Vísir - 07.11.1964, Blaðsíða 5
V í S i R . Laugardagur 7. nóvember 1964.
2
S
60 tonn af oiíu
brunnu í miklu báli
á Keflav.flugvelli
Tiónið í vöruskemmu Sölunefndur-
innnr tnlið fremur lítið
Ljósmynd tekin brunanóttina úr nokkurri fjarlægð, eidbjarminn og í nærsýn einn olíugeymirinn,
sem stóð á næstu grösum.
Rústir skemmunnar, sem olíubirgðimar voru geymdar L
Hiuti bílanna. r,em geymdir voru í skemniunum. Þeir eru sótugir að ofan, lítt skemmdir að neðan.
HEILDARÚTGÁFA
VERKA STEINS
Vísir birtir hér nokkrar mynd
ir af stórbruna sem varð á Kefla
víkurflugvelli nú á dögunum
þegar prenta verkfallið stóð
yfir og fylgja hér nokkrar upp-
lýsingar, sem fengnar eru hjá
siökkviliðinu þar suður frá um
brunann. Ekki mun tjón þó hafa
orðið eins mikið af þessu, sem
ætla hefði mátt
Það var um kl. 2 aðfaranótt
28. október, sem slökkviliðinu
á Keflavíkurflugvelli var gert
viðvart um það, að eldur væri
uppi I gömlum birgðaskemmum
sem standa innan girðingar vall
arins, en rétt niður undir Ytri-
Njarðvík. Hafði hervörður sem
þar var á gang'i orðið eldsins
var.
Þegar komið var á staðinn
virtist Ijóst, að eldurinn hefði
verið búinn að loga þar um
sinn og hófust þegar slökkvi-
störf, en þetta reyndist með erf-
iðari eldsvoðum. Var það ekki
fyrr en um 7-leytið um morg-
uninn, sem búið var að ráða við
eldinn og ekki fyrr en um kl.
4 síðdegis sem slökkViliðið gat
farið á braut af eldstað. Þennan
tíma var dælt á eldinn um 315
þúsund gallonum af vatni, eða
um 1,2 milljónum lítra. Voru
notaðar við þetta þrjár dælur.
Birgðaskemmur þessar eru
fimm skálar eða braggar, sem
Iiggja hlið við hlið og er sam-
gangur milli þeirra. Notaði Sölu
nefnd setuliðseigna þá til að
gej . a ýmiss konar varning. Til
dæmis taldist slökkviliðsmönn-
um svo til að þar hefðu verið
f skálanum 48 vörubílar og önn
ur flutningatæki eða vélar á
hjólum. En annars ægði þar
saman alls kyns vörutegund-
im og má m. a. nefna mikið
magn af einföldum símavír.
Það var mjög misjafnt hve
eldurinn lék vöruskemmurnar
illa. Verst fór skemma, þar sem
geymd munu hafa verið um 60
tonn af smurningsolíum, bæði
á tunnum og brúsum. Eldur
komst í olíuna og brann hún
öll og varð af því geysilegt bál.
í þessum olíubruna urðu nokkr-
ar sprengingar, þar sem eld-
tungurnar loguðu hátt upp.
Gerði það slökkv'istarfið all-
erfitt. Þess má og geta, að í
grennd við birgðaskemmurnar
eða - um 200 m. fjarlægð eru
stærri olíugeymar, sem hætta
hefði stafað frá ef vindstaða
hefði verið slík. En nú f þessu
tilfell'i var vindstaðan þannig,
að hætta var ekki á ferðum frá
því.
A .ar skemmur skemmdust
minna, þó er talið að ein þeirra
sé það illa farin, að örðugt
verði að gera við hana. í hin-
um skemmunum færðist eldur-
inn aðallega til f rjáfrunum og
var það t. d. athyglisvert, að
flestir bflarnir sem þar voru
geymdir eru með alveg ó-
skemmda hjólbarða og loftið í
þe'im, en sótugir að ofanverðu
og með brotnar og jafnvel
bráðnaðar rúður.
Bílarnir, sem þarna voru
geymdir, voru gamlir og aflóga
bílar, margir þeirra vélarlaus
ræksni og var fyrirhugað að
rífa þá og selja hluti úr þeim
sem varahluti. Vegna þessa er
verðmæt'ið sem skemmdist í
brunanum álitið tiltölulega miög
lítils virði eða um 400—500 þús
und krónur þegar allt er talið,
enda hægt að nota ýmsa hluti
úr bílunum eftir sem áður; Má
þykja gott að tjónið skyldi ekki
verða meira jafn gífurlegt og
bál þetta var um tíma.
Heildarútgáfa af verkum Steins
Steinarr, 370 bls. að stærð, er
komin út í bókinni eru allar sex
Ijóðabækur skáldsins er út hafa
komið, Rauður Ioginn brann, Ljóð,
Spor í sandi, Ferð án fyrirheits,
Tfminn og vatnið og Tindátarnir.
Enn fremur eru í bókinni 40 kvæði,
sem ekki hafa áður komið út f
bókum skáldsins, þar á meðal hið
þjóðfræga kvæði, Söngur lýðræðis-
flokkanna á Þingvöllum 17. júní
1944, sem mestri hneykslun olli á
sínum tíma, þó aðeins fáir hefðu
þá lesið það í heild. Enn fremur
eru i bókinni heilar rímur, 37 er-
indi, Hlíðar-Jóns rímur, sem aldrei
áður hafa komizt á prent. Þá er
f þessari bók það sem máli var
talið skipta, og vitað var um, af
því er eftir Ste'in liggur í óbundnu
máli, 35 greinar, bréf og ræður,
og loks eru 7 samtöl við Stein, er
ýmsir menn hafa átt og á ýmsum
tfmum.
Kristján Karlsson bókmennta-
fræðingur hefur annazt útgáfuna
og ritar hann allýtarlega grein um
skáldið, manninn og verk hans,
ásamt formála. Þeir Steinn og
Kristján voru nákunnugir um
margra ára skeið.
Þá komu í' fyrradag einnig út
hjá Helgafelli þrjár aðrar bækur,
„Ferð og förunautar", 30 greinar,
aðallega ferðaþætth og mannlýs-
ingar, eftir dr. Einar ÓI. Sveinsson,
prófessor, „Og enn spretta lauk-
ar“, ný skáldsaga eftir Ragnheiði
Jónsdóttur. Þá er ein bók, ætluð
unglingum, Blindi tónsnillingurinn
eft'ir Wladimir Korolenko f þýð-
ingu Guðmundar heitins skóla-
skálds.
Ódýr —
Framh. af bls. 8.
þvf ferð er hafin, en hamli veik
indi ferð til baka, framlengist
gild'istíminn. Einnig ef ferð sem
viðkomandi hefur ætlað með til
baka er fullbókuð. Þá framleng-
ist gildistfmi farmiðanna til
næstu áætlunarferðar.
Fjölskyldufargjöld'in gilda á
öllum flugleiðum Flugfélags ís-
lands innanlands.
Sem dæmi um hve miklu af-
slátturinn nemur má taka fjög-
urra pianna fjölskyldu sem ferð
ast frá Akureyri til Reykjavfkur
og aftur til baka. Samkvæmt
hinum nýju fjölskyldufargjöld-
um kostar ferðin aðe'ins kr.
3.395,00 f stað kr. 5.432,00 áður.