Vísir - 17.09.1964, Síða 5
V í SIR . Fimmti dagur 17. september 1964.
5
litlö:
utlönd í morgun
35.. inorgun
morgún
ur stöðvað för Krúsjeffs
Fyrir nokkru var tilraun gerð
til að myrða einn af starfsmönn-
um þýzka sendiráðsins í
Moskvu. Maður þessi heitir
Horst Schwirkmann og var hann
staddur við Zagorsk-klaustur í
Moskvu, sem er söguleg bygg-
ing, er ferðamenn hafa gaman
af að skoða. Var þá ráðizt að
honum og skotið að honum lít-
illi eiturgassprengju. Það reynd-
ist vera sinnepsgas og var mað-
urinn hætt kominn af því. Hann
var þó fluttur á sjúkrahús í
Moskvu og þaðan hefur hann nú
verið fluttur til Vestur-Þýzka-
lands og liggur hann í sjúkra-
húsi í Bonn. Eru batahorfur nú
orðnar meiri en áður.
Þýzka stjórnin hefur mótmælt
þessu afbroti og krafizt refsing-
ar yfir hinum seku. Enn er sára-
lítið vitað um þennan einkenni-
iega atburð, en talið er, að það
verði mjög komið undir svari
rússnesku stjórnarinnar, hvort
getur orðið af heimsóknum
Krúsjeffs til Vestur-Þýzkalands
eins og ráðgert hafði verið.
Talið er hugsanlegt, að tilræð-
ismennirnir séu gamlir Stalín-
istar, sem hafa ætlað sér að
spilla fyrir því að Krúsjeff gæti
komizt í heimsókn til Vestur-
Þýzkalands.
Konur á kaþóSska
kirkjuþinginu
Kirkjuþing kaþólsku kirkjunnar er enn setzt á rökstóla. Hófst fram-
haldsfundur á mánudag, en upphaflega var kirkjuþing þetta sett 1962
af Jóhannesi páfa 23. Margt er ti! nýlundu á þessu þingi, m. a. það, að
konur hafa nú í fyrsta skipti fengið sæti á kaþólsku kirkjuþingi. Hér
sjást fjórar af konunum, sem eru í hópi þingfulltrúa, eru þær fulltrúar
klausturreglna. Þær eru þó aðeins áheyrnarfulltrúar að sinni, mega j
ekki taka til máls.
Umræður eru hafnar á opin-
berum vettvangi í Sovétríkjun-
‘um að taka upp nýja stefnu í
verzlunar og viðskiptamálum
Sovétríkjanna. Þessi nýja stefna
sem margir hneigjast að getur
kallazt fráhvarf frá grundvall-
arreglum marxismans. Hún er
FLUGVOLLUR ASAL THOLMA OG
BRÚ YFSR EYRARSUND
Forstjóri SAS flugfélagsins í
Danmörku Emil Damm hefur nú
lýst því yfir, að félagið óski þess
að aðalflugvöllur Kaupmannahafn-
ar verði í náinni framtíð fluttur frá
Kastrup á Amager-eyju yfir á Salt-
SKIPAFKÉTTIR
Ms. Herðulireið
fer austur um land í hringferð
22. þ.m. Vörumóttaka á fimmtu-
dag og föstudag til Hornafjarðar,
Djúpavogs, Breiðdaisvikur, Stöðv-
arfjarðar, Fáskrúðsfjarðar, Revðar
fiarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar,
Mjóafjarðar, Seyðisfjarðar, Borgar
fjarðar, Vopnafjarðar Bakkafjarð-
ar, Þórshafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir á mánudag..
Höfum kuuppusiu
að 1-2 herb. íbúð sem næst Mið-
bænum. Útborgun og greiðsluskil-
málar eftir samkomulagi. Má vera
' gömlu húsi. Ekki í k.iallara.
Fasteignasala Jóns Ingimarssonar, 1
Hafnarstræti 4
hólmann í miðju Eyrarsundi. Yfir-
iýsing hans styrkir rnjög þá hug-
mynd að gera brú og bílágöng yfir
Eyrarsund milli Kaupmannahafnar
og Málmeyjar
Með flugvelli á Salthólma yrði
einnig leyst flugvallarvandamál
Málmeyjar stærstu borgar Suður-
Svíþjóðar og allar þessar áætlanir
myndu sameiginlega stuðla að
myndun mikillar sameiginlegrar að
albyggðar Danmerkur og Svíþjóðar
sitt hvorum megin við sundið.
Hugmyndin er sú, að jarðgöng
fyrir bifreiða og járnbrautaumferð
verði lögð frá Amager til Salthólm-
ans. En milli Salthólmans og Sví-
þjóðarstrandar yrði lögð brú. Með
slíkri samgönguæð yflr Eyrarsund
myndi stórkostleg bílaumferð verða
yfir sundið Þetta yrði ferðaleið
Norðmanna og Svía til Danmerkur
og Suður-Evrópu og mætti búast
við umferð margra milljóna bif-
reiða á ári. Jafnframt myndi brúin
opna erlendum ferðamönnum að-
| gang að Skandinaviu.
Er búizt við að brúin myndi
þannig auka stórlega ferðamanna-
straum og alls konar önnur við-
skipti f borgunum beggja megin
sundsins og er í tillögum þessum
jafnvel farið að kalla hina sam-
eiginlegu byggð sitt hvorum megin
sundsins „örestað" eða Eyrarborg.
Nú falla óskir SAS mjög saman
við þessar áætlanir. Með þeirri
stórfelldu aukningu, sem orðið hef-
ur á flugsamgöngum við Kastrup,
er flugvöllurinn óðum að verða of
lítill og þrengir að honum með
byggð á Amager. Lausnin á þessu
yrði að byggja nýjan risavaxinn
flugvöll á Salthólmanum. Þar væri
hægt að gera einn stærsta og full-
komnasta flugvöll heims.
í því fólgin, að gróðasjónarmið-
ið verði látið koma sterkar fram
f viðskiptum Rússlands.
Sá sem vakti umræðurnar upp
-3> ■ að þessu sinni er éinn af for-
ustumönnum rússneskra hag-
fræðinga, Vadim Trapesnikov,
sem skrifaði grein í Pravda og
benti á það að gróðasjónarmið-
ið væri aflvaki hinna stærstu
framkvæmda. Lagði hann til, að
verðlag á vörum færi eftir fram
leiðslukostnaði, en væri ekki
ákveðið út í loftið eftir opinber-
um áætlunum. Jafnframt yrði
komið á eðlilegum álagningar-
reglum bæði í framleiðslu og
verzlun.
Síðan hafa talsverðar umræð-
ur spunnizt af þessu í blöðun-
um. Nú síðast fyrir þremur dög
um, þegar annar af fremstu hag
fræðingum Rússa, Sergei Afas-
jev, tók undir þessar skoðanir
í annarri grein í Pravda. Mörg
bréf hefur blaðið einnig birt frá
lesendum og eru þeir flestir
þeirrar skoðunar, að gróðasjón-
armiðið verði að koma skýrar
fram i Rússlandi ef vel á að
vera.
Uppdrátturinn sýnir Iegu Salthólmans í Eyrarsundi mitt í milli Kaupmannahafnar og Málmeyjar og fyrirhugaða samgönguæð yfir sundið.