Vísir - 27.04.1964, Síða 1

Vísir - 27.04.1964, Síða 1
\ VISIR Mánudagurinn 27. april 1964 400 ára afmæli Shakespeare SHAKESPCARC / íslenzkum bókmenntum EFTIR VILHJÁLM Þ. GÍSLASON IÍTVARPSSTJÓRA Þótt enginn viti það með vissu er talið að brezki skáldmæringurinn WiIIiam Shakespeare hafi verið í þennan heim borinn 23. apríl 1564 og eru því fjögur hundruð ár liðin frá fæðingu hans um þessar mundir. Vísir minnist þessa mikla skálds í dag með nokkrum greinum um ævi, líf hans og list. Hér á síðunni birtist grein um Shakespeare í íslenzkum bókmenntum eftir Vilhjálm Þ. Gísla- son útvarpsstjóra. Að stofni til er hún samhljóða erindi sem hann flutti við opnun Shakespearesýn- ingar Þjóðleikhússins, en allnokkru ítarlegri. — Fjallar höfundur í greininni um Shakespeare á íslandi og íslenzk tengsl við leikrit hans. Grein um Shakespearesýninguna birtist á 17. síðu Vísis í dag. gumum kann að þykja það ó- þarfi eða þá yfirlæti, að Ieikhús á útskaga menningar- innar skuli ætla sér að taka einhvern þátt í þeim alþjóðlegu hátíðahöldum, sem fram fara á þessu ári, og einkum í dag, vegna fjögur hundruð ára af- mælis Shakespeares. Það er eðlilegt, að Shake- speares og áhrifa hans gæti hér heldur seint og ekki fyrr en leikhús eflast hér fyrir alvöru. Annarra gamalla enskra skálda gætir hér fyrr, Popes og Milt- ons c>2 býðing Jóns Þorláksson- ar á 'fsradísannissi er reyndar ennþá -jr.crkara og máttugra verk í bÆsicenntasögu okkar, vegna íslonstes máJs og kveðandi, en almennt er tekið tillit til, Ekki var farið að þýða Shakespeare á dönsku fyrr en milli 1770 og 1780. Bjarni Thorarensen er Iíklega fyrsta íslenzka skáldið, sem les Shake speare og hefur mætur á hon- um. Hann hefur kannske lesið hann á dönsku, en hann vitnar líka í hann á ensku, eins og þegar hann segir í sendibréfi, að „there is something rotten in the State of Suður-amtið". Shakespeare og skáldskapur hans var annars aldrei til sams konar áhrifa á íslenzkar bók- tnenntir og t.d. Horas og Cicero á tímum uppeldis í klassískum fræðum eða Horaer um skeið í þýðingum Svein- bjarnar Egilssonar. Seinna urðu það einnig aðrir yngri brezkir höfundar, sem dýpri áhrif höfðu Byron Bretatröll, sem sr. Matt- hías kallaði svo, og Sir Walter Scott. í verkum Shakespeares held ég að ekkert íslenzkt komi nokkru sinni fyrir, nema einn íslenzkur hundur í Hinriki fjórða. Það er þá notað sem skammaryrði um góðan Eng- Iending, að Iíkja honum við eymasperrtan íslenzkan hund. Annars vissu Englendingar Elísabetartímas lítið um Island og oftast hégiljur og ýkjur mis- jafnra ferðalanga, þó að tals- ý i|g||g||g® Titilblað af hinni frægu fyrstu folíóútgáfu á leikritum Shakespeares. Vilhjálmur Þ. Gíslason. verðar samgöngur væru milli landanna og allmiklar fiskiveið ar Breta hér við land, í gömlu ensku kvæði segir: I was borne in Island, as brute as a beast whan I eat candles ends I am at a feast. Og í öðm kvæði segir svo: Of Island to write is little nede save of stockfish ... Annars voru rit Arngríms lærða dálítið kunn í Englandi á seinni árum Shakespeares og Jón Indíafari kom til London árið áður en Shakespeare. dó. Hann sagði að turn St. Páls- kirkju væri tilsýndar sem ein fjallsgnýpa, en í borginni væru framdir alls konar leikir og mætti heyra þar trómet, bumb- ur. pípur og hljóðfæri alls kon- ar uppá spilað. Einnig vom fjarlæg tengsl milli stærsta og frægasta leik- rits Shakespeares, Hamlets, og gamalla íslenzkra bókmennta. Nafn Amlóða kemur fyrst fyrir í lausavísu eftir Snæbjörn íslenzkt skáld á elieftu öld (1010—20?), hvernig svo sem annars á að skilja þá vísu. Þar er talað um bylgjur þær, er fyr löngu mólu Amlóða meldur- lið og venjulega talið að átt sé við kvörn, Amlóða eða hafið. Hamlet sagnir um Amlethus eða Amlóða, sem frægastar voru annars úr Dana-sögu Saxa, geymdust lika I íslenzkri sögu, Ambalessögu. Það er undir hæl inn lagt, hvers virði slík tengsl em talin. Einn enskur fræði- maður, Gollanz, hefur skrifað stóra bók um Hamlet á íslandi, en ;í nýjustu ævisögu Shake- speares, þeirri frægu og um- þráttuðu bók eftir prófessor Rowse, er það talið nægilegt að geta í einni línu um að til sé gömul miðaldasaga um Hamlet. Hins vegar eignaðist Shake- speare marga skáldbræður hér norður í fásinninu, sem þótti, eins og honum, Hamlet girnilegt yrkisefni. Ég held, að til séu í handritum að minnsta kosti sex allmiklir rímnaflokkar um Ham- let eða út af Ambales sögu. Hamlet Shakespeares var ekki þýddur fyrr en sr. Matthías gerði það. Hann segir 1862 í bréfi til Steingríms Thorsteins- sonar, að hann hafi í vetur vað ið I gegnum flest Shakespeare's rit á sænsku, því hann hafi ekki tíma til að lesa originalinn. Hamlet þýddi hann í Móum og'hann kom út 1878, en fyrst þýddi hann Macbeth í Kaup- mannahöfn 1871 og sfðar Rómeó og Júlíu og Othello í Móum, eins og Hamlet. Hann þýddi úr ensku, nam hana snemma og var í Englandi, og ég man einu sinni að ég heyrði sr. Matthías segja heima hjá foreldrum mínum, að hann talaði þá ensku, sem Shake- speare skrifaði. Hann sökkti sér niður í rit hans og hafði á hon- um mjög miklar mætur. „Feiki- legur jötunn hefur sá maður ver ið og þó svo fínn og moderat og útspekuleraður og delikat“, segir hann einu sinni í sendi- bréfi. Annars staðar talar hann um það, að Shakespeare „hafi alltaf haft höfuð og herðar yfir öll dramatisk skáld sem ég hef lesið“, en talar þó um takmörk- un hans, sem er „öldin með hennar forskrúfaða ídelismus". Jþað var annars Steingrímur Thorsteinsson sem fyrstur ruddi brautina fyrir Shake- speare og hann þýddi Lear kon- ung, sem reyndar var ekki prent aður fyrr en 1878. Það var einmitt með þessu mikilhæfa og magnaða skálda- kyni, um og upp úr miðri sein- ustu öld, sem tími Shakespear es hófst hér á landi. Grímur Thomsen las hann og Benedikt Gröndal, þó að hann segist aldrei hafa haft þolinmæði til að lesa hann að neinu gagni, hann Ias fremur Schiller og Goethe og frönsk rómantísk skáld. Gisli Brynjúlfsson las líka Shakespeare. Síðar þýddi Eirík- ur Magnússon Storminn og til eru í handriti drög að þýðingu hans á Vetrarsögunni. Hann skrifaði líka óvæginn og ósann- gjarnan dóm um Othello þýð- ingu sr. Matthíasar. Löngu seinna kom Indriði Einarsson til sögunnar og þýddi 14 Shakespeare-Ieikrit, eftir að hann átti að vera setztur í helg- an stein. Sigurður málari hafði sagt honum fyrir löngu frá Shakespearesýningum f Kaup- mannahöfn og hvatt hann til utanfarar. Sigurður málari hafði sagt Indriða, að í leikhúsum og einkum á Shakespeare-sýning- um, „hefði hann átt nokkrar af hinum beztu ævistundum sín- um“. Nefndi hann þar einkum til Lear konung, Macbeth og Hinrik IV., en „Hinrikarnir eftir Shakespeare eru hans aðalátrún aður í leikskáldskap og leikrita- gerð“. Þegar út kom sannfærðist Indriði um það sjálfur, að þetta væri eitt hið mesta í heimi, eins og hann segir í minningum sínum. Hann var lengi lífið og sálin í íslenzkri leiklist. Framhald á hls. 14.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.