Vísir - 15.04.1964, Qupperneq 15
VÍSIR . Miðvikudagur 15. apríl 1964,
Bswrssjf
75
JZJ.
ráðin í að sigra hann með þeim
aðferðum, sem ávallt höfðu dug
að henni.
— Gerið svo vel að setjast,
ungfrú, sagði Paroli kuldalega.
Nú, hann er af þessu taginu,
hugsaði hún, en hann fær að
reyna að það verður verst fyrir
hann sjálfan, ef hann fer að
gera sig merkilegan
— Þér eruð leikkona, ungfrú,
og mér er sagt, að þér hafið
góða hæfileika.
—Já, ég er leikkona, vegna
köllunár, og löngunar, sem ég
'hefi jafnan borið í brjósti. Mér
hefir verið hrósað það oft fyrir
hæfileika mína, að ég hef sam-
færzt um, að ég sé þó
nokkrum hæfileikum gædd -
og aðdáendur á ég marga.
- Ákafa aðdáendur, það er ég
viss um, sagði Paroli brosandi
— fegurð yðar ein mundi nægja
til þess að vekja aðdáun.
— Þetta er vinsamlega mælt,
herra læknir, en vitanlega er ég
ekki sviðsvön - ég er ekki
nema 19 ára.
— Móðir yðar sagði mér, að
þér lékuð kornungar stúlkur.
— Já, þér haldið ef til vill,
að ég sé ekki nógu grönn til
þess.
— Ég hélt, að það ætti ekki
við skaplyndi yðar.
— Hvers vegna ekki?
— Þér eruð vel vaxin og rödd
in hljómar vel — útlit yðar ætti
að freista myndhöggvara til þess
að fá yður sem fyrirsætu. Mér
finnst einhver veginn, að það
mundi eiga betur við yður að
Ieika veraldarvanar primadonn-
ur en ungar, saklausar stúlkur.
- Hve vel þér skiljið mig,
herra læknir.
— Hafið þér verið reyndar í
slíku hlutverki.
— Aðeins einu sinni. Það var
í Chartret — í leikritinu Serge
Panine.
— Og þér fenguð lof?
- Ég var kölluð fram þrisvar
og fékk marga blómvendi. Stall
systur mínar voru gular af
gremju. Kannizt þér við þetta
leikrit, herra læknir?
Paroli hafði kippzt við, er
hún nefndi leikritið, sem hann
kannaðist vel við, og annarleg-
um glömpum brá fyrir í augum
hans.
- Já, ég kannast við það, og
geðjast að því einkum lokaþætt-
T
A
R
Z
A
inum. Þér hafið vafalaust farið
með hlutverk konunnar, sem í
síðasta þætti skýtur Serge Pan-
ine til bana?
— Já, herra læknir, og þér
megið trúa, hve stolt ég var, er
það kom í blöðunum að ég hefði
verið óviðjafnanleg. Svipbrigði
mín, hreyfingar í lokaatriðinu,
— allt hafði þau áhif á áhorf-
endur, að þeir stóðu á öndinni af
| hrifningu, — slökkviliðsmaður-
inn að tjaldabaki ætlaði að ær-
ast af hrifningu, en mótleikari
minn var meiri aulabárðurinn —
hann var svo hræddur, að engu
var líkara en að hann héldi, að
ég ætlaði raunverulega að ‘drepa
hann. Ég lifði mig líka alveg inn
í hlutverkið.
— Eins og allir sannir lista-
menn gera.
— Já, herra læknir, og mig hef
ir dreymt um stór hlutverk. Og
búningamir, kjólarnir, þér getið
ímyndað yður, að ég mundi taka
mig út.
Hún minnti á kettling, sem
vill láta klappa sér
— Það er ég sannfærður um,
sagði Paroli, enn kuldalega og
kurteislega. Þér munuð vafa-
laust verða frægar fyrir leik í
stórum hlutverkum.
— Ætlið þér þá að taka mig
að yður?
— Já, en fyrst verð ég að tala
við yður í fullri hreinskilni.
- Gerið það, - ég kippi mér
ekki upp við neitt.
— Tveir vina minna eru leik-
hússtjórar, og ég hefi gert þeim
báðum mikilsverða greiða — og
óvenjulega. Þeir eru mér þakk-
látir og vilja gjaman láta þakk-
læti sitt í ljós með öðru en orð-
um einum. Skiljanlega vil ég
ekki nefna þessa tvo leikhús-
stjóra þegar, og ég verð að biðja
yður um, að láta algera leynd
hvíla yfir þeirri hjálp, sem ég
ætla að láta yður í té. Fengju
stallsystur yðar og aðrir stéttar
félagar grun um, að til stæði að
láta yður fá óvanalegt hlutverk,
myndu þær fyllast öfund, og
reyna að spilla öllu, því er bezt
að láta kyrrt liggja, - ella
gætu öll okkar áform misheppn-
azt.
— Já, trúið mér, þær eru öf-
undssjúkar.
- Ég mun tala við vini mína
um yður þegar á morgun. Þeir
eru alvarlega hugsandi menn,
sem ekki flana að neinu, og
þótt þeir yilji allt fyrir mig
gera, munu þeir vilja fá af eig
in reynd að kynna sér hæfileika
yðar.
— Það skil ég mæta vel, —
þeir vilja ekki kaupa köttinn
í sekknum.
— Leyfið mér að spyrja, —
hvað kaupkröfur gerið þér?
— O, ég mundi ekki krefjast
mikils í byrjun.
Hve mikils?
— Segum tólf þúsund, fast
kaup og tveggja mánaða frí, —
en ég gæti hæglega fengið meira
— Það efa ég ekki.
— Mér þykir bara vænt um,
að þessir herrar prófi getu mína.
Það er þegar mikill ávinningur,
að geta fengið þá til þess að
verja til þess dýrmætum tíma
sínum. Þegar móðir mín sagði
mér frá yður datt mér strax í
hug leikrit, sem á að taka
til meðferðar í BatignoIIes- leik
húsi. Leikhússtjórarnir gætu ann
ars séð mig í þessu leikriti. Ég
kem sem sagt beint úr Bati-
gnollesleikhúsinu. Mér hafði
flogið í hug að bjóðast til að
leika án launa í fjórtán daga
í Montmartre og þar næst 8
í Batignollesleikhúsinu, þar sem
ég er vel kunn, en ég hitti þá
ekki Þegar ég kom þar var var
yerið að lésa tvo þætti úr nýju
léikriti, sem einn leikaranna og
vinur hans hafa einhver afskipti
af. Þessi leikari er annars mesti
oflátungur, - vinur hans er allt
öðru vísi.
— Nýtt leikrit í Batignolles-
leikhúsinu?, spurði Paroli, sem
hafði hlustað með athygli, en gat
ekki almennilega áttað sig á
þessu
— Já þetta er leikrit, sem
raunverulega fjallar um dular-
fulla atburði, sem nýlega gerð-
ust. Ég reyndi að ná tali af leik-
stjóranum meðan þessi lestur
fór fram, en leikstjórinn gat ekki
sinnt mér, því að hvorki hann
eða aðrir gátu um annað hugsað
en þetta leikrit — allir virtust
sannfærðir um, eftir lestur þátt
anna, að það mundi fá gífurlega
aðsókn. Titill mun líka sannar-
lega draga að.
— Og hann er?
— Morðið í hraðlest nr. 13.
— Morðið í hraðlest nr. 13,
sagði Paroli og hnyklaði brúnir.
— Já, það fjallar um samskonar
atburði og gerðust raunverulega
er maður að nafni Jacques Bern
ier var myrtur í járnbrautar-
vagni.
Paroli rann kalt vatn milli
skinns og hörunds.
— Þér hljótið að hafa heyrt
um þetta, sagði stjarnan tilvon-
andi, - það er ekki um annað
talað. Ég held, að leikarinn, sem
ég minntist á sé meðhöfundur
] að því, hann hefir víst annars
dágóða hæfileika, - hann heitir
Paul Darnala. Það er engu líkara
en hann hafi kynnt sér allt ræki
lega um það, sem gerðist í raun
veruleikanum, — ja, hann skyldi
nú aldrei hafa verið eitthvað
við þetta riðinn? Þetta er allt
svo dularfullt, en maður skyldi
halda að hann vissi meirí. en lög
reglan. Þarna kemur til sögunn-
ar bréf, sem fannst í járnbrautar
stöð, og svo er eitthvað dular
fullt í sambandi við erfðaskrá.
j Já, og svo var minnzt á fjár
! haldsmann ....
Hvert orð, sem kom af vörum
hinnar málliðugu stúlku, særði
Paroli sem hnífsstunga. Hvers
I vegna hafði þetta leikrit verið
samið? Hve mikið vissi Paul
Darnala? Hvers vegna var atriði
í leiknum um bréf og erfðaskrá
og fjárhaldsmann?
— Er Jacques Bernier nefndur
með nafni eða aðrir, sem við
sögu morðmálsins hafa komið?
- Auðvitað ekki, en allir vita
við hverja er átt - það er ekki
um annað talað en þetta mál,
eins og ég sagði áðan. Finnst
yður ekki snjallt að búa til leik
rit um svona spennandi efni?
- Það þarf víst ekki að efast
um aðsóknina, er þar að kem-
ur, sagði Paroli og reyndi að
leyng angist sinni.
Bílasalu
NIATTHÍASAR
Seljum i dag:
Opel Rekord ’64.Ekinn 8000 km.
Chevy ’62. Ekinn 23000 km.
Chevrolet '60 f góðu standi.
Opel Kapitan '56 og ’62
Mercedes Benz ’59 og ’60 diesel
Opei Rekord ’62 lítið ekinn,
skipti á V.W '62-’64
Opel Caravan ’55 góður
Volkswagen ’55-’64
Höfum mikið úrval af öllum
tegundum og árgerðum bifreiða
Bilasala
MATTHlASAR
Höfðatúni 2 simi 24540 24541
WHAT HAPPENEP IN THERE, TAKZAN?
-HAT'S WHAT X MUST iOJOW! NHAT
PI7 THESE SAVAGES 70 TOr^
WURSE NAOWI? JP=^------------T
.-----—------y (cai.tarzan!
WHY70ESTHIS
LITTLE WAN
SEEA\ ANGRY
&ECAUSE WE
MAK.E YOUR.
WOMAN'S
LEGS i
STRONG
AGAIN? J
Dr. Dominie, ég get gengið aft ekki reiður iæknir, þetta er svo vita það, hvað gerðu þessir villi er litli maðurinn svona reiður,
r, hrópar Naomi himinlifandi. dásamlegt. Hvað skeði þarna menn við Naomi. Tarzan, seg- þegar við erum búnir að lækna
lombai og Medu hafa læknað inni, Tarzan, hrópar litli læknir- ir Mombai undrandi, af hverju hana?
íig án skurðaðgerðar. Verið
v.v
VpVAVAW.v.v;
I
DÚN- OG
FIÐURHREINSUN
vatnsstíg 3. Sími 1874C %
SÆNGUR
REST BEZT-koddar.
Endumýjum gömlu ;!
sængurnar, eigum \
dún- og fiðurheld ver. «;
Seljum æðardúns- og !;
gæsadúnssængur — £
og kodda af ýmsum ;!
stærðum. ;!
!■■■■■■!
Endumýjunt
gömlu
sængumar.
Seljum
dún og
fiðurheld
ver.
[NJýja fiðurhreinsunin
Hverfisgötu 57A
Sími 16738.
Rafkerfa-
viðtperlir
á rafkerfum i bíla. Stillingar
á hleðslu og vél. Vindingar
og viðgerðir á heimilistækj-
um.
RAFNÝTING SF.
Melgerði 6
Sími 41678, Kópavogi.
to[_________
Fcsnný fBenonýs
sámi 16738
Gærw«^ur
kr. 998,00
Miklatorgi
inni, Tarzan, hrópar litli læknir- ir Mombai undrandi, af hverju hana?
inn æstur, ég VERÐ að fá að
SENDIBÍLASTÖÐIN H.F.
BORGARTÚNI 21 SÍMI 24113