Vísir - 04.11.1964, Síða 1

Vísir - 04.11.1964, Síða 1
Mesti sigur í bandarískum forsetakosningum: Johnson hafði fenaið 486 kiörmem kl. 11 en Goldwater 47 Lyndon B. Johnson Bandaríkjaforseti vann hinn glæsilegasta kosningasigur í forsetakosningunum í gær — sigraði með meiri yfirburðum yfir keppinaut en dæmi eru til. — Allt frá byrjun talningar at- kvæða sannfærðust menn um það betur og betur, að hann yrði forseti landsins áfram —, hann vann hvem sigurinn af öðrum í ríkjum, þar sem repu- blikanar hafa átt mest fylgi, svo sem í Nýja Eng- landi og Miðvesturríkjunum, og þegar kl. 5 í morg- un var komið í ljós, að hann hafði fylgi yfir 100 kjörmanna umfram þá 270 sem forsetaefni þarf. Þá var tryggt orðið, að demokratar myndu auka fylgi sitt í báðum þingdeildum. Og kl. 6 var sagt, að þeir væru búnir að fá meira en helming þingsæta full- trúadeildarinnar, en í henni eiga sæti 435 þingmenn, en af 35 þingmönnum, sem kosnir eru til öldunga- deildarinnar vom þeir búnir að fá yfir 20. Var sagt í fréttaauka frá London í nótt, að Johnson mundi fá sterkari aðstöðu til að koma málum fram á næsta þjóðþingi, hinu 89. en nú, á hinu 88. Hið nýja þing kemur saman í janúar og þá hefst nýtt forsetatímabil. Þetta er í fyrsta sinn, sem Johnson er kjörinn forseti, en hann var sem kunnugt er yara- forseti, í forsetgtj^ Kennedys, og tók við af honSftf eftir að hann var myrtur. Johnson hefir rétt til þess að bjóða s'ig fram á ný að loknu næsta for- setatímabili og sá möguleiki er því fyrir hendi, haldi hann hfilsu, að hann verði forseti í 8 <ár. / Demokrötum hefir yfirleitt gengið vel I rfkisstjóra-, dóm- ara- og öðrum embættismanna- kosningum. Robert Kennedy fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem sagði af sér til þess að bjóða sig fram í New York ríki til setu í öldungadeíld þjóðþingsins sigr Framh. á bls. 5. VISIR 54. árg. — Miðvikudagur 4. nóvember 1964. — 243. tbl. Myndina tók ljósmyndari Vísis í morgun, um leið og slökkviliðið kom á staðinn um klukkan sex í morgun. Slökkviliðsmenn byrjuðu á því að brjóta rúðu f aðalinn- ganginum og síðan voru slöngumar tengdar upp stig- ana. MILLJONA TJÓN f ELDS- VOÐA ÍMORGUN Nær allt slökvilið borgar Reykjavíkurhöfn í morgun. innar barðist við eld í vöru Allar líkur benda til þess, skemmu Sambandsins við að milljóna tjón hafi orðið í brunanum, af eldi, reyk og vatni, er komst svo að segja um allt húsið. Vöru-§ geymslan er ein aðal geymsla Sambandsins og nokkurs konar birgðastöð fyrir kaupfélögin og fyrir tæki þess. Það var rétt fyrir kl. 6 í morg un, er biaðam. Vísis er áttu Ieið um hafnarbakkann, tóku eftir því, að reyk lagði frá þakskeggi vörugeymslunnar. Var slökkvi- liðinu þegar gert aðvart og er það kom á staðinn, var mikill eldur í vörugeymslunni. Vörugeymslan, sem er nokk- urs konar aðalbirgðastöð Sam- bandsins fyrir kaupfélögin og fyrirtæki þess, er mikil bygging, 6 hæðir og stendur við Tryggva- götu, Grófin og hafnarbakkann. Eldurinn virðist hafa komið upp á 5 hæðinni, því þar urðu brunaskemmdir hvað mestar. Á 5 hæð eru búsáhöld og leikföng. Undanfarna daga hefur m. a. ver ið unnið að því, að flytja mikið magn af leikföngum frá Reykja lundi til geymslu á þessari hæð. Á hæðinni fyrir ofan, eða efstu hæðinni urðu einnig miklar skemmdir, en þar er mikið af Frh. á bls. 6 Johnson forseti Bandaríkjanna og Humphrey varaforseti.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.