Vísir - 04.11.1964, Side 3
V í S I R . Miðvikudagur 4. nóvember 1964 3
myndsjá
vás
.
M '>
■ •
STYTTA EINARS BENEDIKTSSON-
AR AFHJÚPUÐ Á KLAMBRA TÚNI
Á aldarafmæli Einars skálds
Benediktssonar laugardaginn 31.
okt. s.l. var stytta af honum,
sem Ásmundur myndhöggvari
Sveinsson hafði gert, afhjúpuð
í viðurvist fjölmennis.
Það var félagið Bragi, sem
nokkrir aðdáendur Einars skálds
Benediktssonar stofnuðu á sín-
um tíma, er lét gera styttuna á
eigin kostnað og afhentu hana
Reykjavíkurborg að gjöf. Fór af-
hendingin fram við hátíðlega at
höfn á Klambratúni kl. 2 e. h.
Úrhellisrigning hafði verið all
an laugardagsmorguninn, en
stytti upp skömmu áður en at-
SIS
Magnús Víglundsson í ræðustól
höfnin hófst og safnaðist þá
saman allmikill hópur fólks við
styttuna á Klambratúni, Meðal
viðstaddra voru forseti Islands,
herra Ásgeir Ásgeirsson, ýmsir
ráðherrar, borgarstjórinn í Rvík,
listamaðurinn, sem gert hafði
styttuna, ýmsir menntamenn og
listamenn þjóðarinnar og fjöl-
margt annarra gesta.
Athöfnin hófst með því að
Lúðrasveit Reykjavíkur lék, en
að því búnu tók formaður fé-
lagsins Braga, Magnús Víglunds-
son ræðismaður til máls og hélt
skörulega ræðu. I ræðu sinni gat
Magnús þess mikla hlutverks,
sem Einar Benediktsson hefði
gegnt meðal þjóðar sinnar. Hann
hafi verið spámaður hennar og
farið sjálfur óruddar brautir í
orði og verki. Hann hafi verið
stórbrotnasti andi sinnar sam-
tíðar og hafi reist sér og þjóð-
inni allri óbrotinn minnisvarða
með einstæðum kvæðum, sem
hann orti. Meiri tign og reisn
hafi verið yfir Ijóðum hans held
ur en nokkurs annars samtíma-
skálds.
Þá gat ræðumaður hlutverks
félagsins Braga í sambandi við
minningu Einars Benediktsson-
ar og m. a. þess, að ákveðið
hafi verið að stofna til nýs tíma-
rits, sem fyrst og fremst yrði til-
einkað æskunni í landinu, en
helgað minningu skáldjöfursins.
í öðru lagi að ákveðið væri að
veita árleg verðlaun fyrir beztu
ritgerðir æskufólks um bók-
menntaleg efni. Kvaðst ræðu-
maður óska þess að æskan
minntist Einars Benediktssonar
með því að koma árlega saman
fyrir framan minnisvarða hans
á afmælisdegi hans 31. okt.
Að lokum þakkaði ræðumaður
borgarstjóra Reykjavíkur og öðr
um forráðamönnum borgarinnar
fyrir áhuga þeirra á málinu og
fyrir að taka sérstakt tillit til
styttu Einars Benediktssonar við
fyrirhugaða skipulagningu
Klambratúns Listamanninum
þakkaði ræðumaður fyrir stór-
brotið Iistaverk, svo og öðrum
aðilum fyrir aðstoð á ýmsa lund.
Að þvf loknu kvaðst ræðumaður
afhenda styttuna Reykjavíkur-
borg til ævarandi eignar og um-
sjár.
Geir Hallgrfmsson borgar-
stjóri veitti gjöfinni móttöku
með stuttri ræðu, þakkaði bæði
félaginu Braga gjöfina og Ás-
mundi myndhöggvara Sveins-
syni fyrir listaverkið. Kvað hann
Reykvíkinga mega það mikils að
eiga styttu þessa skáldjöfurs á
listatúni borgarinnar. Að þvf
búnu bað hann sonardóttur
skáldsins, frú Þóru Benedikts-
son að afhjúpa styttuna.
Síðastur talaði Tómas Guð-
mundsson skáld og hélt ágæta
og skörulega ræðu um. Einar
Benediktsson og skáldskap hans.
Hann taldi Einar vera mesta
skáld sinnar samtíðar á íslandi
og enginn hafi skipað íslandi
virðulegri sess við háborð ver-
aldar en Einar. — Tómas
kvað Egil Skallagrímsson og
Einar Benediktsson um margt
vera líkust skáld og um leið
mestu skáldjöfra hver á sfnum
tíma. Hvorugur þeirra hafi þó
myndað skóla með skáldskap sín
um, enda engum meðalmennum
hent að líkja eftir þeim eða
reyna að feta f fótspor þeirra.
Athöfninni lauk með einsöng
Guðmundar Jónssonar óperu-
söngvara við undirleik Lúðra-
sveitar Reykjavíkur.
Forseti íslands herra, Ásgeir Ásgeirsson talar við Ásmund Sveinsson myndhöggvara.
STÓRSL YS ÚM S.L HELGI
Á KEFLA VÍKÚRVEGI
Geir Hallgrímsson borgarstjóri þakkar gjöfina f. h. Reykjavfkurborgar.
Mjög alvarlegt umferðarslys
varð á þjóðveginum suður á Vatns
leysuströnd fyrir sunnan Vatns-
leysu á sunnudagskvöldið var.
Slysið varð við árekstur tveggja
Reykjavfkurbifreiða, R-16500, sem
er 5 manna fólksbíll af gerðinni
Consul Cortina og R-5724, sem er
Bedford vörubíll.
Að þvf er lögreglan í Hafnar-
firði tjáði Vísj barst henni tilkynn
ing um áreksturinn um hálf ellefu
leytið á sunnudagskvöldið. Sagði
lögreglan í gærkveldi að rann-
sókn málsins væri enn á frum-
stigi. en svo virtist sem fólks-
bíilinn hafi verið á mikilli ferð, en
geigað á veginum í sama mund og
bílarnir mættust og þess vegna
rekizt á vörubílinn.
í vörubílnum voru tveir menn
og sluppu báðir við meiðsli, en í
fólksbílnum voru 5 farþegar auk
ökumanns og slösuðust allir svo
mjög að flytja varð allt fólkið,
sex talsins, í sjúkrahús, þar sem
það liggur ennþá. Þrennt var flutt
f sjúkrahúsið f Keflavík, tvennt í
Landsspítalann og einn í Landa-
kotsspítala. A.m.k. sumt af þessu
fólki er stórslasað
Þeir sem slösuðust voru Þorleif-
ur Valdimarsson Óðinsgötu 16B
Rej'kjavfk, en hann ók bifreiðinni,
María Kristín dóttir hans, Sigurð
ur Einarsson Bergi við Keflavík,
Magnús Magnússon Hringbraut 61
Keflavík, Anna Ólafsdóttir Mosa-
gerði 5 Hafnarfirði, Fjóla Friðfinns
dóttir Hellisgerði 15 Hafnarfirði
1 Reykjavfk hafa verið talsverð
brögð að slysum undanfarna
daga. Mestu slysin urðu undir lok
sl. viku, eöa föstudag og laugar-
dag. Á föstudaginn slasaðist rosk-
inn maður, Úlfar Bergsson, er
hann varð fyrir bíl á Hringbraut,
móts við Bjarkargötu. Hann var
fluttur í Landakotsspítala.
Á laugardaginn urðu tvö meiri-
háttar umferðarslys. Annað á Bú-
staðavegi er 9 ára telpa varð fyrir
bifreið og slasaðist. Hitt slysið
varð á mótum Grettisgötu og Vita
stígs, en þar varð piltur á skelli-
nöðru fyrir bifreið. Pilturinn höf-
uðkúpubrotnaði og var fluttur í
Landsspftalann.