegi 20 - Sími 18515. í bænum Malines, þar sem 94 læknar voru teknir til starfa, samþykktu þeir síðar tillögu um að halda áfram verkfallinu, en læknar þessir höfðu reiðzt vegna þess, að stjórnin notaði sér það í áróðursskyni, að þeir voru byrjaðir að vinna. Síðari frétt hermdi, að búið væri að taka í herinn 2172 lækna af 3260 skrásettum í vara iiði hersins og taka þeir við af 2000 læknum, sem voru starf- andi í neyðarþjónustu læknanna Innkallanirnar hafa valdið nokkr um truflunum og jafnvel öng- þveiti, þar sem starfandi lækn ar í sjúkrahúsum voru í sum um tilfellum kvaddir £ herinn. Þá var tilkynnt, að læknum hefði verið skipað að hverfa til starfa £ sjúkrahúsum, en eklci voru látnar í té á þvf nán- ari skýringar Ríkisstjórnin hefur tilkynnt, að hún muni ekki taka upp samninga við læknana fyrr en þeir hverfi aftur til vinnu. Hún játaði £ fyrradag, að enn væru 5-6000 læknar íVerkfalIi, þar af um 3500 erlendis, flestir i ná- grannalöndunum. Erfitt er að gera sér grein fyrir horfunum, — reynt er að miðla málum og standa biskup ar landsins þar fremst i flokki, og hafa hvatt lækna til þess að vitja allra sjúkra, en einn leið togi þeirra svaraði: — Við getum ekki tekið að okkur veik börn — ábyrgðin er ríkisstjórnarinnar. Fjárlagafrumvarpið á grunni hagstæðrar efnahagsþróunar í Noregi Stórkostleg verkföll eru yf- irvofandi i Noregi nú i vikunni Hefjast þau n.k. föstudag, ef ekki verður unnt að afstýra þeim á síðustu stundu. Er ekki vonlaust, að samkomulag náist a.m.k. um frestun. Verkfallið mundi kosta Iandið 50 millj. norskra króna á degi hverjum Aftenposten segir, að það sé almennt von manna, að ríkis- stjórnin leggi til í dag, að verk fallinu verði frestað, en hún kemur saman til fundar í dag um málið. Verði af verkföllunum niunu 135.000 verkamenn leggja nið- ur vinnu á föstudag. 1 öllum íyrirtækjum innan vébanda Vinnuveitendasambandsins starfa 250.000 verkamenn. í.itsssafs Maudling, fjármálaráðherra Bret- lands, lagði í gær fram fjárlaga- frumvarpið fyrir næsta fjárhagsár í neðri málstofunni. Því er misjafnlega tekið, en yfir- leitt allvel í blöðum Ihaldsflokks- Maudling. ins, þar sem lögð er áherzla á að Maudling hafi innt erfitt verk vel af hendi, og segja hann ekki hafa reynt að semja fjárlagafrumvarp, sem gengi í augu manna á kosn- ingaári. Maudling lagði á það áherzlu í ræðu sinni, að efnahagsþróunin hefði verið hagstæð á seinasta fjár- hagsári, efnahagslífið á traustum grunni, framleiðsla hefði aukizt, á Erum fluttir að SÍIHffVIIÍLA 17 Vélsniiðja Eysteins Leifssonar Sími 18662. Verkamciin Viljum ráða nokkra verkamenn strax. Mikil og löng vinna. Hádegismatur borðaður á vinnustað. VERK H.F., Laugaveg 105. Sími 11380 (skrifstofa). Sími 35974 (vinnuskúr). sumum sviðum um 8% atvinnu- Ieysi hefði minnkað og allt benti til framhalds sömu þróunar. ,,Við skulum stuðla að því, að þróunin verði áfram í sömu átt“, sagði hann. Stjórnarandstæðingar með Wil- son í broddi fylkingar hafa stimpl- að frumvarpið sem kosningabeitu — og Wilson sagði, að það mundi reynast gagnslaust til þess að laga óhagstæðan greiðslujöfnuð. Skattar á léttum og sterkum vín- um og tóbaki hækka, — útgjöld til landvarna hækka um 9 milljónir, og framlög til háskóla og vísinda- stofnana um 25%. VINNUVERND Fundir voru i báðum deildum og sameinuðu þingi í gær. í efri deild voru tvö mál á dag skrá, búfjárhald í Reykjavík, at- kvæðagreiðsla, og frv. um ferða- mál til 3. umræðu. í neðri deild var tekið fyrir frv. um skemmtanaskatt og það afgreitt sem lög frá Alþingi og frv. um vinnuvernd. Þrjú ný stjórnarfrumvörp voru lögð fram á Alþingi í gær. Fjalla þau m. a. um lækkun á tekju- og eigna- skatti, breytingar á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, þ. e. a. s. aðstöðugjöldum og útsvörum, svo og frv. um almennar nátt- úrurannsóknir og Náttúrufræði- stofnun íslands Ennfremur var út býtt tillögu til þingsályktunar frá ríkisstjórninní um vegaáætlun fyr ir árið 1964. Vinnuvemd. í neðri deild mælti Hannibal Valdimarsson fyr- ir frv. sínu um vinnuvernd. Er þetta töluverður bálkur, skiptist í átta kafla. Þar er m. a. gert ráð fyrir, að á næstu 5 árum styttist vinnuvikan um 5 stundir, sérstök ákvæði eru um vinnu kvenna og bama og unglinga, ennfremur er þarna kafli um uppsagnarfrest og refsiákvæði. I greinargerð frv. segir, að þar sem engin vinnuverndarlöggjöf sé til hér á landi, en hins vegar vaxi fjölbreyttni atvinnuhátta ört, þá sé nauðsynlegt að slík löggjöf sé sett. Næstur tók Pét ur Sigurðsson (S) til máls.. Beindi hann nokkrum fyrirspurnum til flutningsmanns, m. a. til hvaða starfsmanna frv. ætti að ná, og hver ætti að fylgjast með og sjá um vinnutíma verkamanna á vinnustöðunum. Guðlaugur Gísla son (S) spurði, hvort ekki væri heppilegt, er þetta mál yæri . til umræðu, að taka vinnulöggjöf ina til endurskoð unar í heild, og hafa þá hliðsjón af löggjöf ná- grannaþjóða okkar, eins og gert hefði verið við þetta frv. Taldi Guðlaugur löggjöfina úr- elta, enda 25 ára gamla. Hanni- bal svaraði og sagði, að frv. næði einkum til verkamanna, en ýæri þó ekki eingöngu bundið við þá. Þá sagði hann, að við gætum ekki einir þjóða setið eftir með 48 stunda vinnuviku, þegar marg ar aðrar þjóðir hefðu hana styttri. Þá svaraði hann þeirri ásökun Péturs, um að hann sem forseti A. S. I. væri á móti vinnuhag- ræðingu eða verkalýðshreyfingin í heild. Það væri ekki hún, sem ætti að gera slíkar breytingar, heldur atvinnurekendur. Þá sagði hann, að gert væri ráð fyrir, að trúnaðarmenn verkalýðsins fylgd- ust með vinnutímanum. Hvað snerti breytingar á vinnu löggjöf, þá mætti gera ýmsár til bóta, en það yrðj ekki gert ein- hliða. Þá tóku þeir enn til máls Pét- ur, Hannibal og Guðlaugur og Evsteinn. Jónsson. Að lokum tal- aði Eðvarð Sig- y urðsson (Ab) og varaði við því að líta á vinnulög- gjöfina sem úrelt an hlut, þótt hún væri orðin þetta gömul. Honum væri ekki kunnugt um að hún væri í ósamræmi við sams konar löggjafir á hinum Norðurlöndun- um. Hún hefði á sínum tíma ver- ið miðuð við okkar aðstæður og þær hafa ekki breytzt svo mjög. Þá var málinu vísað til 2. umr. og nefndar. í stuttu máli. Kvöldfundur var í neðri deild í fyrrakvöld. Þar var enn deilt um frv. um loftferðir, en atkvæðagreiðslu frestað. Þá mælti Davíð Ólafsson fyrir nefndaráliti meirihl. um frv. um jafnvægi í byggð landsins. í efri deild í gær mælti Páll Þorsteinsson (F) fyrir breyt.till. við frv. um ferðamál. Þá var frv. um búfjárhaldj Vís- að til 3. umræðu. Nýr þingmaður. Pétur Pétur'sson, forstjóri, tók í gær sæti Guðmunðar í. Guð- mundssonar, utanríkisráðherra, á Alþingi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.