Vísir - 29.06.1964, Qupperneq 2
RITSTJÓRI: JON BIRGIR P\
TURSSOi
!&8$s«ííij
Q»M»jfro.iK.v<gýi
ari og íslcnzka liðið náði þegar í var staðan 7:2, en leiknum lauk
Framh. á bls.
VÍSIR . Mánudagur 29. júní 1964.
Prettan sinnum varo nnnsKi markvöröurinn að na 1 noitann i neio, og sést hann hér á leiöinni inn
Norðurla ndamótið:
ÍSLAND ENNMED í BARÁ JWM\
UM NORÐURLANDA TITILINN
—■ en Danir voru lið kvöldsins
Danir sýndu í gærkvöldi það bezta, sem sézt hefur
á Norðurlandamótinu í handknattleik til þessa, þegar
þeir hreinlega hökkuðu sænsku stúlkurnar í sig eftir
mikla baráttu fyrstu mínútumar. Virðast dönsku stúlk-
umar eiga mikla möguleika á að sigra í keppninni,
þrátt fyrir að þær töpuðu stigi fyrir íslendingum í
rigmngarleiknum á föstudagskvöldið. íslendingar
unnu Finna eins og búizt var við og Norðmenn unnu
Svía sem einnig var fyrir fram talið öruggt. Greinilegt
er nú að baráttan um efsta sætið stendur milli Norð-
manna, Dana, og íslendinga, og hver veit nema ís-
land takis að sigra Norðmenn í leiknum á morgun,
það verður undir áhorfendum komið. Þeir verða að
koma og hvetja stúlkumar.
ísland átti létt nieð Finna.
íslenzkir áhorfendur þurftu ekki
mikið að hvetja Iið sitt í gærkvoldi.
Til þess var leikurinn of elnstefnu-
kenndur frá upphafi til leiksloka.
Finnsku stúlkurnar voru mun veik-
upphafi tryggri forystu sem aldrei
var ógnað. Sigríður Sigurðardóttir
var ógnvaldur finnska Iiðsins og
sjö sinnum mátti finnski markvörð
urinn sækja skot frá henni í netlð.
Er Sigríður nú iangmarkhæst á
mótinu með 15 mörk. í háifieik
Q Svíar neðstir enn
sem komiö er ...
Svíar töpuðu í gærkvöldl báð-
um leikjum sfnum. Norðmenn áttu
þó ekki sem bezt með að sigra
sænsku stúlkurnar eins og lokatöl-
urnar 6:4 sýna. Sigurinn var þó
allan timann nokkuð tryggur að
manni fannst og greinilegt var að
norsku stúlkurnar voru betri aðil-
inn í leiknum.
í hálfleik var staðan aðeins 3:2
fyrir Noreg eftir jafnan Ieik, en
í seinni hálfleik náðu norsku stúlk-
Sfaðcin á
Norðurlanda-
mótinu
Staðan á Norðurlandamótinu
er nú þessi:
island 3 2 1 0 5 26:17
Noregur 2 2 0 0 4 22:6
Danmtírk 2 110 3 19:10
Finnland 2 0 0 2 0 7:29
Svfþjóö 3 0 0 3 0 10:22
Á morgun fara þessir leikir
fram:
Finnland—Danmörk.
Noregur—island.
Svíþjóð—Finnland.
Danmðrk-Noregur.
urnar 4:2 og 5:3 og unnu sem
fyrr segir með tveim mörkum, 6:4.
Sænsku stúlkurnar skoruðu 6:5 á
síðustu mínútunni en voru óheppn-
ar því skorað hafð! verið af línu,
og vltakast Svfanna fór í súginn
er stutt var til Ieiksloka.
Beztar i leiknum voru þær Jorun
Tveit og Sigrid Tröite ásamt Oddny
Bekk sem varði markið af prýði, cn
hjá sænsku stúlkunum bar mest
á Ingu Jacobson, Monlku Holm-
berg og Ullu Brltt Hultberg.
með 13:5, sem verður að teljast
sanngjarnt.
ísl. llðið lék ágætlega og féll-
ur betur saman en hinir bjartsýn-
ustu hefði þorað að vona eftir ekkl
iengri samæfingu. Sigriður Sigurð-
ardóttir var stjarna liðsins eins og
í fyrri leikjunum, en mjög mlkla
athygli vakti leikur Sigurlínu
Björgvinsdóttur, og Rut Guðmunds
dóttir varði mörg mjög góð skot.
Finnsku stúlkumar eiga margt
ólært í handknattleik, og eflaust
verða Ieikimir hér til að kenna
þeim. Beztar í finnska liðinu vom
Ethel Holm og Pia Viertonen.
Q Hraði, fjör og tækni Dan-
anna það bezta f mótlnu
til þessa.
Fyrstu mínútur leiksins milli
Svía og Dana var eins og oft vill
verða f leikjum þessara tveggja
þjóða og „Svfakomplexinn“ virtist
ætia að verða Dönum fjötur um
fót. Anlta Helgestedt f marki Svia
varði hvað eftir annað ótrúlega vel
og virtist engin Ieið til að skora
hjá henni. Anne Lise Refshauge
skoraði loks eftir miklð þjark 1:0
en Svfar jafna úr heldur ströngu
vítakasti, en nú loksins losnar lið
Dana úr læðingi og næstu sex
mörk em öll dönsk, og f hðlfleik
var staðan 7:1 þeim f vil.
Sfðari hálflelkurinn var ekki sfð-
ur vel leikinn hjá dönsku stúlkun-
um og leiknum lauk með 11:2.
Hraðinn, fjörið og tæknln með
boltann var það bezta sem nor-
rænu stúlkumar hafa sýnt vailar-
gestum til þessa. Ég spái þehn
AKRANES á toppiim /1. deild!
Unnu VAI með 3:1
Ungu mennimir hjá Akur-
nesingum vora í gaer ekki
sízt þeir sem stóðu að baki
sigri liðsins á heimavelli
yfir Val með 3:1. Tveir ný-
liðar vora nú reyndir og
vora báðir mjög góðir, en
hinn ungi Eyleifur Haf-
steinsson skoraði tvö mark
anna mjög skemmtilega.
Með sigripum tóku Skaga-
menn forystuna í 1. deild,
— þökk sé Þrótti sem gerði
svo óvænt strik í reikning-
inn með jafntefli gegn
Keflavík í síðustu viku.
Fyrri hálfleikur var með af-
brigðum rólegur á báða bóga og
lítið um tækifæri hjá liðunum.
Eyleifur skoraði 1:0 eftir 25 mín.
leik. Sveinn Teitsson sendi honum
boltann mjög skemmtilega inn fyr-
ir vítateiginn og Eyleifur var ekki
seinn að afgreiða í netið.
Sfðari hálfleikur var öllu skárri
og þá ekki sízt hjá Akurnesingum
sem fengu sín laun fyrir. Vals-
menn byrjuðu vel og skoruðu 1:1
sem hleypti miklu fjöri í leikinn.
Það var Bergur Guðnason sem
skoraði markið með góðu skoti af
stuttu færi eftir að Valsmenn
höfðu borað sig í gegnum vöm-
ina.
Á 10. mín spyrnti Helgi Dan.
vel frá markinu, langt fram fyrir
miðju, og þar tók Skúli Hákonar-
son við, framlengdi skemmtilega
og Eyleifur var nú skyndilega með
boltann á ágætu skotfæri rétt fyr-
ir utan markteig Vals, og eins og
í fyrra skiptið, var hann ekki
lengi að skora mark fyrir Jið sitt,
2:1.
Ungur nýliði á vinstrl kanti
skoraði loks 3:1 á 17. min. sfðari
hálfleiks. Guðjón Guðmundsson
heitir sá piltur og skoraði með á-
gætu skoti og óvæntu, utarlega í
vftateignum en boltinn fór undir
Gylfa markvörð, sem var ekki við-
búinn þessu hörkuskoti.
Beztu leikmenn Akraness voru
Eyleifur, Sveinn Teitsson og Jón
Leósson, en Skúli, Guðjón og Pét-
ur, hinn nýi bakvörður, voru allir
góðir og liðið í heild átti sinn bezta
leik á sumrinu. Af Valsmönnum
voru beztir Hermann Gunnarsson,
Björn JúIIusson og Gylfi Hjálm-
arsson markvörður.
Magnús Pétursson dæmdi og
fórst það mjög vel.