Vísir - 15.04.1964, Page 6
6
VlSTR . MtBvQoidagor 18, apríl 1964.
/
• 60 000 l
65ooov*( nV™,
k 70 000 1 500 500
80 000 2 500 1500
90 000 4 000 2 5™
100 000 5 500 4
110 000 7
) ; 0000
) 8 500
14 500
17 500 17 500
12
140 000
150 000
Listl yfir skattaiækkanir á einhieypingum. í grein fjármálaráðherra á bls. 9 er sýnishorn af lækk-
unum á hjónum með 2 hörn.
Gunnar Thoroddsen —
Framh .af bls. 1.
og festu. Ráðherrann vitnaði í
þessu sambandi í tollalækkun-
ina 1961 og þá reynslu, sem af
henni fékkst. Þá varð sú gjör-
breyting á, að ólöglegur innflutn
ingur féll að langmestu leyti nið
ur, en þrátt fyrir lækkun tolla
uxu þó tekjur ríkissjóðs af inn-
flutningnum. Hagsbót almenn-
ings var sú, að vöruverðið lækk
aði á markaðinum.
Rannsóknardeild.
Þá gat ráðherra þess, að nokk-
ur nýmæli væri að finna í tekju-
skattsfrumvarpinu, m. a. þau, að
nú væri ríkisfekattstjóra fengin
heimild til þess að krefjast
meiri upplýsinga úr hendi þeirra
aðila, sem ekki eru framtals-
skyldir að lögum, en þar í hópi
eru allmörg stór fyrirtæki. Einn-
ig verður nú stofnuð sérstök
rannsóknardeild við embætti rík
isskattstjóra, sem á að hafa það
hlutverk að fylgjast með því að
framtöl séu rétt. Ráðherrann
rakti ýtarlega þær hagsbætur,
sem breytingarnar á tekjuskatt-
inum hafa í för með sér og vís-
ast til greinar hans á bls. 9 í
Vísi I dag um það efni.
Útsvarsbreytingin
hagstæð láglaunafólki.
Þá vék fjármálaráðherra að
útsvarsfrumvarpinu. Hann kvað
á þessu stigi málsins ekki enn
unnt að segja til um það, hver
áhrif þessar breytingar myndu
hafa á útsvör manna, þvi enn
sé ekki vitað hver verður af-
sláttarprósenta hinna einstöku
sveitarfélaga. En ljóst væri, að
breytingin væri hagstæð fyrir
láglaunafólk og barnafjölskyld-
ur. Ef stigarnir væru bornir
saman þá greiddu hjón með 130
þús. kr. tekjur og 3 börn nú 20
þús. kr. í útsvar. Eftir breyt-
inguna myndi útsvar þeirra
lækka f kr. 15.900, að óbreytt-
um afslætti.
Staðgreiðsla skatta.
Aðalbreytingar útsvarslag-
anna væru fólgnar í tvennu. I
fyrsta lagi væri hætt að veita
fjölskylduafslátt, en tekinn upp
persónufrádráttur sams konar
og'við tekjuskattinn. Væri hann
25 þús. kr. fyrir hjón en 5
þús. kr. fyrir hvert barn.
í öðru lagi væri gjaldþrepun-
um fækkað úr 8 í 2, sem gerði
framkvæmd útsvarsálagningar-
innar einfaldari í framkvæmd. I
þriðja lagi gat ráðherrann þess,
að breytingin yrði til þess að
auðvelda mjög staðgreiðslu
gjalda. í ráði væri að taka upp
það fyrirkomulag hér á landi
að menn greiddu opinber gjöld
sin jafnóðum og stæðu vonir til
þess að unnt yrði að leggja
frumvarp um'það fyrir þing á
næsta ári. Væri slík breyting
mjög í hag skattgreiðenda, eins
og reynslan erlendis hefði sýnt.
Áhrif verðbólgunnar.
Þá vék ráðherra að þeirri
spurningu, hvort rétt væri og
skynsamlegt frá efnahagslegu
sjónarmiði að létta 80 milljón-
um í sköttum af þjóðinni, þar
sem sumir væru uggandi um
að það myndi verka til aukn-
ingar þenslunni. Hann kvað þá
röksemd rétt svo langt sem hún
næði. En þar á móti kæmu þau
atriði, sem þegar hefur verið
gerð grein fyrir. Á það yrði að
líta, að verðbólgan hefði skekkt
skattstigann og breytt ástand-
inu.
Miðað væri að því að lagfæra
skattstigann með tilliti til hærri
meðaltekna og þess misræmis,
sem verðbólgan hefði skapað.
Með breytingunni er unnið að
því að framtölin verði sem rétt-
ust og skattsvjWfr hyerfi.
Fjölskyldufrádráttur —
Framh. af bls. 1
eldra. Er lagt til í frumvarpinu, að
heimildin til þess að börn verði tal-
in sjálfstæðir skattþegnar verði við
það bundin að hreinar tekjur þeirra
nemi meira en 13.000 kr. í stað
þess að í lögunum er miðað við
10.000 kr. árstekjur. Er hér um
staðfestingu á framkvæmdavenju
að ræða, en hækkunin er gerð með
hliðsjón af þeim breytingum, sem
lagt er til að gerðar verði á fjöl-
skyldufrádrætti.
Ennfremur er lagt til, að fyrstu
13.000 kr. af tekjum barns, sem
gert verður sjálfstæður skattþegn,
séu ætíð taldar með tekjum for-
eldra. Er þetta einnig staðfesting
á framkvæmdavenju og I samræmi
við það, að nemi hreinar tekjur
barns 13.000 kr. eða minna, þá
skuli þær ávallt teljast með tekjum
foreldra. Þá er og lagt til, að ein-
ungis þær tekjur, sem eru umfram
13.000 kr., séu taldar til tekna hjá
barni, sem gert hefur verið sjálf-
stæður skattþegn. Er hér um ný-
mæli að ræða, þar eð allar tekjur
barnsins voru áður taldar hjá því.
Frumvarpið kveður ennfremur á
um það, að eftirlit með framtölum
verði hert og heimildir ríkisskatt-
stjóra til rannsókna hjá framtelj-
endum rýmkaðar. Skal ríkisskatt-
stjóra m. a. heimilað að taka
skýrslu af framteljendum og/eða
fyrirsvarsmönnum þeirra. Eru þau
ákvæði hliðstæð ákvæðum gildandi
laga um söluskatt. Ennfremur eru
ríkisskattstjóra veittar heimildir til
rannsóknar hjá aðilum, sem ekki
eru framtalsskyldir. Er slikt talið
nauðsynlegt til þess að unnt sé að
sannreyna framtöl og aðrar skýrsl-
ur til skattyfirvalda og kanna efna-
hag gjaldþegna. Ennfremur er gert
ráð fyrir því í frumvarpinu, að við
embætti rikisskattstjóra starfi rann
sóknardeild, er hafi með höndum
rannsóknir samkvæmt lögunum.
Frumvarpið um tekjustofna sveit
arfélaga gerir ráð fyrir, að fjöl-
skyldufrádráttur verði sem hér
segir: Fyrir einstakling 25.000 kr.
Fyrir hjón 35.000 kr. Fyrir hvert
barn innan 16 ára aldurs á fram
færi gjaldanda 5000 kr. Útsvör sl.
árs munu einnig fást dregin frá
hreinum tekjum, ef þau hafa verið
greidd að fullu fyrir áramót næst
á undan niðurjöfnun.
f greinargerð með frumvarpinu
segir, að reynsla sfðustu ára hafi
sýnt, að sveitarfélögin hafi nærri
að segja undantekningarlaust veitt
meiri eða minni afslátt frá hinum
lögfestu útsvarsreglum. Mjög óvíða
hafi afsláttur numið minna en 10%
og flestir kaupstaðir og kauptún
hafi veitt afslátt, sem numið hafi
15-30% og einstaka meiri afslátt.
Hafi þessar staðreyndir eindregið
bent I þá átt að breyta þyrfti gild-
andi útsvarsreglum og eru þær
ein aðalástæðan fyrir breytingum
þeim, er frumvarpið leggur til. Af-
sláttur af útsvari vegna fjölskyldu
stærðar hefur einnig verið veittur
en verður nú afnuminn og þess I
stað tekinn upp fjölskyldufrádrátt
ur frá tekjum. Gjaldþrep útsvars
stigans hafa verið 8 en verða nú
aðeins 2
Hinar nýju reglur mundu lækka
útsvörin að óbreyttum afslætti frá
stiga. T.d munu hjón með 3 börn
og 100 þús. kr. tekjur nú fá 8500
kr. í útsvar I stað 13000 kr. nú.
Munu hinar nýju reglur því gefa
sveitarfélögum minni tekjur að ó-
breyttum afslætti frá útsvarsstiga
og má því búast við að afsláttur
frá stiga verði minni en verið hefur
Sigurglaður —
Framh. af bls. 8
haft til þess að láta þjóðina fá
kynni af hversu honum farast
forustustörfin úr hendi inn á
við og út á við, og með tilliti
til þessa hafi það verið hyggi-
leg ákvörðun að bíða hausts-
ins. Hvað sem kosningaúrslitun
um 1 siðustu viku líður, má full
yrða, að bæði heima fyrir og
erlendis hafi Sir Alec unnið sér
aukið álit eftir að hann varð
forsætisráðherra. Sunday Ex-
press nefnir það sem seinasta
dæmj um ró hans og hyggindi,
að hann hafi ekki haggazt, þótt
reynt hafi verið innan flokks-
ins að fá hann til þess „að setja
nýjan svip á stjórnina" fyrir
kosningar, með þvf að endur-
skipuleggja hana, taka í hana
nýja menn — hann telji hana
skipaða hæfum mönnum og
muni forðast mistök Macmillans
. 1962, er hann lét fyrirvaralaust
þriðjung stjórnarinnar róa.
A. Th.
Yegamálin ---
Framh. af bls. 16.
— Og ekki heldur hægt að segja
neitt um helztu fyrirhuguð stór-
virki í sambandi við vega- og brú-
argerð i sumar?
— Að sjálfsögðu hef ég mínar
ákveðnu skoðanir á því, á hvaða
vegi og brýr beri að leggja mesta
áherzlu í sumar. En um það gildir
hið sama. Ég hef ekki endanlegt
úrskurðarvald í þeim efnum og um
það verður þingnefndin einnig að
fjalla áður en skýrt er frá því.
Eins og þingsályktunartillagan
ber með sér, er gert ráð fyrir að
•ákfærir Vegir á landinu lengist um
860 km. í sumar eða um 11%.
Það eru miklu stórkostlegri vega-
framkvæmdir en nokkru sinni hef
ur verið unnið að á einu ári.
í þessu sambandi má minna á,
að auk vega I byggð verður í
sumar unnið meir að fjallvegum
heldur en nokkru sinni áður. Er
þar einkum átt við svokallaða að-
alfjallvegi, en það er Kaldadals-
leið, Kjalvegur, Fjallabaksvegur
nyrðri og Sprengisandsleið. Til
þeirra verður í ár varið 1.3 millj.
kr. i stað 325 þús. kr. á síðasta
ári. Auk þess verður varið 800 þús.
kr. til annarra fjallvega og loks
200 þús. kr. til reiðvega, sem er
í rauninni nýr liður í vegalögunum.
ÍÞRÓTTIR —
Framhald af bls. 2.
uggt um þennan sigur, en leikur
liðsins var ekki mikið, ef nokkuð,
undir getu. Leikurinn allur var vel
leikinn af beggja hálfu og stóðst
samanburð 1. deildarleikja. Bergur
Guðnason var hættulegasti skot-
maður liðsins, skoraði 6 mörk. Mik-
il hætta stafaði alltaf af Pétri
Antonssyni Og Sigurði Dagssyni.
Mjög slæm mistök að mínum dómi
var að nota Hermann Gunnarsson
ekki meira en gert var í þessum
leik. — Dómari var Karl Jóhanns-
son og dæmdi erfiðan leik nokkuð
vel.
Kvöldvaka
Birgir Kjaran hagfræðingur flyt
ur erindi á síðustu kvöldvöku Ferða
félags Islands á þessum vetri f
Sjálfstæðishúsinu annað kvöld.
Á kvöldvökunni mun Birgir
einkum beina málj sinu að Meðal-
Iandi í Skaftafellssýslu, en auk
þess einnig að fleiri stöðum.
Birgir Kjaran er ekkí einungis
kunnur ræðumaður, snjall og
skemmtilegur, heldur er hann og
kunnur sem rithöfundur, einkum þó
fyrir ást sína á furðum lands og
dýra. Bók Birgis „Fagurt Iand“ er
órækust sönnun þess, sem hér er
sagt. Það er því mikill fengur fyrir
Ferðafélagið að fá Birgi á fund til
sín. Hann hefur af mörgu að taka
og af miklu að segja.
Að loknu erindi Birgis verður
myndagetraun að venju með verð-
launaveitingum og að þvi búnu
dansað til miðnættis.
Herskip —
Framh. af bls. 16
því og það látið heita Jeanne
D’Arc. Ferðin hingað er nokk-
urs konar reynsluferð", þar sem
verið er að þjálfa foringjana og
reyna hin ýmsu tæki um borð.
í sumar verður það gert að
skólaskipi til þjálfunar á for-
ingjaefnum. La Résolue fór frá
Frakklandi fyrir mánuði síðan
en hingað kemur það frá Phila
delphia í Bandaríkjunum, þar
sem skipið var í 3ja daga kurt-
eisisheimsókn. Ferðin hingað til
Islands tók viku.
La Résolue er 12 þús. tonn
að stærð og'ganghraði 26 hnút
ar. Það er 607 fet á lengd, en
4 loftvarnabyssur eru á því.
í þessari ferð eru um borð 8
stórar amerískar þyrlur og ein
lítii frönsk.
Þegar La Résolue kom á ytri
höfnina í morgun fóru út í það
fulltrúi frá vamarliðinu og
sendiráðsritari Franska sendi-
ráðsins. Skömmu eftir kl. 9
kom aðmíráll Buie yfirmaður
Varnarliðsins á Keflavíkurflug
velli í stutta heimsókn um borð
Aðmírállinn kom í þyrlu frá
Keflavíkurflugvelli og lenti hún
á þilfari skipsins.
La Résolue er í alla staði
hið glæsilegasta skip og allt
jafnt utan sem innan vandað.
Skipið verður almenningi til
sýnis í dag og á morgun milli
kl. 3 og 5. Á meðan La Ré-
solue dvelur hér verða m.a.
skipulagðar ferðir fyrir áhöfn
ina um borgina og nágrenni
hennar..
Heimsmethafi —
Framh. af bls 16.
um í landskeppni fyrir skömmu
og setti þá heimsmet i 110
jarda skriðsundi.
Skozka sundfólkið er allt há
skólaborgarar. McGregor Iegg
ur stund á arkitektúr, Ann
Baxter er háskólastúdent og
Andy Harrower er læknanemi.
Greinilegt er að McGregor verð
ur of sterkur í skriðsundinu fyr
ir okkar beztu menn, en senni-
legt að Harrower og Baxter
veiti harða keppni ekki hvað
sízt ætti keppni Hrafnhildar
Guðmundsdóttur og Ann Baxt
er að verða skemmtileg.
t
Móðir min,
ÓLÖF EIRÍKSDÓTTIR,
sem lézt 12. aprfl, verður jarðsett frá Fossvogskirkju
föstudaginn 17. apríl kl. 2.30 eftir hádegi.
Lydia Pálmarsdóttir.
cisca
'7ii