Vísir - 28.04.1964, Blaðsíða 13
13
V í SIR . Þriðjudagur 28. apríl 1964.
liiiiiillliiiiilil
ÍBÚÐ - ÓSKAST
Hver vill leigja 3 herb. íbúð. 4 fullorðnir £ heimili. Fyrirframgreiðsla
ef óskað er. Sími 15206 milli kl. 8 og 10 í kvöld og annað kvöld.
Tvær stofur til leigu
Tvö stór herbergi í miðbænum til leigu frá 1. maí hentug fyrir skrif-
stofu eða læknastofu eða þessháttar. Tilboð merkt — Hentugur stað-
ur— sendist Vísi fyrir 1. maí.
30—40 þús. kr. fyrirframgreiðsla
3 — 4 hert). íbúð óskast til leigu £ vesturbænum Uppl. gefnar £ sfma
32490.
ÍBÚÐ ÖSKAST
Verzlunarstjóri óskar eftir 3—4 herb. ibúð Má vera f Kópavogi eða
Hafnarfirði. Sfmi 20549.
1-2 herb. og eldhús óskast til
leigu. Tvennt fullorðið í heimili.
Get lesið með skólabörnum ef ósk-
að er, sfmi 40092
Fullorðin kona óskar eftir 1-2
herb. og eldhúsi sem fyrst eða
um miðjan mánuð. Má vera f Kópa-
vogi eða Hafnarfirði. Smávegis hús
hjálp gæti komið til greina, sími
40872 eftir kl. 7 á kvöldin.
Til leigu skemmtileg 5 herb. íbúð
arhæð (ca. 130m:) f Hlíðunum frá
15. maí f eitt ár. Leigutilboð, er
greini fyrirframgreiðslumöguleika
sendist afgr. Vfsis fyrir föstudags
kvöld merkt: „Hlíðar — 567“
íbúð til leigu fyrir stúlku um þrí-
tugt. Smávegis matartilbúningur
fyrir einn mann æskilegur. Tilboð
sendist Vfsi merkt „Húsnæði 546“
íbúð óskast. Einhleyp stúlka ósk
ar eftir 1 herb. eldhúsi og baði. Al-
gjör reglusemi, sími 14486 eða
38424.
Sumarbústaðaland til sölu 1 ha
Óvenjufallegur staður um 20 km.
frá Reykjavík, sími 41829.
Tveir sjómenn, sem sjaldan eru
heima óska eftir herbergi til leigu.
Fyrirframgreiðsla eftir samkomu-
lagi ,sfmi 18085
ÖKUKENNSLA - HÆFNISVOTTORÐ
Sími 40894.
ÖKUKENNSLA - HÆFNISVOTTORÐ
Kenni akstur og moðferð bifreiða, Nýr bíll. Sími 33969.
MOKSTURS-SKÚFFA
Leigjum út stórvirka hjólamokstursskóflu (Payloader) til stærri og
smærri verka f tíma- eða ákvæðisvinnu. Einnig tökum við að okkur
að fjarlægja grjót og moldarruðninga. Aðstoð h.f., Lindargötu 9, sfmi
15624. .
BIFREIÐAEIGENDUR ATHUGIÐ
Mattar og rispaðar framrúður geta valdið slysum. Látið okkur slípa
þær. Pantanir og upplýsingar í síma 12050. ,
^ GÚMMÍSTEYPA
Tökum að okkur allá konar gúmmísteypu. Nýtízku vélar. Uppl. í sfma
37348 kl. 12-1 og eftir kl. 6 e. h._ '
LOFTPRESSA TIL LEIGU
Tökum að okkur alls konar múrbrot. Uppl. í sfma 36640 og 35740
alla daga og öll kvöld f 36640.
Sá, sem hirti , gráa, nýlega
drengjaúlpu á horni Barónsstíg og
Hverfisgötu (biðstöð) vinsamlega
ast hringi í síma 16301.
Drengjahúfa, útprjónuð, hefur
apazt á Skólavörðuholti. Finnandi
insamlega hringi f síma 20749.
ngur hundur, svartur og hvítur
áls og fætur í óskilum. Sími
Lítill sumarbústaður í • nágrenni
Reykjavíkur óskast til leigu. Til-
boð sendist Vísi fyrir laugardag,
merkt: „Sumarhús — 554“.
Konan sem fékk lánaða barnaleik
grindina í félagsheimili KFUM hjá
Sigríði Ingimundardóttur, er beðin
að skila henni sem allra fyrst f
Álfheima 36 kjallarahæð til hægri.
Fundizt hefur kvenarmbandsúr
og silfurbúinn tóbaksbaukur. Rétt-
ir eigendur vitji muna þessara á
Hraunteig 28 sfmi 32509. Baukur-
inn fannst sl. sumar (1963). Á
sama stað er til sölu nótuð ryk-
suga.
ökukennsla. Kénni akstur og
meðferð bifreiða. Sími 22588.
' Þýzkukennsla handa byrjendum
og þeim, sem lengra eru komnir.
Áherzla lögð á málfræði og hag-
nýtar talæfingar. — Kenni einnig
margar aðrar skólanámsgreinar. —
Dr. Ottó Amaldur Magnússon (áð-
ur Weg) Grettisgötu 44A. Sfmi
15082
Landspróf. Les með skólafólki
reikning, stærðfræði, eðlisfræði,
efnafræði o.fl. Kenni einnig tungu-
mál (mál- og setningafræði, dönsku
ensku, þýzku o.fl.) Bý undir lands
próf, stúdentspróf, tækninám o.fl.
Dr. Ottó Amaldur Magnússon
(áður Weg), Grettisgötu 44A. Sími
15082.
ÍWntun £
’ítsmfðja & gúmmístimplagerð
Elnholti Z - Simi 21960
Ofdrykkja —
Framhald af bls. 9.
því að uppræta orsakir sjúk-
dómsins, að ræða nema geð-
læknismeðferð, sem miðar að
því að uppræta áfengisvanann
og að gera sjúklingnum unnt að
aðlaga, sig kröfum lífsins á eðl;-
legan hátt, og ráða við vanda-
mál sín án þess að leita á náðir
áfengisins.
Minna um
hælisvist
Fyrr á árum var meðférð
drykkjusjúklinga aðallega fólg-
in í því að koma þeim fyrir til
langdvalar á drykkjumanna-
heimilum. Þá höfðu menn ekki
gert sér nægilega Ijóst, að nauð-
synlegt væri að bæta hina al-
mennu aðlögunarhæfni drykkju
sjúklinganna og að til þess
þyrfti langvarandi stuðning ut-
an sjúkrahúsa. Þá var og oft
ruglað saman orsökum og af-
leiðingum drykkjusýkinnar, eins
og mjög er hætt við, að margir
geri enn í dag, vegna þess að
skapgerðargallar valda oft
drykkjusýki og öfugt við veldur
drykkjusýkin oft mjög svipuð-
um skapgerðartruflunum eins
Og t.d. úthalds- og viljaleysi.
Hugsunin með þessari meðferð
var, að við langvarandi innilok-
un og þvingað bindindi mundi
afstaða sjúklinganna til áfeng-
isins og þjóðfélagsins breytast.
Slfk meðferð ein dugir engan
veginn, heldur verður að fylgja
mikil • geðlæknismeðferð fyrir
hvern einstakling svo og hóp-
meðferð, ásamt eftirmeðferð
eftir að sjúklingurinn útsknf-
ast af stofnuninni.
Á seinni' árum hafa menn
horfið meira frá því að láta
áfengissjúklinga dvelja lang-
dvölum á hælum, nema þá, sem
mjög langt eru leiddir af
drykkjusýkinni og eru búnir
að fá miklar vefrænar skemmd-
ir. Leiti sjúklingurinn læknis
nógu snemma er iðulega reynt
við lækningu án þess að leggja
sjúklinginn í sjúkrahús, en oft
getur slfkt þó verið nauðsyn-
Iegt vegna (Iélegs ástands sjúk-
lingsins, yfirvofandi krampa, ó-
ráðs eða annarra geðtruflana.
Markmið i meðferðarinnar er
alltaf margþætt og aðferðir.iar
til að ná takmarkinu eru
margvíslegar. Fullkomnastir
eiga möguleikarnir til meðcerð-
ar að vera, ef hún er rekin á
góðu geðsjúkrahúsi eða geð-
sjúkradeild eða f mjög nánum
tengslum við slíkar stofnanir.
Um tíma óttuðust sumir að á-
fengissjúklingar fengjust ekki
til að leita meðferðar, ef með-
ferðin ætti að vera tengd geð-
sjúkrahúsum. Hafi sá ótti átt
við rök að styðjast virðist hann
hafa horfið að mestu eða ö!lu
á seinustu árum. Ekki má he'd-
ur gleyma þvf, að eitt megin
skilyrði til þess að meðferð
megi takast, er að sjúklingnum
og aðstandendum hans sé xjóst,
hvers eðlis sjúkdómurinn er.
Fyrsta takmarkið er alltaf að
stöðva drykkjuna og fleyta
sjúklingnum yfir hirf anilegu
og lfkamlegu eftirköst hennar.
Til þessa getur iðulega þurft
að nota lyf og aðra meðferð
eins og við meiri háttar geð-
sjúkdóma auk þess sem byggja
þarf líkamlegt þrek sjúkling-
anna upp. Næsta markið er að
brjóta áfengisvanann, hann
verður að brjóta algjörlega og
sjúklingurinn verður að fara
f ævilangt bindindi, ef hann á
ekki að eiga á hættu að veikj-
ast á nýjan leik. Hvaða leið,
sem farin er til að brjóta van-
ann verður alltaf að miða við
ævilangt bindindi. Ekki hefur
enn tekizt að finna neina leið
til að bæta drykkjusjúkling svo,
að hapn verði fær um að neyta
áfengis í hófi að nýju. Til þess
að brjóta áfengisvanann eru
famar ýmsar leiðir. Hægt er
að skapa skilorðsbundin við-
brögð hjá sumum sjúklingum,
svo að þeir fái ógeð á áfeng-
inu, jafnvel bara á að sjá það.
Antabus var mikið notað óg er
nokkuð notað enn, en er eng-
an veginn einhlítt. Það getur
oft verið gagnlegt með 7miss '
konar geðrænni meðferð, sem
skjþtir mestu máli. Hinni geð-
rænu meðferð verður að haga
eftir aðstöðu hverju sinni, eft-
ir persónuleika og einkennum
sjúklingsins og á hvaða stigi
sjúkdómurinn er. Til þess að
ná settu marki í meðferð
drykkjusjúkra, er oft einriig
nauðsynlegt-að veita fjölskyld-
um þeirra aðstoð eða meðfe.ð.
Lokatákmark meðferðar á
áfengissjúklingum er að' gera
þeim unnt að lifa eðlilegu lífi
og aðlaga sig fjölskyldu, félags-
og atvinnulffi án óþæginda.
Meðferð, sem miðar að þessu
marki er tímafrek og erfið bæði
fyrir sjúkling og lækni og oft
verður að láta sér nægja minna.
Þó má aldrei láta sér nægja
minna en að sjúklingurinn nætti
algjörlega áfengisneyzlu.
Kópavogsbúar!
Haldinn verður félagsfundur í dag, 28.
apríl kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu, Borgarholts-
braut 6.
Frummælandi: Matthías Á. Mathiesen.
Stjórnin.
Silfurtúni S. 5-1964
Viðgerðir . Varahlutir . Fullkomin mælitæki
Litlcs höfuðlausa -
Framh. af bls. 8
ir af hafmeynni þar sem hún
situr höfuðlaus á stallinum. í
New York og Tokyo voru sýnd-
ar myndir í sjónvarpsstöðvum
daginn eftir verknaðinn og um
alla Evrópu var tíðrætt um
„alverdens kæreste" eins og
Danir kalla styttuna oft.
Það var verkamaður, sem
gekk eftir Löngulínu um 5-leyt-
ið á laugardagsmorgun, sem tók
eftir að ekki var allt með
felldu með styttuna. Hann
gekk niður að sjávarborðinu til
að hyggja betur að. Kom þá í
Ijós að búið var að sarga
höfuðið af með þjöl. Verkamað-
urinn tilkynnti þegar um at-
burðinn til Iögreglunnar, sem
var í fyrstu vantrúuð, en lét
þó til leiðast að koma á
staðinn þar sem ekki var um
að villast, — höfuð styttunnar
var horfið. .
Mjög nákvæm leit á svæð-
inu í kringum styttuna, bæði á
landi og eins í sjó, bar engan
árangur, tilræðismaðurinn hafði
greinilega fært höfuðið burtu
með sér. Fingráför voru tekin
af styttunni en lftil likindi eru
til að þau muni verða að gagni,
enda alkunna að ferðafólk
klifrar gjarnan upp á stallinn
og lætur taka myndir af sér
sitjandi á stalli hennar eða
faðmi og er hún því útötuð í
fingraförum.
Tæknideild rannsóknarlög-
reglunnar í Kaupmannaiiöfn
gerði mjög ítarlega rannsókn
snemma á laugardagsmorgun-
inn og sló því þegar föstu að
þjþl hefði verið notuð til að
ná höfðinu af. Hefur það verk
verið mjög tafsamt, því bronsið
í kringum hálsinn er um sax
millimetra þykkt! Er reiknað
með að það hafi tekið á aðra
klukkustund að sverfa höfuðið
af og e.t.v. meira, þar eð verk-
ið var unnið f myrkri og við
erfiðar aðstæður. Var hálsinn
sorfinn fyrst öðrum megin, en
svo tekið til frá hinni hliðinni
og þegar langt hefur verið kom-
ið hefur höfuðið verið brotið af.
Eins og skýrt hefur verið frá
áður var steinninn með stytt-
unni tvö tonn á þyngd, leystur
frá festingu sinni og fluttur til
bronssteypufirma í Kaup-
mannahöfn, sem mun annast
viðgerð á styttunni. Afsteypa
úr gipsi hefur verið geymd frá
þvf 1913, þannig að auðvelt
verður að steypa nákvæmlega
eins höfuð á hafmeyna og sagt
er að viðgerðin sé ekki mjög
erfið og muni ferðamenn geta
notið listaverksins í sumár
sem fyrr og ekki síður.
Deild sú innan Kaupmanna-
hafnarlögreglunnar, sem hefur
með mál þetta að gera er svo-
kölluð Drabsafdeling, ekki
vegna þess að hér sé litið á
verknaðinn sem morð, heldur
vegi.„ þess að sú deild sér
einnig um að upplýsa ýmis
skemmdarverk, sem unnin eru.
Stendur deildin mjög illa að
vígi f leit sinni að skemmda-
verkamönnunum, en hallast er
að þvf að hér sé um að ræðá
geðveikan mann eða menn og
er öll leit lögreglunnar byggð
upp frá því.
Þess má að lokum geta að
höfuð „litlu hafmeynnar“ var
ekki eina höfuðið, sem hvarf í
Danmörku um helgina. I
Óðinsvéum hvarf frá Eventyr-
hallen höfuð af hnefaleika-
manni, granítstyttu mikilli sem
þar er. Eru einnig þar miklar
rannsóknir f gangi.