Vísir - 28.04.1964, Side 16
Þriöjudagur 28. apríl 1964.
Teigarnir" malhikaðir í sumar
Geysimiklar framkvæmdir
verða í sumar hjá Reykjavíkur-
borg í gatnagerð, og verða þann-
ig malbikaðir 11 kílómetrar af
götum, mikið lagt af malargöt-
um í nýjum hverfum og talsvert
af gangstéttum.
Meðal þeirra hverfa, sent nú
er unnið að því að undirbúa
undir malbik, er Teigahverf'ð í
Reykjavík. Þar er unnið ai'*.;ví
að koma fyrir niðurföllum i göt-
urnar, en síðar í suniar verður
malbikað.
Auk Teiganna verður Laugar-
nesvegur malbikaður norðan
Sundlaugavegar að Laugalæk.
Laugarnesvegur sunnan Sundl,-
vegar og Reykjavegur munu
hins vegar ekki malbikaðar f
sumar vegna ýmissa breytinga,
sem gerðar verða á þeim götum
síðar.
Ferðafélagið efnir
til Surtseyjarferðar
íslendingar að hefja útflutning á smjöri
600 lestir af smjörí í landinu
Miklar smjörbirgðlr eru nú í
Iandinu. Um siðustu mánaða-
mót námu birgðirnar 600 lest-
um. Safnaðist þetta fyrir eink-
um á sl. sumri og hausti vegna
hinnar miklu mjólkurfra n-
leiðslu sl. árs. Hefur undanfarið
verið unnið að því að selja eilt-
hvað af umframframleiðslunni á
erlendum markaði, en gengið
mjög erfiðlega. Þó hefur nú tek-
izt að selja 50 lestir til Tékkó-
slóvakíu, og er þetta fyrsti
smjörútflutningur íslendinga
um áratuga skeið.
Vísir átti í rnorgun tal við
Sigurð Benediktsson, forstjóra
Osta- og smjörsölunnar um
þetta mál.
Sigurður sagði, að undanfarin
ár hefði mjólkurframleiðslan far
ið vaxandi og smjörframleiðsl-
an því aukizt meira en eftir-
spurnin innanlands. Árið 1962
hefði mjólkurframleiðslan verið .
mun meiri en árið áður og
hefðu smjörbirgðir um áramótin
1962 — 1963 verið orðnar tals-
verðar. Hins vegar hefðu menn
ekki á árinu 1962 árætt að
semja um neinn verulegan út-
flutning á iandbúnaðarafurðam.
Á sl. ári hefði mjólkurfram-
leiðslan enn aukizt og enda
þótt um mikil afköst í osta- og
smjörframleiðslu hefði verið aö
ræða, hefðu smjörbirgðir enn
aukizt.
ERFITT AÐ SELJA YTRA.
Sigurður sagði, að gerðar
hefðu verið alvarlegar tilraunir
til þess á undanförnum mánuð-
um að selja íslenzkt smjör a
Framh. á bls. P
hugi almennings fer vaxandí með
hækkandi sól og lengri degi að
sjá þetta náttúrufyrirbæri. Óv'st
er og ósennilegt mjög, að núlif-
andi íslendingum gefist annað tæki
færi að sjá eldgos úr sjó og nýtt
land myndast. Af sömu sökum má
og búast við vaxandi ferðamanna-
straumi frá útlöndum í sumar, en
Framh. á bls. 6
bélta öllu á Gullteignum. Myndin tekin í morgun.ningur er í fullum gangi. Svona er nú búið að
í sumar á að malbika allt Teigahverfið. Undirbú
Ferðafélag íslands efnir til 2‘/2
dags ferðar til Vestmannaeyja og
Surtseyjar frá föstudeginum 1. maí
til n. k. sunnudagskvölds.
Þessi ferð er ekki á sumará-
ætlun Ferðafélagsins, en vegna fjól
margra fyrirspurna og áskorana
hefur félagið talið rétt að gefa
fólki kost á að komast út að Surts
ey í skipulagðri áætlunarferð. Á-
CANADAIR HílM 2. JÚNÍ
Flugfélagið fær 2 leigu flugvélar
Fyrri Canadairflugvéi Loft-
Ieiða er væntanleg til Reykia-
víkur 2. júní n.k. frá Montreal
í Kanada. Mun hún síðar þá
viku verða sett inn í áætlun fé
lagsins.
Alfreð EUasson framkvæmda-
stjóri sagði í morgun að enn
stæði í samningum við ríkis-
stjómina um yfirtöku Loftleiða
á Flugvaliarhótelinu.
Hjá Flugfélaginu er beðið eft
ir tveim flugvélum, sem báðar
verða tcknar á leigu í sumar.
Önnur kemur hingað frá Liver-
pool einhvern næstu daga og
Góð aflasala
í kvöld er togarinn Marz vænt-
anlegur hcim frá Englandi. Skipið
scldi á föstudaginn afla sinn i HuII
og var það mjög góð sala. Aflinn
reyndist vera 2731 kit og var verð
lians 15.794 sterlingspund. ,
er DC-4 og verður á leiðinni
Reykjavík-Akureyri í sumar,
en hin er DC-3 sem verður í
Færeyjaflugi, en ekki er enn bú
ið að ákveða hvaða leigutilboði
verður tekið.
íslenzkt smjör í útflutningsumbúðum. Tekið fram, að það sé ósaltað,
FLUGBRAUTISURTSEY?
Yrði aðdróttarafl fyrir ferðamenn
Ymsir aðilar, sem kunnugir
eru flugi og hafa áhuga á ferða
málum hafa skotið þeirri hug-
mynd að blaðinu, hvort það
væri elcki tilvalið að rnarka fyrir
flugbraut í Surtsey. Telja þeir
að eyjan geti orðið þannig einn
vinsælasti viðkomustaður
skemmtiferðamanna hér á landi
bæði innlendra og erlendra. Og
fróðir menn segja, að það sé
sáralítil fyrirhöfn að marka
fyrir flugbrautinni.
Hugsið ykkur hve ógleyman-
legt það yrði fyrir fjölda er-
lendra ferðamanna, að fá tæki
færi til að lenda „á eldfjalli"
eins og þeir myndu segja kunn-
ingjum sínum heima fyrir. Slíkt
væri einstakt í skemmtiferðum
og myndi vekja athygli út um
alian heim og verka sem að-
dráttarafl fyrir ferðafóik til
landsins. Við hliðina á því hyrfu
náttúrufyrirbæri eins og Gull-
foss og Geysir í skuggann.
Blaðið hefur aflað sér upp-
lýsinga um það, að sáralítili
kostnaður yrði við að marka
fyrir flugbrautinni. Þar þyrfti
lítið annað að gera, en að setja
upp poka og e.t.v. mála steina
meðfram brautinni. Þeir sem
komið hafa út i eyna og kannað
sandinn segja, að þetta gefi
ekki eftir ýmsum flugvöllum úti
á landi, sandurinn sé þéttur og
góður til að lenda á og nóg rúm.
Telja menn jafnvel að Dakota-
•flugvélar gætu hæglega lent þar.
Þetta þyrfti náttúrulega að
rannsaka allt nánar, en aðalat-
riðið er, að flugbraut yrði þar
viðurkennd, svo að tryggingar-
félög fengjust til að tryggja
flugvélar í lendingu þar, sem
er ekki hættumeiri en víða ann
ars staðar á landinu.